Morgunblaðið - 01.10.2021, Síða 24

Morgunblaðið - 01.10.2021, Síða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021 30 ÁRA Sigurgeir Skafti Flosason fæddist í Reykjavík, ólst upp á Selfossi en býr nú í Hveragerði. Hann er með burtfararpróf og kennarapróf frá FÍH. Sigurgeir er tónlistar- maður að atvinnu og spilar aðallega á bassa. Hann kennir einnig við allmarga tónlistar- skóla á Suðurlandi. „Við Unnur Birna, kær- asta mín, vorum að spila á Múlanum í Hörpu í fyrrakvöld með Birni Thoroddsen og Skúla Gísla. Við vinnum mikið saman þessi grúppa. Við munum síðan spila saman í gítarveislu Bjössa Thor sem verður í lok október.“ Sigurgeir sinnir einnig viðburðaþjónustu og er með hjóðkerfaleiguna Sub ehf. Hann er núna að skipuleggja líklega síð- ustu bæjarhátíð á landinu á árinu, en hún fer fram í Vík í Mýrdal 7.-10. októ- ber og nefnist Regnboginn – list í fögru umhverfi. „Það verður fjölbreytt dagskrá, Magnús & Jóhann, Unnur Birna & Pétur, Lay Low og Lalli töfra- maður mæta meðal annarra.“ Sigurgeir Skafti og Unnur reka einnig Hopp Suðurlands sérleyfi í Hveragerði og á Selfossi. FJÖLSKYLDA Sambýliskona Sigurgeirs er Unnur Birna Björnsdóttir, f. 1987, tónlistarkona. Dóttir þeirra er Náttsól Viktoría, f. 2020. Systir Sigur- geirs er Helga Sigríður, f. 1978. Foreldrar Sigurgeirs eru Guðný Sigurgeirs- dóttir, f. 1960, sjúkraliði, búsett á Selfossi, og Flosi Skaftason, f. 1961, bíla- málari, búsettur í Mosfellsbæ. Sigurgeir Skafti Flosason Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú ert ekki nógu harður í sam- skiptum við aðra og þyrftir að taka þig á og vera fastari fyrir. Ekki forðast erfið mál sem valda þér áhyggjum. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú ert með hugann við allt of margt og þarft að geta verið í næði til að koma jafn- vægi á hlutina. Stingdu við fótum og gefðu þér tíma til þess að líta yfir sviðið. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Það er ekkert vit í öðru en að hafa alla hluti á þurru þegar taka þarf ákvörðun í mikilvægu máli. Hóaðu saman liði sem klár- ar málin með hraði. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú kemur meiru í verk ef þeir sem eru í kringum þig hvetja þig áfram. Sambönd ganga bara vel og innsæið ýtir þér í rétta átt. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú ættir að kaupa inn til heimilisins því ættingjar þínir munu líklega kíkja í heim- sókn. Gefðu þér tíma til útiveru því það hressir upp á sálarlífið. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Það getur reynst þér nauðsynlegt að halda sumu fólki í ákveðinni fjarlægð frá þér. Sambönd þín eru þér mikilvægust og eru í fyrsta sæti hjá þér. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú þarft að leggja þig allan fram svo sérstakt verkefni leysist farsællega. Ef þú vilt gera hlutina vel skaltu gefa þér þann tíma sem til þarf. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Láttu ekki ásókn annarra slá þig út af laginu. Stundum skiptir ekki máli um hvað er rætt heldur það að fjölskyldan sé samhent. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú hefur mikinn sjálfsaga og gerir stundum of miklar kröfur til sjálfs þín. Þú ættir bara að slaka á í dag og láta öll stórvirki vera. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Það er komið að því að þú þurfir að taka ákvörðun í stóru máli. Hlýddu á alla málavexti áður en þú lætur til skarar skríða. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Umheimurinn krefst athygli þinn- ar með harkalegri og ítrekaðri þrásækni. Verkefni þín eru í uppnámi og þú verður að vinna þau skipulega áður en fleiri koma til. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Reyndu að rífa þig upp úr gamla farinu þótt ekki sé nema að gera hlutina í annarri röð en í gær. Gefðu þér samt tíma til þessa því allt tekur sinn tíma. við starf hans og oft voru mikil veislu- höld á Reynistað. Kristín er mjög félagslynd og starfaði með Kvenfélaginu Hringn- um, en aðaláherslan í félagsstarfi hennar er innan Oddfellow- -reglunnar þar sem hún hefur gegnt öllum helstu embættum og fengið æðstu viðurkenningar. Hún gekk í Rb.st. Bergþóru 1953 og stofnaði Rb.st. Soffíu árið 1996. Hún tók stórstúkustig árið 1997. Á starfsferlinum fékk hún eftirtaldar viðurkenningar: Fyrrum meistara- stjörnu árið 1979, heiðursmerki fyrr- um höfuðmatríarka 1996, heiðurs- Eftir einn vetur í Háskólanum fór Kristín að læra tannsmíði hjá frænda sínum Jóni Hafstein tannlækni og vann hún við það allt til ársins 1956, en þá voru dæturnar orðnar þrjár og vann hún heima næstu árin. Síðar fór hún að vinna á Landspítalanum sem hjúkrunarritari á bæklunardeild, en lengst af vann hún á barnadeildinni. Mikil samheldni var í stúdenta- hópnum frá 1946, sem hittist til skamms tíma einu sinni í mánuði. Þau fóru saman í margar ferðir bæði innan lands og utan. Einnig ferðaðist hún mikið með eiginmanni sínum Guðmundi Benediktssyni í tengslum K ristín Anna Claessen fæddist á Reynistað í Skerjafirði 1. október árið 1926. Hún ólst þar upp og bjó þar þangað til hún fluttist á Seltjarnarnesið árið 2006. Skerjafjörðurinn var sveit á þess- um árum. Foreldrar hennar, Eggert Claessen og Soffía Jónsdóttir Claes- sen, keyptu Skildinganesbæinn með víðfeðmu landi, byggðu sitt hvorum megin við hann og nefndu húsið Reynistað eftir Reynistað í Skaga- firði. Þar hafði faðir hennar dvalið langdvölum hjá afa sínum Eggerti Briem sýslumanni sem barn, enda missti hann móður sína ungur. Kristín byrjaði í tímakennslu hjá frú Ragnheiði, fór svo í Ingimars- skóla og síðan lá leiðin í Mennta- skólann í Reykjavík þaðan sem hún útskrifaðist úr máladeild á 100 ára af- mæli skólans árið 1946. Hernámið setti sitt mark á menntaskólaárin því einn vetur var kennt í Alþingishúsinu og annan vetur í Háskólanum, því Bretarnir höfðu tekið Mennta- skólann í sína umsjá. Á rússagillinu haustið 1946 þegar hún var að hefja háskólanám í heim- speki hitti hún ungan mann frá Húsa- vík sem var að hefja nám í lögfræði. Þetta var Guðmundur Benediktsson sem síðar varð eiginmaður hennar. Þau trúlofuðu sig á síðasta vetrardag og hefur sá dagur alltaf verið mikill hátíðisdagur hjá henni. Þau gengu síðan í hjónaband 16. ágúst árið 1950. merki Oddfellow-reglunnar árið 2001, heiðursmerki fyrrum stórfull- trúa árið 2005 og 60 ára fornliða- merki árið 2013. Hún er einnig heið- ursfélagi Rb.st. nr. 10 Soffíu, sem heitir eftir móður hennar, Soffíu Jónsdóttur Claessen, sem kom með Rebekkustigið til Íslands árið 1929. „Ég hef alltaf verið dugleg að hreyfa mig og vil fá að vera með í öllu,“ segir Kristín. „Það hefur ekk- ert minnkað með aldrinum. Krakk- arnir mínir segja oft: Mamma má ekki missa af neinu!“ Fjölskylda Eiginmaður Kristínar var Guð- mundur Benediktsson, f. 13.8. 1924, d. 20.8. 2005, ráðuneytisstjóri í for- sætisráðuneytinu. Þau bjuggu á Reynistað alla tíð þar til Guðmundur lést, þá flutti hún á Seltjarnarnes og hefur nú verið frá því í nóvember í fyrra á hjúkrunarheimilinu Seltjörn. Foreldrar Guðmundar voru hjónin Margrét Ásmundsdóttir, f. 15.3. 1881, d. 3.10. 1969, húsmóðir á Húsa- vík, og Benedikt Björnsson, f. 8.2. 1879, d. 27.7. 1941, skólastjóri á Húsavík. Börn Kristínar og Guðmundar: 1) Ragnheiður Margrét Guðmunds- dóttir, f. 17.10. 1953, d. 1.10. 2018, ís- lenskufræðingur og kennari. Fv. maki: Björn Ragnarsson tannlæknir. Börn þeirra eru Birna Anna, f. 18.4. 1975, og Lára Björg, f. 1.2. 1977. Barnabörnin eru fjögur; 2) Soffía Ingibjörg Guðmundsdóttir, f. 21.3. Kristín Anna Claessen, tannsmiður og fv. hjúkrunarritari á Landspítalanum – 95 ára Með börnunum Kristín, Ragnheiður, Solveig Lára, Soffía og Eggert. Mamma má ekki missa af neinu! Hjónin Guðmundur og Kristín á ferðalagi með bekkjarsystkinum Kristínar. Systurnar Kristín Anna Claussen og Laura Frederikke Claussen. Til hamingju með daginn Hveragerði Náttsól Viktoría er fædd 27. nóvember 2020 á Landspítalanum í Reykjavík. Hún var 49,5 cm og 14 merkur. Foreldrar hennar eru Unnur Birna Björnsdóttir og Sigurgeir Skafti Flosason. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.