Morgunblaðið - 01.10.2021, Page 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021
Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
Sam Edelman Christy
27.990 kr.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Fjölmargar áhugaverðar hug-
myndir er að finna í kosningu íbúa í
Reykjavík um umbætur og nýj-
ungar í nærumhverfinu. Kosningin
hófst í gær á vefsíðunni hverfid-
mitt.is og stendur í tvær vikur. Allir
borgarbúar sem fæddir eru árið
2006 eða fyrr geta tekið þátt.
Breiðhyltingar eru stórhuga og
vilja fá þrekstiga úr Neðra-
Breiðholti upp í Efra-Breiðholt.
Hugmyndin minnir á hinn kunna
himnastiga sem er að finna í Kópa-
vogi og nýtur vinsælda við æfingar
hjá hlaupahópum. Í Árbæ vilja íbú-
ar til að mynda fá ævintýra- og úti-
vistarsvæði við Rauðavatn, infra-
rauða sánaklefa í Árbæjarlaug og
jólaþorp á Árbæjarsafni. Í Grafar-
holti er óskað eftir því að gerður
verði göngustígur frá íþróttasvæði
Fram upp með gilinu að Leirtjörn
sem tengist gönguleiðum á sunnan-
verðu Úlfarsfelli. Kjalnesingar vilja
aftur á móti fá sjósundsaðstöðu,
fótabað og fuglaskoðunarhús við
fjöruna.
Meðal hugmynda sem eru á
teikniborðinu í Vesturbænum eru
að lóðin við Sundlaug Vesturbæjar
verði nýtt sem fjölbreytt leik- og
dvalarsvæði fyrir alla fjölskylduna.
Þá eru hugmyndir um að komið
verði fyrir bekkjum og gróðri á
Hólavallatorgi og að sjósundsað-
staða verði gerð við Ægisíðu. Eins
vilja Vesturbæingar fá lítinn pott
við Ægisíðu þar sem þeir geta farið
í fótabað, líkt og nágrannar þeirra á
Seltjarnarnesi hafa getað um árabil.
Greina má mikinn áhuga íbúa í
Hlíðahverfi á endurbótum á
Klambratúni. Þar eru uppi hug-
myndir um að gerð verði vaðlaug,
sett upp útiæfingatæki, niðurgrafin
trampólín, almenningsklósett og
gosbrunnasvæði auk þess sem íbúar
vilja endurbæta núverandi leik- og
dvalarsvæði á túninu.
Í miðborginni vilja íbúar til að
mynda fá yfirbyggða bekki sem
veita skjól fyrir vindi, háa rólu sem
nýtist öllum aldurshópum, endur-
bætur á leikvelli í Hljómskála-
garðinum og listaverk á Hjartatorgi
við Laugaveg.
Í Háaleitis- og Bústaðahverfi hef-
ur verið lögð fram hugmynd um að
aðstaða til útieldunar verði sett upp
í svokölluðum Úlfaskógi við Garða-
flöt. Íbúar í Laugardal hafa áhuga á
að fá upphitaðan útidanspall í Laug-
ardalnum og sjósundsaðstöðu á
Laugarnestanga. Í Grafarvogi er
sömuleiðis áhugafólk um sjósund og
það vill fá aðstöðu við Geldinganes.
Grafarvogsbúar vilja einnig fá bekki
á völdum stöðum í hverfinu sem
málaðir verði í litum íþróttafélags-
ins Fjölnis.
Morgunblaðið/Ómar
Stigi Íbúar í Breiðholti vilja þrekstiga á milli Efra- og
Neðra-Breiðholts svipaðan himnastiganum í Kópavogi.
Yfirbyggðir bekkir
og pottar fyrir fótabað
- Fjölbreyttar hugmyndir í íbúakosningunni Hverfið mitt
Ljósmynd/Hverfið mitt
Nýstárlegt Yfirbyggðir bekkir eiga að hlífa fólki við veðri og vindum.
Gosbrunnur Í Hlíðahverfi vill fólk sjá umbætur á
Klambratúni, t.d. að þar verði gert gosbrunnasvæði.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
„Um leið og við fáum byggingar-
leyfið hefjast framkvæmdir,“ segir
Ingvar Svendsen veitingamaður.
Undirbúningur hefur staðið yfir
síðasta árið við að breyta gamla
pósthúsinu í Pósthússtræti 5 í mat-
höll. Byggingarfulltrúi Reykjavík-
urborgar hefur gefið grænt ljós á
breytingar á húsnæðinu í Póst-
hússtræti 5 en enn á eftir að af-
greiða umsókn vegna Póst-
hússtrætis 3. Kveðst Ingvar búast
við að það gerist innan tíðar.
„Það er búið að leigja flest pláss
út og við sjáum fyrir okkur að opna
með vorinu, í apríl eða maí,“ segir
Ingvar. Átta veitingastaðir og einn
kokteilbar verða í Pósthúsi mathöll
og lofar Ingvar fjölbreyttu úrvali
fyrir áhugasama.
„Staðirnir verða mjög mismun-
andi. Þarna verður pítsastaður,
indverskur staður, hamborgara-
staður, sushi-staður og franskur
bistró-staður.“
Eins og komið hefur fram í Morg-
unblaðinu mun Pósthús mathöll
rúma allt að 211 gesti á tveimur
hæðum. Leifur Welding sér um
hönnun á húsnæðinu. hdm@mbl.is
Pósthús mathöll
opnuð næsta vor
Morgunblaðið/Eggert
Nýtt hlutverk Gamla pósthúsið breytist í mathöll sem opna á næsta vor.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ólga er á meðal íbúa Innri-Njarð-
víkur vegna áforma um öryggisvist-
un fyrir ósakhæfa einstaklinga í
óbyggðu hverfi, Dalshverfi 3. Fé-
lagsmálaráðuneytið óskaði eftir
samvinnu við Reykjanesbæ um slíka
starfsemi. Íbúar lýstu áhyggjum
sínum af þessu í grein í Víkurfrétt-
um.
Þorsteinn Stefánsson, formaður
íbúaráðs Innri-Njarðvíkur, sagði í
samtali við Morgunblaðið að greinin
hafi verið skrifuð til að fylgja eftir
álitsgerð til bæjaryfirvalda. Þá hafa
tæplega þúsund manns skrifað nöfn
sín á mótmælalista.
Íbúarnir benda m.a. á að reglur
og lög sem skilgreina hlutverk og
aðkomu ríkis og sveitarfélaga að
framkvæmd öryggisvistunar fyrir
ósakhæfa einstaklinga séu ekki til.
Ekki heldur ákvæði um hvernig
tryggja eigi öryggi íbúa í nágrenn-
inu.
„Við höfum ekki fengið neina
kynningu, sem okkur finnst með
miklum ólíkindum og ekki verið haft
neitt samráð við íbúana,“ sagði Þor-
steinn. „Reykjanesbær á staði sem
henta betur en þessi. Við viljum ekki
hafa þetta í íbúðahverfum. Fólk hef-
ur sloppið úr svona öryggisvistun og
jafnvel ráðist á annað fólk og börn.
Þetta getur hugsanlega líka rýrt
fasteignaverð á svæðinu.“
Kynningarfundur væntanlegur
Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri í Reykjanesbæ, sagði að fé-
lagsmálaráðuneytið hafi leitað eftir
samstarfi í fyrravor. Rætt var um að
þessu gætu fylgt 30-40 ný störf en
þá var 25% atvinnuleysi á svæðinu.
„Bæjarstjórn samþykkti samhljóða
að vinna málið áfram og sjá hvernig
það þróaðist,“ sagði Kjartan.
Í sumar sótti ráðuneytið um lóð.
Sett voru skilyrði um að hún væri í
nýju hverfi svo íbúar sem á eftir
kæmu vissu að slík starfsemi væri
fyrirhuguð þar. Einnig væri hún ná-
lægt almenningssamgöngum og inn-
an vissrar fjarlægðar frá heilbrigð-
isstofnun og löggæslu. Tillaga er um
lóð í Dalshverfi 3.
„Það er ekki búið að samþykkja
aðalskipulagið og ríkið hefur ekki
kynnt þetta vegna þess að undirbún-
ingi ýmissa formsatriða er ekki lok-
ið. Hvorki bæjaryfirvöld eða íbúarn-
ir hafa fengið skýra sýn um hvað
standi til,“ sagði Kjartan. „Við höf-
um óskað eftir því að ráðuneytið
komi og kynni þessi áform fyrir
stjórn íbúaráðsins og bæjarstjórn.
Við erum að finna tíma fyrir kynn-
ingarfund.“ Vonast er til að fund-
urinn verði haldinn í næstu eða þar-
næstu viku.
Kjartan sagði skiljanlegt að
áformin veki ótta því óheppileg atvik
hafi komið upp þar sem svona starf-
semi er. Þau heyra þó til undantekn-
inga. Hann benti á að ósakhæfir ein-
staklingar séu vistaðir á stofnunum í
næsta nágrenni við íbúðabyggð, án
þess að vandræði hafi hlotist af.
Öryggisvistun vekur spurningar
Ljósmynd/© Mats Wibe Lund 2012
Innri-Njarðvík Rætt er um að öryggisvistunin verði í nýju hverfi.
- Íbúar í Innri-Njarðvík órólegir vegna áforma um öryggisvistun ósakhæfra einstaklinga í nýju íbúða-
hverfi - Bæjarstjóri segir von á kynningu félagsmálaráðuneytis á þessu nýja úrræði og hvað því fylgir