Morgunblaðið - 05.10.2021, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 5. O K T Ó B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 233. tölublað . 109. árgangur .
SAUMAR LISTA-
VERKIN SAMAN
SJÁLFUR
FULLUR
SJÁLFS-
TRAUSTS
VANDA SPENNT
FYRIR STARFI
FORMANNS
GÍSLI ÞORGEIR 27 TEKIN VIÐ HJÁ KSÍ 6PERRY ROBERTS 28
_ Hættustigi almannavarna var
lýst yfir á Seyðisfirði síðdegis í gær
vegna hættu á skriðuföllum. Greint
var frá því að hreyfingar hefðu
mælst á fleka sem liggur milli
skriðusársins frá 2020 og Búðarár.
Níu hús voru rýmd í bænum í gær
og fjöldahjálparstöð opnuð í Herðu-
breið. Björn Ingimarsson, sveitar-
stjóri Múlaþings, segir að ákveðið
hafi verið að rýma frekar fyrr en
seinna. Hann segir að fundað verði
með íbúum eftir næstu helgi. Björn
segir að nú séu töluvert fleiri mæl-
ar á hættusvæðinu en áður var og
mælingar því nákvæmar. »2
Nákvæmar mæl-
ingar á hættusvæði
_ Heimafæðingar voru talsvert
fleiri á seinasta ári en á árunum þar
á undan eða alls 118 samanborið við
75 heimafæðingar á árinu 2019.
Eru líkur taldar á að heimsfaraldur
kórónuveirunnar hafi þar haft ein-
hver áhrif. Fram kemur í Talna-
brunni embættis landlæknis þar
sem fjallað er um fæðingar og með-
göngutengda sjúkdóma, að með-
alaldur frumbyrja, þ.e.a.s. kvenna
sem eignast sitt fyrsta barn, var 28
ár í fyrra. Meðalaldur frumbyrja á
Íslandi hefur hækkað um eitt og
hálft ár frá árinu 2011. Konur sem
búa á höfuðborgarsvæðinu eru að
jafnaði tveimur árum eldri þegar
þær eignast sitt fyrsta barn heldur
en kynsystur þeirra á landsbyggð-
inni. Frjósemi kvenna hefur farið
minnkandi undanfarna áratugi en
frjósemi íslenskra kvenna var 1,71
barn á ævi hverrar konu í fyrra.
Tíðari heimafæð-
ingar í faraldrinum
Morgunblaðið/Ásdís
Nýfætt barn Fæðingar í fyrra voru tíð-
astar hjá konum á aldrinum 30-34 ára.
Haraldur Reynir Jónsson, útgerðar-
maður á Las Palmas á Kanaríeyjum,
hefur selt úthafstogarann Navigator
til rússnesks útgerðarfélags. Þetta
staðfestir hann í samtali við Morgun-
blaðið en gengið var frá afhendingu
skipsins síðdegis í gær.
Navigator komst í eigu útgerðar-
félags Haraldar árið 2016 en hann
hafði frá árinu 2008 gert fleiri en
eina tilraun til þess að kaupa skipið
af einum umsvifamesta útgerðar-
manni Noregs, Kjell Inge Røkke.
Síðustu ár hefur togarinn verði
gerður út af fyrirtækinu Úthafsskip
til veiða í lögsögu Máritaníu, út af
austurströnd Afríku.
Navigator er stærsta fiskveiðiskip
sem verið hefur í íslenskri eigu. Það
er risasmíði, 121 metri á lengd og í
áhöfn þess eru hátt í 80 manns á
hverjum tíma. Haraldur segir óvíst
hvað taki við hjá fyrirtæki hans nú
en í fyrra seldi það einnig tvo togara
til Óman þar sem Haraldur hefur
komið að tilraunaveiðum fyrir hönd
stjórnvalda þar í landi. Hann segir
þó mörg tækifæri við sjóndeildar-
hringinn sem komi til greina að nýta.
»12
Navigator seldur til Rússa
- Stærsta fiskveiðiskip í eigu Íslendings - 121 metri á lengd
Ljósmynd/Albert Haraldsson
Togari Navigator fer til Rússlands
og verður gerður út á Kyrrahafi.
Langir kaflar í fjallshlíðum í Út-Kinn í Þingeyjarsveit eru stórt svað eftir
mikil skriðuföll um helgina. Úrkoman á svæðinu er talin hafa verið um 230
millimetrar á tveimur sólarhringum. Skriðurnar eru um tuttugu talsins,
sumar allt að einn kílómetri á breidd, og ná jafnvel langt niður á láglendi
og yfir tún bænda. Fólk á fjölda bæja á þessum slóðum, alls um 50 manns,
þurfti að yfirgefa heimili sín í þessum hamförum sem voru utan skil-
greindra hættusvæða miðað við viðbragðsáætlanir um náttúruvá.
„Auðvitað hafa oft komið hér minniháttar spýjur úr fjallinu og náttúran
er lifandi, en núna er þetta allt miklu stærra en hefði verið hægt að ímynda
sér. Þetta er eiginlega algjörlega út í hött,“ segir Bragi Kárason á Nípá.
Þeir Óli Friðbjörn, bróðir hans, standa þar saman að búi og fóru til mjalta í
fjósi gær, að morgni og kvöldi, undir vökulu eftirliti björgunarsveitar-
manna sem einir mega fara um Út-Kinn sem lokuð hefur verið síðustu sól-
arhringa í varúðarskyni. sbs@mbl.is » 4
Stærð skriðnanna
„algjörlega út í hött“
Þungar búsifjar í Út-Kinn í Þingeyjarsveit eftir skriðuföll um helgina sem fylgdu mikilli úrkomu
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Bæjarsýn Horft heim að Björgum, sem er yst í Út-Kinn. Skriðurnar ná frá brekkubrún og langt fram á tún, þar sem er vatnselgur því skurðir eru stíflaðir.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Nípárbændur Þetta er eiginlega algjörlega út í hött,“ segir Bragi Kárason
bóndi um skriðurnar miklu. Óli Friðbjörn, bróðir hans, til hægri.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Að sögn stjórnarþingmanna miðar
viðræðum formanna stjórnarflokk-
anna vel áfram, þó að sömu þingmenn
kvarti raunar undan því að formenn-
irnir haldi málunum mjög fyrir sig.
Verkaskipting mun hafa verið viðruð
á þeim fundum, en lítið ljóst um hana
annað en hlutverk formannanna.
Stungið hefur verið upp á því að
flokkarnir skiptist á einhverjum ráðu-
neytum, en jafnframt hefur komið til
tals að gera breytingar á stjórnar-
ráðinu. Þar er helst rætt um stofnun
nýs innviðaráðuneytis, en ekki er
heldur útilokað að verkefni verði flutt
á milli annarra ráðuneyta.
Þrátt fyrir að þingmenn bollaleggi
um möguleg ráðherraefni munu for-
mennirnir ekki vera þangað komnir í
viðræðunum. Hins vegar hefur verið
nefnt að til greina komi að skipta út
ráðherrum á kjörtímabilinu.
Sem stendur er helsta verkefnið
óútkljáð deiluefni frá fyrra kjörtíma-
bili. »2
Stjórnarmyndun
miðar vel áfram