Morgunblaðið - 20.09.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 20.09.2021, Blaðsíða 32
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Slysavarnaskóli sjómanna var stofnaður 1985 og Hilmar Snorra- son hefur verið skólastjóri hans í rúm 30 ár. „Ég var skipstjóri á Öskju, skipi Skipaútgerðar ríkisins, hafði tekið þar til hendi í öryggis- fræðslu, var beðinn að halda erindi á ráðstefnu um öryggismál á veg- um samgönguráðuneytisins 1990 og í kjölfarið buðu forráðamenn Slysa- varnafélagsins mér að taka við skólanum,“ segir hann um byrj- unina. „Ég tók við 1. september 1991 og þá vissi ég ekki að Skipa- útgerðin var sökkvandi skip en hún var lögð niður um næstu áramót.“ Fyrsta árið var skólinn í húsnæði Slysavarnafélagsins á Grandagarði. Varðskipið Þór var keypt fyrir 1.000 krónur 1986 og þá færðist kennslan um borð í hann. Ríkis- stjórnin gaf Slysavarnafélaginu Akraborg 1998, ferjunni var breytt í skóla og fékk nafnið Sæbjörg. Til stendur að færa skipið og þar með skólann úr Austurhöfn að Bótar- bryggju á Grandagarði í haust. Stjórnendur hafa leitt hugann að nýju skipi og hefur helst verið staldrað við Herjólf, en framhaldið er óráðið og í höndum stjórnvalda. Mikilvæg gjöf „Það var gríðarleg lyftistöng fyr- ir skólann að komast í rúmgott húsnæði, að fara úr einni kennslu- stofu í þrjár fullbúnar stofur þegar fram liðu stundir auk stórs svæðis fyrir allan búnað, sem hefur aukist reglulega,“ segir Hilmar. Í því sambandi bendir hann á að slita- stjórn styrktarsjóðs nemenda Stýrimannaskólans í Reykjavík hafi á síðasta ári ákveðið að gefa skól- anum björgunarfarasiglingaherma. „Þeir hafa nýlega verið teknir í notkun og nýtast sjómönnum afar vel við þjálfun í að sigla björgunar- förum við erfiðar aðstæður.“ Námskeiðin hafa verið allt frá hálfum degi upp í fimm daga með áherslu á forvarnir. „Við höfum verið með meira en 30 mismunandi námskeiðsgerðir frá seinni hluta ágúst fram í fyrstu viku júlí,“ segir Hilmar en tíu manns starfa við skólann. Þorvaldur Axelsson var fyrsti skólastjórinn, Þórir Gunnarsson tók við stjórninni 1988 og síðan Hilmar 1991. Hann bendir á að þegar skólinn var stofnaður hafi al- þjóðlegar kröfur um þjálfun sjó- manna ekki verið komnar fram. Starfsemin hafi því verið komin upp á velvild útgerða og áhuga sjó- manna. „Kvennadeildir Slysavarna- félags Íslands tóku strax ástfóstri við skólann og hafa alla tíð gert og voru það afl sem var hvað sterkast í því að fá sjómenn til að koma á námskeiðin áður en það varð að skyldu samkvæmt lögum.“ Þar vís- ar hann í lög, sem samþykkt voru um skólann á Alþingi 1991 með að- lögunarfresti, sem var reyndar framlengdur í nokkur ár. Miklar breytingar hafa orðið á öllu sem tengist skólanum frá því hann var stofnaður. Hilmar nefnir meðal annars húsnæðismál og aukna tækni en viðhorfsbreyting sjómanna skipti mestu máli. Í byrj- un hafi þeir ekki sýnt málinu mik- inn skilning og áhuga en nú sé öld- in önnur. „Viðhorf sjómanna er stærsta breytingin, hvernig þeir hafa komið fræðslunni, sem við höf- um verið að miðla, í góða virkni um borð í skipunum hjá sér. Þar með hafa þeir dregið mikið úr slysum, ekki síst banaslysum. Ég átti mér langþráðan draum um að sjá bana- slysalaust ár á sjó og það hafðist ekki fyrr en 2008 en síðan hafa fleiri slík ár fylgt í kjölfarið.“ Hann leggur jafnframt áherslu á að öðr- um alvarlegum slysum um borð hafi fækkað til muna. „Nú er draumurinn orðinn slysalaust ár á sjó.“ Hilmar dreymir um slysalaust ár á sjó - Hefur verið skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna í 30 ár Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Í Sæbjörg Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, segir að bætta stöðu öryggismála megi þakka sameiginlegu átaki margra. MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 263. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Njarðvík vann sinn fyrsta titil í körfubolta í karlaflokki í 15 ár er liðið vann 97:93-sigur á Stjörnunni í úrslitaleik VÍS-bikarsins í Smáranum á laugardag. Njarðvík hafði ekki unnið titil síðan liðið varð Íslandsmeistari 2006 þegar kom að leiknum gegn Stjörnunni. Bikartitillinn er sá níundi hjá Njarðvík. Í kvennaflokki fögnuðu Haukar sínum sjöunda bikarmeistaratitli með 94:89-sigri á Fjölni. Fjölniskonur voru í bikarúrslitum í fyrsta skipti og áttu góða spretti á móti sterku Haukaliði, en Haukar reyndust að lokum sterkari. »27 Haukar og Njarðvík bikarmeistarar ÍÞRÓTTIR MENNING (V)ertu úlfur? í Þjóðleikhúsinu Þjóðleikhúsið, í samstarfi við Geðhjálp, Hlutverka- setur, Geðlæknafélag Ís- lands og heilbrigðisráðu- neytið, stendur fyrir samtali um geðheilbrigði á Stóra sviði Þjóðleikhússins í kvöld kl. 20, í tengslum við leik- sýninguna Vertu úlfur. Yfir- skrift samtalsins er „(V)ertu úlfur? – listin að sjá hið sammannlega, samtal um geðheilbrigði utan hrings- ins“. Aðgangur er ókeypis, en panta þarf miða á leik- husid.is til að tryggja sér sæti. Í samtalinu taka þátt Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Unnur Ösp Stefánsdóttir leikstjóri, Björn Thors leikari, Karl Reynir Einarsson, formaður Geðlæknafélags Íslands og yfir- læknir geðheilsusviðs á Reykjalundi, Elín Atim klæð- skeri, Björn Hjálmarsson, sérfræðilæknir á BUGL, og Héðinn Unnsteinsson, formaður Geðhjálpar og höf- undur bókarinnar Vertu úlfur. Fundarstjóri er Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.