Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.09.2021, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.9. 2021
Elsku Fiskurinn minn, það eru ýmsir hlutir sem hafa verið stressandi og pirrandi
og þú hefur alveg tekið inn í hjarta þitt. Þú hefur þá tilfinningu að þú komist ekki út úr vissum að-
stæðum eða getir ekki lagað þær. Þessi tíðni er að snúa sér og þú átt eftir að hugsa: „Af hverju var ég
að pirra eða að ergja mig á hinu eða þessu?“ Og þó að þú hafir tekið einhverja áhættu sem þú ert kvíð-
inn fyrir þá breytist viðhorfið til hennar því það virðist vera þannig að ekkert er eins og það sýnist.
Þegar 18. september gengur í garð líður þér betur og betur og betur. Og ef við förum aðeins lengra
fram í tímann er það 13. október, því þá geturðu fagnað. Akkúrat núna geturðu gert þér glaðan dag,
haft þakkargjörðarhátíð. Þó þetta sé ekki hennar tími þá ræður þú hvað þú vilt gera.
Það eru svo margir að hugsa til þín og sakna þín. Skrifaðu þá niður þá sem þú hefur ekki heyrt í lengi
og gerðu eitthvað í því. Allar tengingar sem tengjast ást, vináttu og væntumþykju þarftu að skoða og
gera eitthvað í því að safna því fólki nær þér og þegar þú byrjar er eins og þú hafir staðsetningarbúnað
á þér. Þú veist algjörlega við hvern þú átt að tala og hvert þú átt að fara og þú eflir gæskuna sem svo
sannarlega í þér býr. Þú skalt einblína á að samgleðjast öðrum, þótt þig langi jafnvel ekkert til þess.
Merki þitt táknar og sýnir tvo fiska sem synda saman. En þegar þér finnst alls ekki allt vera á hreinu
eða í lagi, er einfaldlega eins og fiskur númer tvö hafi siglt aðra leið án þín. Útkoman úr þessari spá er
það sem skiptir öllu máli, svo taktu vel eftir því að þér á eftir að finnast að þú hafir aldrei verið eins
ánægður, hamingjusamur eða heppinn.
Það er allt miklu nær þér en þú heldur af því sem þig vantar. Og fólk elskar þig miklu meira en þig
grunar, svo núna er tíminn til að halda gott partí og svo annað gott partí eftir það.
Blómið þitt er fjóla og fjólublátt er góður litur fyrir þig enda mjög andlegur litur. Fjólublátt ameþyst
er kærleikssteinninn fyrir þennan mánuð og hann losar þig við fíknir og eflir anda þinn svo um munar á
sama tíma.
Tími til að fagna
FISKARNIR | 19. FEBRÚAR 20. MARS
Elsku Nautið mitt, það er sko ýmislegt að gerast í þínu heilabúi þessa dagana og
það er uppreisnarandi yfir þér. Þú stígur upp pollrólegur gagnvart því óréttlæti sem þér finnst
rigna yfir. Þú færð þá tilfinningu að ekkert sé þér ofviða í þessum málum. Og þú kemur sjálfum þér
svo mikið á óvart hversu miklum styrkleika þú býrð yfir þegar þú þarft að sýna hornin.
Þú talar hreint út við alla og það er eins og sannleikurinn komi til þín úr ótrúlegustu áttum. Ein-
hver segir þér eitthvað sem skiptir máli, þú lest eitthvað merkilegt sem bankar í þig. Eða þig hrein-
lega bara dreymir fyrir því sem koma skal og það er mikilvægt að kalla á draumana sína. Svo áður
en þú ferð að sofa skaltu biðja um að muna draumana þína þegar þú vaknar. Ekki láta klukku vekja
þig, eða annað sem fær þig til að hrökkva við, því þá hverfa draumsýnirnar.
Þessir haustmánuðir sýna þér svo vel hversu næm manneskja þú ert og að þú búir yfir spádóms-
gáfu. Meira að segja fótboltamenn þurfa að hafa þessar gáfur, því ekki geta þeir séð leikinn fyrir-
fram, þetta á reyndar við alla íþróttamenn sem ná langt og líka hina.
Það er líka gaman að segja þér að blómið þitt eða blóm Nautsins er rósaþyrnir. Og að sjálfsögðu
er engin rós án þyrna, sem þýðir bara fyrir þig að lífið er jin og jang, því annars kanntu ekkert að
meta.
Það getur orðið uppgjör í ástinni hjá einhverjum í þessu merki, en þá er líka búið að reyna allt
sem mögulega er hægt og tími kominn til að snúa sér að öðrum hlutum í lífinu. En á móti kemur að
ástin er líka að koma inn hjá þeim sem búast svo sannarlega ekki við henni. Það sem tengist ástinni,
hvort sem það eru endalok eða upphaf, mun gefa þér mikla gæfu, þótt þú sjáir það ekki strax.
Að muna drauma sína
NAUTIÐ | 20. APRÍL 20. MAÍ
Elsku Krabbinn minn, þú hefur þann hæfileika (eins og önnur krabbadýr)
að geta verið inni í skelinni þinni þegar þú þarft. Þú ert búinn að læra að mestu að skýla
þér fyrir veseni og vandamálum annarra. Og það gerir þig svo miklu sterkari til þess að
takast á við þetta yndislega og litríka líf.
Þú ert búinn að vera að hugsa að það hafi ekki nógu margt eða mikið áunnist í sumar
eins og þú vildir að það gerði. En núna eru að detta í hús kærkomnar fréttir sem gefa þér
svo margt gott. Þú hefur líka fundið hjá þér nýjan hæfileika, eitthvað sem þú ert sérlega
góður í og þú ættir að skoða það mál aðeins betur. Því að þessi tími er til þess að spyrna
fótunum eins fast og þú getur. Og þú hefur það ekki einu sinni í þinni ímyndun, það er að
þú sérð það fyrir þér í mynd sem er að koma til þín, hversu langt þú átt eftir að ná.
Það mun auka víðsýni þína og lífsneista að temja þér nýjungar í lífinu. Ekki segja við
sjálfið: „Ég kann þetta ekki, ég get þetta ekki eða ég nenni þessu ekki.“ Því þá hverfa í bili
þeir möguleikar sem eru að bjóðast þér.
Steinninn þinn heitir rúbín og hann táknar frelsun hjartans. Rauði liturinn er líka þinn
litur þennan mánuðinn, hvort sem það er bók, föt eða bolli, því að tilfinningin sem þú meðal
annars færð út úr því er lífsþorsti og vinátta.
Þú skalt gefa mikið af þér ef þú ætlar að heilla ástina og þó að þú sjáir það ekki strax,
þá er það að virka sem þú ert að gera. Þú finnur fyrir meiri bjartsýni en þú hefur haft og
þessi jákvæða sýn þín á lífið allt er undirstaða þeirrar vellíðunar og styrks sem þér er að
auðnast.
Gríptu nýjungar
KRABBINN | 21. JÚNÍ 22. JÚLÍ
Elsku Hrúturinn minn, það er allt að falla í réttar skorður hjá þér. Og þú
elskar mest af öllu skipulag, hvort sem þú gerir þér grein fyrir því eður ei. Þú átt eftir að
finna fyrir því hversu orðheppinn þú ert og svo ertu líka búinn að læra á það, að þegar þú
ætlar að fá einhverju framgengt seturðu ljúfa orku í röddina þína.
Þú verður reyndar að vera viðbúinn því að velja og hafna og ekki taka of mikið að þér.
En ef þú neyðist til að gera það, þá skaltu skrá niður hvenær þarf að gera þetta og hvenær
þú þarft að klára hitt. Margir Hrútar eru að byrja á stórum verkefnum og kvíði getur
læðst að þér. En sú vinnusemi sem þú sýnir mun reka á brott þann leiðindadjöful á ör-
skömmum tíma.
Þú finnur meiri gleði og kátínu í hjartanu en þú hefur fundið fyrir síðastliðna þrjá mán-
uði. Þú færð þá sterku tilfinningu að sjá hvað litlir hlutir eru mikilvægir. Og þú þjálfar þig
í því að hugsa ekki of langt fram í tímann, því ef þú gerir það ertu fjarverandi í nútíðinni.
Þær tilfinningar sem tengjast ástinni eflast og styrkjast og þú verður staðfastur í að
vera góður við þá sem þú berð kærleika til. Og þótt þú hafir áhyggjur af peningahliðinni,
þá reddast málin á síðustu mínútunum og ef þú skoðar vel þá hefurðu alltaf lent á fjórum
fótum.
Þú finnur að það gefur þér svo mikla orku að vera hugrakkur og skoðaðu það líka að þú
ert svo góður í að berjast fyrir aðra. Þá finnurðu líka kærleikann snerta þig svo sannarlega
á svo sterkan hátt og þá líður þér vel. Og það er það eina sem við mannfólkið í raun óskum
okkur.
Í réttar skorður
HRÚTURINN | 21. MARS 19. APRÍL
Elsku Tvíburinn minn, þú ert svo undurskemmtilegur og virkar alltaf svo já-
kvæður, þótt það gnísti í hjarta þínu. Það er mikilvægt að þú sjáir að það er eðlilegt að taka sér
smátíma til þess að vera fúllyndur, geðstirður og öskra eins hátt og þú getur erfiðleikunum út úr
systeminu. Og þá er gott að vera bara í bílnum eða þar sem enginn annar heyrir í þér. Því þá finn-
urðu hvað þú getur tekið gleði þína snöggt aftur.
Þú munt skynja öfund í kringum þig, og jafnvel illgirni. Ekki að þú eigir að hugsa um það í eina
mínútu, heldur þarftu að vera vel á verði gagnvart hverjum þú treystir! Í þessum tilvikum verð-
urðu að stóla á sjálfan þig, því þú einn leysir málin og þá finnurðu stöðugleikann.
Það er svo margt og merkilegt að koma í ljós, þó að þeir hlutir gleðji þig ekki alltaf sem þú
sérð. Þá skaltu muna það að þú hefur aflið til að fljúga yfir það fólk sem reynir að hindra þig, því
það eru smáborgarar.
Þetta haust mun tala fallega til þín af því að það verður svo gott veður. Því að orka þín er svo
tengd veðri og vindum, myrkri og ljósi, svo andaðu inn fegurðinni af öllum krafti.
Heilinn notar 10 sinnum meira súrefni en allir hinir hlutar líkamans nota til samans. Svo
ímyndaðu þér að þú andir djúpt inn hamingjunni og þegar þú andar frá þér að þú andir frá þér
hamingjunni, því þá er hún allt í kringum þig.
Það hefur verið hafsjór af mikilvægum og merkilegum hlutum að gerast hjá þér í sumar sem
hafa gefið þér vit og aðra sýn á lífið. Og fyrir þá sem eru á lausu eða í góðu sambandi er ástin að
vaxa, samstaða að eflast og hamingjan að aukast. Þú hefur það sterka tákn að vera óútreikn-
anlegur, líflegur og heillandi og þess vegna þurfa svo margir á þér að halda.
Andaðu inn fegurðinni
TVÍBURINN | 21. MAÍ 20. JÚNÍ
Elsku Ljónið mitt, að lifa er að þora er setningin sem á að einkenna septembermán-
uð fyrir þig. Gerðu meira en þú þarft og láttu engan segja þér hvað þú þarft, því þú veist það sjálfur.
Steinn Ljónsins er mánasteinn og hann táknar gleði og ef þú skoðar vel þá hefur afstaða tunglsins
mögnuð áhrif á þig. Það er nýtt tungl að birtast okkur þann sjöunda september og þá skynjar þú þau
tækifæri sem eru í kringum þig til að byggja upp það sem þig langar til og að gera betur. Það er fullt
tungl í fimmta merkinu þann 20. september og þá skynjar þú að það er takmarkalaust hvað þú getur
magnað upp, svo það líkist göldrum.
En eitt verðurðu að vita samhliða þessu, að þegar fullt tungl er og þú ert reiður og finnst allt ómögu-
legt og ekkert að virka, þá magnarðu það líka upp í lífi þínu. Á þessu tímabili þarftu að vita skýrt hvað
þú vilt og að senda það út í alheimsvitundina, því það kemur aftur til þín eins og búmerang. Og þú mátt
ekki óska öðrum ama eða erfiðleika að neinu leyti til þess að fá þínu framgengt, því það gæti bitið þig til
baka.
Það eru margar leiðir að opnast fyrir þér, til dæmis hvort þú viljir færa þig úr stað og fara annað.
Hvaða titil þú vilt að vinna þín eða skóli hafi og hvaða leið er best til að fá þá peninga sem þig vantar til
þess að geta skapað þér það líf sem þú vilt. Vertu með opin augu og hlustaðu vel því að þú átt eftir að
geta nýtt þér þessar góðu aðstæður til þess að gera líf þitt skemmtilegra og betra.
Það er harðbannað að segja við sjálfan sig að maður hafi frestunaráráttu. Og þú mátt alls ekki not-
færa þér hana, heldur skaltu ráðast á það sem hindrar þig strax. Lífið er ekki langhlaup heldur sprett-
hlaup. Að taka sprettinn og klára hann þýðir einfaldlega að taka sprettinn og klára hann! Og þegar þú
tekur þannig á hlutunum og klárar málin finnurðu sigurvegarann í þér.
Að lifa er að þora
LJÓNIÐ | 23. JÚLÍ 22. ÁGÚST
Ást er eins og rafmagn
svo hafðu öll ljós kveikt.
Knús og kossar