Morgunblaðið - 01.10.2021, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Markmiðið hjá okkur er að skapa
tækifæri til þess að skoða hlut
kvenna í íslenskri listasögu og hvort
þar liggi einhverjar konur óbættar
hjá garði, það er að segja ein-
hverjar konur sem hafa kannski
ekki hlotið þann sess sem þær eru
verðar,“ segir Ólöf Kristín Sigurð-
ardóttir, safnstjóri Listasafns
Reykjavíkur, um nýja tímabundna
rannsóknarstöðu sem fjalla skal um
hlut kvenna í íslenskri listasögu.
Listasafn Reykjavíkur auglýsir sem
stendur eftir umsóknum.
Rannsóknarstaðan, sem unnin er
í samstarfi við Listfræði við Há-
skóla Íslands, hlaut þriggja ára
öndvegisstyrk Safnaráðs og verður
auglýst árlega næstu þrjú ár. Um
er að ræða hálfa stöðu til eins árs í
senn sem vinna má eftir sam-
komulagi.
Nokkuð karllæg safneign
„Það verða því þrír fræðimenn
eða sýningarstjórar sem fá tækifæri
til þess að demba sér í þessa rann-
sókn,“ segir Ólöf.
Sem fyrr segir á rannsóknin að
snúa að hlut kvenna í listasögunni
og í umsókn skal verkefnið skil-
greint og gerð grein fyrir því á
hvern hátt rannsóknin sé líkleg til
að varpa nýju ljósi á hlut kvenna í
íslenskri myndlistarsögu.
„Safneignin okkar er að mörgu
leyti ótrúlega karllæg. Það eru
þrjár meginstoðir í safneigninni:
Erró, Ásmundur Sveinsson og
Kjarval. Við teljum þetta vera
ákveðið tækifæri fyrir okkur til
þess að varpa ljósi á nýja þætti í
menningarsögunni. Við erum ekki
endilega að horfa á safneignina okk-
ar sem rannsóknarvettvang heldur
erum við almennt að horfa á ís-
lenska myndlistarsögu. Það er verið
að gefa tækifæri til vissrar endur-
skoðunar, hvort sem það er á ferli
einnar konu eða á stærri hóp í sam-
hengi við strauma og stefnur,“ segir
Ólöf.
Í auglýsingu Listasafnsins kemur
fram að staðan sé ætluð fræðafólki
sem sinnir rannsóknum á sviði
íslenskrar myndlistar og menning-
arsögu. Ólöf segir að um stöðuna
geti til dæmis sótt listfræðingar,
menningarfræðingar, sýningar-
stjórar eða aðrir sem hafa reynslu
af því að rannsaka íslenska lista-
sögu. „Það er nokkur hópur af fólki
í landinu sem hefur aflað sér þekk-
ingar á þessu sviði og þetta verk-
efni er ákveðið tækifæri til að sinna
rannsókn á þessu fræðasviði og
miðlun niðurstöðu jafnt til almenn-
ings og innan fræðasamfélagsins.“
Lýkur með sýningu og útgáfu
Umsókn skal fylgja greinargerð
um menntun og reynslu af fræði-
störfum, útgáfu og/eða gerð mynd-
listarsýninga. Sá eða sú sem stöð-
una fær mun hafa vinnuaðstöðu hjá
Listasafni Reykjavíkur.
Nú er auglýst eftir rannsakanda
fyrir árið 2022 og skal verkefninu
lokið með útgáfu og sýningu í Lista-
safni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum
í ársbyrjun 2023. „Afraksturinn
verður settur fram með sýningu á
Kjarvalsstöðum og útgáfu. Þannig
að þetta er stórt tækifæri til þess
að gera sýningu á frábærum vett-
vangi þar sem fjöldi fólks mun sjá
afraksturinn. Við fylgjum eftir öll-
um okkar sýningum með miðlun og
samtali við bæði almenning og
fræðasamfélagið,“ segir Ólöf.
„Ef maður getur bent á eitthvað
sem er sambærilegt þá er það rann-
sóknarstaða Kristjáns Eldjárns sem
er starfrækt í Þjóðminjasafninu.
Hér erum við að skapa fræðimönn-
um tækifæri í eitt ár í senn til að
vinna að rannsókn sem endar með
sýningu og á sama tíma erum við að
styrkja rannsóknarhlutverk safns-
ins.“
Umsókn um rannsóknarstöðuna
skal senda Listasafni Reykjavíkur,
Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík, eða
á netfangið listasafn@reykjavik.is, í
síðasta lagi 1. nóvember 2021.
Morgunblaðið/Eggert
Rannsókn „Það er verið að gefa tækifæri til vissrar endurskoðunar,“ segir
safnstjórinn Ólöf um nýja rannsóknarstöðu hjá Listasafni Reykjavíkur.
Kanna hlut kvenna
í íslenskri listasögu
- Ný rannsóknarstaða hjá Listasafni Reykjavíkur auglýst
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
Reykjavíkur, og Una Dóra Copley,
dóttir Nínu Tryggvadóttur lista-
konu, undirrituðu í gær í Höfða
samning um stofnun Listasafns
Nínu Tryggvadóttur. Borgarráð
veitti í sumar borgarstjóra heimild
til þess að ganga frá samningnum
fyrir hönd borgarinnar og verður
Listasafn Nínu Tryggvadóttur
fyrsta myndlistarsafn Reykjavíkur-
borgar kennt við og tileinkað
íslenskri listakonu.
Safnið verður í austurhluta Hafn-
arhússins í Reykjavík en í vestur-
hlið þess er Listasafn Reykjavíkur.
Í samningnum er kveðið á um að
Una Dóra gefi Reykvíkingum vel á
annað þúsund listaverk eftir móður
sína sem endurspegla allan feril
listakonunnar. Eru þar m.a. mál-
verk, teikningar, glerverk og
vatnslitamyndir og einnig gefur
Una Dóra Reykvíkingum fasteignir
á Manhattan og í Reykjavík eftir
sinn dag sem og aðrar listaverka-
eignir, bókasafn og fleiri muni en
borgin fjármagnar á móti rekstur
safnsins.
Nína var fyrst og fremst þekkt
sem listmálari en samdi einnig og
myndlýsti bækur fyrir börn.
Tímamót Una Dóra og Dagur tókust í hendur eftir undirritun í Höfða í gær.
Undirrituðu samning um safn Nínu
Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Kventónskáld í karlaveldi nefnist
ný þáttaröð í umsjón Árna Heimis
Ingólfssonar tónlistarfræðings sem
hefur göngu sína á Rás 1 á morgun
kl. 10.15. Í þáttunum er fjallað um
ævi og tónlist tíu kventónskálda
sem fædd voru á 19. öld, þegar kon-
ur höfðu mun færri tækifæri en
karlar til að mennta sig í tón-
smíðum eða fá verk sín flutt.
Tónskáldin eru Clara Schumann,
Fanny Mendelssohn, Emilie Mayer,
Louise Farrenc, Cécile Chaminade,
Mel Bonis, Ethel Smyth, Dora Peja-
cevic, Lili Boulanger og Florence
Price. Samhliða þáttunum fara í
loftið á sunnudögum systurþætt-
irnir Þögnin rofin, þar sem tónlist
kventónskáldanna tíu er leikin.
Árni Heimir segir að á síðustu
árum hafi vitundarvakning átt sér
stað um þá fordóma sem hafa mætt
kventónskáldum
svo öldum skipt-
ir. „Verk þeirra
eru nú flutt og
hljóðrituð mun
oftar en áður, og
því er nú í fyrsta
sinn í raun hægt
að gera sér góða
mynd af ævi-
starfi þeirra,“
segir Árni Heim-
ir og bendir á að á 19. öld hafi verið
nær útilokað fyrir konur að sækja
sér háskólamenntun í tónsmíðum.
„Þrátt fyrir þetta náðu margar
þeirra afar eftirtektarverðum ár-
angri í tónlistinni. Þetta er sú saga
sem ég segi í þáttunum, hvernig
þeim tókst að yfirstíga hindranir og
mótlæti og skapa tónlist sem snert-
ir við okkur enn þann dag í dag.“
Ný þáttaröð um kventónskáld á Rás 1
Árni Heimir
Ingólfsson