Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.09.2021, Síða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.09.2021, Síða 17
og þeir sem voru veikir fyrir því að kjósa „Ekki Trump“ töldu óþarft að mæta á fundi þar sem Trump væri ekki, enda væri fundurinn um Ekki Trump og eðli málsins samkvæmt væri ekki gert ráð fyrir að „Ekki Trump“ mætti. Donald Trump horfði á þetta furðu lostinn og taldi sig ekki hafa neitt að óttast. En kosningareglum var breytt í fjölda kjör- dæma þar sem mjótt yrði á munum, „með hliðsjón af neyðarástandi vegna Covid-19“. Slíkar breytingar heyra samkvæmt stjórnarskrá undir ríkisþingin. En vegna „neyðarstöðu“ þá tóku ríkisstjórar úr röðum demókrata iðulega að sér að gera þessar breytingar. Óvenjuleg framkvæmd Atkvæði voru auðvitað greidd með hefðbundnum hætti utan kjörfundar, en því til viðbótar gátu kjós- endur nú pantað atkvæði heim og svo var boðin út sú starfsemi að safna slíkum atkvæðum saman í millj- ónavís og ekki var nein leið til að skoða eftir á, hvernig væri tryggt að þeir sem kysu „heima hjá sér“ væru á kjörskrá, kysu einn fyrir alla og þar fram eftir götunum. Engum manni hefur enn dottið í hug að annað eins eða þvíumlíkt yrði látið gerast austan megin Atlants- hafs. Þegar þessi staða tók loks að renna upp fyrir Repúblikönum var of seint í rassinn gripið. Stöðva hefði þurft þessa framgöngu miklu fyrr á meðan ein- hver gögn um ósköpin væru til, sem reyndar er nú efast um að hafi nokkru sinni verið til. Það var óboð- legt að ímynda sér að bandarískir dómstólar myndu grípa inn í eftir að úrslit, þannig fengin, lægju fyrir. Það hefði leitt til stjórnlausra uppþota og óupp- gerðra kosninga mánuðum og jafnvel misserum saman. Dómstólarnir hefðu verið settir í óþolandi stöðu. Repúblikanar hlutu því að bera halla af tóm- læti sínu. Niðurstaða spekinganna En það er eitt sem er ekki síst eftirtektarvert varð- andi spurninguna sem spekingarnir fengu og hafa spjallað um síðan. Afganistanmálið er líklegt að þeirra mati til að falla í gleymsku og dá og spila óverulega rullu í næstu kosningum. En öðru máli gegnir um Joe Biden. Biden-hjónin voru send til að vera viðstödd þegar líkamsleifar föllnu hermannanna komu til heima- landsins og ættingja hinna látnu. Þegar kisturnar, sveipaðar bandaríska fánanum, voru bornar af her- mönnum fram hjá fyrirmennum, með forsetann og frú hans fremst, sást forsetinn líta á armbandsúr sitt oftar en einu sinni. Engu var líkara en að forsetinn mætti bara alls ekki vera að þessu. Þetta fór að von- um illa í ættingjana sem máttu ekki við miklu á þessu viðkvæmasta augnabliki ævinnar. Og sjón- varpsáhorfendur voru sem þrumu losnir. Þetta var sami forseti og hafði sagst í sjónvarpsávarpi aldrei mundu gleyma þessum atburðum! Skömmu áður en hann gaf út þá yfirlýsingu var hann spurður um þann hrylling, þegar ungir Afgan- ar á flótta sáust falla úr mörg hundruð metra hæð niður á flugvöllinn úr flutningavélum hersins. For- setinn svaraði blaðamanninum með þessum orðum: „Com’on man, that was 4 days ago!“ Deilt um dott Um þetta leyti var nýr forsætisráðherra Ísraels mættur í skrifstofuna í Hvíta húsinu. Á meðan hann flutti upphafsorð sín, sjálfsagt þau mikilvægustu á ferlinum fram til þessa, varð ekki betur séð en að Joe Biden forseti væri sofnaður. Um það hefur síðar verið deilt. Fjölmiðlar, sem vörðu Biden, segja að hann hafi að vísu horft niður og lokað augunum, en það hafi staðið stutt og sé myndbandið skoðað aðeins lengur þá sjáist lífsmark með Biden, því á myndinni sjáist hann „hreyfa annan þumalfingurinn!“ Ekki skal neita því að það er vissulega betra en ekkert, en á hinn bóginn fer ekki á milli mála, þegar horft er á Bennet, forsætisráðherra Ísraels, að hann er orðinn mjög vandræðalegur og reynir, svo áber- andi er, að ná athygli forsetans. En vera má að til- þrifin með þumalfingurinn hafi farið fram hjá ráð- herranum. Spyrja mætti sig að því, hvort það sem blasir við fólki, þrátt fyrir að forsetanum sé haldið frá því, sé aðallega eitthvað smálegt sem gleymist. Sumt er smátt í sniðum, en jafnvel það lendir óhjákvæmilega í mælinum sem fyrr en síðar verður fullur. Og það er reyndar býsna mikið komið þangað þegar. Forsetinn muldrar setningar sem enda svo úti á túni, svo að hvorki áhorfendur né hann sjálfur geta vitað út á hvað tuldrið gekk. Hann kynnti varnarmálaráðherrann sinn og lendir úti í skurði og segist aldrei muna hvað sá maður heiti eða í hvaða ráðuneyti hann sé, en það sé mjög stórt! Þetta síðasta er reyndar rétt, en er endilega ástæða til að verðlauna Biden fyrir það að hann rámi í að Pentagon, þar sem 25.000 manns vinna, sé stórt! Og hvernig halda menn að áhorfendum líði? Eða varnarmálaráðherranum nafnlausa? Eða blaðamönn- unum sem fá ekki að spyrja forsetann, því að Biden segist „hafa fyrirmæli um hverjum hann megi svara og hverjum ekki“. Spurt er að því hver það sé sem hefur vald til að gefa forseta Bandaríkjanna „fyrir- mæli“. Ekkert svar fæst. Og þótt verulegur hluti af öllum þessum yfir- gengilega skrítnu uppákomum sé smælki, breytir það ekki alvörunni. Forsetinn fullyrti fyrir fáeinum vikum að það væri ekki minnstu áhyggjur að hafa af „getgátum“ um það að talíbanar myndu ná höfuðborginni Kabúl fyrr en áður var ætlað. Forsetinn sagði það óhugsandi! „Kabúlstjórnin réði yfir einum öflugasta her ver- aldar og gæti varið höfuðborgina mánuðum og árum saman.“ Hún féll fáum dögum síðar! Það er því rétt hjá skýrendum að kjósendur munu ekki endilega hafa Afganistan efst í huga eftir fáeina mánuði. En hitt er þar. Og það fer ekki. Þvert á móti. Það sem hefur versnað hratt síðasta misserið mun ekki standa í stað, sem væri þó nægilega skelfi- legt. Horfurnar eru ekki betri en þær voru fyrir stjórnina í Kabúl fyrir örfáum vikum, þegar allt var í svo frábæru standi. Spyrjið bara Biden. Morgunblaðið/Árni Sæberg ’ Um þetta leyti var nýr forsætisráðherra Ísraels mættur í skrifstofuna í Hvíta hús- inu. Á meðan hann flutti upphafsorð sín, sjálfsagt þau mikilvægustu á ferlinum fram til þessa, varð ekki betur séð en að Joe Biden forseti væri sofnaður. Um það hefur síðar verið deilt. 5.9. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.