Morgunblaðið - 01.10.2021, Síða 22

Morgunblaðið - 01.10.2021, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021 Bílar Nú þegar engir sendibílar eru fáanlegir í heiminum eigum við þennan til á lager ! Nýr 2021 Ford Transit L2H2. Til afhendingar strax ! Verð: 4.700.000,- án vsk. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 10–18 virka daga. Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12. Leikfimi og jóga með Milan. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Velkomin. Sími 411-2600. Boðinn Línudans kl. 15. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Botsía kl. 10.15-11.20. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Opin Listasmiðja kl. 13-15.45. Hæðargarðsbíó kl. 13. Síð- degiskaffi kl. 14.30-15.30. Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Dansleikfimi í Sjálandi kl. 9.30. Söngstund kl. 11.10 í Jónshúsi. Félagsvist kl. 13 í Jónshúsi. Smiðja í Kirkjuhvoli opin kl. 13–16, allir velkomnir. Gjábakki Í dag, föstudaginn 1. október, kl. 12 ca, kemur Sigurður Þorsteinsson þjálfari og leiðbeinandi í Heilsu-Qigong og kynnir fyrir okkur þessa einstöku tegund heilsuræktar.Til stendur að vera með þessa leikfimi hér í Gjábakka á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 9. Kl. 8.30-11.30 opin handavinnustofa, kl. 9-11.15 botsía-æfing, kl. 9- 11.30 postulínsmálun, kl. 13-15.30 tréskurður, kl. 14-15 sögur og fræði, kl. 20-22 félagsvist. Þriðjudaginn 5. október kl. 13.30 mun einn af vinsælustu fyrirlesurum landsins; Pálmar Ragnarssom, halda fyrir- lestur, um jákvæð samskipti. Við hvetjum alla til að mæta á líflega blöndu fræðslu og skemmtunar. Gullsmári Handavinna kl. 9. Fluguhnýtingar kl. 13. Gleðigjafarnir kl. 13.30. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi milli kl. 9-11. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-12. Útskurður kl. 9-12. Bingó kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30. Hraunsel Línudans kl.10. Brids: kl. 13. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9:45. Handavinna, opin vinnustofa frá kl. 10.30. Brids í handavinnustofu kl. 13. Hádegismatur kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9 í Borgum. Pílukast í Borgum kl. 9.30. Morgunleikfimi kl. 9.45 í Borgum. Gönguhópur Korpúlfa kl. 10 gengið frá Borgum og inni í Egilshöll, Bridgehópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum. Hannyrðahópur Korpúlfa í Borgum kl. 12.30 og tréútskurður á Korpúlfsstöðum í umsjón Davíðs kl. 13. Rúta leggur af stað kl. 19.30 í Borgarleikhúsið að sjá Er ég mamma mín ? Góða skemmtun. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag hittist föstudagshópur í handverks- stofu 2. hæðar milli kl. 10.30-11.30. Eftir hádegi er bingó í matsal 2. hæðar milli kl. 13.30-14.30 (spjaldið kostar 250 kr.). Í framhaldi af því er vöfflukaffi kl. 14.30. Verið öll velkomin til okkar á Lindargötu 59, við hlökkum til að sjá ykkur. Seltjarnarnes Kaffikrókur alla morgna kl. 9.00. Gleðistund / söngur í salnum á Skólabraut kl. 13.00. Kafisopi á eftir. Kr. 500. Allir hjartanlega velkomnir. Þorrasel Fyrsta söngstund vetrarins við flygilinn með Gylfa Gunnarssyni föstudaginn 1. október kl. 13:00 með morgun- "&$#!% $, &((-' þú það sem %, )*#+!' !" á FINNA.is Smá- og raðauglýsingar Við undirritaðir urðum þeirr- ar gæfu aðnjótandi að starfa í vinnuhóp Jóns í ein 15 ár. Hann var drífandi stjórnandi og gerði okkur strax að vinum sínum. Við fórum í þó nokkrar ferðir með Jóni vegna verkefnanna og var hann fararstjóri sem sópaði að. Skemmtilegt var að koma að Þorvaldseyri en Ólafur bóndi ræktar árlega 3-4 hektara repjuakur og pressar olíuna úr fræjunum og notar á vélar sínar en selur líka þessa hollu olíu til manneldis auk þess sem kýrnar hans gæða sér á hratinu frá pressuðum fræjunum, sem er hið besta fóður. Ræktunartil- raunir, tilraunir með að fram- leiða lífdísil með umestrum með metanóli úr repjuolíu og svo prófun lífdísils í vélum í Vélskól- anum sem síðan gæti gagnast fiskiskipaflotanum voru meðal verkefnanna. Þá var eininig unnið að lausnum á mengun á útblæstri skipa og dísilvéla og bættri brennslu. Jón gaf út bækling um niðurstöðurnar: „Umhverfisvænir orkugjafar“, 2010. Nú minnumst við fé- lagarnir samverustundanna með Jóni og vonum að repju- rækt og notkun lífeldsneytis verði vaxandi innlendur iðnaður eins og draumsýn Jóns var. Þá sendum við konu hans og börn- um okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Þökkum við Jóni sam- starfið og megi vinur okkar hvíla í friði. Ásgeir Valhjálmsson véltæknifræðingur, Gísli Viggósson verkfræðingur, Guðbjartur Einarsson vélfræðingur, Pálmi Stefánsson efnaverkfræðingur. Ekki var langt á milli Bakka- stígs 8 (Gjábakka) þar sem ég átti mín æskuár og Borgarhóls, æskuheimilis Nonna í Borgar- hól, eins og hann var jafnan kallaður. Ég kallaði hann þó alltaf Jón, en veit ekki hvers vegna. Ég kannaðist við allt fólkið í Borg- arhól, en náinn kunningsskapur tókst ekki fyrr en síðar. Fyrstu kynnin við fjölskyld- una voru þegar ég kenndi Helga, bróður Jóns, í G.V. Í þeim bekk var allt afburða- fólk og hann framúrskarandi nemandi. Kennarinn las undir hvern tíma, til að vera ekki rek- inn á gat (sem kom þó fyrir). Góður kunningsskapur tókst með Lillu (Aðalbjörgu Jóhönnu) og Þrúði konu minni, þegar þær voru táningar og héldu þær sambandi og kunningsskap alla tíð síðan og gera enn. Jóni kynntist ég seint, en fljótt tókst náinn og góður kunningsskapur milli okkar og nú síðustu árin vorum við í sam- bandi oft í viku. Við fórum sam- an á veitingahús, helzt þau sem seldu óhollan mat. Allt í raspi, ef mögulegt var. Fljótlega varð hann heimilis- vinur og kom til okkar öðru hverju í kvöldmat. Stundum hittumst við í matarboðum hjá Þuru (Þuríði) systur hans og Gísla Erlingssyni. Þura er einkar lagin við að töfra fram kræsingarnar. Í þessum samsætum var svo mikið hlegið að gestirnir voru lengi að ná sér. Þegar Jón kom til okkar, þá var borðað vel, en það sem hæst reis var spjallið eftir matinn. Þá var Jón í Borgarhól í essinu sínu og jafnfimur við að skýra út há- stemmdar vísindateoríur m.a. um lausnir á loftslagsvanda með repjueldsneyti og stundum him- ingeiminn og leyndardóma hans, burðarþol skipa og ýmsu sem ég ekki skildi og gleymdi strax. Hápunktur þessara kvölda var þegar Jón sagði sög- ur af fólki og fyrirbærum. Hann var mjög laginn við að sjá það fyndna í tilverunni. Við Þrúður reyndum að launa með sögum á móti og ég átti það til að bródera svolítið til að halda í við hann. Ógleymanlegasta ferðalag sem við höfum farið í á langri ævi er tvímælalaust þegar Jón fór með okkur í 14 daga um uppáhaldsstaðina sína í Þýzka- landi. Þar tvinnaði hann saman sögu, menningu og listir og gamansemi auðvitað. Jón er einn eftirminnilegasti maður sem við höfum kynnst, stórgáfaður, stálminnugur og með sterka réttlætiskennd, missirinn er okkur sár eins og allra sem þekktu hann. Hans munu margir minnast, syrgja og sakna, ekki síst hin stóra, samhenta fjölskylda. Örlögin hafa verið þunghögg við þessa fjölskyldu, en þeirri sögu verða ekki gerð skil hér. Kona hans Martina og dæt- urnar María Laura og Aðal- björg Jóhanna hafa misst mest allra og við vonum að Guð styrki þær í sorginni og mótlæt- inu. Hann var, held ég, í daglegu sambandi við einhvern í fjöl- skyldunni, sennilega nokkra. Hann ljómaði af stolti þegar hann talaði um dætur sínar og hringdi strax og þær tóku áfanga og próf, en þær voru og eru miklir námsmenn. Þeim unni hann mest af öllu í heimi hér. Við Þrúður munum syrgja hann sárt, en góðar og fallegar minningar létta þá byrði sem sorgin er. Guð blessi Jón Bernódusson, þann góða mann. Atli Ásmundsson frá Gjábakka. Minn kæri vinur Jón Bernód- usson er allur. Ég kynntist Jóni fyrir rúmum 20 árum þegar hann hóf störf hjá Siglinga- stofnun. Með árunum tókst með okkur traustur og ómetanlegur vinskapur. Jón var góður sögumaður, hafði miklar skoðanir og var óhræddur að láta þær í ljós. Hann var rökfastur og fylginn sér, gat stundum verið mis- kunnarlaus en alltaf skemmti- legur. Yfirleitt var stutt í grínið og hann hafði gaman af rökræð- um um ólíklegustu málefni. Oft skylmdumst við Jón í orðum en þrátt fyrir óvægið orðaskak var þetta skemmtun án sárinda. Einn félagi okkar orðaði það sem svo að hann væri alltaf feg- inn þegar við Jón tókumst á, þá fengi hann að vera í friði. Fyrir nokkrum árum unnum við Jón, ásamt fleirum, við að semja um smíði skips fyrir ís- lenska ríkið. Verðið á skipinu var hátt og ýmsar leiðir reynd- ar til að lækka það. Til að fá verðið niður gripum við Jón til þess ráðs að skjóta föstum skot- um hvor á annan þannig að úr virtist verða harðvítugt rifrildi. Við þetta fór mjög um skipa- smiðinn sem og félaga okkar. Þegar skipasmiðurinn var far- inn að óttast að engin yrði salan vegna misklíðar hjá kaupanda lækkaði hann verðið snarlega og allt féll í dúnalogn. Félagi okkar Jóns spurði síðar hvað hefði eiginlega gengið á. Í stað þess að segja allt af létta sagð- ist Jón ekkert hafa skilið hvað hljóp í Sigurð. Skemmti sér svo við að ræða þetta við viðkom- andi. Jón lét stundum sannleik- ann víkja fyrir góðri skemmtun. Oft höfum við rifjað þetta upp og hlegið. Margar skemmtiferðir fórum við Jón með félögum okkar. Ferðir sem Jón hafði skipulagt út í hörgul. Ferðirnar hófust þegar keyrt var út á völl og strax var byrjað að hlæja, segja sögur og að sjálfsögðu var Jón aðalmaðurinn. Þessari skemmt- un linnti svo ekki fyrr en heim var komið. Jón sagði okkur sög- ur, m.a. af kynnum sínum af Angelu Merkel og eins af fyrr- verandi stjórnmálakonu sem hann hafði reynt að gera hosur sínar grænar fyrir. Hann lýsti því að þegar hann lagði hand- legginn á axlir hennar hefði hún horft illilega á hann og spurt hvort honum væri illt í hend- inni. Ekki fór meira fyrir þeim samdrætti en þessi saga var dæmigerð fyrir Jón, kímnin var aldrei langt undan, einnig fyrir sjálfum sér. Jón var traustur og heill vin- ur sem ávallt var hægt að leita til. Hann var ráðagóður og reiðubúinn til að fara yfir hlut- ina og velta hverri þúfu. Hann var fullur af fróðleik og visku þó aldrei væri kómíska sýnin á málin langt undan. Fyrir þremur vikum hitt- umst við vinahópurinn. Fullur af eldmóði var Jón að leggja drög að næstu utanlandsferðum hópsins en nú er ljóst að Jón vinur okkar er lagður í aðra ferð án okkar félaganna. Skarð hans í hópnum mun aldrei verða fyllt. Lífsgleðin, húmorinn, leiftrandi gáfur og hnyttin til- svör einkenndu hann og gáfu okkur, sem fengum að vera með honum, gleði, hlátur og betra líf. Jón skipar stóran sess í hjarta mínu, söknuðurinn er sár og minningar um einstakan vin munu lifa um ókomna tíð. Þið eigið mínar innilegustu samúðarkveðjur, elsku Martina og dætur ykkar Jóns, María og Jóhanna. Sigurður Áss Grétarsson. Okkur er brugðið við fráfall Jóns Bernódussonar, sam- starfsmanns og góðs félaga frá stofnun Samgöngustofu, en hér gegndi hann stöðu fagstjóra rannsókna og þróunar. Tengsl- in lágu dýpra, því allt frá árinu 1998 starfaði hann hjá forver- anum Siglingastofnun Íslands þar sem hann gegndi ýmsum hlutverkum í gegnum tíðina. Var m.a. forstöðumaður sigl- ingasviðs / skipasviðs og stað- gengill forstöðumanns á sviði rannsókna og þróunar. Jón hafði lifandi áhuga á flestu milli himins og jarðar og tók virkan þátt í umræðum um hin ýmsu mál, hvort heldur þær sneru að hans eigin verkefnum eða þjóðmálum almennt. Hann var fróður um margt og ræðinn, gerði engan mannamun og lét það einkar vel að kenna og miðla. Kynni mín af Jóni hófust þegar ég kom til starfa hjá Samgöngustofu og fór þá ekki á mis við brennandi áhuga hans á ræktun orkujurta til orkuskipta í samgöngum. Mér verður hugsað til ferðar okkar til Keflavíkurflugvallar í vor í góðu föruneyti þar sem undir- ritaður var samstarfssamning- ur um tilraunaverkefni til orku- skipta. Þar var Jón í essinu sínu og fagnaði góðum áfanga á sama hátt og öðrum skrefum í vegferð til umhverfisvænna samgangna. Vinnustaðir mótast af fólkinu sem þá sækir, þar gaf Jón lífinu lit og kryddaði til- veruna, nokkuð sem er ómetan- legt. Ég minnist hressilegs við- móts og hreinskilinnar framkomu með söknuði og þökk fyrir ánægjuleg kynni og hnökralaust samstarf. Jón var á förum vestur um haf í mikilvæga aðgerð sem beðið hafði verið eftir. Sú ferð var ekki farin heldur önnur sem við ráðum litlu um. Það er með sorg í hjarta sem við minnumst góðs félaga og samstarfsmanns. Hugurinn er hjá fjölskyldu og vinum þegar við kveðjum Jón hinstu kveðju, megi minningin um skemmtilegan mann styðja í sorginni. F.h. Samgöngustofu, Jón Gunnar Jónsson. Jón Bernódusson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.