Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.09.2021, Blaðsíða 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.9. 2021
Ég man þá tíð þegar efni í fjölmiðlum var
þannig að ef þú misstir af einhverju þá
var það bara farið. Línuleg dagskrá var
eina dagskráin.
Ég man líka þegar það var bara ein útvarps-
rás á Íslandi sem spilaði mest þunglamalega
klassík nema mögulega í tvo klukkutíma á viku
í óskalagaþáttum sjómanna, sjúklinga og unga
fólksins.
Ég man líka þegar þessi eina sjónvarpsrás
sem við höfðum sendi ekki út á fimmtudögum
og ekki í júlí.
Ég man að lesblindu börnin þóttu bara vit-
laus og voru sett í tossabekk.
Ég man þegar mjólk var seld í sérstökum
búðum, sem einmitt seldu bara mjólk. Voru
þess vegna kallaðar mjólkurbúðir.
Ég man líka þegar búðum var bannað að
hafa opið lengur en til klukkan 18 á daginn og
það mátti ekki hafa opið á sunnudögum. Ef þú
áttir ekki mjólk á sunnudegi þá var það bara
þannig.
Ég man þegar það þótti eðlilegt að eyða heil-
um degi í að fá skoðun á bílinn sinn í Bifreiða-
eftirliti ríkisins. Þá þurfti maður að vera búinn
að fara á annan stað og fá sérstaka skoðun á
ljósin í bílnum.
Ég man þegar þriggja stafa verðbólga var
daglegt brauð.
Ég man eftir gulu miðunum þegar maður fór
yfir á ávísanaheftinu.
Ég man eftir hallærisplaninu þar sem ung-
lingar komu allar helgar.
Ég man eftir að hafa verið sleginn utan undir
af kennara. Það þótti eðlilegt.
Ég man eftir því að það þótti eðlilegt að kon-
ur fengju lægri laun.
Ég man hve margir urðu reiðir þegar lög
voru sett um bílbeltanotkun.
Ég man þegar það var bara hægt að kaupa
tvær tegundir af kaffi á Íslandi.
Ég man eftir
fólki sem fannst
það fáránleg
hugmynd að ein-
stæð móðir yrði
forseti.
Ég man þá tíð
þegar nánast allir fjölmiðlar landsins voru
reknir af stjórnmálaflokkum og fréttir þeirra
litaðar af því.
Ég man þegar við máttum ekki kaupa bjór
nema við ynnum hjá flugfélagi.
Ég man þegar það þótti eðlilegasti hlutur í
heimi að allir reyktu innandyra. Alls staðar.
Ég man eftir bjórlíki.
Ég man þegar samkynhneigð þótti óeðli og
yfirleitt talað um homma sem kynvillinga.
Brúðkaup voru ekki í boði fyrir þetta fólk.
Ég man þegar það þótti ekkert athugavert
við að áreita konur.
Ég er 54 ára.
’
Ég man þegar það þótti
eðlilegasti hlutur í heimi
að allir reyktu innandyra.
Alls staðar.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Ég man
Loftslagsváin hefur sent heim-
inn á hraðferð inn í græna
orkubyltingu og Ísland hefur
einstakt tækifæri til að taka þar af-
gerandi forystu. Það er sjálfbært og
loftslagsvænt efnahagstækifæri –
risastórt tækifæri – sem við eigum
að sækja stíft.
Markmið Íslands
Við höfum sett okkur mörg mark-
mið í loftslagsmálum en það sem er
kannski skýrast og hreinlegast af
þeim öllum snýst einfaldlega um að
Ísland verði óháð jarðefnaeldsneyti.
Að við hættum að nota innflutta ol-
íu. Þetta markmið var sett í nýrri
langtímaorkustefnu fyrir Ísland,
sem ég beitti mér fyrir að yrði unn-
in í þverpólitísku samstarfi.
Hvenær viljum við að það gerist?
Í orkustefnunni segir fyrir árið
2050 en þar sem ómögulegt er að
spá fyrir um hvernig mál þróast er
eðlilegra að stefna að því að ná
þessu markmiði
fyrst allra þjóða
heims. Það er
raunhæft, við
getum það og því
myndu fylgja
gríðarleg tæki-
færi, fyrir um-
hverfið og fyrir
okkur öll.
Hvað þarf til?
Greiningar sem unnar hafa verið
fyrir Samorku benda til þess að við
þurfum um 1.200 megavött af upp-
settu afli í raforku til að losa okkur
við núverandi notkun okkar á jarð-
efnaeldsneyti á öllum sviðum, í lofti,
láði og legi, hér innanlands. (Milli-
landaflug er því undanskilið). Þessi
tala getur hækkað eða lækkað eftir
því hvaða orkugjafar munu koma í
stað olíunnar, en það gætu orðið
rafmagn, vetni, annað rafeldsneyti
eða lífmassi í ólíkum hlutföllum eft-
ir því hvort um er að ræða þunga-
flutninga, innanlandsflug, fiski-
pskipaflotann o.s.frv.
Til að setja 1.200 MW í samhengi
þýðir þetta að við þurfum að auka
raforkuframleiðslu um ríflega þriðj-
ung frá því sem nú er. Það er alls
ekki óyfirstíganleg áskorun. En
þessu til viðbótar þurfum við að
geta sinnt þörfum nýrrar orkusæk-
innar starfsemi á borð við gagna-
ver, ylrækt og fleira, auk þess sem
við gætum viljað selja hluta af
græna eldsneytinu okkar til ann-
arra landa. Loks er allt útlit fyrir
að millilandaflug færi sig á næstu
árum yfir í umhverfisvænna elds-
neyti, sem við myndum að sjálf-
sögðu líka vilja framleiða. Orku-
þörfin er því umtalsverð, fyrir
alvöruorkuskipti.
Til að sækja þetta tækifæri þurf-
um við að styðja myndarlega við
þróun á þeim nýju lausnum sem
þarf til að skipta út núverandi
mengandi orkugjöfum, hafa aðlað-
andi og samkeppnishæft umhverfi
fyrir fjárfesta sem vilja byggja upp
græna starfsemi, og tryggja að sú
orka sem til þarf verði til staðar.
Núverandi regluverk stendur í vegi
fyrir því og úr því þarf að bæta, án
þess að gefa afslátt af kröfum um
umhverfisvernd og sjálfbæra nýt-
ingu auðlinda.
Hvað þýðir það fyrir
mig og þig?
Ávinningurinn er bæði stór og
margþættur. Loftslagið mun njóta
góðs af. Aðgengi íslenskrar fram-
leiðslu að erlendum mörkuðum mun
stóraukast og verð hennar hækka.
Þjóðarbúið mun spara tugi millj-
arða í gjaldeyr-
istekjur sem í
dag fara til
kaupa á meng-
andi jarð-
efnaeldsneyti
frá útlöndum.
Orkuöryggi og
orkusjálfstæði
Íslands mun aukast. Aukin raf-
orkuframleiðsla í þágu stærri hóps
viðskiptavina stuðlar að betri nýt-
ingu orkuauðlinda og minni sóun á
þeim, sem er því miður umtalsverð í
dag. Dýrmæt þekking mun byggj-
ast upp á Íslandi sem hægt verður
að flytja út. Sprotar og nýsköp-
unarfyrirtæki munu spretta fram
og vaxa, rétt eins og gerst hefur í
kringum sjávarútveginn svo dæmi
sé tekið. Ísland mun vekja heims-
athygli ef við tökum afgerandi for-
ystu í loftslagsmálum og grænu
byltingunni, með allri þeirri land-
kynningu og fjölbreytta ávinningi
sem slík staða hefur í för með sér.
Og síðast en ekki síst verða til ný
atvinnutækifæri og stóraukin verð-
mætasköpun; hreinlega nýr hug-
vitsdrifinn atvinnuvegur í fram-
leiðslu á vistvænu eldseyti
framtíðarinnar.
Hugur þarf að fylgja máli
Ákvörðunin um þessa framtíðarsýn
hefur í raun verið tekin. Við höfum
tekið hana sjálf, en heimurinn hefur
líka að einhverju leyti tekið hana
fyrir okkur vegna þess að hér er
um aðkallandi hagsmuni alls mann-
kynsins að ræða.
Spurningin snýst um trúverðuga
leið að markmiðinu og hvort hugur
fylgir raunverulega máli um að
sækja fram og sækja tækifærin. Sú
spurning er eitt mikilvægasta hags-
munamál Íslands til framtíðar, en
henni þarf að svara strax í dag. Það
dugar ekki að segjast vilja orku-
skipti og græna nýsköpun en horfa
á sama tíma fram hjá orkunni sem
þarf til. Hér þarf að fara saman
hljóð og mynd.
Morgunblaðið/Hari
Eitt stærsta hags-
munamál Íslands
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
’
Spurningin snýst um
trúverðuga leið að
markmiðinu og hvort
hugur fylgir raunveru-
lega máli um að sækja
fram og sækja tækifærin.
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com
Sölustaðir: Hagkaup, Nettó, Heilsuhúsin, Veganbúðin,
Fiskkompaní Akureyri & Matarbúr Kaju Akranesi
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?