Morgunblaðið - 01.10.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.10.2021, Blaðsíða 32
O U T L E T Ú T S A L A H E F S T F Ö S T U D A G IN N 1 . O K T Ó B E R HEILSUDÝNUR SÆNGUR & KODDAR SÓFAR & HVÍLDARSTÓLAR KODDAVER HANDKLÆÐI HÖFUÐGAFLAR LAMPAR & FLEIRA ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu Spennusagnaverðlaunin Svartfuglinn voru veitt í fyrra- dag og hlaut þau Unnur Lilja Aradóttir. Eliza Reid for- setafrú afhenti verðlaunin og fyrsta eintak bókarinnar, Höggið, kom út í gær. Í áliti dómnefndar um bókina segir m.a. að höfundurinn magni upp mikla sálfræði- lega spennu og hleypi lesandanum smám saman nær glæpnum sem komi verulega á óvart. Samkeppnin um Svartfuglinn er ætluð höfundum sem hafa ekki áður sent frá sér glæpasögu. Unnur Lilja hlaut Svartfuglinn FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 274. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Kvennalið Hauka í körfuknattleik á fyrir höndum sex leiki í riðlakeppni í Evrópubikar kvenna eftir að hafa slegið portúgalska liðið Uniao Sportiva út úr und- ankeppninni í æsispennandi leik á Asóreyjum í gær- kvöld. Haukar mæta tveimur frönskum liðum og einu tékknesku í riðlakeppninni. »27 Haukar mæta frönskum og tékk- neskum liðum í riðlakeppninni ÍÞRÓTTIR MENNING Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Allur þótti varinn góður í borgar- umferðinni í gærmorgun þegar glerhált skæni lá yfir götum í efri byggðunum eftir kalda nótt. Öku- menn vissu hvað klukkan sló, tóku mið af aðstæðum og fóru sér að engu óðslega. Allt slapp til og óhöppin í umferðinni urðu færri en búast hefði mátt við. „Við erum allt- af í viðbragðsstöðu og veðurspáin gefur okkur oft vísbendingu um hvernig dagarnir verða. Þegar veð- ur versnar skyndilega fjölgar verk- efnunum hjá okkur. Slíkt er nánast lögmál,“ segir Ólafur Gísli Agn- arsson hjá Árekstur.is. Bíllinn brotinn og beyglaður Flestir þekkja að árekstur er allt- af áfall. Að sjá bílinn sinn brotinn og beyglaðan tekur á fólk – rétt eins og að hafa gert mistök sem valdið hafa öðrum skaða. Lögregla sinnir alla jafna aðeins umferðaróhöppum þar sem fólk hefur slasast og þá koma sjúkraflutningamenn líka á staðinn. Að öðrum kosti þurfa ökumenn sjálfir að ganga frá pappírum um málsatvik til tryggingafélaganna, en árekstur.is starfar fyrir þau og gengur frá málum. Allir hafa starfs- menn fyrirtækisins langa reynslu að baki, meðal annars sem lögreglu- þjónar „Fólk er misjafnlega fært í því að ganga frá skýrslunum og skila inn upplýsingum um tjón. Sendir okkur á netinu allra helstu upplýsingar sem við nýtum í ítarlegri skýrslu. Við fáum oft innilegt þakklæti frá fólki. Mannlegi þátturinn er alltaf stór í svona verkefnum, sérstaklega þegar við förum á vettvang,“ segir Ólafur Gísli. „Skemmdir bílar og árekstrar eru í sjálfu sér alltaf mjög svipaðir. Hins vegar á hér alltaf í hlut fólk sem hefur verið í miklu andlegu áfalli. Að sýna fólki nær- gætni í þessum aðstæðum er mjög mikilvægt. Stundum þarf að hringja eftir sjúkrabíl þegar slys koma í ljós eða ástand fólks er óljóst. Þegar svo er grunur um ölvun eða fíkniefna- notkun tekur lögregla við málinu.“ Hrina þegar snjór og hálka er á götum Aðgæsluleysi er tvímælalaust helsta orsök óhappa í umferðinni. „Algengt er að fólk einfaldlega van- meti aðstæður eða ætli sér um of. Slíkt á ekki síst við um unga öku- menn, sautján ára, sem eru ný- komnir með bílpróf,“ segir Ólafur Gísli. „Krakkarnir eru kannski á sínum fyrsta vetri í umferð og þekkja ekki hvernig aka skal í hálku eða snjó. Að bil milli bíla sé ekki nægt er líka oft ástæða árekstra eða að dekkjamálin séu ekki í lagi. Þá er alltaf nokkuð um óhöpp þar sem bílar renna til á nýju flughálu mal- biki – ellegar renna til í vatnsaga og rása á slitnum götum. En fyrst kemur hrinan þegar snjór og hálka er á götum og þá er algengt að árekstrar sem við sinnum yfir vik- una séu um 100 talsins.“ Árekstur er alltaf áfall - Skænið er hættulegt og óhöpp verða oft - Beyglaðir bílar og aðstæður eru vanmetnar - Mannlegt er mikilvægt Morgunblaðið/Unnur Karen Viðbúinn Algengt er að ungir ökumenn einfaldlega vanmeti aðstæður eða ætli sér um of, segir Ólafur Gísli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.