Morgunblaðið - 01.10.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.10.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021 ÓLATILBOÐ Malika125 með setu verð . vsk. 20 óll erð vsk. 05 aðri setu verð m. vsk. Malika1 Staflast Tilboðsv 14.648 m. Malika1 Með bólstr Tilboðs 18.907 Staflastóll bólstraðri Tilboðs 20.269 m ST Malika100 Tilboðsverð 13.664 m. vsk. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Notkun sýklalyfja meðal einstaklinga minnkaði umtalsvert á seinasta ári miðað við árin á undan. Nú liggur fyrir að söluverðmæti sýklalyfja hjá mönn- um dróst saman um 3,5% í fyrra frá árinu á undan og milli áranna 2019 og 2020 minnkaði heildarsala sýklalyfja um 16,5%. Ef litið er lengra aftur í tímann er samdrátturinn enn meiri en sala sýkla- lyfja til einstaklinga minnkaði um 30% í fyrra samanborið við árið 2016. Þetta má lesa í nýbirtri ársskýrslu um sýkla- lyfjanotkun 2020. Meiri sala sýklalyfja hér en á öðrum Norðurlöndum Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir í formála skýrslunnar að ástæður fyrir minnkandi notkun sýklalyfja hjá mönnum hér á landi á árinu 2020 geti verið fjölmargar. „Á árinu 2020 voru viðamiklar samfélagslegar og einstak- lingsbundnar sóttvarnaaðgerðir við- hafðar í samfélaginu vegna COVID-19. Þessar aðgerðir leiddu til fækkunar á sýkingum almennt í samfélaginu, sér- staklega öndunar- og meltingarfæra- sýkingum. Vafalaust leiddi það til minni notkunar sýklalyfja. Einnig hef- ur á undanförnum árum verið viðhafð- ur áróður um skynsamlega notkun sýklalyfja sem vafalaust hefur einnig leitt til minni notkunar.“ Eftir sem áður er sala sýklalyfja enn töluvert meiri hérlendis en á öðrum Norðurlöndum. Þórólfur bendir á að þrátt fyrir að salan hafi minnkað í öllum sýklalyfja- flokkum muni mestu um minnkandi notkun betalaktam-lyfja. „Mest minnkaði notkunin í aldurshópnum 0-4 ára en minnkaði einnig í öllum aldurs- hópum. Athyglisvert er einnig að notk- un sýklalyfja minnkaði jafnt hjá báð- um kynjum en hún hefur löngum verið meiri hjá konum en körlum,“ segir í formála hans. Sala sýklalyfja er mæld í daglegum lyfjaskömmtum á hverja þúsund ein- staklinga (DID) og dróst t.a.m. salan saman frá 2019 til 2020 úr 19,39 DID í 16,18 DID en hún var til samanburðar 24 DID á árinu 2017. Á seinasta ári voru ávísanir á sýkla- lyf á hverja þúsund íbúa 505 að jafnaði. Þá fengu 26% íbúa landsins ávísað sýklalyfjum að minnsta kosti einu sinni og hefur það hlutfall lækkað úr 36% árið 2016. Notkunin er mun meiri meðal kvenna en karla. Í fyrra fengu 31,3% kvenna og 20,5% karla ávísað sýklalyfi en tíu árum áður voru hlutföllin 41,1% kvenna og 31,3% karla. Minni notkun meðal ungbarna Fram kemur í skýrslunni að þegar undirflokkar sýklalyfja eru skoðaðir nánar sést að Ísland notar mest allra Evrópulanda af svonefndum tetracýkl- ínum sýklalyfjum, eða nær tvöfalt meira en meðaltal Evrópu en þar er um að ræða flokk breiðvirkra lyfja sem virka á margar tegundir baktería sem valda sjúkdómum. Notkun sýklalyfja var lengi hlut- fallslega mest á fyrstu fjórum árum ævinnar en minnst á aldrinum 10-14 ára að því er fram kemur í skýrslunni. Notkun, mæld í fjölda ávísana á hverja 1.000 íbúa á ári, hjá 0-4 ára hefur farið minnkandi frá árinu 2011 en það ár hófst bólusetning ungbarna gegn pneumókokkum. Notkun sýklalyfja minnkar mikið - Færri sýkingar í þjóðfélaginu á ári viðamiklla sóttvarnaaðgerða vegna kórónuveirunnar stuðluðu að minni notkun sýklalyfja - 26% íbúa landsins fengu ávísað sýklalyfjum að minnsta kosti einu sinni 2020 Ávísanir sýklalyfja utan sjúkrahúsa eftir kyni 2010-2020 1.000 800 600 400 25 20 15 10 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 Fjöldi ávísana á 1.000 íbúa/ári: Karlar Konur Skilgreindir dagskammtar (DDD) á 1.000 íbúa/dag (DID): Karlar Konur DIDÁvísanir Heimild: Embætti landlæknis Stjórn félags bráðalækna sendi frá sér harðorða tilkynningu í gær undir yfirskriftinni „Landspítali ræður ekki við sín daglegu störf“. Þar sagði m.a. að viðvarandi ófremdarástand hafi kristallast fyrr í vikunni þegar yfir 70 sjúklingar lágu á bráða- móttökunni. Þar af voru 44 sem komust ekki á viðeigandi legudeildir. Þær voru þegar fullar og neituðu að taka við fleiri sjúklingum. „Bráðamóttakan ræður ekki við að sinna sínu hlutverki við þessar að- stæður. Svona ástand er stór- hættulegt og kemur endurtekið upp á spítala sem er endalaust keyrður á yfirálagi með vanhæfa stjórn. Fram- kvæmdastjórn Landspítalans hefur með ráðaleysi sínu breytt bráða- móttökunni í legudeild. Bráð- veikum sjúkling- um er allt of oft sinnt af veikum mætti á göngum spítalans,“ sögðu bráðalæknar. Félagið minnir á að þrátt fyrir endurteknar al- varlega ábend- ingar landlæknis hafi óviðunandi ástand farið hríðversnandi. „Engin virk álagsstjórnun er á LSH og spít- alinn er í raun stjórnlaus.“ Þá segir félagið að heilbrigð- isráðherra hafi með aðgerðaleysi sínu og stjórnleysi látið þetta við- gangast allt of lengi. „Íslenska þjóð- in lifir við þá tálsýn að á Íslandi sé heilbrigðiskerfi sem er sambærilegt við önnur kerfi í Norður-Evrópu. Því fer fjarri. Félag bráðalækna krefst tafarlausra aðgerða, réttindi sjúk- linga eru fótum troðin.“ Mjög þrengt að bráðaþjónustu „Það gefur augaleið að þegar við erum með 36 stæða deild og þar eru vistaðir daglega 20 eða fleiri sjúk- lingar sem ættu að vera á legudeild- um að þá er mjög þrengt að mögu- leikum starfsfólks að veita bráðaþjónustu,“ sagði Hjalti Már Björnsson, yfirlæknir á bráða- móttöku Landspítalans. En hillir undir lausn? „Við bíðum enn eftir því að fram- kvæmdastjórn Landspítalans og heilbrigðisyfirvöld geri raunveru- lega gangskör að því að tryggja þeim öldruðu sem þess þurfa hjúkr- unarpláss og að tryggja legu- deildarpláss á Landspítalanum fyrir þá sjúklinga sem þess þurfa þannig að við getum veitt nauðsynlega bráðaþjónustu fyrir slasaða og bráð- veika á bráðamóttökunni,“ sagði Hjalti Már. En sér hann eitthvað í fyrirsjáanlegri framtíð sem gefur vonir um að þetta lagist? „Ég er yfirlæknir á bráðamóttöku og það er ekki mitt að reka heil- brigðiskerfið. En ég sendi enn og aftur ákall til heilbrigðisyfirvalda að það sé leyst úr þessari stöðu. Það er óásættanlegt að við, starfsfólk bráðamóttökunnar, getum ekki sinnt okkar hlutverki. Það er að veita slösuðum og bráðveikum nauð- synlega bráðaþjónustu.“ Óviðunandi ástand á bráðadeild - Félag bráðalækna segir stjórn Landspítala vanhæfa - Heilbrigðisyfirvöld verða að bregðast við Morgunblaðið/Árni Sæberg Bráðamóttakan Álag og sjúklingar komast ekki á legudeildir spítalans. Hjalti Már Björnsson Steinar Ingi Kolbeins steinar@mbl.is Héraðssaksóknari hyggst ákæra tvo einstaklinga, konu og karl, fyrir að hafa gefið rangar eða villandi upplýsingar um tegundir og magn blóma sem félag þeirra flutti inn frá Hollandi á árunum 2016 til 2018. Málið verður þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í næstu viku. Málið snýr þá fyrst og fremst að því að fólkið er talið hafa smyglað inn til landsins afskornum rósum og blönduðum blómvöndum sem meðal annars innihéldu rósir. Með háttsemi sinni drógu ákærðu sam- anlagt aðflutningsgjöld að fjárhæð 5.701.188 krónur undan álagningu aðflutningsgjalda. Var blómunum svo smyglað í fjórum mismunandi sendingum. Við rannsókn tollayfirvalda kom í ljós að í sendingunum var misræmi milli innihalds og þess sem félagið hér heima gaf upp við tollayfirvöld. Þá hafði hollenskt félag sem sendi blómin einnig gefið út misvísandi reikninga fyrir sendingunum. Við skoðun tollayfirvalda fannst til að mynda verulegt magn af af- skornum rósum og var ekki greidd- ur réttur tollur af þeim. Aðflutn- ingsskýrslur og reikningar hollenska félagsins tóku ekki fram að um væri að ræða afskornar rósir til að mynda og var því ekki greitt eftir réttum tollflokki fyrir rósirn- ar. Líkt og áður segir verður málið þingfest fyrir Héraðsdómi Reykja- víkur í næstu viku og er þess kraf- ist að ákærðu verði dæmd til refs- ingar og þeim gert að greiða allan sakarkostnað. Ákærð fyrir smygl á blómum - Misvísandi reikningar frá Hollandi Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Rósir Ekki er talið að rétt hafi verið staðið að aðflutningsgjöldum blóma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.