Morgunblaðið - 01.10.2021, Side 4

Morgunblaðið - 01.10.2021, Side 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021 INXX II Glæsilegasta lína okkar til þessa. INXX II BLÖNDUNARTÆKI Brushed brass Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ýmis álitamál um vafaatkvæði komu upp við talningu atkvæða í alþingis- kosningunum, sem rakin eru í fundar- gerðum yfirkjörstjórna. Í Norðausturkjördæmi úrskurðaði yfirkjörstjórn atkvæði ógilt þar sem kjósandi hafði fyllt reitinn fyrir fram- an J-lista Sósíalistaflokksins með rauðum lit. Umboðsmaður Sósíalista- flokksins á staðnum andmælti þessu, vildi að atkvæðið yrði metið gilt og benti m.a. á að engir aðrir hnökrar væru á atkvæðaseðlinum. Það sé ómálefnalegt að dæma atkvæðið ógilt þar sem rauður penni hafi verið not- aður í stað blýants, því hræðsla við Co- vid geti hvatt fólk til að nota eigin skriffæri. Þá benti hann á að kjósend- ur Sósíalistaflokksins hefðu verið hvattir til að skila rauðu og hægt væri að skilja það bókstaflega. Auk þess sé algengt að fyllt sé út í reiti þegar svar- að er krossaspurningum. Ungt fólk lærir að skyggja reiti Allir viðstaddir umboðsmenn fram- boðslista í Reykjavík suður gerðu ágreining við ákvörðun yfirkjörstjórn- ar um að ógilda atkvæði sem merkt var C-lista og töldu umboðsmennirnir atkvæðið vera gilt. Á seðlinum var reiturinn við listabókstaf skyggður, ,,þó má hugsanlega greina þar kross en óvíst hvort vilji kjósanda stóð til að kjósa listann eða hætta við að kjósa listann. Umboðsmenn telja vilja kjós- anda koma skýrt fram þar sem t.d. ungt fólk lærir að fylla út reiti með þessum hætti í skóla,“ segir í frásögn í fundargerð yfirkjörstjórnar sem ógilti atkvæðið. Í Reykjavíkurkjördæmi norður kom einnig upp ágreiningur um nokk- ur atkvæði þar sem ferningur hafði verið skyggður. Yfirkjörstjórn mat þau ógild en umboðsmenn sex fram- boða töldu að meta ætti hvert og eitt þeirra gilt og greitt þeim lista þar sem ferningur hafði verið skyggður. Einn- ig kom upp ágreiningur um atkvæði greitt D-lista en við nafn frambjóð- anda á listanum hafði verið settur kross auk örvar. Yfirkjörstjórn mat at- kvæðið ógilt en umboðsmaður Pírata var ekki sáttur við það og taldi að meta ætti atkvæðið gilt og greitt D-lista. Skyggðir reitir og einn rauður - Ágreiningur kom upp um ýmis álita- mál um gildi einstakra atkvæðaseðla Ljósmynd/Guðmundur Karl Sigurdórsson Talning Endurtalning á kjörseðlum í Suðurkjördæmi fór fram sl. mánudag. Gunnhildur Sif Oddsdóttir gunnhildursif@mbl.is Kvikmyndaleikstjórunum Miu Han- sen-Løve og Joachim Trier voru veitt heiðursverðlaun Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík (RIFF) síðdegis í gær en verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi list- ræna sýn í kvikmyndagerð. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís- lands, afhenti verðlaunin við hátíð- lega athöfn á Bessastöðum en kvik- myndahátíðin RIFF var sett í gær. Mia Hansen-Løve hefur gert sjö kvikmyndir í fullri lengd sem hafa hlotið bæði verðlaun og lof gagnrýn- enda. Joachim Trier hóf feril sinn strax á unglingsaldri með gerð hjóla- brettamyndbanda. Síðar stundaði hann kvikmyndagerðarnám í Dan- mörku og Bretlandi þar sem stutt- myndir hans vöktu strax athygli. Trier gerði opnunarmynd RIFF í ár en hún ber heitið Verdens verste menneske, Versta manneskja í heimi. Morgunblaðið/Kristinn Magnúss. Bessastaðir Guðni Th. Jóhannesson ásamt Miu Hansen-Løve í gær. Hansen-Løve og Trier verðlaunuð - Forseti afhenti heiðursverðlaun RIFF Alþjóðlega kvikmyndahátíðin RIFF hófst í gær á frumsýningu á stutt- tónleikamyndinni Blondie: Að lifa í Havana sem fjallar um langþráða tónleikaferð hljómsveitarinnar til Kúbu. Í kjölfarið átti Debbie Harry, söngvari Blondie, samtal við And- reu Jónsdóttur, Berg Ebba Bene- diktsson og áhorfendur í sal. Við hlið Harry (fremst t.v.) sat Rob Roth sem leikstýrði myndinni og við hlið hans frú Vigdís Finn- bogadóttir, fyrrverandi forseti Ís- lands. Roth ávarpaði einnig gesti. Þetta er í 18. sinn sem kvik- myndahátíðin er haldin og stendur hún til 10. október. Lokamynd RIFF verður Margr- ete, Queen of The North sem frum- sýnd var í Kaupmannahöfn á dög- unum í leikstjórn Charlotte Sieling og með Trine Dyrholm í aðal- hlutverki. Norrænt samstarfsverk- efni, True North er meðframleið- andi og Halldóra Geirharðs og Tinna Hrafns leika í myndinni. Morgunblaðið/Kristinn Magnúss. Hófst á frumsýn- ingu Blondie

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.