Morgunblaðið - 27.09.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.09.2021, Blaðsíða 8
Ef við lítum á nokkur mál sem stjórnmálaflokkarnir tefldu fram sem sínum meginmálum fyrir nýafstaðnar kosningar má draga ályktanir. - - - Ný stjórnarskrá var hugðarefni tiltekinna flokka og er óhætt að segja að þeirri hugmynd hafi verið hafnað. Kjósendur sýndu eng- an áhuga á að enn eitt kjörtímabilið yrði farið í gegnum þá umræðu að umbylta stjórnarskránni. Nú er nóg komið, sögðu þeir. - - - Ákveðnir flokkar reyndu líka að slá sér upp með því að bjóða kjósendum upp á að hækka veiði- gjöld á sjávarútveginn eins og ekki væri nóg að hann, einn atvinnu- greina, greiddi sérstakan skatt. Þessu tilboði höfnuðu kjósendur og fengu þeir flokkar sem fyrir þessu töluðu lítið fylgi og minnkuðu á milli kosninga. - - - Svipaðir flokkar vildu tengja okkur við evru, láta kjósa um aðildarumsókn að ESB eða stíga með öðrum hætti skref í átt að Evr- ópusambandinu. Enginn áhugi reyndist á þessu meðal kjósenda, nema síður væri. - - - Kjósendur reyndust ekki heldur hafa nokkurn áhuga á að sjá fjölflokka vinstri stjórn setjast að völdum með tilheyrandi skatta- hækkunum, auknum ríkisumsvifum og almennum glundroða, enda sjá allir hvernig það mynstur hefur reynst í Reykjavík. - - - Augljóst er að kollsteypunum, gylliboðunum og dellu- hugmyndunum var hafnað í kosn- ingunum um helgina. STAKSTEINAR Málin sem kjós- endur höfnuðu 8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segist hafa vaknað upp við „óvæntustu kosningaúrslit sem ég hef upplifað innan lands eða utan“ í gærmorgun. Greindi hann frá því á Facebook að hann hefði sofnað með tölvuna í fanginu og svo vaknað við von- brigðin. Þá segir hann einnig að úrslitin hafi komið honum mikið á óvart. Hann hafi aldrei upplifað eins mikinn mun á stemningu fyrir kosningar og niðurstöðunum. Flokkur Sig- mundar, Miðflokkurinn, tapaði fjórum þing- sætum. Sigmundur líkir niðurstöðu Miðflokksins við stöðu hollenska lýðræðisflokksins og segir að faraldurinn hafi öllu breytt. Hann bendir á að flokkurinn hafi komið fram á svipuðum tíma í Hollandi og verið með svipaðar áherslur. Hafi hann fengið flesta kjörna fulltrúa í hollensku sveitarstjórnarkosningunum og verið með 20 prósenta fylgi fram að faraldrinum. „Eftir það sáu þeir vart til sólar og enduðu með fimm prósenta fylgi,“ segir Sigmundur og bætir við að hann hafi trúað því að Miðflokk- urinn myndi sleppa við sömu örlög en svo hafi ekki orðið. Úrslitin vonbrigði Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Völd Fjórir sitjandi alþingismenn hafa gegnt embætti forsætisráðherra. Þeir sjást hér. - Óvæntustu kosningaúrslit í minni Sigmundar Halldóra Mogensen, þingflokks- formaður Pírata, segir að þótt það séu vonbrigði að hafa ekki náð inn þingmönnum utan af landi sé það fagnaðarefni að flokkurinn hafi óvænt náð inn þremur þingmönnum í jöfnunarsætum. Píratar héldu sín- um sex sætum. „Við erum bara stolt af því að hafa haldið velli í þessu flokkakraðaki. Það eru svo margir flokkar að bjóða sig fram,“ sagði Halldóra í samtali við mbl.is í gær. Átta flokkar af ellefu náðu inn á þing. Píratar lentu í tilfinningarússí- bana í gær þegar fyrstu úrslit gáfu til kynna að hin 21 árs gamla Lenya Rún Taha Karim hefði náð kjöri í jöfnunarsæti í Reykjavíkurkjör- dæmi norður. Eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi datt Lenya út af þingi, en flokkurinn tapaði þó ekki manni því hann fékk jöfnunarsæt- ismann í Suðvesturkjördæmi, Gísla Rafn Ólafsson. Sér á eftir Jóni Steindóri Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segir það óendanlega sárt að missa Jón Stein- dór Valdimarsson út af þingi. Jón sóttist eftir endurkjöri og skipaði annað sæti á lista flokkins í Reykja- víkurkjördæmi norður. „Hann hefur verið einn ötulasti maðurinn inni á þingi og komið í gegn mikilvægum málum eins og samþykkismálinu og fleiri prinsippmálum. Um leið og ég fagna öflugum liðsauka í Sigmari [Guðmundssyni] og Guðmundi [Gunnarssyni],“ segir Þorgerður sem hefði viljað sjá hærra fylgi hjá Viðreisn. Flokkurinn hlaut 8,3% fylgi á landsvísu, bætti við sig einum þing- manni og telur því fimm þingmenn. Þingflokkur Viðreisnar styrkti stöðu sína á landsbyggðinni í kosningunum og fagnaði Þorgerður því. Halldóra ánægð með gengi Pírata - Viðreisn bætti við sig þingmanni Morgunblaðið/Kristinn Magnúss. Andstaða Flokkar Þorgerðar og Halldóru misstu ekki þingsæti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.