Morgunblaðið - 01.10.2021, Page 8

Morgunblaðið - 01.10.2021, Page 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021 Það er óhætt að segja að flest er í heiminum hverfult þegar horft er yfir þungbúin ský sem þekja helsta heimavöll ESB. - - - Þýskaland gekk til kosninga degi á eftir okkur. Merkel kanslari hafði verið á hrað- ferð um helstu höf- uðborgir til að kyssa sýnishorn af valdamönnum sem starfað hafa samtímis frúnni síðustu 16 árin. - - - Þá liggur allt í einu ekki aðeins fyrir að flokkurinn hennar gengur haltur frá misvel innsigl- uðum kjörkössunum. - - - Leiðtogi þýskra krata hefur stjórnamyndunarumboð í Berlín og tilkynnir að óvíst sé að hann nái að ljúka því verki fyrir jól og jafnvel áramót. Það þýðir að frú Merkel kemst hvergi. - - - Það er mjög óþýskt þegar valda- mikill kanslari hefur kvatt að hann fari ekki fet vikum og mán- uðum saman. Og það sem er enn verra, er að verðbólgan, óvættur sem þýskir þekkja varla í sjón, er komin yfir 4 prósentin. Fyrri spár um verðbólgu voru mun minni en það og sögðu hana stoppa örstutt við. - - - Spekingar segja nú að verðbólga, og það jafnvel hærri en fjögur prósentin, gæti sest upp lengur en áður var ætlað. - - - Hvert er þá orðið Merkels starf í sextán sumur gætu helstu skáld spurt vondauf þegar þau heyra svo ill tíðindi í landi stöð- ugleikans. Angela Merkel Er hætt við að hún hætti við að hætta? STAKSTEINAR Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Komdu í BÍLÓ! Nýskráður 10/2020. Ekinn 12 þ.km, bensín/rafmagn (drægni 50 km), sjálfskiptur, stafrænt mælaborð - 18“ álfelgur - IQ LED ljós - Glerþak - Sjón- línuskjár - Skynvæddur hraðastillir - Þráðlaus símahleðsla og margt fleira. Frábært verð! Raðnúmer 253067 V N M + WGolf GTE EW Nýskr. 09/2020. Ekinn aðeins 6 þ.km. Bensín/rafmagn (Plug-in) EQ power 218 hö - Drægni um 69 km á rafmagni - Edition týpa (útlitsfídusar að innan og utan) Night pack - Leðurklætt mælaborð - HiFi hljóðkerfið -Widescreen cockpit (stafrænt mælaborð) - Keyless start - Snertiskjár - Þráðlaus farsímahleðsla - Augmented reality navigation - 18“ álfelgur - Dökkt gler - Apple Carplay og margt fleira! Raðnúmer 253023 .BENZ A250e AMG EDITION VERÐ 5.990.000 VERÐ 6.390.000 Þessir síungu strákar eru klárir í að selja bílinn þinn Kíktu við, hringd eða sendu okkur skilaboð! Hlökkum til! Indriði Jónsson og Árni Sveinsson u B M Nýskráður 10/2019, ekinn 22 þ.km, bensín/rafmagn (Plug-in) 292 hö. Drægni um 56 km á rafmagni. Sjálfskiptur (8 gíra). M-sport að innan og utan - Black pack -Widescreen cockpit (stafrænt mælaborð) - Keyless start - Head-up display - Laser aðalljós - Hiti í stýri - Harman Kardon hljóðkerfi - Bakkmyndavél - Þráðlaus farsímahleðsla - Snertiskjár - 18“ álfelgur - Dökkt gler - Þráðlaust Apple Carplay og margt fleira! Raðnúmer 252497 MW330e -sport VERÐ 6.990.000 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Snorri Baldursson líf- fræðingur lést á heimili sínu aðfaranótt miðviku- dags 29. september eftir erfiða baráttu við krabbamein í höfði. Snorri fæddist 17. maí 1954 á Akureyri, sonur Þuríðar Helgu Krist- jánsdóttur og Baldurs Helga Kristjánssonar. Hann ólst upp á Ytri- Tjörnum í Eyjafjarðar- sveit ásamt systkinum sínum, þeim Kristjáni, Sigurbjörgu, Benjamín, Guðrúnu og Fanneyju. Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri árið 1974, BSc- gráðu í líffræði frá HÍ 1979 og aflaði sér kennsluréttinda í framhaldinu. Snorri tók meistaranám í plöntuvist- og plöntuerfðafræði frá University of Colorado og lauk doktorsprófi (PhD) í plöntuerfðafræði við Konunglega landbúnaðarháskólann í Kaupmanna- höfn árið 1993. Eftir nám erlendis sinnti Snorri, jafnhliða öðrum verkefnum, rann- sóknum á sviði landgræðslu og skóg- ræktar. Sneri sér svo að stjórnunar- störfum á sviði náttúrufræða og náttúruverndar og vann mikið að þeim málum sl. tuttugu ár. Beitti sér þar fyrir náttúruvernd og undir þeim merkjum skrifaði hann greinar, bæk- ur og sinnti ýmsum nefndar- og trún- aðarstörfum. Á árunum 1983-1986 var Snorri var kennari við Fjölbrautaskólann við Ármúla, var sérfræðingur hjá RALA og Skógrækt ríkisins um árabil og var aðalritari hjá Norðurskautsráðinu 1997-2002. Þá starfaði Snorri um skeið hjá Náttúrufræðistofnun Íslands 2002-2008, var þjóðgarðsvörður hjá Vatnajökulsþjóðgarði og formaður Land- verndar 2015-2017. Þá stýrði hann auðlinda- og umhverfis- deild Landbúnaðarháskóla Íslands frá 2018 fram á þetta ár. Árið 2014 sendi Snorri frá bókina Lífríki Íslands sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræði- rita. Í síðasta mánuði kom svo út bók Snorra Vatnajökulsþjóðgarður: Ger- semi á heimsvísu. Bókin var að stofni til efni umsóknar til UNESCO um að þjóðgarðurinn kæmist á heimsminja- skrá, eins og gekk eftir árið 2019. Nú í sumar stofnaði Snorri nátt- úruverndarsamtökin Skrauta. Mark- mið þess var verndun Vonarskarðs. Snorri lætur eftir sig fjóra syni sem eru: Heimir, f. 1974, Narfi Þor- steinn, f. 1982, Baldur Helgi, f. 1986 og Snorri Eldjárn, f. 1988. Eftirlif- andi kona Snorra er Elsa Friðrika Eðvarðsdóttir. Andlát Snorri Baldursson Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) segir að sú fullyrðing trygg- ingafélagsins Sjóvár um að félagið tapi stöðugt á bílatryggingum sé- vægast sagt villandi. „Eins og FÍB hefur margsinnis bent á, þá felst hið meinta „tap“ í því að tryggingafélagið ofmetur tjón vegna umferðarslysa. Endanlegar tjónabætur eru lægri og mismuninn setur félagið í bótasjóð (tjónaskuld). Árið 2020 bætti Sjóvá 900 milljónum króna í bótasjóðinn og árið 2019 fóru 1,2 milljarðar króna í hann. Heild- arbótasjóður Sjóvá[r] nam 21 millj- [arði] króna í lok 2020. Með fullyrð- ingum um tap á bílatryggingum er forstjóri Sjóvár að slá ryki í augun á almenningi. Forstjórinn veit mæta vel að afkoma tryggingafélaga bygg- ir á tveimur grunnstoðum, iðgjöld- um og fjármagnstekjum. Fjár- magnstekjur af bílatryggingum eru gríðarlega miklar og sérkennilegt að láta eins og þær skipti hreint engu máli,“ segir í yfirlýsingu FÍB. Yfirlýsingin er svar við yfirlýs- ingu Sjóvár, sem vísaði á bug gagn- rýni FÍB á að Sjóvá áformar að greiða hluthöfum út 2,5 milljarða króna í arð. Segir FÍB að nær væri að tryggingafélagið endurgreiddi tryggingatökum eða lækkaði iðgjöld í ljósi þess að geta Sjóvár til að rísa undir bótagreiðslum sé langt um- fram lágmarkskröfur. Sakar tryggingafélag um villandi málflutning - Félag íslenskra bifreiðaeigenda og Sjóvá deila um afkomu bílatrygginga Morgunblaðið/Eggert Umferð Deilt er um bílatryggingar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.