Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.09.2021, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.9. 2021
LESBÓK
GLÆPIR Fyrst var það O.J. Simpson, síðan Gianni Ver-
sace en í þriðju þáttröðinni af American Crime Story
verða Monica Lewinsky, Linda Tripp og hinar konurnar
sem tengdust ákærunni á hendur Bill Clinton Banda-
ríkjaforseta til embættismissis árið 1998 í forgrunni.
Fram hefur komið að Lewinsky þótti hugmyndin til að
byrja með afleit en eftir að höfundur þáttanna, Ryan
Murphy, lagði ofuráherslu á að þeir yrðu gerðir með
blessun hennar skipti Lewinsky um skoðun. Ekki nóg
með það, hún er líka einn framleiðenda þáttanna. Bean-
ie Feldstein fer með hlutverk Lewinsky í Impeachment:
American Crime Story, sem frumsýndur verður á sjón-
varpsstöðinni FX vestra á þriðjudaginn, Sarah Paulson
leikur Lindu Tripp og Clive Owen Bill Clinton.
Clinton-hneykslið á skjáinn
Beanie
Feldstein
leikur
Monicu
Lewinsky.
AFP
SEIGLA Okkar bestu menn í málmi og sér-
legir vinir Lesbókar, Anvil, sitja ekki auðum
höndum fremur en fyrri daginn en í byrjun
vikunnar upplýsti söngvari sveitarinnar, Lips
eða Vari, á samfélagsmiðlinum Twitter að
þeir félagar hefðu lokið við upptökur á nýrri
breiðskífu í Þýskalandi, þeirri nítjándu í röð-
inni. Ekki kom fram hvað hún mun heita eða
hvenær hún kemur til með að rata í allar
betri plötubúðir en seinasta breiðskífa Anvil
kom út í fyrra. „Sturluð lög, öll sem eitt. Hér
er um augljósa framþróun að ræða,“ tísti
Vari sperrtur. Anvil hefur samviskusamlega
reynt að slá í gegn í 43 ár en án árangurs.
Allur er Varinn góður
Vari kveðst aldrei hafa verið ferskari en nú.
AFP
LoMenzo og Mustaine í ham á tón-
leikum í Austin, Texas, 20. ágúst.
Í bakgarðinum
hjá Ellefson
FULLT HÚS Gömlu þrassbrýnin í
Megadeth eru á mikilli þeysireið
um Bandaríkin enda menn búnir að
halda músíkinni lengi í sér vegna
heimsfaraldursins. Á dögunum
drápu þeir niður fæti í Phoenix,
Arizona sem væri ekki í frásögur
færandi nema fyrir þær sakir að
það er heimabær Davids Ellefsons,
bassaleikara Megadeth til margra
ára, en honum var vikið úr bandinu
í vor. Ekki virtust sveitungar hans
erfa þann gjörning við Dave Mus-
taine en uppselt var á giggið. Á
bassanum á túrnum er James Lo-
Menzo sem áður lék með Megadeth
frá 2006 til 2010. Stríðmannað er á
túrnum en Megadeth fylgja Lamb
of God, Trivium og Hatebreed.
H
ún dó eins og hún lifði, ótta-
laus. Guð veit hvað við unn-
um henni heitt og við ger-
um okkur grein fyrir því hvað við
vorum lánsöm að hafa hana í okkar
lífi. Hún skein svo skært. Hverfðu
nú, litla mín, inn í tómið og kærar
þakkir fyrir allt.“
Þannig komst breski leikarinn
Damian Lewis að orði þegar hann
tilkynnti um andlát eiginkonu sinn-
ar, bresku leikkonunnar Helen
McCrory, í apríl síðastliðnum. Hann
sagði fráfall hennar afar þungbært
en McCrory lést á heimili þeirra um-
vafin sínum nánustu. Banamein
hennar var krabbamein sem leik-
konan háði hetjulega baráttu við.
Andlátið kom flatt upp á flesta í
kvikmyndaheiminum enda hafði
ekki komið fram opinberlega að
McCrory ætti við veikindi að stríða.
Hún var ekki nema 52 ára.
McCrory var afkastamikil leikona,
bæði á sviði, í sjónvarpi og á hvíta
tjaldinu og lék nánast fram í andlát-
ið. Þættirnir Fjölskyldubönd
(MotherFatherSon), sem Ríkissjón-
varpið sýnir á sunnudagskvöldum
voru gerðir árið 2019 og kom
Dó eins og
hún lifði,
óttalaus
Breska leikkonan Helen McCrory hefur verið
fastagestur í stofum landsmanna undanfarin
sunnudagskvöld í dramaþættinum Fjölskyldu-
bönd. Þessi afkastamikla leikkona lést í vor.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Helen McCrory ásamt eiginmanni sínum, breska leikaranum Damian Lewis,
eftir að hún hlaut svokallaða OBE-orðu fyrir störf sín að leiklist árið 2017.
AFP
Helen McCrory fer með hlutverk Kathryn Villiers í Fjöl-
skylduböndum, sem RÚV sýnir þessa sunnudagana.
Persónan er af auðugu bresku fólki og fyrrverandi eig-
inkona bandaríska fjölmiðlamógúlsins Max Finch sem
Richard Gere leikur. Fátt hefur verið með þeim um
langa hríð enda hefur Finch haldið einkasyni þeirra,
Caden, að mestu frá móður sinni eftir að þau
skildu. Þegar Caden, sem er þrítugur að
aldri þegar okkur ber að garði, veikist illa
kemur upp ný staða og hjónin fyrrverandi
þurfa að standa saman að baki syni sín-
um en hans bíður löng og ströng end-
urhæfing. Billy Howle leikur Caden
Finch en af öðrum leikurum í Fjöl-
skylduböndum má nefna Pippu Benn-
ett-Warner, Sinéad Cusack, Joseph
Mawle, Elenu Anaya og Ciarán gamla
Hinds sem leikur föður Max Finch –
enda þótt hann sé fjórum árum
yngri en Richard Gere. Það verður
að teljast býsna vel af sér vikið.
Fjórum árum eldri en faðir hans
Richard Gere,
svalur að vanda.
Fyrir
líkama
og sál
L augarnar í Reykjaví k
w w wsýnumhvert öðru tillitssemi