Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.09.2021, Síða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.09.2021, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.9. 2021 MATUR FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 AFGREIÐSLUTÍMI Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16 www.betrabak.is KYNNINGARAFSLÁTTUR 20% SERTA OCEAN SPLENDID SERTA ER OPINBER BIRGIR Kynningarverð 519.920 kr.Verðdæmi: Serta Ocean Splendid 2 x 80 x 200 cm. Fullt verð: 649.900 kr. Náttborð ekki inni- falið í verði en selt sér. Serta Ocean Splendid eru fáanleg í tveimur áklæðisgerðum gráu sléttflaueli og gráu áklæði. Þau fást í fjórum stærðum; 160/180/200 x 200 cm og 180 x 210 cm NÝTT SERTA OCEAN SPLENDID Á horni Laugavegs og Berg- staðastrætis er hægt að gleyma íslenskum raun- veruleika um stund því þegar gengið er inn um dyrnar á Selva er vel hægt að ímynda sér að maður sé staddur fyrir sunnan miðbaug. Selva er glæ- nýr veitingastaður og bar sem sér- hæfir sig í réttum og suðrænum kok- teilum frá Mið- og Suður-Ameríku. Seiðandi latíntónlist fyllir loftið, stemningin er óneitanlega kósí og framandi réttir suðrænu álfunnar eru á diskum gesta, sumir þeirra hangandi á sérstökum spjótum. Frá Kúbu til Argentínu Arnór Bohic, eigandi og fram- kvæmdastjóri Selva, hefur verið í veitingageiranum í 27 ár en hann byrjaði átján ára sem barþjónn en lærði síðar veitingarekstur í hótel- skóla í Sviss. Hann er afar ánægður með viðtökurnar en opnað var fyrir mánuði. „Það er búið að ganga gríðarlega vel og fólk er ánægt með matinn og segir að nú sé komið nýtt bragð í bæinn. Það er líka ánægt með stemninguna en við spilum lat- íntónlist. Hugmyndin var að opna mið- og suðuramerískan stað en orð- ið Selva þýðir frumskógur í Amazon. Við innréttuðum staðinn svolítið með það í huga og höfum hér græn- an plöntuvegg og bambustré er hér uppi á efri hæð,“ segir Arnór. „Mig langaði að koma með nýtt konsept í matarmenninguna, en ég hafði verið í eitt ár sem skiptinemi í Venesúela og einnig hálft ár í Mexíkó. Í þessum löndum kynntist ég suðuramerískri menningu sem ég hef alltaf verið gríðarlega hrifinn af, bæði tónlistinni og matnum. Kona mín er frá Síle og Kólumbíu þannig að ég þekki vel þennan heimshluta. Kokkarnir hér eru frá Suður- Ameríku, annar frá Síle og hinn frá Venesúela,“ segir Arnór og segir þau fara vítt og breitt um álfuna í matargerðinni. „Við leikum okkur með rétti í raun alveg frá Kúbu og niður til Argent- ínu. Við höfum valið rétti sem fólk kannski þekkir en sett okkar mark á þá. Þetta eru réttir sem gaman er að deila en margir réttir eru bornir fram skemmtilega á spjótum. Hér er allt lagað frá grunni; öll deig og allar sósur.“ Sextíu tegundir af rommi Mikið úrval drykkja má finna á barnum, bæði vín, kokteila og romm. „Á barnum er þjónn frá Kúbu að hrista kokteila. Selva er líka bar og hér eru margir góðir suðrænir kok- teilar. Það verður opið hér til tvö um helgar þegar takmarkanir hætta og þá verður hér barstemning fram eft- ir nóttu. Öll vínin okkar eru frá Suð- ur-Ameríku og erum við með skemmtilegasta rommsafnið í bæn- um. Við erum komin með yfir sextíu tegundir af rommi,“ segir Arnór. „Hér hefur verið alveg fullt um helgar,“ segir Arnór og bætir við að opið sé frá klukkan fimm alla daga nema mánudaga. „Spjótin okkar eru vinsæl og líka hjúpaðar ostastangir. Sósurnar eru líka gríðarlega góðar,“ segir Arnór sem deilir svo með lesendum nokkr- um velvöldum uppskriftum. Veitingamaðurinn Arnór Bohic er hér með konu sinni Paola Cardenas en hún er frá Síle og Kólumbíu. Morgunblaðið/Eggert Nýtt bragð í bæinn Stemningu frá Mið- og Suður-Ameríku má nú finna á Laugavegi en þar er nýr veitingastaður sem ber nafnið Selva. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Það er skemmtilegt að sitja á barnum á Selva og fá sér gott romm eða kokteil. 3 cl dökkt romm 6 cl kokoskrema (2 stórar msk.) 9 cl ananassafi 5-7 ananas bitar 2 cl af lime-safa, kreistum 2 cl af sykursírópi kanill á hnífsoddi 6 klakar Setjið öll hráefnin í bullet- blandara og blandið þar til komin er kremuð áferð á drykkinn. Hell- ið svo í stórt glas með auka klaka, röri, kokteil regnhlíf og rauðu kok- teilberi. Pinacolada

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.