Morgunblaðið - 01.10.2021, Side 12
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021
Tunguhálsi 10
Sími 415 4000
www.kemi.is
kemi@kemi.is
1. október 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 129.32
Sterlingspund 174.37
Kanadadalur 101.88
Dönsk króna 20.267
Norsk króna 14.858
Sænsk króna 14.8
Svissn. franki 139.15
Japanskt jen 1.1603
SDR 182.75
Evra 150.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.3646
« Sprotafyr-
irtækið Dineout
var rekið með 1,7
milljóna króna
tapi á síðasta ári.
Félagið selur
m.a. bók-
unarkerfi til veit-
ingahúsa og er
Dineout með
ráðandi stöðu á
þeim markaði,
eins og fram
kom í ViðskiptaMogganum fyrr á
árinu.
Tekjur félagsins í fyrra voru rúmar
21 milljón króna og jukust um rúmar
tíu milljónir á milli ára.
Inga Tinna Sigurðardóttir, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að
áætlaðar tekjur félagsins frá júní á
þessu ári og fram í júní á næsta ári
séu um 90 milljónir króna. Því verði
um margföldun tekna að ræða á
stuttum tíma. „Frá árinu 2020 og til
dagsins í dag hefur orðið rosalegt
stökk í tekjum,“ segir Inga.
Hún segir að fyrirtækið hafi farið úr
því að bjóða eingöngu upp á borða-
bókunarkerfi í að bæta við sig matar-
pöntunarkerfi til heimsendinga, kassa-
lausn og lausn fyrir hótel til að panta
herbergisþjónustu.
„Tekjustraumunum hefur fjölgað
mikið. Við viljum bjóða veitingastöðum
upp á allt sem þeir þurfa til að vera í
rekstri.“ tobj@mbl.is
Inga Tinna
Sigurðardóttir
Tekjur Dinout tvö-
földuðust á milli ára
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Hátt í ein komma tvær milljónir sölu-
funda fara fram á ári í gegnum skjá-
deililausn hugbúnaðarfyrirtækisins
CrankWheel, en félagið selur lausn
sína um allan heim. Viðskiptavinir
eru sjö hundruð.
„Langflestir okkar viðskiptavina
eru litlir en rúmlega 50% af tekjun-
um koma frá viðskiptavinum sem eru
kannski að greiða okkar um 600 þús-
und krónur á ári eða meira,“ segir Jói
Sigurðsson, framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins, í samtali við Morgunblaðið.
Félaginu hefur gengið vel í far-
aldrinum enda breyttust vinnuað-
stæður fólks gríðarlega þegar skrif-
stofum var lokað og starfsmönnum
gert að vinna heiman frá sér.
„Til dæmis er stór viðskiptavinur
okkar í Bandaríkjunum, sem selur
uppsetningu á sólarrafhlöðum fyrir
heimili, með hundruð sölumanna á
sínum snærum. Þeir voru vanir að
ganga í hús og selja. Á einni nóttu
breyttist allt og salan fluttist yfir í
símann. Fyrirtækið keypti stóran
pakka af CrankWheel-áskriftum til
að leysa þetta vandamál,“ segir Jói
en CrankWheel er ekki hefðbundið
fundakerfi eins og Zoom eða Teams,
heldur sérhannað til að styðja við
símasölufólk. Sölumaður getur sent
SMS meðan á símtali stendur og leitt
viðskiptavininn þannig í gegnum
vörukynningu á glærum. Oft er sala
kláruð í fyrsta símtali.
Virkar fyrir alla vafra
Fyrirtækið hefur eytt talsverðum
fjármunum í að þróa lausnina þannig
að hún virki fyrir alla vafra og öll
tæki. „Þó að viðskiptavinurinn í sím-
anum sé með lélega nettengingu og
eldgamlan vafra þá virkar Crank-
Wheel,“ segir Jói og bætir við að
hægt sé að keyra kynninguna á göml-
um Blackberry-síma. „Við höfum
meira að segja keyrt svona kynningu
á afþreyingarskjá á hlaupabretti.“
Jói og Þorgils Sigvaldason, Gilsi,
viðskiptafélagi hans, segja að lausnin
sé umhverfisvæn og stuðli að minni
útblæstri. „Þetta fækkar ferðalögum
og minnkar þannig sótspor.“
Fyrirtækið var stofnað árið 2015
og strax í september það ár voru
fyrstu greiðandi viðskiptavinirnir
byrjaðir að nota kerfið. Síðan hefur
þróunin haldið áfram og ný virkni
bætist reglulega við.
Sumir viðskiptavina CrankWheel
nota kerfið til að taka á móti undir-
skriftum samninga, þó hún sé ekki
lagalega bindandi. „Menn eru að láta
viðskiptavini teikna með mús á tölvu-
skjá eða með putta á farsímaskjáinn.
Þessi notkun varð til þess að við
keyptum danska fyrirtækið Accordi-
um, sem býður upp á lagalega bind-
andi rafrænar undirskriftir,“ segir
Jói en sagt var frá kaupunum í Morg-
unblaðinu á dögunum.
Þeir Jói og Gilsi hafa safnað saman
notendasögum til að styðja markaðs-
starfið. Eitt stórt fjármálafyrirtæki í
Bretlandi jók t.d. söluna hjá því
starfsfólki sem notar CrankWheel
um 15-20% eftir að notkun hófst.
Ein virkni sem boðið er upp á í
CrankWheel er að kerfið lætur vita
ef viðskiptavinurinn er hættur að
horfa á skjáinn eða símann af ein-
hverjum orsökum. Þá er hægt að
minna hann á.
Við það að gefast upp
Tekjur CrankWheel hafa aukist
hratt síðustu ár. Þær voru 40 millj-
ónir króna árið 2019 og 70 milljónir
árið 2020. Í ár fara tekjurnar yfir
hundrað milljónir. Tekjurnar koma
nær alfarið erlendis frá, mest frá
Bandaríkjunum og Bretlandi.
Rétt áður en tekjuvöxturinn hófst
voru þeir félagar við það að gefast
upp. „Gilsi var tímabundið kominn í
aðra vinnu. Svo gekk bara alveg
ótrúlega vel árið 2018. Eftir það hef-
ur gengið verið frábært. Þrautseigj-
an skilaði okkur áfram.“
CrankWheel selur vörur sínar að
mestu í gegnum heimasíðuna en
einnig á sölusýningum erlendis. „Nú
hefur verið langt hlé á sölusýning-
um, en það verður gaman að geta
aftur farið út á sýningar og kynnt
vöruna,“ segir Gilsi en sex sýningar
eru bókaðar fyrir áramót.
„Sýningar sem haldnar voru á
netinu í faraldrinum komu ekki vel
út. Nú eru allir mjög spenntir að
mæta aftur á staðinn í eigin per-
sónu.“
Þrír vinna hjá CrankWheel á Ís-
landi og aðrir sex erlendis. Ráðning
tæknistjóra er á döfinni.
Fyrirtækið hefur ekki sótt sér
fjármagn til fjárfesta og engar áætl-
anir eru uppi um slíkt. Tekjur duga
fyrir rekstri og áframhaldandi þró-
un. „Ég legg áherslu á að við skiljum
alltaf eitthvað eftir í hverjum mán-
uði þannig að fyrirtækið lifi til langs
tíma. Við viljum byggja upp á skyn-
samlegan hátt,“ segir Jói að lokum.
Rúmlega milljón sölufundir
á ári í kerfum CrankWheel
Tækni Jói Sigurðsson og Þorgils Sigvaldason eiga og reka CrankWheel.
- Hefur gengið vel í faraldrinum - Tekjur yfir 100 milljónir á árinu
Framleiðslufyrirtæk-
ið Límtré Vírnet var
rekið með tæplega
hundrað og fimmtíu
milljóna króna hagn-
aði á síðasta ári.
Hagnaðurinn þrefald-
ast milli ára en hann
var rúmar 56 milljónir
króna árið á undan.
Fyrirtækið sér um
framleiðslu og sölu á
vörum fyrir íslenskan
byggingariðnað.
Eignir jukust
Eignir fyrirtækis-
ins nema nú rúmum
þremur milljörðum
króna og jukust þær
lítið eitt milli ára. Þær voru tæplega
2,9 milljarðar árið 2019.
Eigið fé Límtrés Vírnets er nú
rúmlega 735 milljónir króna. Eigið
féð eykst um 25% milli ára, en það
var 589 milljónir króna árið 2019.
Eiginfjárhlutfall félagsins er
24,2%
Tekjur Límtrés Vírnets námu á
árinu rúmum þremur milljörðum
króna og jukust um hundrað millj-
ónir á milli ára.
Í ársreikningi félagsins kemur
fram að mjög óvenjulegar aðstæður
hafi skapast á árinu vegna kórónu-
veirunnar, sem áhrif höfðu á rekstur
félagsins á fyrri hluta ársins. Nýtti
félagið sér meðal annars hlutabóta-
leið stjórnvalda í einn mánuð til að
mæta minnkandi eftirspurn. Sam-
hliða var samið um frystingu á
greiðslu afborgana og vaxta lang-
tímalána við viðskiptabanka félags-
ins. tobj@mbl.is
Iðnaður Límtré Vírnet starfar m.a. í Borgarnesi.
Hagnaður Límtrés
Vírnets 150 m.kr.
- Tekjur rúmlega þrír milljarðar