Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.09.2021, Síða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.09.2021, Síða 20
Sigrún Jónsdóttir kirkjulistakona stendur hér við hátíðarhökul fyrir Reynistaðakirkju í Skagafirði í apríl árið 2001. 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.9. 2021 LÍFSSTÍLL S igrún Jónsdóttir hefur verið nefnd fyrsta kirkjulistakona Íslendinga og er hún líklega mikilvirkust allra Íslendinga í kirkju- skrúðagerð. Í Seltjarnarneskirkju er nú sýning á verkum hennar sem stendur út september. Sigrún hefði orðið hundrað ára 19. ágúst síðastliðinn en hún lést fyrir tæp- um tuttugu árum. Á sýningunni sem biskup Íslands stendur fyrir má sjá úrval af höklum sem Sigrún gerði á langri ævi, en einnig altarisklæði og trúarleg myndverk. Þá eru sýndir ýmsir verald- legir nytjahlutir sem hún gerði eins og batik-lampar, myndir, kjólar og fleira. Tengdi hökla við umhverfið Eftir nám í Kvennaskólanum sótti Sigrún námskeið í saumum og handavinnu, bæði hjá einka- kennurum og í Handíða- og myndlistaskólanum. Síðar aflaði hún sér réttinda til handavinnu- kennslu og fór svo til Gautaborgar í listnám þar sem hún bjó í tíu ár við nám og störf. Eftir heimkomuna vann hún fjölda hökla fyrir kirkjur víðs vegar út um land og þótti hún einkar fundvís á að tengja ýmis stef úr umhverfi kirkn- ýmis önnur verk eins og leirverk, kjóla, batik-lampaskerma og klæði. Verk í fimmtíu kirkjum Biskup Íslands, Agnes M. Sigurð- ardóttir, segir að með þessari sýn- ingu vilji þjóðkirkjan gjalda Sigrúnu virðingu og þökk fyrir merkilegt og heillandi lífsstarf. „Sigrún var fyrst til að læra sér- staklega kirkjulist. Verk eftir hana eru í um fimmtíu íslenskum kirkjum þannig að hún hefur sannarlega skilið eftir sig fjársjóð. Hún var rosalega afkastamikil, bæði í kirkjulistinni og í öðru. Það var kraftur í henni og hún lét verkin tala. Þetta eru falleg verk. Sigrún var brautryðjandi. Ég á sjálf einn lampa eftir hana og hef átt í yfir fjörutíu ár,“ segir Agnes. „Mér fannst ástæða til að halda nafni henn- ar á lofti vegna alls sem hún gerði fyrir ís- lensku kirkjuna og nú var gott tilefni þar sem hundrað ár eru liðin frá fæðingu hennar,“ segir Agnes og hvetur fólk til að leggja leið sína í Seltjarnar- neskirkju. Sýningin er opin þriðjudaga til fimmtudaga kl. 13-17, og föstudaga frá 13 til 16. Skildi eftir sig fjársjóð Afar fínlegan saum má sjá á hökli með mynd af Jesú á krossinum. Hér má sjá mynd sem vísar til inngangs kirkjugarðsins í Vestmannaeyjum. Kirkjulistaverk Sigrúnar Jónsdóttur eru nú til sýnis í Seltjarnarneskirkju en hundrað ár eru frá fæðingu hennar. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Höklarnir hennar Sigrúnar eru hrein listaverk. anna við myndefni sitt í höklunum. Það gerði þá einstaka í hugum sókn- arfólksins, sem sá ekki bara gömul al- þjóðleg kristin tákn í skreytingum þeirra og eftir atvikum vefnaði heldur og sína sveit og sitt pláss. Fleira gerði hún en hökla því eftir hana liggja einnig altarisklæði, stólsklæði, stólur og kirkjumyndverk. Hún vann einnig Sigrún fór oft óhefð- bundnar leiðir í útfærslum sínum. Morgunblaðið/Ásdís

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.