Morgunblaðið - 13.09.2021, Page 27

Morgunblaðið - 13.09.2021, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2021 FÓTBOLTINN Bjarni Helgaon bjarnih@mbl.is Tindastóll er fallinn úr úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max- deildinni, eftir tap gegn Stjörnunni á Sauðárkróksvelli á Sauðárkróki í lokaumferð deildarinnar í gær. Leikmenn Tindastóls byrjuðu leikinn vel og komust yfir snemma leiks en Garðbæingar voru fljótir að jafna metin. Stjarnan skoraði svo sigurmark leiksins á lokamínútunum og gerði þannig út um vonir Tindastóls að halda sæti sínu í deildinni en Sauð- krækingar hefðu þurft að vinna stórsigur í lokaumferðinni og treysta á að Keflavík myndi tapa gegn Þór/KA á Akureyri á sama tíma. „Stólastelpur byrjuðu seinni hálfleik líkt og þann fyrri af krafti en það vantaði þó alltaf seinasta smiðshöggið í sóknum Tindastóls,“ skrifaði Sæþór Már Hinriksson meðal annars í umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is. Tindastóll lýkur keppni í níunda og næstneðsta sæti deildarinnar með 14 stig en Stjarnan endar í fjórða sætinu með 27 stig eftir sigur gærdagsins. _ Garðbæingurinn Elín Helga Ingadóttir skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild en hún er 21 árs gömul og á að baki 23 leiki í úrvalsdeildinni. Stórsigur í Kópavogi Breiðablik fagnaði öðru sæti deildarinnar með stæl en liðið vann stórsigur gegn Þrótti úr Reykjavík á Kópavogsvelli. Leiknum lauk með 6:1-sigri Breiðabliks en Þróttarar, sem voru öruggir með þriðja sætið, hefðu með sigri getað brúað forskot Breiða- bliks í eitt stig með sigri. „Í seinni hálfleik héldu liðin áfram að berjast hvort við annað og veðrið auðvitað. Leikmenn Breiðabliks voru þó mun sprækari og gekk betur að spila boltanum sín á milli,“ skrif- aði Þór Bæring Ólafsson meðal ann- ars í umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is. Breiðablik lýkur keppni með 36 stig en Þróttarar með 29 stig. _ Agla María Albertsdóttir skor- aði sitt tólfta deildarmark í sumar gegn Þrótti og endar sem næst- markahæsti leikmaður deildarinnar á eftir Brennu Lovera sem skoraði 13 mörk. Nýtt met á Akureyri Þá gerðu Þór/KA og Keflavík markalaust jafntefli á SaltPay- vellinum á Akureyri en stigið gull- tryggði sæti Kelfavíkur í efstu deild að ári. „Norðankonur mega una nokkuð sáttar við sitt eftir sumarið en gengi liðsins var ekki gott í byrjun móts en liðið þéttist með hverjum leik og inn- koma Shainu Ashouri í lok júlí breytti heilmiklu fyrir sóknarleik liðsins,“ skrifaði Einar Sigtryggsson meðal annars í umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is. Þór/KA endaði með 22 stig í sjötta sætinu en Keflavík í því áttunda með 18 stig. _ Með úrslitum gærdagsins setti Þór/KA nýtt met í efstu deild yfir fjölda jafntefla í deildinni á einu tímabili. Alls gerðu Akureyringar sjö jafntefli í sumar, þá vann liðið fimm leiki, tapaði sex og endaði með markatöluna 18:23. Tindastóll fylgdi Fylki niður um deild Ljósmynd/Jóhann Helgi Sigmarsson Fyrirliði Sauðkrækingurinn Bryndís Rut Haraldsdóttir skallar frá marki á Sauðárkróksvelli en hún og samherjar hennar kvöddu efstu deild í gær. - Breiðablik fagnaði öðru sæti deild- arinnar með stórsigri gegn Þrótturum TINDASTÓLL – STJARNAN 1:2 1:0 Hugrún Pálsdóttir 4. 1:1 Elín Helga Ingadóttir 8. 1:2 Arna Dís Arnþórsdóttir 84. M Amber Michel (Tindastól) Kristrún María Magnúsd. (Tindastól) Aldís Maróa Jóhannsdóttir (Tindastól) Bryndís Rut Haraldsdóttir (Tindastól) Halla Margrét Hinriksd. (Stjörnunni) Hildigunnur Benediktsd. (Stjörnunni) Betsy Hasset (Stjörnunni) Elín Helga Ingadóttir (Stjörnunni) Arna Dís Arnþórsdóttir (Stjörnunni) Dómari: Birgir Þór Þrastarson – 8. Áhorfendur: 150. BREIÐABLIK – ÞRÓTTUR 6:1 1:0 Hafrún Rakel Halldórsdóttir 16. 2:0 Tiffany McCarthy 45. 3:0 Vigdís Lilja Kristjánsdóttir 53. 4:0 Birta Georgsdóttir 66. 4:1 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 74. 5:1 Agla María Albertsdóttir 82 6:1 Hildur Antonsdóttir 89. M Hafrún Rakel Halldórsd. (Breiðabliki) Agla María Albertsdóttir (Breiðabliki) Birta Georgsdóttir (Breiðabliki) Hildur Antonsdóttir (Breiðabliki) Vigdís Lilja Kristjánsd. (Breiðabliki) Ásta Eir Árnadóttir ((Breiðabliki) Íris Dögg Gunnarsdóttir (Þrótti) Katherine Cousins (Þrótti) Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson – 7. Áhorfendur: 218. ÞÓR/KA – KEFLAVÍK 0:0 MM Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA) Tiffany Sornpao (Keflavík) M Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA) Shaina Ashouri (Þór/KA) Natasha Anasi (Keflavík) Tina Marolt (Keflavík) Dómari: Sveinn Arnarsson - 9. Áhorfendur: 120. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/ sport/fotbolti. Knattspyrna Pepsi Max-deild karla: Samsung-völlur: Stjarnan – FH ......... 19.15 Handknattleikur Coca-Cola bikar-karla, 8-liða úrslit: TM-höllin: Stjarnan – KA......................... 18 Austurberg: ÍR – Fram ....................... 19.30 Dalhús: Fjölnir – Afturelding ............. 19.30 Origo-höllin: Valur – FH...................... 20.30 Í KVÖLD! VÍS-bikar karla, 16-liða úrslit: Stjarnan – Grindavík............................ 92:81 Njarðvík – Haukar ............................... 93:61 Sindri – ÍR............................................. 66:91 Tindastóll – Keflavík ............................ 84:67 _ Njarðvík mætir ÍR í undanúrslitum í Njarðvík á meðan Stjarnan tekur á móti Tindastól í Garðabæ en leikirnir fara fram 16. september. VÍS-bikar kvenna, 16-liða úrslit: Keflavík – Haukar ................................ 59:87 Stjarnan – Valur ................................... 53:79 ÍR – Njarðvík........................................ 39:84 _ Valur mætir Haukum í undanúrslitum á Hlíðarenda á meðan Fjölnir tekur á móti Njarðvík í Dalhúsum en leikirnir fara fram 15. september. Spánn Meistarabikarinn, undanúrslit: Barcelona – Valencia .......................... 87:68 - Martin Hermannsson skoraði 11 stig og tók þrjú fráköst fyrir Valencia á 24 mín- útum. Ítalía Deildabikarinn: Reggiana – Bologna............................ 78:66 - Jón Axel Guðmundsson skoraði 5 stig, tók fimm fráköst og gaf fimm stoðsend- ingar fyrir Bologna. >73G,&:=/D Coca-Cola-bikar kvenna, 16-liða úrslit: Fjölnir/Fylkir – KA/Þór ...................... 26:36 _ KA/Þór mætir Stjörnunni í fjórðungsúr- slitum 14. september í Garðabæ. Þýskaland RN Löwen - Magdeburg ..................... 25:28 - Ýmir Örn Gíslason skoraði ekki fyrir Lö- wen. - Ómar Ingi Magnússon skoraði fjögur mörk fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði ekki. Göppingen - N-Lübbecke ................... 27:24 - Janus Daði Smárason skoraði tvö mörk fyrir Göppingen. Wetzlar - Lemgo .................................. 27:25 - Bjarki Már Elísson skoraði 8 mörk fyrir Lemgo. Melsungen - Kiel .................................. 26:33 - Elvar Örn Jónsson skoraði 5 mörk fyrir Melsungen, Arnar Freyr Arnarsson tvö og Alexander Petersson eitt. Guðmundur Þ. Guðmundsson er þjálfari liðsins. Bergischer - Hamburg........................ 31:26 - Arnór Þór Gunnarsson skoraði 6 mörk fyrir Bergischer. Balingen - Minden ............................... 27:21 - Daníel Þór Ingason skoraði ekki fyrir Balingen og Oddur Gretarsson var ekki í hóp. Buxtehuder - Sachsen Zwickau......... 32:25 - Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði 6 mörk fyrir Sachsen Zwickau. B-deild: Aue - Essen........................................... 28:32 - Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði þrjú mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson varði 5 skot í marki liðsins. Danmörk GOG - Bjerringbro/Silkeborg ........... 31:30 - Viktor Gísli Hallgrímsson varði fjögur skot í marki GOG. Nordsjælland - Aalborg...................... 26:33 - Aron Pálmarsson lék ekki með Aalborg vegna meiðsla. Arnór Atlason er aðstoðar- þjálfari liðsins. Frakkland Aix - Limoges ....................................... 31:29 - Kristján Örn Kristjánsson skoraði 5 mörk fyrir Aix. Montpellier - St. Raphaël ................... 29:29 - Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði fjögur mörk fyrir Montpellier. Svíþjóð Skövde - Guif........................................ 32:21 - Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 6 mörk fyrir Skövde. - Aron Dagur Pálsson skoraði eitt mörk fyrir Guif og Daníel Freyr Ágústsson varði 8 skot í marki liðsins. Sviss Basel - Kadetten .................................. 22:28 - Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten. Austurríki Alpla Hard - Voslauer......................... 31:14 - Hannes Jón Jónsson þjálfar Alpla Hard. %$.62)0-# um og þá hefur hann einnig lagt upp fjögur mörk fyrir liðsfélaga sína það sem af er tímabili. Sand- efjord er í tíunda sæti deildarinnar með 24 stig og hefur Viðar Ari verið lykilmaður í liðinu á tímabilinu. _ Glódís Perla Viggósdóttir, lands- liðskona í knattspyrnu, var á skot- skónum fyrir Þýskalandsmeistara Bayern München þegar liðið vann 4:0-heimasigur gegn Freiburg í þýsku 1. deildinni á laugardag. Gló- dís lék allan leikinn í hjarta varn- arinnar en þetta var hennar fyrsti byrjunarliðsleikur fyrir félagið eftir að hafa gengið til liðs við Bayern München frá Rosengård í júlí. Karól- ína Lea Vilhjálmsdóttir sat allan tím- ann á varamannabekk Bayern Münc- hen en liðið er með 9 stig eða fullt hús stiga á toppi deildarinnar eftir fyrstu þrjár umferðirnar. _ Bandaríski skotbakvörðurinn Brian Halums er genginn til liðs við Kefla- vík og mun leika með liðinu á kom- andi keppnistímabili í úrvalsdeild karla í körfuknattleik. Brian, sem er 23 ára gamall, kemur til félagsins frá Al-Fateh í Sádi-Arabíu þar sem hann lék á síðustu leiktíð. Keflavík varð deildarmeistari á síðustu leik- tíð en tapaði fyrir Þór frá Þorláks- höfn í úrslitaeinvígi um Íslands- meistaratitilinn. _ Danski sókn- armaðurinn Wes- sam Abou Ali, leikmaður Vend- syssel, hneig niður í leik liðsins gegn Íslendingaliðinu Lyngby þegar liðin mættust í dönsku B-deildinni í knattspyrnu á laugardag. Um klukkutími var liðinn af leiknum þegar Abou Ali hneig niður á vellinum og var í kjölfarið fluttur með hraði í sjúkrabíl á spítala. Í kjölfarið var leik- urinn flautaður af og er óvíst hvenær honum verður haldið áfram. Freyr Al- exandersson er þjálfari Lyngby og þeir Sævar Atli Magnússon og Fre- drik Schram eru á mála hjá liðinu. _ Enski tennisleikarinn Emma Raducanu skráði sig í sögubæk- urnar þegar hún vann ótrúlegan sigur á Opna bandaríska mótinu á laugardaginn. Raducanu er að- eins 18 ára gömul og vann sinn fyrsta risatitil án þess að tapa setti á öllu mótinu. Hún mætti hinni 19 ára gömlu Leyluh Fern- andez frá Kanada í úrslitunum í gær og vann fyrra settið 6:4 og það síðara 6:3. Raducanu er fyrsti tennisleikarinn í sögu opins tennismóts sem vinnur risatitil eftir að hafa farið í gegnum undan- keppni. Hún er um leið yngsti Bret- inn til að vinna risatitil og fyrsta breska konan sem vinnur slíkan titil í 44 ár, eða síðan Virginia Wade gerði það árið 1977. Portúgalski sóknarmaðurinn Cris- tiano Ronaldo sneri aftur í ensku úrvalsdeildina með stæl þegar hann skoraði tvö marka Manchester United í öruggum 4:1 sigri gegn Newcastle United á laugardaginn. Hann skoraði fyrstu tvö mörk Rauðu djöflanna þegar hann kom liðinu í 1:0 og 2:1. Hann lék síðast með liðinu í ensku úrvalsdeildinni í maí árið 2009 og því rúm 12 ár síð- an hann klæddist síðast rauðu treyjunni. Þrátt fyrir að vera orðinn 36 ára gamall virðist síður en svo vera að hægjast á þessum óviðjafnanlega markaskorara, enda gildir aldur einu þegar menn búa yfir líkast til besta markanefi knattspyrnusög- unnar. Ekki skemmir heldur fyrir að leitun er á íþróttamanni sem hugsar jafn vel um líkama sinn og má því vænta þess að Ronaldo muni reynast Man. Utd ansi drjúgur á þessu tímabili og því næsta, jafnvel lengur ef vilji er fyrir hendi. _ Mohamed Salah kom Liverpool á bragðið í öruggum 3:0 sigri gegn Leeds United í gær. Markið var hans 100. úrvalsdeildarmark, þar af eru 98 fyrir Liverpool og tvö fyr- ir Chelsea. Liðin fjögur sem fyrir- fram eru talin, og ekki að ósekju, sterkustu lið deildarinnar, unnu öll sína leiki um helgina og virðist nú þegar stefna í fjögurra hesta kapp- hlaup í deildinni. Chelsea vann auðveldan 3:0 sigur gegn Aston Villa á laugardag þar sem Romelu Lukaku fór fyrir þeim bláklæddu og skoraði tvö mörk. Sama dag vann Manchester City af- ar sterkan 1:0 útisigur gegn skeinu- hættu liði Leicester City. United, Chelsea og Liverpool eru hnífjöfn í efstu þremur sætunum en City and- ar ofan í hálsmálið á þeim, einu stigi á eftir. gunnaregill@mbl.is Fjögurra hesta kapphlaup þegar hafið? AFP 2 Það tók Ronaldo 45 mínútur að stimpla sig inn í úrvalsdeildina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.