Morgunblaðið - 27.09.2021, Side 11

Morgunblaðið - 27.09.2021, Side 11
11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2021 Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga. innlifun.is 2021 ALÞINGISKOSNINGAR Inga Þóra Pálsdóttir ingathora@mbl.is Tuttugu og fimm þingmenn hverfa af þingi eftir kosningarnar á laugardag- inn. Af þeim sóttust átta eftir endur- kjöri. Nokkrir til viðbótar höfðu sömuleiðis sóst eftir því að vera á lista hjá sínum flokkum en hlutu ekki brautargengi. Lilja Rafney Magnúsdóttir náði ekki sæti á Alþingi. Hún skipaði ann- að sæti á lista Vinstri grænna í Norð- vesturkjördæmi. Lilja hafði leitt lista flokksins í kjördæminu síðustu þrjár kosningar og hafði verið á Alþingi í tólf ár. Hún segir niðurstöður kosn- inganna vera vonbrigði. „Já heilt yfir eru þetta vonbrigði þar sem maður reiknaði með að rík- isstjórnarsamstarf þessara þriggja flokka undir forystu Katrínar myndi skila Vinstri grænum betra fylgi en þetta,“ segir Lilja í samtali við Morg- unblaðið. Flokkar til vinstri séu öflugir Þá segir Lilja að vinstri menn þurfi að skoða stöðu sína og hætta að skjóta á hver annan. „Ég sem vinstri manneskja vil að flokkar til vinstri í heild sinni séu öflugir á Íslandi. Menn þurfa kannski að slípa betur saman áherslur sínar og finna betri sam- legðaráhrif. Þeir ættu ekki stöðugt að tala niður margt jákvætt sem gert er og eru góð vinstri mál, eins og mér hefur fundist hafa verið gert á síðasta kjörtímabili af hálfu margra í stjórn- arandstöðunni.“ Spurð hvort henni finnist að vinstri flokkarnir ættu að sameinast í einn flokk segir hún að það sé ekki endi- lega lausnin. Aftur á móti væri hollt fyrir alla að skoða hvað þau sem deila sameiginlegum hugsjónum geti gert til að hrinda þeim í framkvæmd. Lilja segist ekki vera viss um hvað hún fari að gera núna en kveðst ekki láta hætta að heyra í sér. Hefði viljað sterkari útkomu „Ég fer örugglega að gera eitthvað skemmtilegt en ég átti alveg eins von á því að það yrði erfitt að ná öðru sæti. Ég er ekki að missa mig yfir þessu persónulega en fyrir flokkinn minn og framtíð hans þá hefði ég vilj- að sjá útkomu hans sterkari. Ég er baráttukona í eðli mínu og hef áhuga á þjóðmálum og ég mun örugglega láta í mér heyra hvort sem það er í mínum flokki eða annars staðar.“ Silja Dögg Gunnarsdóttir Jón Steindór Valdimarsson Sigríður Á. Andersen Brynjar Níelsson Kristján Þór Júlíusson Páll Magnússon Ólafur Ísleifsson Karl Gauti Hjaltason Þorsteinn Sæmundsson Gunnar Bragi Sveinsson Sigurður Páll Jónsson Anna Kolbrún Árnadóttir Helgi Hrafn Gunnarsson Jón Þór Ólafsson Smári McCarthy Ágúst Ólafur Ágústsson Guðmundur Andri Thorsson Rósa Björk Brynjólfsdóttir Guðjón S. Brjánsson Albertína F. Elíasdóttir Kolbeinn Proppé Ólafur Þór Gunnarsson Lilja Rafney Magnúsdóttir Steingrímur J. Sigfússon Ari Trausti Guðmundsson B DD D D MMMM M M P P P V V V V V VS S S S C Hverfa á braut úr Alþingishúsinu - Átta þingmenn sóttust eftir endurkjöri en náðu ekki inn - Lilja Rafney segir niðurstöðu kosning- anna vonbrigði fyrir Vinstri græn - Vinstri flokkarnir eigi ekki að sameinast en þurfi að skoða stöðuna Morgunblaðið/Hari Þrif Átta fráfarandi þingmenn sótt- ust eftir endurkjöri í kosningunum. Inga Þóra Pálsdóttir ingathora@mbl.is Mjótt var á munum þegar kom að því hvaða jöfnunarþingmenn næðu inn á Alþingi. Frambjóðendur duttu ýmist inn eða út. Haldinn verður fundur um mögulega endurtalningu atkvæða í Suðurkjördæmi í dag. Vildi betri kosningu á landsvísu Una Hildardóttir, sem skipaði annað sæti á lista Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi, náði ekki kjöri á Alþingi en um tíma leit út fyrir að hún væri inni sem jöfnunarþingmað- ur. „Þetta er alltaf erfitt en ég átti von á því að ég myndi enda sem jöfnunarþingmaður í baráttu við rúlletuna þar, þannig að ég var með- vituð um það að ég gæti verið inni eða úti. Ég fór bara að sofa eftir að ég sá niðurstöðuna frá Suður- kjördæmi, því þá var ljóst að það væri ólíklegt að ég myndi enda inni sem jöfnunarþingmaður,“ segir Una í samtali við blaðamann Morg- unblaðsins. Niðurstöður kosninganna hafi komið henni aðeins að óvörum. ,,Niðurstöðurnar komu smá á óvart þar sem tvísýnt var hvort rík- isstjórnin héldi velli, en ég hefði vilj- að sjá okkur standa okkur betur á landsvísu.“ Una bætir við að það komi á óvart að Sósíalistaflokkurinn náði ekki manni inn. Hún hélt að sá flokkur ætti meira inni. „Það var leiðinlegt að sjá margar gamlar baráttusystur og -bræður, sem voru í innra starfi Vinstri grænna, ekki ná inn. Ég hefði viljað sjá þeim ganga vel líka.“ Kjósendur flokksins séu líklegri til að mæta á kjörstað en til að greiða atkvæði utan kjörfundar. „Við sjáum hjá okkur að við missum dampinn þegar kemur að utankjör- fundaratkvæðum. Það er eins og þau sem mættu á kjörstað á kjördag hafi verið líklegri til að kjósa okk- ur.“ „Vonbrigði fyrir mig“ Daði Már Kristófersson, sem skipaði annað sæti á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður og er jafnframt varaformaður flokksins, segir niðurstöðu kosninganna von- brigði en er ánægður með fylgi flokksins á landsvísu. „Það voru vonbrigði fyrir mig en á móti kemur að við fáum annað gott fólk inn. Það er augljóslega þannig að þjóðin vildi að rík- isstjórnin héldi áfram,“ segir Daði í samtali við blaðamann Morg- unblaðsins. Daði segir flokkinn spenntan fyrir sveitarstjórnarkosningunum í vor. „Við erum auðvitað mjög ánægð með að vera annar tveggja stjórn- arandstöðuflokka sem bættu við sig fylgi. Ég er sérstaklega ánægður með hvað okkur gekk vel úti á landi.“ Niðurstaðan frábær grunnur „Alveg frábært að vera komin með þingmann í Norðvest- urkjördæmi og gott fylgi í bæði Norðaustur- og Suðurkjördæmi. Það er mikið gleðiefni. Niðurstaðan gerir okkur spennt fyrir sveit- arstjórnarkosningum í vor.“ Spurður hvort Viðreisn hyggist bjóða fram lista um land allt í kom- andi sveitarstjórnarkosningum seg- ir Daði niðurstöðurnar vera frábær- an grunn fyrir það en of snemmt sé að segja til um það. Náðu ekki inn á þing eftir harðan slag - Hætti að horfa eftir klukkan fimm um nótt - Spenntur fyrir komandi sveitarstjórnarkosningum Daði Már Kristófersson Una Hildardóttir Formaður Sósíal- istaflokks Ís- lands, Gunnar Smári Egilsson, náði ekki kjöri á Alþingi. Flokkur hans fékk 4,1% atkvæða og var ekki langt frá því að fá þingsæti. Gunnar Smári sagði í viðtali við mbl.is í gær að hann væri ekki ánægður með úrslit kosninganna. Hann segir þó að þetta gengi flokksins marki hvorki upphaf né endi hans. Flokkurinn muni halda áfram að berjast og undirbúa sig nú fyrir sveitarstjórnarkosningar næsta vor. Framan af kosningabar- áttunni mældust Sósíalistar inni og bentu kannanir til að flokkurinn næði manni á þing. Gunnar Smári er ósáttur við 5% þröskuldinn og segir að í öllum nágrannalöndum Íslands hefði flokkurinn náð manni inn á þing. Gunnar Smári komst ekki á þing Gunnar Smári Egilsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.