Morgunblaðið - 27.09.2021, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2021
Ellefu myndir verða sýndar í heim-
ildarmyndaflokki Alþjóðlegrar kvik-
myndahátíðar í Reykjavík, RIFF,
sem hefst 30. september.
Umfjöllunarefnin eru fjölbreytt að
vanda og verður hér sagt frá þeim í
stuttu máli en frekari upplýsingar
um hátíðina má finna á riff.is.
Ailey segir af Alvin Ailey sem var
frumkvöðull á sviði danslistar. Hér
er dregin upp svipmynd af lista-
manninum og manneskjunni um leið
og fylgt er eftir sköpunarferli á
dansverki sem byggist á ævi hans.
Í Passion fer norska kvikmynda-
gerðarkonan Maja Borg í persónu-
lega og myrka reisu þar sem hún
kannar skurðpunkt helgisiða innan
BDSM og kristni. Cannon Arm and
the Arcade Quest segir af Kim sem
ætlar með hjálp vina sinna að reyna
við heimsmet í samfelldu
tölvuleikjaspili. Í Radiograph of a
Family kafar íranska kvikmynda-
gerðarkonan Firouzeh Khosrovani í
átök milli veraldarhyggju og ísl-
amskrar hugmyndafræði í írönsku
samfélagi.
Rebel Dykes segir af því er pönk-
ið og femínisminn mættust og sjón-
um beint að lesbíugengi sem var
áberandi í uppþotunum í Lundúnum
á níunda áratugnum. Skál er
dansk-færeysk mynd um Daníu sem
kynnist hipphopp-listamanni og fer
að skrifa eigin texta þar sem hún
veltir fyrir sér hvort það sé synd að
drekka, dansa eða sofa hjá fyrir
hjónaband. The Most Beautiful Boy
in the World segir segir af Björn
Andrésen sem lék í Dauðanum í
Feneyjum og leikstjóri hennar
sagði fallegasta dreng í heimi. 50
árum síðar ristir reynslan af gerð
myndarinnar enn djúpt hjá Andrés-
en.
The Scars of Ali Boulala segir af
Ali Boulala sem gerði garðinn fræg-
an á tíunda áratugnum sem hjóla-
brettakappi en eftir áralanga vímu-
efnanotkun, átakanlegt slys og loks
bata þarf hann að horfast í augu við
fortíðina. The Story of Looking seg-
ir af Mark Cousins sem bíður sjón-
aðgerðar og kannar þá hlutverk
sjónrænnar upplifunar á ein-
staklinga og samfélög. Blind Ambi-
tion segir svo af hópi Simbabve-
manna sem fyrstir landa sinna
stofna Ólympíusveit í vínsmökkun.
Um allt milli himins og jarðar
Ástríða Í Passion er fjallað um helgisiði innan BDSM og kristni.
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
THERE’S A LITTLE HERO INSIDE US ALL
RYAN REYNOLDS – JODIE COMER – TAIKA WAITITI
GEGGJUÐ NÝ GRÍNMYND
FRÁBÆR NÝ MYND FRÁ MARVEL STUDIOS
MYND SEM ALLIR VERÐA AÐ SJÁ Í BÍÓ
SIMU LIU AWKWAFINA WITHMICHELLE YEOH ANDTONY LEUNG
92%
KOMIN Í BÍÓ
T H E T E L E G R A P H
T H E G U A R D I A N
E M P I R E
TOTA L F I L M
90%
L
jóðin í nýju safni Þórdísar
Helgadóttur, Tanntöku,
eru mörg hver mögnuð,
hrá og ögrandi. Titillinn
gefur góða hugmynd um þau þemu
sem eru áberandi í verkinu og þau
áhrif sem verkið hefur á lesandann.
Tanntaka, það að
taka tennur, er
hluti af líkamlegu
þroskaferli hvers
barns. Ljóðmæl-
andinn í þessu
verki Þórdísar er
í stöðugri um-
breytingu, hann
fullorðnast, hann
þroskast. Eftir að
hafa lesið safnið
verður ljóst að tanntakan er ekki að-
eins sakleysislegur hluti af því að full-
orðnast. Tanntakan er nefnilega líka
brútal og blóðug. Hún öðlast nýja
merkingu. Við tökum ekki bara tenn-
ur, tennur geta líka verið teknar úr
okkur. Og hin saklausa tanntaka
barns er eiginlega hálfóhugnanlegt
fyrirbæri ef út í það er farið. Nátt-
úruleg falleg umbreyting kallast á við
yfirgengilegan ljótleika. Þórdís flakk-
ar á milli ljótleika og fegurðar, gerir
það sem er fagurt ljótt og öfugt.
Þessa greiningu á titli ljóðasafnsins
má síðan yfirfæra á safnið í heild. Það
einkennist meðal annars af miklum
líkamleika. Líkaminn í sinni hráustu
mynd fær að vera í forgrunni. Lýs-
ingarnar eru hráar og torræðar í
senn. Það er sérstaklega líkami kon-
unnar sem er áberandi í verkinu. Lík-
ami konunnar og allir þeir fasar sem
honum tilheyra, allar þær umbreyt-
ingar sem kvenlíkaminn fer í gegnum
á lífsleiðinni. Fæðing, blæðing og aft-
ur fæðing.
Þórdís hefur gott vald á tungu-
málinu og leikur sér með það. Hún
stefnir saman orðum og myndum
sem gefa ljóðasafninu mjög sérstakt
yfirbragð. Lýsingarnar eru oft
vægðarlausar en um leið fallegar í
ljótleika sínum. Eftirfarandi línur
úr ljóðinu „Þófar“, sem meðal ann-
ars hafa að geyma orðin „sírópssár“
og „sykurblóð“, fanga það hve
óvægnar og hráar þessar lýsingar
geta verið.
Það kom í ljós bólga
í líffærinu sem gleymir
útfellingarnar eru fingur í sírópssári
börkur sem brestur í lófum
hríð af granathöglum
fullum af sykurblóði og fræi (35)
Ljóðskáldið er ófeimið við að takast
á við óhugnanlegar hliðar þess að lík-
aminn þroskist og þróist, það að hann
eldist, veikist og deyi.
En það eru ekki bara líkaminn og
ljótleikinn sem fá pláss í Tanntöku.
Þórdís skrifar líka um mannleg sam-
bönd en oft á þann hátt að lýsingarnar
verða á einhvern hátt líkamlegar. Hún
lýsir samfélagi kvenna sem tengjast
böndum vegna sameiginlegrar
reynslu af því að lifa í kvenlíkama.
Hún lýsir ættarböndum, samböndum
fólks sem tengist ósjálfrátt böndum
vegna þess að það er blóðskylt. Öll er-
um við komin af einhverjum og mörg
okkar eignast afkvæmi. Þannig heldur
hringrásin áfram.
Ljóðabók Þórdísar er krefjandi
lesning. Ljóðin einkennast af því að
veita lesandanum mikla mótstöðu en
vekja um leið forvitni hans. Þetta eru
ljóð sem mann langar að lesa aftur og
aftur, til þess að skilja þau betur og
betur eða bara til þess að láta áhrif
þeirra hellast yfir sig á ný.
Þroski eða blóðug umbreyting
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tanntaka Að mati gagnrýnanda eru ljóðin í nýrri ljóðabók Þórdísar Helgadóttur mörg mögnuð, hrá og ögrandi.
Ljóðabók
Tanntaka bbbbm
Eftir Þórdísi Helgadóttur.
Mál og menning, 2021. Kilja, 80 bls.
RAGNHEIÐUR
BIRGISDÓTTIR
BÆKUR