Morgunblaðið - 20.09.2021, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.09.2021, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2021 ÚTILJÓSADAGAR 999 Áður: kr. 4.935 kr. Áður: kr. 4.935 999kr. Áður: kr. 6.911 999kr. Áður: kr. 3.552 999kr. Úrval útiljósa á aðeins 999 kr. Við Fellsmúla | Reykjavík | Sími: 585 2888 | rafmark.is -72% -86%-80% -80% Minnum á nýju vefverslunina okkar rafmark.is Ole Anton Bieltvedt lætur grein mína í Mbl. 3. september sl. „Sveigjanlegt gengi er jafnaðartæki“ verða tilefni greinar í blaðinu hinn 18. september. Hann virðist aðeins hafa lesið fyrri hluta greinar minnar því hann segir: „Sjálf- tökufólkið sem Ragnar kallar svo er mest verkafólk og aðrir launþegar …“ Í greininni stendur aftur á móti þetta: „Forstjórar fá- keppnisfélaganna taka sér hins veg- ar það sem þeim sýnist í krafti að- stöðu sinnar“ og ennfremur „á meðan kjörnir fulltrúar, þingmenn og ráðherrar, taka þátt í sjálftök- unni mun ekkert breytast“. Vegna þessarar fljótfærni fellur stór hluti greinar Oles Antons um sjálfan sig. Hann er stórorður, nefnir gengisfyr- irkomulag landsins „svikula henti- stefnu siðlausra og skammsýnna stjórnmálamanna“. Voru allar rík- isstjórnir síðustu þrjátíu ára virki- lega skipaðar svikulum, siðlausum illmennum? Ég held ekki. Sjálftökufólkið Ég hef enga von um að geta kom- ið Ole Anton í skilning um að sveigj- anlegt gengi sé skárri kosturinn af tveimur slæmum. Ef einhver skyldi hafa tekið grein hans alvarlega vil ég samt árétta eftirfarandi. Er tíma- bært að setja gríðarlega harðan aga, á eingöngu starfsfólk gjaldeyris- greina, með sársauka atvinnumissis yfir höfði sér, meðan langflestir mundu sleppa? Svar sumra þeirra sem búa við afkomuöryggi er já, en ég segi nei. Gera þarf atvinnulífið fjölbreyttara og stöðugra en áður. Orkuvinnsla og stóriðja er stöð- ugust, við eigum óvirkjaða græna orku, notum hana. Vörumst að þynna gjaldmiðilinn út með prentun peninga. Ef það er gert þarf að draga þá aukningu til baka þegar til- ætluðum árangri er náð. Mesti ágalli EES-aðildarinnar fær litla umræðu. Fákeppni er allsráðandi í viðskipta- lífinu. Öllum kostnaði er velt yfir á neytendur. Eigendur og stjórn- endur fákeppnisfélaga eru í aðstöðu til sjálftöku arðs og launa. Embættismenn og stjórnmálamenn taka laun m.v. þennan sjálftökuhóp. Þetta er sjálftökufólkið. Hinir borga. Með allt á þurru? Landsmenn flytja inn mest af sínum nauðsynjum og gjald- eyrir gerir það mögu- legt. Hugmyndin um að setja hinn miskunn- arlausa aga evrunnar á landsmenn hefur ágalla: Við efnahagsáfall sem ylli gjaldeyrisskorti mundu nokkur þúsund manns missa vinnuna vegna gjaldþrota sjávarútvegs- og ferðaþjónustufyrirtækja. Aðrir, margfalt fleiri, gætu haldið lífi sínu áfram um sinn, eins og ekkert hefði í skorist. Það þýðir að landið mundi safna erlendum skuldum. Ekki yrði fyrirséð hve lengi og hve miklar þær yrðu, en staðan yrði ósjálfbær. Upplausn Gjaldþrota fyrirtæki eru leyst upp. Viðskiptasambönd og markaðs- staða glatast. Starfsmannahópurinn tvístrast og þekkingin með. Eignir eru seldar á uppboði. Þessi ferill tekur langan tíma. Hvort sem það er aflabrestur, verðfall, eldgos eða far- aldur sem veldur bresti í komu ferðamanna, þá taka svona sveiflur tíma. Til að menn vilji reisa ný fyrir- tæki á grunni gamalla er ekki nóg að geta keypt eignir á uppboði. Menn þurfa að sjá fram á hagnað. Þangað til bíða menn og sjá til. Langan tíma tekur og kostar mikla vinnu og áhættu að koma lífvænlegu fyrir- tæki á fót. Atvinnuleysið verður meira og varir lengur. Hin leiðin Til að hagnaðarvon myndist þyrfti að lækka launin. Það er kallað „nið- urfærsla“ og stundum „hin leiðin“, af því að leiðirnar eru bara tvær; gengislækkun eða niðurfærsla launa. Dettur einhverjum í hug í al- vöru, að á meðan stærstur hluti þjóðarinnar lifir sínu lífi áfram eins og ekkert hafi í skorist verði sátt og friður um að þeir sem allt byggist á, starfsmenn gjaldeyrisaflandi greina, verði endurráðnir á miklu lægri launum? Menn yrðu að lækka öll laun í landinu. Yrði samstaða og sátt um launalækkun án skuldalækk- unar? Mundi sjálftökufólkið lækka sín laun? Frysta þyrfti laun í meira en eitt kjörtímabil, e.t.v. tvö. Í kosningabaráttu yrði úrbótum lofað. Skipt yrði um ríkisstjórn. Ný stjórn mundi afnema tengingu krónunnar við evru, ef sú leið sem Viðreisn mælir með hefði verið reynd. Aðild að ESB sem Samfylkingin kýs hefði langan aðdraganda og langvarandi, óafturkallanlegar afleiðingar af sama toga. Hagsmunablinda Sársauki og reiði, enn og aftur misskipting og mismunun. Fengum við ekki nóg af slíku eftir hrun? Svo- nefnt „fljótandi gengi“ sem lagar sig eftir aðstæðum með því að lækka þegar áföll verða, en styrkist svo á ný þegar batnar í ári, heldur gjald- eyrisaflandi fyrirtækjum gangandi. Framleiðslan, verðmætasköpunin, heldur áfram. Viðskiptasambönd og markaðsstaða varðveitast. Þjálfaðir starfsmenn og þekking þeirra líka. Komist er hjá miklu atvinnuleysi, húsnæðismissi og óöryggi barna og fullorðinna. Það er hagsmunablinda að skeyta ekkert um þetta, bara af því að maður sjálfur er ekki í bráðri hættu að missa tekjur sínar. Af tvennu illu Fljótandi gengi lætur okkur taka áföllin saman. Af tvennu illu er það skárri kostur en þau ósköp sem fel- ast í „hinni leiðinni“. Atvinnuleysi er og verður mesta böl hvers sam- félags. Við höfum lengi náð góðum árangri með því að taka höggin sam- an, höldum því áfram. Eftir Ragnar Önundarson »Eigendur og stjórn- endur fákeppnis- félaga eru í aðstöðu til sjálftöku arðs og launa. Embættismenn og stjórnmálamenn taka laun m.v. þennan sjálftökuhóp. Ragnar Önundarson Höfundur er viðskiptafræðingur og fyrrverandi bankastjóri. Hagsmunablinda evrusinna 17. júní 1971 ávarpaði Richard Nixon bandaríska þingið og sagði að vímuefni væru óvinir ríkisins nr. 1. Hann sagði vímuefnum stríð á hendur (e. war on drugs) og markaði þar með stefnuna sem Bandaríkin tóku varðandi vímuefna- vandann. Stríð sem beindist að mestu leyti að notendum vímuefn- anna, fólks með fíknisjúkdóm og fjölskyldum þess, að miklum meiri- hluta fátæku og lituðu fólki. Stefna þar sem það er ólöglegt og refsi- vert að veikjast af þessum tiltekna sjúkdómi og fólk hlýtur dóma sem það þarf að sitja af sér og kemur út með flekkaða sakaskrá sem tor- veldar því að fá vinnu, húsnæði eða mega kjósa. Aðrar þjóðir heims gengu svo í bandalag með Bandaríkjunum í stríðinu gegn vímuefnum og tóku upp svipaða stefnu. Stefnu þar sem fólk með fíknisjúkdóm er glæpamenn en ekki sjúklingar. Stefnu þar sem fólk með fíknisjúkdóm fær dóma og er sett í fangelsi en ekki inn á sjúkrastofnanir og meðferðar- úrræði eru af skornum skammti miðað við þörfina. Stefnu sem býr til skömm hjá og jaðarsetur veikt fólk og fjölskyldur þess. Stefnu sem flytur vandann frá yfirborðinu og niður í undirheimana þar sem erfiðara er að veita fólki aðstoðina sem það þarf. Stefnu sem leiðir af sér afbrot og kynlífsvinnu til að fjármagna ólöglegt athæfi. Sam- félagslegur vandi er birting- armynd fíknisjúkdómsins. Það að langstærstur hluti fanga á Íslandi skuli glíma við fíknisjúkdóm segir mikið um það samfélagslega mein sem sjúkdómurinn veldur. Það er napurleg staðreynd að samfélagið hefur ekki sömu sam- kennd með einstaklingum með fíknisjúkdóm eins og aðra lang- vinna sjúkdóma. Við afmennskum þá og finnst að þeir geti sjálfum sér um kennt. Þeir völdu jú þetta, ekki satt, og gjörðum verða að fylgja afleiðingar. Sannleikurinn er sá að fyrir einstakling með langt genginn fíknisjúkdóm er þetta ekki lengur neitt val. Þetta var kannski einhvern tímann val en það hlýtur öllum að vera ljóst að það velur sér enginn þann lífsstíl sem þarf til að lifa af frá degi til dags þegar einstaklingurinn er djúpt sokkinn í neyslu. Það hefur verið þekkt staðreynd í áratugi að fíkn er sjúkdómur, röskun í heilanum, sem hægt er að meðhöndla. Fíknisjúkdómur er ekki persónuleikabrestur eða and- félagsleg hegðun. Þrátt fyrir að gögnin sýni þetta höldum við áfram að glæpavæða vímuefna- vanda fólks. Við þurfum að breyta um stefnu og það strax og fara að taka á þessum vanda út frá lýð- heilsusjónarmiðum með það að markmiði að auka heilbrigði meðal almennings og fara betur með fjármagnið sem fer í að taka á vandanum sem af sjúkdómnum hlýst. Samhliða afglæpavæðingu neysluskammta þarf að setja aukið fjármagn í meðferðarúrræði og forvarnir. Ekki forvarnir sem ganga út á að gamlar stjörnur fari inn í skóla og segi neyslusögur heldur aukið aðgengi barna og ungmenna að sálfræðiþjónustu. Að öllum börnum verði tryggður að- gangur að tóm- stundum og íþrótta- starfi óháð fjárhag heimilisins og betri félagslegur stuðn- ingur við barna- fjölskyldur þar sem annað eða bæði for- eldranna eru með fíknisjúkdóm. For- varnir sem miða að því að grípa fyrr inn hjá einstaklingum sem eru útsettir fyrir því að þróa með sér fíknisjúkdóm. Eflaust munu einhverjir sem þetta lesa setja spurningarmerki við hvort þetta sé betri lausn. Hvort þetta mikla umburðarlyndi muni ekki hvetja ungmenni til að neyta vímuefna ef þau verði gerð lögleg og þar með auka vandann verulega. Þeirri gagnrýni vil ég svara á þann veg að í fyrsta lagi þá veit hvert og eitt einasta ungmenni á Íslandi sem byrjar að neyta vímu- efna í dag mætavel að það er ólöglegt. Forvarnargildið af bann- inu einu er því ekkert. Í öðru lagi langar mig að benda á að í ár eru nákvæmlega 50 ár liðin frá því Nixon hóf stríðið gegn fíkni- efnum. Í 50 ár erum við búin að reyna að leysa vandann með þess- ari refsistefnu með þeim árangri að ekki einungis hefur vandinn ekki minnkað heldur hefur hann aukist stórkostlega. En kannski þurfum við bara að prófa áfram í 50 ár í viðbót til að sjá árangur af stefnunni. Þeim sem segja að ég hafi eng- ar lausnir fram að færa langar mig að benda á að þeirra lausn hefur ekki skilað svo miklum árangri og mun heldur ekki gera það í framtíðinni svo það er engu að tapa og allt að vinna að skipta um stefnu. Á hálfrar aldar afmæli núver- andi stefnu hlýtur löggjafinn, heil- brigðiskerfið, dómskerfið og rest- in af samfélaginu að spyrja sig hvort það sé virkilega þess virði að láta áfram á þetta reyna. Hversu mörg líf í viðbót þurfa að glatast og hversu mörg eiga eftir að þjást vegna þess að við höldum áfram að berja hausnum við stein- inn og neitum að viðurkenna að okkur hafi mistekist? Það er kom- inn tími til að heilbrigðiskerfið og meðferðarstofnanir fái það fjár- magn og þau úrræði sem þörf er á og heilbrigðisstarfsfólk sjái í auknum mæli um meðhöndlun og endurhæfingu sjúklinga með fíknisjúkdóm í stað lögreglu og fangavarða. Ég treysti Viðreisn best allra flokka sem eru í framboði til al- þingiskosninga 2021 til að koma þessu málefni í betri farveg. Stríð gegn vímuefn- um í 50 ár – hverju hefur það skilað? Eftir Aðalheiði Rósu Jóhann- esdóttur Aðalheiður Rósa Jóhannesdóttir » Í áratugi höfum við Íslendingar beitt af- mennskandi refsistefnu gagnvart vímuefnaneyt- endum án nokkurs ár- angurs. Er ekki kominn tími til að breyta til? Höfundur er læknir á Sjúkrahúsinu á Akureyri og stuðningskona Viðreisnar. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.