Morgunblaðið - 01.10.2021, Side 28

Morgunblaðið - 01.10.2021, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þetta er fyrsta verkið sem við sköp- um saman, en okkur hafði lengi langað til að vinna saman,“ segir Erna Ómarsdóttir sem ásamt Höllu Ólafsdóttur er danshöfundur og list- rænn stjórnandi sýningarinnar Rómeó <3 Júlía sem Íslenski dans- flokkurinn frumsýnir á Stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld kl. 20. „Við höfum auðvitað rekist hvor á aðra í ýmsum verkefnum gegnum árin og ég hef samið verk fyrir Ís- lenska dansflokkinn, en við höfðum aldrei skapað verk saman þar til kom að þessu verkefni,“ segir Halla og rifjar upp að hún hafi um- svifalaust hrifist af Ernu sem lista- manni þegar hún fyrir um tuttugu árum sá hana dansa sólóverk í Sví- þjóð, en Halla var þá við dansnám þar í borg. „Performans hennar veitti mér mikinn innblástur og opn- aði augu mín fyrir nýjum mögu- leikum,“ segir Halla. Við þóttum alveg skrýtnar Dansverkið Rómeó <3 Júlía, sem samið er við tónlist Sergej Proko- fíev, var upphaflega skapað í sam- starfi við dansara Gärtnerplatz- leikhússins í München og frumsýnt árið 2018. Erna og Halla voru til- nefndar til Faust-verðlaunanna sem danshöfundar ársins, en verðlaunin eru eftirsóttustu leiklistarverðlaun Þýskalands. „Okkur kom sú tilnefn- ing ánægjulega á óvart, enda voru aðeins þrjár tilnefningar í hverjum flokki og við þar í hópi stærstu nafna í dansinum,“ segir Erna og tekur fram að það hafi verið gott fyrir þær Höllu að fá viðurkenningu fyrir list- ræna nálgun sína. „Því við þóttum alveg skrýtnar, enda vinnum við öðruvísi en heimafólk,“ segir Erna kímin og rifjar upp að uppsetning- arvinnan hafi verið mjög krefjandi. „En þetta var líka mjög gaman og ég held að á endanum hafi allir hjá leik- húsinu kunnað að meta lokaútgáf- una,“ segir Erna. En hvað kom til að þið unnuð sam- an að Rómeó <3 Júlíu? „Karl Alfred-Schreiner, listdans- stjóri Gärtnerplatz-leikhússins, hringdi í mig og spurði hvort ég vildi ekki gera Rómeó og Júlíu við tónlist Prokofíev. Mér leist í fyrstu ekkert á hugmyndina og var satt að segja skíthrædd við hana,“ segir Erna sem hringdi í Höllu sem sagði hins vegar „já“ á stundinni. „Í ljós hefur komið að það er mjög gefandi að vinna með Shakespeare,“ segir Halla og bendir máli sínu til stuðn- ings á að Shakespeare hafi veitt þeim Ernu svo mikinn innblástur að þær séu nú að vinna að dúett sem kenndur er við Júlíu sem þær frum- flytja í Leipzig 22. febrúar 2022. Hafið þið þurft að laga verkið mik- ið að nýjum danshóp og sviði? „Já, við höfum algjörlega endur- skapað verkið í samvinnu við dans- ara Íslenska dansflokksins. Úti vor- um við með tuttugu dansara og sinfóníuhljómsveit í gryfju, en hér erum við með tíu dansara og upp- töku af tónlistinni,“ segir Erna, en dansarar nú eru Ásgeir Helgi Magn- ússon, Charmene Pang, Emilía Benedikta Gísladóttir, Erna Gunn- arsdóttir, Félix Urbina Alejandre, Saga Sigurðardóttir, Shota Inoue, Sigurður Andrean Sigurgeirsson, Una Björg Bjarnadóttir og Védís Kjartansdóttir. „Dansararnir hér eru algjörlega frábærir og gefa mik- ið af sér inn í verkið, enda eru það hluti af aðferðafræði okkar við vinnslu verksins. Þau eru svo kraft- mikil að þau fylla hæglega sviðið,“ segir Erna og tekur fram að dans- ararnir séu á sviðinu nær alla sýn- inguna sem reyni mikið á. „Þetta er mikil líkamleg áskorun fyrir þau, því þetta er púl,“ segir Halla og tekur fram að þótt gaman hafi verið að flytja verkið með hljómsveit séu líka ákveðnir kostir við að hafa hana ekki í gryfjunni. „Því það færir dans- ararna óhjákvæmilega nær áhorf- endum, sem er gaman og skapar meiri nánd,“ segir Halla. „Auk þess býður það líka upp á meira frelsi í flutningi,“ segir Erna og nefnir að án hljómsveitar heyrist betur í döns- urunum þegar þau öskra sem lið í tjáningu sinni. Afbyggjum leikritið algjörlega Nú eru dansverk sjaldnast fram- vindudrifin. Hvernig mótaði það ykkar sköpun að vinna með þekkta sögu eftir Shakespeare? „Mér fannst það mjög skemmtileg áskorun að vinna með sögu Shake- speare og ekki síður með tónlist Prokofíev sem er mjög plássfrek og gæti auðveldlega gleypt bæði verkið og dansarana,“ segir Halla og bendir á að söguþráðurinn liggi í tónlistinni. „Við gátum því tekið okkur það frelsi að afbyggja leikritið algjörlega og brjóta niður í fjölmargar frásagn- ir sem gerast samhliða svo úr verður veröld full af lostafullri þrá, líkams- vessum, særingarmætti öskursins og heilandi ást,“ segir Halla. „Dansararnir deila með sér öllum hlutverkum sögunnar. Þau túlka öll t.d. Júlíu og ástina með því að leggja álög á áhorfendur,“ segir Erna og tekur fram að stundum séu dans- aranir að dansa tilfinningar, stund- um húsgögnin, stundum öflin og jafnvel blóðdropa. „Stundum eru dansararnir að dansa tónlistina, stundum að segja hana, anda henni, hömpa hana og jafnvel þrífa hana,“ segir Erna og tekur fram að mögu- leikarnir séu óþrjótandi. Há- og dægurmenning skarast „Okkur fannst ákveðið frelsi fólgið í því að áhorfendur viti hvað gerist í sögunni,“ segir Erna og bendir á að raunar hafi Prokofíev breytt endi verksins þar sem hann vildi að vel færi fyrir elskendunum. „Það veitir okkur ákveðinn innblástur til að nálgast verkið á okkar forsendum og breyta því sem við viljum. Við þurf- um ekki að fylgja framvindunni nákvæmlega,“ segir Erna og tekur fram að þær Halla hafi frá upphafi lagt mikla áherslu á að sviðsmynd Chrisanders Brun, búningar Sunn- evu Ásu Weishappel, sem Karen Briem endurhannar fyrir Borgar- leikhúsið, og vídeóverk Valdimars Jóhannssonar væru stór hluti af upplifuninni. „Við vildum að þessir sjónrænu þættir væru stórir karakt- erar í sýningunni,“ segir Halla og rifjar upp að valið á gyllta og bleika litnum, sem einkennir leikmyndina, hafi markast af sýningarstaðnum í Þýskalandi. „Leikhúsið sem við sýndum í er mekka hámenningar í Þýskalandi og því fannst okkur spennandi að kynna til leiks þætti úr dægurmenningu,“ segir Halla og bendir á að þær Erna vinni í sýning- um sínum mikið með skörun há- menningar við dægurmenningu. Samtalið skapar eitthvað nýtt Hafði Covid einhver áhrif á uppfærsluna? „Já, Covid hafði mikil áhrif á það hvernig við gátum æft sýninguna, því við þurftum stöðugt að vera að stoppa og byrja aftur,“ segir Halla. „Við þurftum sífellt að finna nýjar leiðir til að vinna sýninguna,“ segir Erna. „Við byrjuðum ferlið á að vera alltaf bara með tvo dansara í einu, sem dugði ekki til lengri tíma enda byggist verkið á mikilli líkamlegri nánd. Þegar við máttum ekki vera í dansstúdíóinu vegna fjarlægðar- takmarkana þá gátum við verið úti í skógi og tókum þar upp fullt af efni með Valdimar Jóhannssyni sem við erum að hugleiða hvað við viljum gera með. Kannski endar það sem sér mynd,“ segir Halla. En hver er lykillinn að góðri samvinnu ykkar? „Við erum oftast sammála um hvert við viljum fara, en leiðir okkar þangað geta verið mjög ólíkar. Það er hins vegar svo gaman þegar eitt- hvað nýtt verður til úr þeirri blöndu,“ segir Erna. „Þegar tveir höfundar vinna saman tekur ferlið stundum lengri tíma, en það er alltaf 100% þess virði því samtalið skapar eitthvað nýtt og spennandi. Það veit- ir mikinn innblástur að fá sýn ann- ars inn í ferlið,“ segir Halla. Morgunblaðið/Eggert Danshöfundarnir Halla Ólafsdóttir og Erna Ómarsdóttir ná vel saman. „Skemmtileg áskorun“ - Íslenski dansflokkurinn frumsýnir Rómeó <3 Júlíu eftir Ernu Ómarsdóttur og Höllu Ólafsdóttur í kvöld kl. 20 - „Okkur fannst ákveðið frelsi fólgið í því að áhorfendur viti hvað gerist í sögunni“ Ljósmynd/Hörður Sveinsson Særingarmáttur Dansverkinu Rómeó <3 Júlía eftir Ernu Ómarsdóttur og Höllu Ólafsdóttur í uppfærslu Íslenska dansflokksins er lýst sem veröld fullri af lostafullri þrá, líkamsvessum, særingarmætti öskursins og heilandi ást. Segja má að Bergrún Íris Sævars- dóttir sé kona með fortíð, enda hefur hún fengist við ýmislegt um dagana þó hún sé þekktust í dag sem marg- verðlaunaður barnabókahöfundur. Hún byrjaði bráðung að teikna, fór á fyrsta myndlistarnámskeiðið fimm ára gömul og átta ára var hún ákveð- in í því að verða teiknari að atvinnu. Bergrún fór á félagsfræðibraut í Kvennaskólanum, en skipti fljótlega á myndlistarbraut í Fjölbrautaskól- anum í Garðabæ. „Ég átti merkilega stund í sögutíma í Kvennó. Við vor- um bara í venjulegri sögu, en kenn- arinn ákvað að taka einn tíma í lista- sögu og það birtist í alvörunni bara englakórinn og allt opnaðist fyrir mér, ég sver það. Þetta var eins og í bíómynd, og ég labbaði beint inn á skrifstofu námsráðgjafans og sagði: Ég þarf að skipta um skóla, ég verð að komast í eitthvað sem nærir mig.“ Að loknu námi í FG fór Bergrún í listfræði og tók bókmenntafræði sem aukagrein. Í framhaldi af því, svo fór hún í Myndlistaskólann í Reykjavík í alveg nýtt nám sem var þá í gangi, diplómanám í teikningu „sem hentaði mér rosalega vel af því mig langaði svo til að verða teiknari, iðnaðarmaður í því að teikna“. Áður en hún varð atvinnumaður í teikningu tók hún sér ýmislegt fyrir hendur, var til að mynda um tíma með sjónvarpsþættina Innlit/útlit á Skjá einum með Sesselju Thorberg, þar sem Bergrún vann meðal annars ýmis föndurverkefni í bílskúr föður síns, tók að sér að skreyta barna- herbergi, starfaði sem blaðakona og hélt úti hönnunarbloggi. Með tím- anum fór hún að myndlýsa bækur, hefur myndlýst á sjötta tug bóka eftir ýmsa höfunda, stóran hluta af því námsbækur, og fljótlega fór hún að skrifa eigin bækur, nú síðast Kennarinn sem kveikti í, sem tyllti sér í efsta sætið á metsölulistum fyrir stuttu. Bergrún segir frá bókinni nýju og rithöfundarferli sínum í viðtali í Dagmálum Morgunblaðsins sem að- gengileg eru áskrifendum á mbl.is. „Það birtist í alvörunni englakór“ Ljósmynd/Hallur Hallsson Afköst Bergrún Íris Sævarsdóttir varð fyrir vitrun í sögutíma í Kvennó og hefur myndlýst á sjöunda tug bóka, þar með taldar bækur eftir hana sjálfa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.