Morgunblaðið - 01.10.2021, Page 20

Morgunblaðið - 01.10.2021, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021 ið 1981 flytur hún til Jóns til Vestur-Berlínar. Saman drukk- um við mikið af góðum þýskum bjór, líklega mest af Weihen- stephan, en það brugghús er sagt það elsta í heiminum eða frá 1040. Rætt var um pólitík og samfélagsleg mál, þýsk sem ís- lensk. Á þessum árum aðstoðaði Jón marga námsmenn með ýmsa pappírsvinnu til að friða þýska skriffinna. Við fórum í margar ferðir. Minnisstæð er fyrsta ferðin með þeim hjónum þegar haldið var landleiðina til Parísar og tjaldað. Það var ótrúlegt að upplifa hæfileika Jóns til að tjá sig á frönsku hafandi aldrei lært málið. Ferðin til Srí Lanka haustið 1983 er ekki síður minn- isstæð. Þar átti Jón góðan vin frá námsárunum. Flogið var með Aeroflot í gegnum Moskvu og Karachi í Pakistan. Ævin- týraferð. Við námsmennirnir lifðum eins og kóngar. Jón kynnti mig fyrir prófess- or Sveini Bergsveinssyni sem hafði starfað við Humbolt-há- skólann í Austur-Berlín. Við fór- um oft saman og hvor í sínu lagi til að drekka koníak og spjalla við Svein. Það voru sannar gæðastundir, sem styrktu mig og fylltu upp í þekkingargöt mín sem af var lífsleiðinni. Eftir að námsárum lauk og komið var heim var áfram stutt á milli okkar Jóns. Knæpuferð- unum fækkaði þó og kaffið og möndlukökur tóku við. Þrátt fyrir að kona og dætur dveldu meira í Þýskalandi en hér hélt Jón vel utan um sitt fólk og var nánast með annan fótinn í Flensborg þar sem Martína starfar sem læknir. Jón veiktist skyndilega fyrir nokkrum árum og þurfti að leggjast inn á hjartadeild.Tókst okkur verkfræðingunum að sjúkdómsgreina hann á fjórða degi sjúkrahúsvistarinnar. Lífi Jóns var bjargað með hraði. Fyrir það var hann ævinlega þakklátur. Jón var fastheldinn og upp að vissu marki sérvitur. Hann var mjög skemmtilegur maður og átti það til að stuða margan ung- an námsmanninn. Jón var vel lesinn og í raun vísindamaður. Sem farsæll kennari við Háskól- ann í Reykjavík naut hann sín vel. Síðasta sameiginlega ferð okkar Jóns var til Berlínar og Hannover árið 2019. Þá vorum við að kynna okkur vetnisvæð- ingu heimsins og notkun hreins eldsneytis af ýmsu tagi. Þar var Jón á heimavelli, spurði krefj- andi spurninga og fljótur að átta sig á samhengi hlutanna. Hann vann undir það síðasta við rann- sóknir á möguleikum þess að nýta repjuolíu sem lífeldsneyti. Ég kveð þennan góða, skemmtilega og sanna Eyja- peyja, sem var annt um sína heimabyggð og Ísland. Hafsteinn. Í dag kveð ég góðan vin til margra ára. Ég kynntist Jóni Bernódussyni haustið 1984 þeg- ar ég hóf framhaldsnám við Tækniháskólann (TU) í Berlín. Jón hafði búið um nokkurt skeið í Þýskalandi. Hann stund- aði nám í Rostock og síðan fram- haldsnám við TU í Berlín. Reynsla Jóns og þekking af bú- setu í Þýskalandi kom að góðum notum. Hann var okkur yngri samlöndum sínum sem seinna komum til Berlínar stoð og stytta. Hann leiddi okkur í allan sannleika um ýmislegt, svo sem um þýska kerfið bæði austan múrs og vestan, um það hvernig ætti að bera sig að í húsnæðisleit í stórborginni og hvar væru bestu krár og veitingahús. Jóni var mikið í mun að við Ís- lendingarnir héldum saman. Hann kom því til dæmis á að við sem vorum í TU hittumst í há- deginu í kaffistofu eðlisfræði- byggingarinnar. Þar voru oft líf- legar umræður um menn og málefni, til dæmis um stjórn- málaástandið heima á Fróni, en á því hafði Jón sterkar skoðanir. Einnig vorum við samlandar Jóns alltaf velkomnir í Maxst- rasse, heim til Jóns og Martinu. Eftir að ég flutti heim að námi loknu hélst vinátta okkar. Kom- ið hafði í ljós á Berlínarárunum að Jón var sérstakur áhugamað- ur um þjóðlegan íslenskan mat. Ég hef komið á þeirri hefð að bjóða góðum vinahópi heim tvisvar á ári til að neyta slíks matar. Að hausti er boðið upp á íslenska kjötsúpu úr nýslátruðu lambakjöti og nýuppteknu grænmeti og á sprengidaginn að sjálfsögðu saltkjöt og baunir. Jón tók alltaf hraustlega til mat- ar síns í matarboðum þessum og var ekki spar á hrós fyrir elda- mennskuna. Það var öllum mikið áfall þeg- ar Jón greindist með illvígan sjúkdóm sem nú hefur dregið hann til dauða. Jón stóð samt alltaf sem klettur og naut lífsins eins og þess var kostur. Hann kappkostaði einnig að kynna sér allt um sjúkdóminn og var orð- inn sérfræðingur á því sviði, sér- staklega í erfðafræði. Við munum á næstu dögum bjóða til kjötsúpuveislu. Þar mun vanta einn í hópinn, en minning góðs vinar lifir í hjört- um okkar allra. Að lokum votta ég og fjöl- skylda mín Martinu, Maríu Láru, Jóhönnu og öðrum að- standendum Jóns okkar dýpstu samúð. Elín Gunnhildur Guðmundsdóttir. Jón, starfsfélagi minn og vin- ur á þróunar- og rannsóknasviði Siglingastofnunar til ársins 2013, er fallinn frá langt um ald- ur fram. Það er mikill söknuður að missa svo skyndilega jafn góðan vin. Hvar sem Jón kom var hann hrókur alls fagnaðar með hnyttnar sögur um menn og málefni samfara leiftrandi hlát- ursköstum sem heyrðust langt að og hrifu alla með. En bak við alla glettnina var maðurinn Jón sem leitaði stöðugt að meiri hag- nýtri þekkingu. Það var gott að vinna með Jóni og aldrei bar skugga á okkar nána samstarf. Mörg framfaramál voru honum hugleikin eins og fækkun slysa á sjó sem við unnum að og má þá einkum nefna áætlun um öryggi sjófarenda, þar sem áhersla var lögð á menntun og þjálfun sjó- manna. En hans hjartans mál var aukin notkun á umhverfis- vænum orkugjöfum og þá eink- um ræktun repju til framleiðslu á lífdísilolíu á dísilvélar en á því sviði vann hann mikið brautryðj- andastarf. Árangur af þessu starfi Jóns er ótvíræður og það er mjög sárt til þess að hugsa að honum hafi ekki gefist kostur á að leiða þetta verkefni áfram. Vonandi er þetta brautryðj- andastarf Jóns upphaf að öðru meira. Að lokum vil ég þakka honum kærlega fyrir okkar sam- starf við úrlausn fjölda verkefna og vináttu sem var hnökralaus. Betri samstarfsmann var vart hægt að hugsa sér við úrlausn jafn flókinna verkefna og þróun Landeyjahafnar var. Innilegar samúðarkveðjur til eiginkonu, dætra og fjölskyldu. Guð blessi minningu Jóns Bernódussonar. Gísli Viggósson. Það er lán að hafa átt samleið með Jóni í fjóra áratugi. Hann var góður og skemmtilegur sam- ferðamaður, laus við tilgerð, hispurslaus og gleðigjafi. Milli okkar tókst góður vinskapur þegar við kynntumst í Vestur- Berlín þar sem við vorum mikið saman Jón, Martína, Hafsteinn og ég. Fórum á fótboltaleiki, í bíó, leikhús, á knæpur, göngu- túra og ferðalög. Jón opnaði mér dyrnar að DDR. Hann var stoð og stytta Sveins Bergsveinsson- ar sem var orðinn gamall og veikburða og bjó í austrinu. Art- arsemi Jóns við Svein er lýsandi um manngæsku. Jón setti upp plan þannig að við skiptumst á að heimsækja gamla manninn, stytta honum stundir og aðstoða hann. Þannig fékk Sveinn viku- legar heimsóknir frá löndum sínum sem nutu þess einnig að vera með honum. Stuttu eftir að við Jón kynntumst kom Helgi bróðir hans í heimsókn, rakti ættir og allt í einu vorum við fjórmenningar. Jón var greind- ur, leiftrandi í hugsun, opinn fyrir nýjungum og framþróun, sá lífið frá öðru sjónarhorni en aðrir og fastheldinn. Hann átti sitt pláss við mataborðið heima hjá mér og bað gesti um að færa sig ef þeir settust í hans sæti. Best þótti honum að fá glasið sem hann fékk alltaf og elda átti læri á hefðbundinn hátt. Jón sá oftast spaugilegar hliðar lífsins og var hrókur alls fagnaðar. Á níunda áratugnum fórum við ár- lega saman á þorrablót í Þýska- landi og frá árinu 1991 höfum við borðað saman þorramat hér heima í góðra vina hópi. Mér eru eftirminnileg stórafmæli Jóns; 30, 40 og 50 ára. Heima hjá þeim Martínu í Berlín. Hjá Þuru úti í Eyjum þar sem boðsgestir og boðsflennur fóru í „Allir dansa kónga“ inni og úti. Þegar löggan mætti bættist hún bara í hópinn og dansaði kónga með okkur inn í nóttina. Til veislunnar 2002 hefur oft verið vitnað. Svo voru rólegri afmæli; möndlukaka, kaffi, te, bjór og smá vín. Frá- sagnargleði Jóns var einstök, krydduð af smitandi hlátri og minnið þannig að liðnir atburðir lifnuðu við. Jón hafði yndi af því að segja frá. Hann var líka góð- ur hlustandi. Jón fylgdist vel með sonum mínum. Oft hafði hann orð á því hvað hvað börnin okkar væru flottir krakkar og í öllu fremri en foreldrarnir. Þrátt fyrir það er góður efniviður frá Jóni í dætrum hans. Jón var mikill pabbi og stoltur af stelpunum og stelpurnar geta svo sannarlega verið stoltar af pabba sínum og minningu hans. Jón hitti marga á lífsleiðinni. Í gleðskap í DDR á áttunda ára- tugnum spjallaði Jón við Angelu sem var að læra efnafræði. Þau dönsuðu saman. Jóni fannst áhugavert að tala við hana, kvöldið ánægjulegt en persónu- leg kynni urðu ekki meiri. Þetta unga fólk hélt svo út í lífið að einhverju leyti með sömu sýn. Þá sýn að það er fólkið sem skiptir máli. Nú stíga þau niður af sviðinu á sama tíma. Angela af hinu pólitíska sem opinber manneskja. Jón kveður lífið, fjölskyldu, vini og samferðafólk. Bæði hafa markað djúp spor og arfleifð þeirra mun lifa með komandi kynslóðum. Ég sakna Jóns. Missir Maríu Láru, Jóhönnu og Martínu er mestur. Hugur minn er hjá ykk- ur og öðrum ástvinum Jóns. Kæri vinur, ég kveð þig með söknuði, hlýju, gleði og þakk- læti. Sigurbjörg (Idda). Það voru þungbærar fréttir þegar lát Jóns Bernódussonar spurðist. Hann var að búa sig undir að leita sér lækninga er- lendis þegar kallið kom. Fyrr á þessu ári hafði hann farið í að- gerðir en náð sér vel og styrkst mikið í sumar. Nú er djúpur harmur kveðinn að fjölskyldu hans og vinum. Fyrir meira en fimmtíu árum hittumst við Jón í Menntaskól- anum við Hamrahlíð, unglings- strákar sem voru að stíga fyrstu spor lífsbaráttunnar þar sem fullorðinsárin voru skammt und- an. Félagslífið þar skóp mörg vináttusambönd sem entust ævi- langt. Jón Bernódusson var gríðar- legur húmoristi sem sópaði að sér vinum og félögum. Hópur ungmennanna hittist í litlu húsi í Grjótaþorpinu á síðkvöldum á þessum árum. Þar var jafnan glatt á hjalla og Jón var þar au- fúsugestur. Leiddi hann oft heimspekilegar umræður um stjórnmál og þróun heimsmynd- ar. Í slíkum rökræðum naut hann sín, hann var afgerandi og rökviss en brá stundum á leik. Öll þessi uppátæki hans voru skráð í gestabók hússins og þau reyndust vera mörg. Stofnun baráttusamtaka með viðeigandi formfestu þar sem hann var hugmyndafræðingurinn – allt í nafni gleðinnar. Hann varð sem sé snemma áhugasamur um ný- sköpun sem síðar varð hans ævi- starf. Sérkennilegir taktar hans vöktu athygli. Hann var eitt sinn kvöldgestur hjá Jónasi Jónas- syni og greindi þá frá því að hann reykti annað hvert ár. Var það skiptið haft á orði að sjaldan hefði verið jafnmikið hlegið og í þessum þætti. Dillandi hlátur Jóns ómaði um sali löngu eftir að hann yfirgaf húsið, svo smit- andi og eftirminnilegur var hlát- urinn hans. Jón var ekki bara skemmtilegur við vini sína, hann var einnig einstaklega ræktar- legur og umhugsunarsamur. Skýrt dæmi þess er að hann hélt sambandi við marga af kennur- um sínum úr menntaskólanum og bauð þeim til samkvæmis áratugum saman. Það var einstaklega gefandi að eiga Jón Bern að vini, hann var hlýr, greiðvikinn og lausna- miðaður vinur. Ráðagóður þeg- ar á bjátaði og hvetjandi. Með hlýju handtaki, leiftrandi bliki í augum og brosmildur tók hann á móti samferðafólki sínu. Hann var viðkunnanlegur og stór- merkilegur maður. Snjall verk- fræðingur sem eftir var tekið. Um hans löngu og tryggu vin- áttu eru miklar og góðar minn- ingar. Aldrei í eitt einasta skipti varð okkur sundurorða og ætíð var það tilhlökkunarefni að hitta hann eða eiga við hann símtal. Nú er hann farinn í ferðina löngu og hans er sannarlega saknað. Dætrum Jóns, ljósunum í lífi hans, móður þeirra Martinu og systkinum eru færðar inni- legar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning öðlingsins Jóns Bernódussonar. Skúli Eggert Þórðarson. Jón Bernódusson, vinur og vinnufélagi til 25 ára er fallinn frá. Hann var um margt sér- stakur persónuleiki og minnis- stæður þeim sem honum kynnt- ust. Jón var fróður og víðlesinn hvort sem það var um skipa- verkfræði, Rolling Stones, eðl- isfræði, orkumál, sálfræði, trú- mál, stjórnmál á Íslandi og í Þýskalandi eða dægurmálin. Jón lá ekki á skoðunum sínum og hafði skoðanir á flestum mál- um. Hann var fylginn sér, barð- ist fyrir sínu og lét menn vita af- dráttarlaust ef hann var þeim ekki sammála. Jón átti til að vera stríðinn og ögra samferða- fólki með beittum athugasemd- um og þræddi þar hárfínan stíg en kunni að meta ef honum var svarað á sama hátt. Jón var vinamargur og átti auðvelt með að kynnast fólki, stofna til vináttu og viðhalda henni. Það vakti sérstaklega at- hygli mína hvað margir kennar- ar hans úr menntaskóla voru alla tíð góðir vinir hans. Jón átti stóran vinahóp menntaskóla- félaga og kollega úr Háskólan- um í Rostock sem margir heim- sóttu hann reglulega til Íslands. Það var gaman að ferðast og fylgjast með Jóni í ferðum um Þýskaland, þar sem hann sýndi okkur ferðafélögunum skólana í Rostock og Vestur-Berlín, þar sem hann stundaði nám, og að- setur sín þar að námi loknu, ásamt því að kynna okkur fyrir þýskum vinum sínum og fræða okkur um þýska sögu og menn- ingu. Næsta ferð var áformuð til München í nóvember nk. Jón hafði einstakt lag á því að nálgast fólk og fanga athyglina. Það var sama hvort það voru vinir, vinnufélagar, nemendur hans í háskóla, fólk á förnum vegi, óformlegir vinnufundir, fyrirlestrar hér á landi eða fund- ir erlendis. Jón hafði gott vald á þýsku, ensku og dönsku og gat náð athygli fólks á öllum þessum tungumálum við allar aðstæður. Hann lagði mikið upp úr því að slá á létta strengi og fann alltaf tilefni til þess. Þetta var honum auðvelt enda hafði hann allt sem til þarf; leiftrandi gáfur, ótrú- legt minni, skopskyn, frásagnar- gáfu og smitandi hlátur. Jón var orðheppinn, snöggur til svars og vildi eiga síðasta orð- ið. Þegar Jón flutti mál sitt var hann öruggur í fasi og framsögn og þeir sem á hlýddu fengu strax á tilfinninguna að hann þekkti málið til hlítar og ekki síst hann sjálfur. Eitt sinn þegar Jón var að kynna rannsóknir sínar á repjuræktun, þar sem hann var frumkvöðull, þótti ein- um fundarmanna nóg um og spurði: „Hvor þekkir þetta bet- ur, þú eða Guð almáttugur?“ Jón svaraði um hæl og sagði: „Við þekkjum þetta jafnvel enda vinnum við vinirnir að þessu saman.“ Nú er mikilvægt að einhver taki við kefli Jóns í því frum- kvöðlastarfi sem hann vann varðandi orkuskipti í sam- göngum og ræktun orkujurta til framleiðslu á lífolíu. Hann sá fyrir sér fjölbreyttar afurðir og kosti slíkrar ræktunar hér á landi. Jóni þakka ég fyrir vináttuna, samstarfið, ferðir um Þýskaland og Ísland, gönguferðirnar og rökræðurnar. Við Signý sendum fjölskyldu Jóns innilegar samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning Jóns Bernódussonar. Helgi Jóhannesson og Signý Þórðardóttir. Jóni Bernódussyni kynntist ég fyrst sem bekkjarfélaga eldri bróður míns í MH. Hress og ákveðinn, góður félagi sinna bekkjarsystkina, en nennti líka að spjalla við mig, litla bróður Hlyns. Hann var tveimur árum eldri en þau, ekki hleypt í lands- próf vegna landlægs plagsiðar að ætla aðeins „sumum“ að kom- ast í langskólanám. Garðar Sig- urðsson, settur skólastjóri Gagnfræðaskólans í Eyjum, tók í taumana og auðvitað stóð okk- ar maður sig. Jón lauk síðan prófi í skipaverkfræði í Austur- Þýskalandi og vann hjá Sigl- ingastofnun og síðar Samgöngu- stofu. Það var þar sem leiðir okkar lágu aftur saman 2014 er ég var skipaður forstjóri stofn- unar öryggismála flugs, umferð- ar og siglinga. Jón tók mér vel, en hjá Samgöngustofu var hann fagstjóri rannsókna og þróunar á sviði siglingamála. Eftir langan tíma var Jón enn sami Eyjapeyinn, kankvís og ákveðinn og með mikinn áhuga á mönnum og málefnum. Enginn kom að tómum kofunum hjá Jóni. Mest um vert er þó hve yf- irgripsmikillar þekkingar hann hafði aflað sér á öryggismálum á sjó og hve vel hann þekkti og bar fyrir brjósti öryggi sjó- manna. Þar var hann á heima- velli. Jóni gat ég alltaf best treyst þegar mikið mæddi á. Hann varð rólegri og yfirvegaðri þegar umræðan varð óvægnust og hörðust og þegar að sam- starfsmönnum var vegið eða efast um fagmennsku þeirra. Enda fór það svo að vart fannst betri maður til að leggja lið þeim verkefnum sem lutu að öryggis- málum sjómanna, jafnt innan Samgöngustofu sem og í sam- starfsverkefnum með sjómönn- um og útvegsmönnum. Jón var þar klettur sem skeytti engu stundarhávaða og upphrópunum samfélagsmiðla. Hann var fast- ur fyrir en kunni líka að koma sínum baráttumálum áfram með lagni. Margir þekkja Jón hvað best af öflugri baráttu hans fyrir ræktun repju á Íslandi og nýt- ingu hennar sem vistvæns orku- gjafa, einkum fyrir skip, og einnig sem fóður fyrir menn og skepnur. Hann var óþreytandi í að berjast gegn straumnum, löngu áður en nokkur nefndi umhverfismál og orkuskipti í samgöngum. Samstarfsverkefni sem hann stóð að, fyrir hönd Samgöngustofu, við bændur, út- gerðir og iðnfyrirtæki eru fjöl- mörg og munu örugglega hjálpa við að troða þessa illfæru slóð í framtíðinni. Ég trúi því að er frá líður verði Jóns minnst fyrir brautryðjendastarf hans á þessu sviði, þótt enn sé langt í land. Það var gaman að ferðast með Jóni á vettvang verkefna Sam- göngustofu. Hvort sem það var vegna öryggis farþega í hvala- skoðun á Skjálfanda, skoðunar á björgunarbátum og sjálfvirkum sleppibúnaði eða við móttöku er- lendra háskólastúdenta, Jón tal- aði af þekkingu og fagmennsku. Á hann var hlustað af virðingu því innihaldið var sterkt. Sárt er að kveðja nú minn vin allt of fljótt og án þess að fá að starfa með honum síðustu tvö árin. Hann var rétt að sjá í hill- ingum að geta nú farið að hægja á, en vissi alltaf að heilsan er fallvölt og stutt var í næstu að- gerð. Aðstandendum vottum við Magga okkar dýpstu samúð. Hvíl í friði minn kæri Jón. Þórólfur Árnason. Jón Bernódusson er látinn langt um aldur fram. Með hon- um er genginn mikill mann- kostamaður og einstakur per- sónuleiki. Við kynntumst fyrir áratugum í gegnum sameigin- legan vin okkar, Bolla Héðins- son. Samstarf okkar Jóns hefur verið mjög náið síðustu misseri, vegna vinnu starfshóps um framtíð repjuræktunar, sem samgönguráðherra skipaði okk- ur í, ásamt fleirum. Jón afhenti ráðherra skýrslu starfshópsins 11. september síðastliðin, en Jón var aðalhvatamaður að þeim til- raunum, sem stundaðar hafa verið með repjuræktun hér á landi síðustu ár. Í nokkur skipti gengum við Jón saman um þýsk- ar knæpur, þar sem málin voru kryfjuð. Á þeim ferðum hlust- uðum við samferðamenn Jóns stundum á magnaðar sögur hans af mönnum og málefnum, en fáir stóðu Jóni á sporði í frásagnar- gáfu með upphressandi túlkun á sögum og mannlífi. Jón Bernódusson fékk í vöggugjöf afburðagreind. Auk góðrar menntunar hafði Jón víð- tæka þekkingu á mörgum flókn- um málum. Hann var vísinda- maður og hugsjónamaður, sem fylgdi málefnum sínum eftir með miklum krafti og skynsemi. Jón átti auðvelt með að útskýra mál sitt með góðum rökum og vegna hins létta skopskyns, sem hann bjó yfir, var máflutningur hans mjög áheyrilegur. Jón Bernódusson er nú geng- inn á vit feðra sinna, allt of snemma. Hann var eftirminni- legur maður, sem einstaklega gefandi og mannbætandi var að umgangast. Við Hrund sendum fjölskyldu Jóns innilegar samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning Jóns Bernódussonar. Jón Þorsteinn Gunnarsson. „Sæll, Jón Bernódusson heiti ég og er frá Vestmannaeyjum.“ Þannig kynnti Jón sig iðulega og mér varð þegar ljóst að hér var á Jón Bernódusson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.