Morgunblaðið - 27.09.2021, Qupperneq 32
CHANEL Nettur stóll
frá Calia Italia
Stærð: 67 cm
Leður: Biscotto. Verð 190.000 kr.
Stóllinn er einnig fáanlegur með
snúningsfæti. Hægt að panta í
tveggja og þriggja sæta sófa, í
mörgum litum, bæði
í leðri og taui
fyrir heimilið
Sendum
um
land
allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377
bustod@bustod.is | www.bustod.is
FALLEGAR VÖRUR
JULIET er æðislega fallegur sófi frá Calia á Ítalíu.
Stærð 216 cm. Verð 690.000 kr.
Einnig fáanlegur sem stóll og 2ja sæta sófi (160 cm).
ORLANDO tungusófi frá Calia á Ítalíu.
Nautsleður allan hringinn.
Stærð: 271x167 cm. Verð 590.000 kr.
Einingasófi þar sem hægt er að púsla saman sófa á marga
vegu. Einnig hægt að panta í tveggja og þriggja sæta sófum.
Hægt að panta í mörgum litum, bæði í leðri og taui.
PIER sófinn frá Calia á Ítalíu er orðið eitt vinsælasta módel
Bústoðar. Það er fáanlegt í fjölmörgum litum af taui, micro-
fiber eða leðri. Hægt er að fá Pier í mörgum útfærslum,
bæði með og án rafmagns, og jafnvel tungusófa.
Ítalskt, gegnlitað nautsleður
3ja sæta sófi (226 cm) 339.000 kr.
2,5 sæta sófi (206 cm) 319.000 kr.
2ja sæta sófi (186 cm) 299.000 kr.
Hornsófi 270 x 227 cm með rafmagni í sæti. Verð 615.000 kr.
Stóll á snúningsfæti í ítölsku
nautsleðri. Einnig fáanlegur
á löppum. Hægt að panta
stólinn í mörgum litum,
bæði leðri og taui.
75 cm á breidd.
Verð frá 139.000 kr.
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran og Francisco
Javier Jáuregui gítarleikari bjóða til ferðalags um tón-
heim rithöfundarins, ljóð- og leikritaskáldsins Federico
Garcia Lorca í Salnum á morgun kl. 19.30. „Munu þau
flytja vinsælar útsetningar Lorca á spænskum þjóð-
lögum í bland við tónlist samtímamanna hans þá Falla,
Rodrigo, Giménez og Tarragó. Að auki flytja þau útsetn-
ingar Javiers á sönglögum úr sefardískri hefð útlægra
spænskra gyðinga,“ segir í tilkynningu.
Heimur Garcia Lorca í Tíbrá
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Ég trúi þessu ekki sjálf, að ég sé
orðin hundrað ára,“ segir Minni Kal-
sæg Gunnarsson glaðlega, en hún
fagnar nú samt aldarafmæli í dag. „Á
langri ævi eru erfiðu tímarnir í seinni
heimsstyrjöldinni mér eftirminni-
legastir, og að hafa misst pabba minn
þegar ég var lítil stúlka,“ segir Minni
og tekur fram að hún hafi átt góða
ævi á Íslandi og að allir hafi tekið
henni vel þegar hún flutti til Íslands
árið 1951, þá aðeins þrítug ung kona.
Ekki minni menn en Þórbergur
Þórðarson og Gunnar Dal sáu um að
kenna henni íslensku. Minni á stór-
merkilega sögu, hún fæddist inn í
efnafjölskyldu í bænum Eidsvoll í
Noregi árið 1921. Eftir að faðir henn-
ar lést í bílslysi þegar Minni var átta
ára, tóku afi hennar og amma fljót-
lega við uppeldishlutverkinu, en
móðir hennar flutti til Óslóar eftir að
hún giftist aftur. Afi Minniar, Carl
Martin Kalsæg, var virtur kaup-
sýslumaður og lést þegar Minni var
14 ára. Þegar seinni heimsstyrjöldin
skall á gekk Minni til liðs við
andspyrnuhreyfinguna, aðeins 19
ára. Noregur var hernuminn í fimm
ár og Þjóðverjar tóku yfir stóru hús-
in, meðal annars hús fjölskyldu
Minniar, eftir að amma hennar lést.
Þangað inn flutti þýskur hermaður
og Minni var í stöðugri hættu því
andspyrnuhreyfingin hélt fundi í
húsinu. Á þessum hættutímum upp-
lifði Minni margt sem líður henni
ekki úr minni, meðal annars voru fé-
lagar hennar sendir í fangabúðirnar í
Sachsenhausen og þeir sem áttu
afturkvæmt urðu aldrei samir. Eftir
stríð hjúkraði hún rússneskum og
pólskum föngum sem höfðu verið í
fangabúðum nálægt hennar
heimabæ og voru mjög illa farnir eft-
ir vistina þar. Eftir stríð sinnti Minni
fyrirtæki fjölskyldunnar og þegar
hún fór til Óslóar til að mennta sig í
viðskiptum gripu örlögin í taumana.
Þar kynntist hún íslenskum manni,
Ólafi Gunnarssyni sálfræðingi, þau
giftu sig og hún flutti með honum til
Íslands. Þau Minni og Ólafur áttu
saman tvö börn, Kari og Snorra, en
skildu eftir nokkurra ára hjónaband.
Minni hóf þá störf á dagblaðinu Vísi
og vann þar alla sína starfsævi, sem
gjaldkeri og skrifstofustjóri. Minni
segir ótrúlega margt hafa breyst á
þeim hundrað árum sem hún hefur
lifað. „Tækniframfarirnar hafa verið
miklar, sjónvarp, sími, bílar og ótal
margt fleira sem veitir okkur
nútímaþægindi,“ segir Minni sem á
fjögur ömmubörn. Í dag verður af-
mælisveisla með nánustu ættingjum
í tilefni dagsins á hjúkrunarheimilinu
Eir, þar sem Minni dvelur. Hún slas-
aðist fyrir einu ári og hefur verið í
hjólastól síðan, en hún bjó heima þar
til hún var rúmlega 99 ára.
„Það er ekkert að henni mömmu,
nema að hún er að verða gömul. Hún
hefur alltaf verið sjálfri sér nóg og fé-
lagslynd. Meðan hún keyrði bíl þá
var hún alltaf að fylla bílinn af göml-
um konum og þeysast í bíltúra í
Skóga, Vík í Mýrdal eða annað. Hún
hefur nýtt alla möguleika lífsins vel
hún mamma,“ segir Kari dóttir
hennar og bætir við að móðir hennar
hafi fengið orðu frá norska konung-
inum fyrir störf sín í andspyrnu-
hreyfingunni.
Fyrrverandi andspyrnu-
hreyfingarkona 100 ára
- Minni Kalsæg Gunnarsson hefur lifað merkilega ævi
Morgunblaðið/Unnur Karen
Ern Minni bjó heima hjá sér þar til hún var rúmlega 99 ára, en býr nú á Eir.
Minni í Öskjuhlíð 1961 Þá fertug og búin að búa á Íslandi í áratug.
MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 270. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Bandaríkin tryggðu sér í gærkvöldi sigur í Ryder-
bikarnum í golfi þegar mótið var haldið í 43. sinn. Ry-
der-bikarinn fer fram á tveggja ára fresti og mætast
bestu kylfingar Evrópu og bestu kylfingar Bandaríkj-
anna. Mótið í ár fór fram á Whistling Straits-vellinum í
Wisconsin í Bandaríkjunum.
Bandaríkin náðu í gott forskot á fyrsta degi og héldu
því allt til loka. Lokatölur urðu 19:9, sem er stærsti sig-
urinn frá árinu 1979 þegar Evrópa tók þátt í fyrsta
skipti. »27
Stórsigur Bandaríkjanna á Evrópu
ÍÞRÓTTIR MENNING