Morgunblaðið - 01.10.2021, Page 18

Morgunblaðið - 01.10.2021, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021 ✝ Gunnar Ólafs- son fæddist á Akranesi 20. júlí 1921. Hann lést á Hrafnistu 18. sept- ember 2021. Foreldrar hans voru Guðrún Hall- dórsdóttir frá Þyrli á Hvalfjarðar- strönd, f. 16.5. 1894, d. 8.9. 1921, og Ólafur Magn- ússon frá Lokinhömrum í Arn- arfirði, f. 23.9. 1893, d. 24.3. 1961. Albróðir Gunnars var Svavar Ólafsson (látinn). Hálfsystkini samfeðra eru Matthías (látinn), Marsibil (látin), Sigrún, Roy (lát- inn) og Ólöf Alda. Gunnar kvæntist eftirlifandi konu sinni, Dýrleifu Hallgríms, f. 16.5. 1923, árið 1944. Börn þeirra eru Ólafur Örn Gunnarsson, f. 7.8. 1944, kvænt- ur Erlu Maríu Erlendsdóttur. Þau eiga samtals sex börn, barna- og barnabarnabörn eru 13. Hallgrímur Haukur Gunn- arsson, f. 9.9. 1947, kvæntur Sól- þar til hann fór í Stýrimanna- skólann og útskrifaðist þaðan tvítugur að aldri. Hann kynntist konu sinni Dýrleifu um svipað leyti þegar hann var til sjós á Fjölni frá Þingeyri þar sem Dýr- leif bjó. Gunnar sigldi öll stríðs- árin með ísfisk til Englands og kynntist ógnum stríðsins af eig- in raun. Hann fór sinn fyrsta túr sem skipstjóri á Eldborgu 1945 og var staddur í Fleetwood þeg- ar stríðinu lauk. Hann var síðar stýrimaður og skipstjóri á fyrstu Akraborginni sem sigldi á milli Reykjavíkur, Akraness og Borgarness. Eftir að Gunnar hætti sjó- mennsku 1965, stofnuðu hjónin síldarsöltunarstöð á Mjóafirði ásamt fleirum. Upp úr 1970 sneri Gunnar sér að útflutningi á sjávarafurðum og útgerð er hann gerðist meðeigandi að Andra ehf. Seinna stofnaði hann svo Norðurhaf ehf. og lauk starfsævi sinni hjá SÍF 82 ára gamall. Gunnar og Dýrleif bjuggu í Borgarnesi í 18 ár. Þau fluttu til Reykjavíkur 1962, og hafa búið þar síðan. Útför Gunnars verður gerð frá Garðakirkju í dag, 1. októ- ber 2021, og hefst athöfnin klukkan 13. borgu Öldu Péturs- dóttur. Þau eiga eina dóttur. Guð- rún Ingibjörg, f. 6.12. 1948, gift Stefáni Thors. Þau eiga tvo syni og sex barnabörn. Hall- dóra Dýrleifar Gunnarsdóttir, f. 2.6. 1959, gift Hreini Valgerðar Hreinssyni. Dæt- urnar eru tvær og barnabörnin tvö. Gunnar ólst upp hjá afa sínum og ömmu á Akranesi, Halldóri Þorkelssyni og Ingibjörgu Loftsdóttur, í nálægð við móð- ursystkini sín sem búsett voru á Akranesi. Skólagöngu sína hóf hann þar og hélt síðan í Flens- borgarskóla í Hafnarfirði og var þar í tvo vetur. Gunnar byrjaði til sjós 12 ára gamall með Þorkeli móðurbróð- ur sínum. Nýfermdur sumarið 1935 fór Gunnar á síldarvertíð með föður sínum á síldarskipinu Eldborgu og var til sjós á ýmsum skipum Lítil hönd í stórum lófa. Einn skreflangur og önnur stuttstíg. Stór og hlýr faðmur. Sit í kjölt- unni hans og við erum að lesa Alfræðibókina saman. Margar stundir og afar snjáð bók, enda- laus þolinmæði. Þannig eru fyrstu minningarnar um pabba. Hávaxinn, stórstígur, hlýr, þol- inmóður og fallegur. Hann náði því að verða 100 ára þrátt fyrir að ætla sér það alls ekki og fannst fáránlegt að fá ekki að ráða sínum dauðdaga. Hann mundi ekki bara tímana tvenna heldur örugglega ferna. Hann ólst upp móðurlaus hjá afa sínum og ömmu og stórum hópi ættingja sem sagan segir að hafi fordekrað hann. Í seinni heims- styrjöldinni sigldi hann með fisk til Bretlands og var nokkuð viss um það á þeim tíma að ævin yrði ekki mikið lengri. Hann var á sjó, hann vann á flutningaskipi, hann stofnaði síldarútgerðarfyr- irtæki, hann rak öflugt inn- og útflutningsfyrirtæki, hann stofn- aði svo nýtt fyrirtæki þá um sjö- tugt og hann endaði starfsferil sinn hjá SÍF 82 ára gamall. Hann hafði það oft á orði að það eina sem hann sæi eftir, fyrir ut- an að hafa ekki byrjað að spila golf fyrr, væri að hætta svona snemma að vinna. Það var sterkur strengur á milli foreldra minna en þar sem mamma sem lifir mann sinn hef- ur stálvilja og hann var sérgóður þá reyndi stundum á. Þegar hann, síðustu dagana, var orðinn mjög veikur þá bráði einu sinni af honum um stund og þar sem mamma situr við rúmgaflinn hans þá snýr hann sér að mér og segir … „hún er flott þessi“ og brosir svo sínu blíðasta til henn- ar. „Já, pabbi, þú hefur örugg- lega þurft að berjast fyrir henni.“ „Ójá,“ var svarið. Hann hafði fram á síðasta dag brennandi áhuga á öllu sem snerti börnin, tengdabörnin, barnabörnin og því sem aðrir af- komendur tóku sér fyrir hendur. Það var spáð og spekúlerað í störfum og búsetu og fátt þótti honum skemmtilegra en fast- eignakaup, og framkvæmdir. Hann var einlæg karlremba. Hann bar hag okkar systra og tengdadætra mjög fyrir brjósti en hann hafði hins vegar brenn- andi áhuga á því sem synirnir og tengdasynirnir tóku sér fyrir hendur. Foreldrar mínir dvöldu löngum stundum í Brekkukoti, sumarbústaðnum sínum, þeim fannst gaman að fá heimsókn og þegar kvöldaði þá var alltaf blandað í sexara sem var gin og tónik sem oftast var ódrekkandi þar sem föður mínum fannst af- ar mikilvægt að spara blandið. Daginn eftir vaknaði hann svo eldsnemma og þrammaði um gólf í agnarlitlum bústaðnum og hóf upp raust sína … hvernig er þetta nú eiginlega með þetta unga fólk, ætlar það bara að sofa endalaust? Ljúfur en langrækinn, gleði- maður en einfari, varkár en vog- aður, víðsýnn en dómharður, stríðinn en hörundsár, nýtinn en örlátur. Kannski allt saman mót- sagnir en þannig er það oft með manneskjuna. Þegar pabbi tók síðasta anda- dráttinn sátum við mamma við rúmstokkinn og héldum í hönd hans. Hann var búinn að leiða mig svo víða og mér fannst gott að fá að halda í höndina á honum síðasta spölinn. Skrefin verða ekki fleiri en þakklæti er mér efst í huga við hans leiðarlok, góð samfylgd allt mitt líf, gönguferð sem aldrei bar skugga á. Halldóra Dýrleifar Gunnarsdóttir. Elsku tengdapabbi, þegar ég skrifa þessi orð er ég staddur í Brekkukoti. Ég var að hengja upp fiskana en er ekki ennþá bú- inn að læra hnútana sem þú reyndir að kenna mér, þér finnst það örugglega ennþá fyndið. Þú varst líka fyndinn, og stríðinn, alltaf með bros á vör að reyna að finna leiðir til að æsa mig upp, en það gekk alls ekki vel, ég hafði óendanlega gaman af þessu öllu, þú líka held ég. Ég kynntist Gunnari fyrir 19 árum þegar ég varð tengdason- ur hans og þegar ég hugsa til baka man ég ekkert nema góð- vild, húmor og stuðning, við rif- umst aldrei (þótt hans fjölskylda sé áhugafólk um góð rifrildi) þrátt fyrir að vera á öndverðum meiði í pólitík til dæmis. Gunnar hafði gaman af því fram á síð- asta dag að reyna að finna veika bletti til að stríða, hann gafst aldrei upp. Hann gekk meira að segja svo langt að gerast helsti talsmaður Sigríðar Andersen til að skapa umræður en ég held í alvöru að það hafi verið grín. Við Halldóra vöndum komur okkar í Brekkukot og í sveita- sælunni var allt best. Hann hafði gaman af því að fá okkur í heim- sókn til að elda fyrir sig og Dýr- leifu enda kunni hann bókstaf- lega ekkert í eldamennsku, sem stoppaði hann þó ekki í að kvarta yfir matnum hennar Dýr- leifar, fullkomlega að ósekju. Hefðin í Brekkukoti var einn G&T fyrir matinn (stundum fleiri) og blandan hans var svakaleg enda mikilvægt að spara blandið. Ég kvartaði ekki, enda karlmaður, fyrr en eftir sirka þrjú ár og þá með þeirri lymskulegu aðferð að taka verk- efnið að mér í samvinnu við Halldóru, afsakaðu það, já og líka að bæta við klaka og lime, byltingar þurfa ekki að vera stórar. Mér fannst, og finnst, ævi Gunnars spanna svo ævintýra- lega langan tíma, næstum óskilj- anlegt að hann hafi verið stadd- ur í Bretlandi á friðardaginn 1945 í geggjuðu partíi, þetta er önnur veröld, svarthvít. Ævin er tímavél. Ég minnist jólanna á Unnarbraut, og heima hjá okkur á Bestó, ég minnist ferðalaga og fjölskylduboða, gleðistunda og líka sorgar, þið hjónin alltaf til staðar, veiðiferðin í Reykjadal, glamrandi jólagjafapokar og svo margt annað. Aldurinn færðist yfir og það þrengdist um mögu- leika en það var samt alltaf ein- hver átylla til að hafa gaman. Síðustu árin fór heilsu að hraka og það var erfitt að sjá Gunnar hverfa inn á lokaða spít- ala í Covid og mega ekki heim- sækja mánuðum saman. Hann tók þessu þó öllu nokkuð vel þótt hann væri einlæglega kom- inn á þá skoðun að þetta væri orðið gott, þetta líf. „Ég verð ekki 100 ára, hef engan áhuga á því,“ sagði hann, en samt varð hann það og það var alveg sæmi- leg veisla, sú síðasta. Hann var með allt á hreinu í kollinum fram á síðasta dag nánast og ekkert gladdi hann meira en að fylgjast með lífi okkar, barna og barnabarna, það var alltaf þessi neisti, viljinn til að skilja og ræða málin. Hann var klár og flottur kall. Takk kærlega fyrir mig kæri tengdapabbi, þín verður saknað en minnst á gleðistundum. Hreinn Valgerðar Hreinsson. Ótal minningar koma upp í hugann þegar Gunnar Ólafsson, tengdafaðir minn, hefur kvatt þennan heim, nýlega orðinn eitt hundrað ára. Það er rúm hálf öld síðan ég kynntist Gunnar eftir að hafa orðið skotinn í Guðrúnu, dóttur hans. Fjölskyldan hafði þá nýlega flutt frá Borgarnesi til Reykjavíkur og bjó á Dunhaga 11. Ég man svo vel eftir því hvað Gunnar var reffilegur og bar sig vel með hatt á höfði og pípu í munninum. Gunnar var skipstjóri á Akra- borginni þegar fjölskyldan flutti til Reykjavíkur og það var greinilegt þegar við síðar vorum t.d. í framkvæmdum við sum- arhús þeirra hjóna á Flúðum að hann hafði sem stýrimaður og skipstjóri vanist því að stjórna. Það gerði hann líka vel. Það var búið að útvega allt sem þurfti til og allt var á sínum stað. Ef unn- ið var úti mældi ég og sagaði og um leið var hann tilbúinn með viðarvörn í sárið. Þegar dags- verki var lokið var tekið til, sóp- að og allt sett á sinn stað. Þegar ég stóð í framkvæmdum á öðr- um vettvangi vildi hann fá reglu- lega skýrslu um það hvernig gengi. Gunnar fylgdist vel með börnum og barnabörnum, spurð- ist frétta af þeim og var annt um velferð þeirra. Mig grunar að hann hafi stundum verið betur að sér um athafnir barna- barnanna heldur en foreldrarnir. Gunnar hafði mjög ákveðnar skoðanir á stóru og smáu. Hann fór ekkert í grafgötur með sína meiningu án þess þó beinlínis að dæma fólk. Hann var líka ein- staklega gamansamur og stríð- inn. Hann gerði mikið grín að stjórnmálamönnum, ekki minnst þeim sem voru í flokknum sem hann kaus. Hann reyndi stöðugt að stríða börnum og barnabörn- um á meðan hann gat æst þau upp en hætti um leið og þau létu sér fátt um finnast. Þegar Gunnar hætti sjó- mennsku og eftir að hafa staðið fyrir síldarsöltun á Mjóafirði í tvö sumur gerðist hann upp úr 1970 meðeigandi í Andra ehf. og hóf fiskútflutning. Hann var m.a. umboðsmaður Abba-verksmiðj- unnar í Gautaborg sem verkaði síld og þorskhrogn. Ég átti þess kost nokkrum sinnum að hitta Svíana sem komu hingað til að skoða m.a. síld og hitta Gunnar. Þeir bjuggu alltaf á Hótel Holti en sögðu mér þegar ég hitti þá að hápunktur ferða þeirra til Ís- lands væri alltaf matarboðin þar sem Dýrleif tengdamóðir mín bauð upp á steikta ýsu eða lambalæri á Unnarbrautinni þar sem þau bjuggu þá. Svíarnir báru mikla virðingu fyrir Gunn- ari sem ferðaðist með þeim um landið þar sem þeir nutu þekk- ingar hans á fólki og öllu því sem varðaði sjávarútveg. Gunnar og Dýrleif náðu þeim áfanga fyrir tæpu ári að vera þau hjón á Íslandi sem höfðu verið lengst gift eða í 76 ár. Dýr- leif lifir mann sinn og er í góðu yfirlæti á Hrafnistu. Gunnar hélt alltaf sinni reisn þótt af honum hafi verið dregið í lokin. Húm- orinn var alltaf á sínum stað. Hans verður saknað og við geymum minningarnar um góð- hjartaðan og sterkan mann. Stefán Thors. Eftir 100 ára ævi er afi okkar floginn á feðra sinna fund. Hann var alltaf stór hluti af okkar lífi og minningarnar af samveru- stundum eru óteljandi, bæði á Unnarbrautinni og annars stað- ar. Þessar minningar munu ylja okkar um hjartarætur alla tíð. Galsinn og fjörið voru alltaf alls- ráðandi hjá honum, allt fram á síðustu stund. Afi var af þeim skóla að það var dyggð að vinna og vinna mikið. Honum þótti því alltaf gaman að heyra ef við sögðum honum að það væri nóg að gera og að vinnudagar væru langir. Það var gott að fá slíkt klapp á bakið og einnig gaman að geta glatt karlinn. Honum þótti einn- ig spennandi ef við sögðum hon- um frá því að við værum að byggja, kaupa íbúð eða bíl. Hann gerði auðvitað líka kröfur og gat komið með margvíslegar athugasemdir um hvernig við bárum okkur að í verkum. Það gat t.d. enginn rakað flötina eftir slátt eins og hann vildi að það væri gert. Við áttum ófáar stundirnar með ömmu og afa í Brekkukoti, þar sem ávallt var boðið upp á frábært lamb og steiktan fisk í miklu smjöri. Á sparidögum bauð afi upp á gin og tónik. Hann var þeirrar gerðar að það átti að fara sparlega með tón- ikið. Þessi drykkur hefur síðan orðið fjölskyldudrykkur, þó við notum heldur meira tónik. Afi, ásamt ömmu, hefur verið okkur mjög góður. Fylgst náið með okkur, stutt okkur, hjálpað okkur og gefið af sér hlýju og virðingu sem er svo ómetanlegt en alls ekki sjálfsagt. Alltaf skein í gegn væntumþykjan og raunverulegur áhugi á því sem við vorum að gera. Hann þreytt- ist aldrei að spyrja frétta af allri fjölskyldunni. Þannig gat afi oft sagt okkur fréttir af eigin fjöl- skyldu og jafnvel tengdafjöl- skyldu. Það eru margar minningar frá utanlandsferðum fjölskyld- unnar með ömmu og afa. Þar var afi oft eins og greifi, þar sem var einstaklega skemmtilegt að fara með afa að „projentera“ eins og hann kallaði það, í stór- mörkuðum Evrópu. Á heima- slóðum var afi veiðimaður og dró þá ófáa fiska upp úr ýmsum ám. Á seinni hlutanum sneri hann sér að golfi og hafði gaman af. Ástríða hans og áhugi smitaðist til okkar og er annar nú forfall- inn fluguveiðimaður og hinn golfari. Þó afi sé laus úr viðjum jarð- lífsins og kominn í landið bjarta, skilur hann eftir sig fallega minningu um mann með hjarta úr gulli. Hvíldu í friði afi, þú lifir áfram í hjörtum okkar. Stefán Gunnar og Valtýr. Elsku afi okkar. Við systur vorum mikið hjá ykkur ömmu á Unnarbrautinni, síðar í Hæðargarðinum og auð- vitað í Brekkukoti. Við eigum ótal minningar af báðum stöðum og þá sérstaklega sem börn á Unnarbrautinni sem má segja að hafi verið okkar annað heimili. Heim til ykkar ömmu voru allir velkomnir og öllum tekið opnum örmum. Það lýsir ykkur best, hjartahlýju og góðu hjónum. Þau voru ófá heimboðin þar sem amma eldaði dýrindismat sem afi gantaðist síðan með að hafa eldað. Afi var svo sann- arlega af gamla skólanum og þótt hann hefði stýrt skipum og fyrirtæki þá voru eldhústækin honum alveg framandi. Enda var það grínið. Afi var nefnilega stríðinn með eindæmum og reyndi oft að stríða okkur systr- um en við vorum fljótar að átta okkur á því að það þýddi ekkert að láta á sjá því þá værum við auðvelt skotmark. En þegar honum tókst að narra fólk til viðbragða eða kalla fram hlátur þá hló hann innilegast sjálfur, með öllum líkamanum. Oft vörðum við fjölskyldan jólunum og áramótunum saman á Unnarbrautinni. Á jólunum var alltaf keypt stærsta jólatréð sem mögulega komst inn fyrir dyrnar og það skreytt hátt og lágt með dýrindisjólaskrauti. Fyrir litlar stelpur var þetta sannkallaður jólagaldur og lík- legast var það þannig líka fyrir ömmu og afa. Afi var mikill fjölskyldumaður og gerði allt fyrir sitt fólk. Hon- um fannst mikilvægt að fjöl- skyldan hefði það gott og að við værum búin að koma undir okk- ur fótunum. Það var líklega þess vegna sem hann var með öll fasteignaviðskipti fjölskyldunnar á hreinu alveg fram á síðasta dag. Þótti honum auðvitað mikið til hagfræðingsins Bergþóru koma, sem hann kallaði banka- stjórann, en átti erfiðara með listabras Hallgerðar sem lofar því hér með að einn daginn muni hún leggja stund á þá einu list sem afa fannst mark á takandi, ritlistina. Smekkinn fyrir fínum klæðum höfum við eflaust frá þér afi en við tækifæri klæðumst við syst- ur vel völdum gæðakjólum, blöndum einn rótsterkan sexara, helst úr smygluðu búsi, og skál- um fyrir þér. Við vitum vel að við erum heppnar að þú skyldir hafa verið hjá okkur svona lengi. En það breytir því ekki að sorg- in við að missa þig er mikil. Takk fyrir allt. Við munum sakna þín og þú lifir áfram í minningum okkar. Þínar afadætur, Bergþóra Baldursdóttir og Hallgerður Hallgrímsdóttir. Elsku afi minn, nú hefur þú kvatt okkur. Sárt er að missa, sárt er að sakna. Þitt fallega og fjölbreytta æviskeið er á enda, fallegur, góður maður 100 ára, það er dágóður aldur, enda varstu kominn á þann stað að vera búinn að fá nóg og þráðir mikið hvíldina. Eins og þú sagð- ir, ég ætlaði aldrei að verða svona gamall. Minningarnar streyma um þig afi minn. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að vera elsta barnabarn ykkar ömmu, ég fékk að vera með ykk- ur á Mjóafirði á sumrin sem lítil stelpa í vagni og svo lítil stelpa hlaupandi um. Minningarnar um þig sem skipstjóri Akraborgar- innar, að sigla með afa, ég var svo montinn af þér. Minning um hversu flottur og fínn þú varst alltaf, hafðir svo mikinn áhuga á fötum, gæti trúað því að Ólafur Örn minn hafi fengið þennan fataáhuga frá þér. Minning sem lítil stelpa á Dunhaganum hjá ykkur og seinna meir dvaldi ég í lengri tíma hjá ykkur á Unnars- brautinni ásamt systrum mínum, Lindu Björk og Helgu Dóru. Það var nú gott að leita í afa- og ömmuknús, hlýjan ykkar á erf- iðum tíma í lífi okkar, þið voruð okkar bjargvættir, ég get seint fullþakkað það, hversu mikil dá- semd þið amma voruð okkur, elsku afi minn. Allar ferðirnar sem ég fór með ykkur í Brekku- kot, að gróðursetja tré og hlúa að þeim, enda stór skógur sem eftir stendur og fallegar minn- Gunnar Ólafsson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.