Morgunblaðið - 20.09.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.09.2021, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2021 ✝ Guðbjörg Þor- leifsdóttir fæddist 1. desem- ber 1924 í Neskaupstað. Hún lést 12. september 2021 á hjúkr- unarheimili Hrafn- istu í Hafnarfirði. Foreldrar henn- ar voru Þorleifur Ásmundsson út- vegsbóndi, f. á Karlsstöðum í Vöðlavík 11.8. 1889, d. 10.10. 1956, og María Jóna Aradóttir húsfreyja, f. í Naustahvammi 4.5. 1895, d. 15.12. 1973. Guðbjörg var 9. í röð 14 systkina. Þau eru: Þóra Aðalheiður, f. 1912, Ari Ás- mundur, f. 1913, Guðni, f. 1914, Stefán Guðmundur, f. 1916, Ingvar, f. 1917, Gyða Fanney f. 1919, Lukka Ingibjörg, f. 1921, Lilja Sumarrós, f. 1923, Ásta Kristín f. 1926, Friðjón, f. 1928, Guðrún María, f. 1930, Sig- urveig, f. 1933, og Vilhjálmur Norðfjörð, f. 1936. Guðrún og Vilhjálmur lifa systkini sín. Hinn 1. desember 1947 giftist Guðbjörg Sigurði Ólafssyni, f. 13. janúar 1926 á Varmá í Mos- fellssveit, d. 4. ágúst 2021. For- eldrar hans voru Halldóra S. Ingibjörg Helga Arnþórsbörn. Barnabörn eru 2. 6) Ingvar Egg- ert, leikari, f. 22. nóv. 1963, maki Edda Arnljótsdóttir. Börn þeirra eru Áslákur, Snæfríður, Sigurður og Hringur. Afkom- endur Sigurðar og Guðbjargar eru 58. Guðbjörg gekk í Barnaskóla Neskaupstaðar. Frá 11 ára aldri fór hún á sumrin til Öllu systur sinnar á Akureyri og flutti þangað 14 ára til að aðstoða hana áfram við barnagæslu og almenn heimilisstörf. Þar var hún alfarið fyrir utan sum- ardvöl að Grjótnesi á Melrakka- sléttu og eitt ár í Norðfirði hjá Ara bróður sínum á Sveins- stöðum og foreldrum í Nausta- hvammi. Hún flutti til Reykja- víkur haustið 1944, vann lengst af sem barnfóstra í Suðurborg fram til haustsins 1946. Þá tóku við barnauppeldi og rekstur stórs heimilis. Frá 1969 til 1976 rak Guðbjörg barnafataversl- unina Glitbrá ásamt Sigurði. Ár- ið 1981 fluttu þau í Borgarnes. Guðbjörg vann við ýmis störf á póst og símstöðinni og lauk þar starfsferli sínum. Guðbjörg tók alla tíð þátt í ýmsum félagsstörfum bæði í Reykjavík og í Borgarnesi. Útför Guðbjargar fer fram frá Vídalínskirkju Garðabæ í dag, 20. ágúst 2021, kl. 14. Streymt verður frá útförinni: https://youtu.be/3ys7JLSKT8c. Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat. Bjarnadóttir f. 8. 10. 1905, og Ásgeir Egill Benedikt Hjartarson f. 4.2. 1909 og kjörfaðir Ólafur Jónsson, f. 24.3.1903. Guð- björg og Sigurður eignuðust sex börn. Þau eru: 1) Sig- urborg fv. flug- freyja f. 29. janúar 1947, maki Ljótur Ingason. Þau eiga synina Sigurð Inga og Kristján og 5 barna- börn. 2) Svanhvít fv. bókari f. 8. september 1949, maki Ragnar Jörundsson. Börn þeirra eru María, Guðbjörg og Jörundur, barnabörn eru 6 og barna- barnabörn 7. 3) María f. 25. sep. 1951 fv. starfsm. Pósts og síma, sambýlismaður Páll Sigurðsson. Synir Maríu eru Vilhjálmur Þór, Sigurður og Óli Már Ólasynir. Barnabörn eru 9 og barna- barnabörn 2. 4) Halldór Ólafur, f. 17. maí 1953, fv. forstjóri, maki Margrét H. Hjaltested. Börn þeirra eru Davíð og Berg- lind og dóttir Halldórs er Stef- anía Ólöf. Barnabörn eru 4. 5) Þóra fv. hópstjóri bókara, maki Sigurður Gísli Jóhannsson. Börn Þóru eru Jón Viðar og Það tók á hjá okkur hjónum að vera fjarstödd þegar mamma kvaddi eftir bráð veikindi og lést fjórum sólarhringum síðar. Okk- ur fannst við í þeim samanburði lánsöm að hafa lengri aðdrag- anda til að kveðja pabba sem lést aðeins tæpum sex vikum fyrr. Að minnast góðrar móður er mannsins æðsta dyggð og andans kærsti óður um ást og móðurtryggð. Hjá hennar blíðum barmi er barnsins hvíld og fró. Þar hverfa tár af hvarmi og hjartað fyllist ró. (Freysteinn Gunnarsson) Það segir nokkuð um mömmu að hún var enn að láta tár hverfa af hvarmi barna sinna þegar hún tók þau á sinn blíða barm til að hugga við andlát pabba þeirra. Þannig var hún alla tíð, hún var sú sterka þegar eitthvað bjátaði á. Hún sýndi börnum sínum og öllum afkomendum mikla vænt- umþykju og huggaði, hughreysti og hvatti til dáða. Við minnumst þess systkinin þegar við vorum lítil að það var hún sem hélt sér á fótum þótt sjálf væri veik og allt annað heimilisfólk lá í bælinu. Hún var kjölfestan í fjölskyld- unni og hefur alltaf verið. Þegar við vorum börn var hún alltaf til staðar, alltaf heima þeg- ar við systkinin vorum lítil í grunnskóla. Það var svo stutt í skólann að við gátum í löngu frí- mínútunum og hádegi skotist heim til að fá okkur bita ef við vildum. Það er ólíku saman að jafna fjarlægð okkar systkina í Hólmgarði í skóla og mömmu. Við gengum nokkra tugi metra en hún 3 km úr Naustahvammi í barnaskólann í Neskaupstað. Hún undraðist það alltaf að nýr skóli á þeim tíma hefði verið reistur alveg austast í bænum. Enginn var bíllinn á þeim árum og urðu börnin að ganga alla þessa leið í öllum veðrum. Þegar snjór var mikil urðu börnin að ganga fjöruna alla þessa leið og voru oft blaut og köld þegar kom- ið var í skólann. Þetta hefur ef- laust mótað mömmu og gert hana sterkari, gert hana að konu sem sjaldan kveinkaði sér alveg fram í andlátið. Hún sýndi mikið æðruleysi þegar hún tók ákvörð- un um að fara ekki í áhættusama aðgerð og elta Sigga sinn eins og hún hafði á orði. Eitt af því síð- asta sem hún ræddi við hjúkr- unarfólk Hrafnistu í Hafnarfirði var að rifja upp fjölda afkomenda sinna og talaði um eins og hún gerði svo oft hvað hún væri stolt og ánægð með allt þetta vel gerða og góða fólk sitt. Hún bað hjúkrunarfólkið að bera bestu kveðju til þeirra allra. Blessuð sé minning um góða móður og tengdamóður. Halldór og Margrét. Kæra Guðbjörg tengdamóðir mín er nú fallin frá, tæplega 97 ára. Rétt rúmur mánuður er lið- inn frá því að Sigurður eiginmað- ur hennar og tengdafaðir minn lést. Guðbjörg var mjög vel gerð og heilsteypt kona. Hún ólst upp í Neskaupstað í stórum systkina- hópi, 14 systkini sem oftast voru kennd við Naustahvamm. Þetta var samheldin og sterk fjöl- skylda. Guðbjörg var mjög stór þáttur í mínu lífi. Haustið 1952 fluttu hún og Sigurður maður hennar í Hólmgarð 51 í Reykjavík og ég með mínum foreldum í Hólmgarð 49, sem sagt í sama hús. Guð- björg og Sigurður voru þá búin að eignast þrjár dætur. Ein af þeim varð svo eiginkonan mín. Svo komu þrjú börn í viðbót. Guðbjörg var alla tíð mikil blóma- og garðyrkjukona. Þau hjónin voru með land á leigu þar sem nú stendur Bauhaus og settu niður kartöflur og ræktuðu grænmeti og tré árum saman. Margar eru góðar minningar barna, tengdabarna og barna- barna upp í „kartöflugarð“ eins og það var alltaf kallað. Guðbjörg var mjög ákveðin kona. Hún hafði aldrei hátt, en lét alveg vita ef henni mislíkaði. Alltaf sann- gjörn. Hún stjórnaði mannmörgu heimili sínu af mikilli röggsemi. Við Svanhvít fórum oft í ferðir með þeim hjónum út á land. Nokkrum sinnum fórum við í Naustahvamm að vori til, til að slá og og dytta að. Afkomendur foreldra Guðbjargar eignuðust Naustahvamm sem var á snjó- flóðahættusvæði og mátti aðeins vera með viðveru á sumrin. Við hjónin fórum mjög minn- isstæða ferð með þeim til Spánar 2017. Þau voru einstaklega góðir og þægilegir ferðafélagar. Bæði um nírætt! Guðbjörg minnti okk- ur yfirleitt á fordrykk um kl. 18 og Bugles, það var eiginlega eina snakkið sem hún vildi. Það eru margar fleiri minning- ar sem vert væri að nefna. Það er stórt skarð í okkar lífi eftir að þau bæði, Guðbjörg og Sigurður, eru farin. Blessuð sé minning þeirra. Ragnar Jörundsson. Elsku amma mín. Ég bjóst ekki við að þurfa að kveðja þig al- veg strax, varst hress og kát að vanda, að gæða þér á berjum með rjóma, seinast þegar ég heyrði í þér. Þú sagðist hafa það gott en það vantaði hann afa minn. Það eru forréttindi að hafa þig fylgjandi manni í gegnum barn- dóminn og fram á fullorðinsárin. Sterk kona og frábær fyrirmynd sem hefur upplifað margt sem var svo gaman að heyra sögur af. Þú nefndir oft góð heilræði til að halda góðri heilsu, þá helst mik- ilvægi hreyfingar, taka lýsi og svo er allt í lagi að fá sér einn mola með kaffinu. Ég fer í gegn- um lífið með þessi góðu ráð á bakinu. Ekki nóg með að vera sterk og góð fyrirmynd heldur varstu ein- staklega barngóð og blíð. Börn fundu fyrir hlýju þinni og löð- uðust að þér, sem ég hef sjálf upplifað með Almar minn. Það eru ekki allar ömmur á tíræð- isaldri sem geta sest niður með yngstu afkomendunum og dottið í spjall og leik. Svo varstu ein- staklega næm á fólkið þitt og berdreymin, eins og þegar þú vissir á undan öllum öðrum, jafn- vel mér sjálfri, að ég ætti von á litlum strák. Ég þreytist seint á að minnast á fallega sambandið ykkar afa. Eitt skiptið sem þið voruð ný- komin inn á Hrafnistu í hvíldar- innlögn töluðum við saman í síma yfir hafið. Ég spurði út í her- bergið og þú sagðir mér flissandi að þið hefðuð látið færa rúmin saman eins og unglingar. „Það er svo gott að finna fyrir hlýjunni frá afa þínum, og stinga tánum undir sængina hjá honum.“ Þótt það sé alltaf erfitt að kveðja, þá vermir það hjarta mitt að vita að nú sé búið að færa rúmin ykkar aftur saman og þið getið notið hlýju hvort annars á ný. Takk fyrir allt. Berglind. Svo margt kemur í hugann þegar maður hugsar um ömmu Guðbjörgu. Appelsínukakan, rús- ínukökurnar, kartöflugarðurinn, jurtir og ber, Nivea-krem úr bláu dollunni, flottu hattarnir þegar amma fór eitthvað „fínt“, nest- isferðir, gönguferðir, Hólmgarð- urinn, Borgarnes og svo mætti lengi telja. Amma hafði tröllatrú á ís- lenskum jurtum og bjó til drykki úr þeim til að bæta úr ýmsum kvillum. Hún hafði líka óbilandi trú á hvítlauknum sem hún kall- aði „rússneska pensilínið“ og not- aði hann meðal annars við kvefi. „Bara skera hann niður og gleypa eins og töflur,“ sagði amma, og það gerðum við. Ekki má gleyma lýsinu því amma tók lýsi frá því að hún mundi eftir sér og sagði að því mætti maður ekki sleppa. Kartöflugarðurinn var einn af uppáhaldstöðum þeirra afa og ömmu og ræktuðu þau kartöflur og ýmiskonar grænmeti, ásamt því að setja niður tré. Þarna munum við eftir okkur frá því við vorum smábörn. Stússast í mold- inni, setjast á teppi og borða nestið sem amma útbjó, hjálpa til, skoða jurtir, tína ber. Þar leið þeim vel og okkur öllum sem vor- um svo heppin að eyða tíma með þeim þar. Kærleikur, réttlæti og for- dómaleysi einkenndi ömmu. Það var alltaf svo notalegt og róandi að vera í kringum ömmu og afa. Þó oft hafi nú verið líf og fjör og margmenni á heimilinu, þá höfðu þau bara þessi áhrif. Amma var ekkert sérlega hrif- in af húsdýrum og sagði það upp- hátt. Það var nú ekki alveg rétt. Hún fékk aðeins að kynnast tík- um okkar systra og var farin að spjalla við þær og klappa áður en hún vissi af. Við heyrðum oft sög- una af því þegar hesturinn Lýs- ingur fleygði ömmu af baki þegar hún var barn og hún sagði að honum hefði hreinlega verið illa við hana þó ástæðan hafi örugg- lega verið önnur. En ketti þoldi hún ekki og það áttum við allar sameiginlegt. Amma var mikið náttúrubarn og það var gaman að heyra hana segja sögur úr sveitinni. T.d. þegar þau systkinin voru send upp í fjall um leið og berjatíminn hófst. Þangað fóru þau daglega fram í september að tína ber, fyrst krækiber, svo bláber og að lokum aðalbláber. Enda var gaman að fara með ömmu í berjamó, hún gleymdi stund og stað og tíndi hraðar en nokkurt okkar. Amma var kattliðug og var alltaf dugleg að hreyfa sig og gera teygjur. Það eru bara nokkrar vikur síðan hún sýndi okkur hvernig æfingar hún gerði og þvílík tilþrif! Við trúum því að nú séu amma og afi sameinuð á ný eftir rúm- lega mánaðar aðskilnað. Þau voru eitt. Takk elsku amma fyrir allt María (Maja) og Guðbjörg (Gugga). Elsku hjartans amma mín, Þú varst hlýjasta og góðhjart- aðasta manneskja sem ég þekkti. Þér var alltaf annt um að öllum liði vel og að allir fengju nóg. Þú trúðir á það góða í lífinu og kenndir mér að biðja bænir. Þú varst viðkvæm fyrir sögum af því ljóta í heiminum og vildir ekki að neinn hætti lífi sínu með áhættu- sömu athæfi. Þrátt fyrir þessa viðkvæmni þína varstu sterkasta manneskja sem ég þekkti. Þú þoldir enga sjálfsvorkunn og sýndir aldrei merki um veikleika eða uppgjöf. Þú varst alltaf bein í baki og barst þig fallega. Þú varst alin upp á erfiðum tímum þar sem ekki var mikið til og kunnir að vera þakklát fyrir það sem þú hafðir. Þú varst fagurkeri fram í fing- urgóma og hafðir einstaklega fágaðan stíl. Þú varst mín tísku- fyrirmynd. Við töluðum oft um hvað okkur þótti fallegt og deild- um svipuðum smekk. Ég gleymi því aldrei þegar ég sá bleika kjól- inn þinn inni í skáp og ég féll al- gjörlega fyrir honum. Þú lánaðir mér hann síðar og ég trúlofaði mig í honum. Ástarsamband ykkar afa ein- kenndist af hlýju og samstöðu. Þið voruð ástfangin fram til dauðadags og voruð eins og Rómeó og Júlía því þið gátuð ekki lifað hvort án annars. Þegar afi veiktist og var alveg að kveðja sagðirðu að þú vonaðir að þú fær- ir fljótlega á eftir. Ég reyndi að segja þér að við, sem þætti vænt um þig, vildum ekki að þú færir, þú værir ennþá svo hraust og ættir fullt eftir. Þú varst með sterk gen og ég var viss um að þú yrðir hundrað ára. Þegar þú veiktist snögglega afþakkaðir þú aðgerð og sagðist bara vilja hitta manninn, sem hefur örugglega verið afi og kannski guð líka. Það var erfitt að þurfa að kveðja þig og ég sakna þín mikið en ég veit að þú fórst í friði. Nú hvílir þú við hlið afa eins og þú vildir. Ég er fegin að þú þurftir ekki að kveljast lengi og ég er þakklát fyrir að hafa átt örlitla stund með þér áð- ur en þú sofnaðir. Ég ætla að taka öll lífsins ráð sem þú hefur gefið mér, þakk- læti, þrautseigju og trú á hið góða, og gera þau að mínu leið- arljósi. Ég ætla að tileinka mér sýnina sem þú hafðir á lífið því hún var svo falleg. Ég elska þig amma mín. Minningin um þig lif- ir í hjartanu mínu að eilífu. Þín Snæfríður. Guðbjörg Þorleifsdóttir ✝ Hilmar Sig- urbjartsson fæddist í Reykjavík 22. september 1952. Hann lést 13. júlí 2021 á sjúkra- húsi í Osló, Noregi, þar sem hann bjó undanfarin ár. Foreldrar hans voru Sigurbjartur Sigurbjörnsson, verkstjóri hjá Reykjavíkurborg, fæddur 19. apríl 1922, látinn 20. júní 1986 og Unnur María Einarsdóttir húsmóðir, fædd 7. febrúar 1923, látin 30. september 2003. Börn þeirra eru: Einar, búsett- ur í Bandaríkj- unum, Sigurbjörn, búsettur í Dan- mörku, Gunnar, býr í Reykjavík, Guðrún, sem bjó í Flórída, Hrafnhild- ur Grace, Örn, Hilmar og Þór, sem nú eru öll látin. Sigurbjartur og Unnur bjuggu lengst af við Hólmgarð í Reykjavík þar til þau á efri ár- um fluttu til Flórída í nágrenni við Guðrúnu dóttur sína og Þór son sinn og fjölskyldur þeirra. Hilmar eignaðist tvo syni; Ey- þór Má, fæddur 10. júní 1972, sem lést 2. september síðastlið- inn í Svíþjóð. Móðir Eyþórs er María Anna Þorsteinsdóttir, kennari í Reykjavík. Með konu sinni Vilborgu Jónsdóttur sjúkraliða átti Hilmar Jón Unn- ar, fæddur 17. janúar 1979. Þau skildu. Vilborg og Jón Unnar búa í Svíþjóð. Hilmar var verka- maður hjá Reykjavíkurborg og sjómaður þar til hann slasaðist illa um tvítugt og varð öryrki. Hilmar var kvaddur frá Foss- vogskapellu og hvílir hann í duftgrafreitnum Sóllandi í Foss- vogi við hlið Arnar bróður síns. Ég kveð Hilmar Sigurbjarts- son, vin og barnsföður, með söknuði eftir hálfrar aldar kynni sem aldrei brá skugga á. Við Hilmar kynntumst á gamlárs- kvöldsballi á Las Vegas, skemmtistað sem var við Grens- ásveg. Það var árið sem ég byrj- aði í MH, 1970, ég 16 ára og hann 18. Hann var mjög sætur og mik- ill töffari. Löngu síðar spurðu sonardætur hans þegar við vor- um bæði samtíða hjá Eyþóri syni okkar hvað hann hefði séð við mig þarna fyrst. Hilmar var snöggur til svars og sagði: „Hún amma ykkar var svo flink að dansa.“ Mánuðina á eftir var mikið dansað. Við unglingarnir á þess- um árum bókstaflega lifðum á tónlist. Það var Woodstock, söngleikir, rokktónleikar og súp- ergrúppur um allt land fyrir utan allt sem gekk á í útlandinu. Ekki bara Bítlar og Rollingar heldur Cream, Pink Floyd, Bob Dyl- an … Slagorð tímans voru Make love, not war og Peace. Árið 1972 var gjöfult í vina- hópnum. Þrjú börn fæddust, þ.á m. Eyþór sonur okkar Hilm- ars. Öll börnin urðu gæfubörn. Orðinn faðir ákvað Hilmar að fara í Iðnskólann en varð þá fyrir hörmulegu slysi. Hann var að vinna í grjótnámi í Gufunesi þeg- ar risastórt bjarg brotnaði úr stálinu og lenti á Hilmari. Hilmar lifði en missti vinstri fót við hné og hægri höndina við olnboga. Hilmar hafði einstaklega gott skaplyndi og tók fötlun sinni af miklu æðruleysi, svo ungur sem hann var. Rétt kominn til meðvit- undar á spítalanum sagði hann við mig: „Þetta er allt í lagi, svo lengi sem hausinn er heill og fermingarbróðirinn.“ Hilmar var mikill sjarmör, laglegur og vel á sig kominn. Sérstaklega voru bláu augun hans töfrandi og brosið fallegt. Á Grensásdeildinni kynntist Hilm- ar Vilborgu Jónsdóttur og flutt- ist með henni og fjölskyldu henn- ar til Gautaborgar. Hilmar og Vilborg eignuðust fljótt son, Jón Unnar, og fór Ey- þór reglulega til þeirra og var þar yfir sumarmánuðina. Þessar sumardvalir voru ævintýri fyrir Eyþór, ferðalög og hundur, sem þá voru bannaðir í þéttbýli. Hilmar elskaði strákana sína meira en allt og reyndi að vera eins mikið með þeim og hann gat. Eyþór fór í tvígang með honum til Flórída en þangað höfðu for- eldrar Hilmars flutt á níunda áratugnum. Hilmar var mjög handlaginn og duglegur til vinnu þrátt fyrir handarleysið. Hann var hins vegar í þeirri stöðu öryrkja að hver króna sem hann vann sér inn var dregin frá örorkulífeyrinum. Hann notaði því krafta sína til að aðstoða vini og vandamenn við alls konar framkvæmdir hvort heldur var við húsamálun eða garðyrkju. Hilmar flutti til Noregs þar sem hann fékk gott húsnæði og hann gat heimsótt bæði Nonna og Eyþór í Svíþjóð. Á seinni ár- um fékk hann mikinn áhuga á sagnfræði og gleypti í sig fróð- leik á því sviði. Hilmar hafði beð- ið alllengi, vegna Covid, tilbúinn með ferðatöskuna á leið til Ey- þórs að vinna í garðinum og hús- inu og passa öll dýrin ef fjöl- skyldan brygði sér af bæ. Þá kom kallið með hjartaáfalli. Hilmar komst á spítala og þau Eyþór og Louise gátu kvatt hann þar áður en hann lést. Minningin um Hilmar lifir áfram með öllum þeim sem hon- um kynntust. Meira á www.mbl.is/andlat María Anna Þorsteinsdóttir. Hilmar Sigurbjartsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.