Morgunblaðið - 05.10.2021, Page 4
Hreinsun Mokað af vegi í gærmorgun og leiðin heim á bæina greidd.
Sigurður Bogi Sævarsson
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
Athuga átti nú í morgunsárið hvort
fólki yrði aftur heimilt að snúa til síns
heima á bæjum í Út-Kinn í Suður-
Þingeyjarsýslu, en svæðið var rýmt
aðfaranótt sunnu-
dags vegna fram-
hlaups úr fjöllum í
úrkomu sem líkja
má við skýfall.
Alls hafa um tutt-
ugu skriður og
spýjur fallið úr
fjallshlíðinni á
þessum slóðum;
ein um það bil
einn kílómetri á
breidd. Víða hafa
skriður fallið nokkrar á sama stað,
svo að í hlíðum og brekkum er þykkt
aurlag sem nær niður á láglendi og
yfir vegi og tún.
Fjöllin eins og blautur svampur
„Rigningin var mikil og fjallshlíð-
arnar í Út-Kinn eru vatnsósa, svo að
líkja má þeim við blautan svamp. Við
förum því að öllu með gát og bíðum
eftir upplýsingum vísindamanna sem
kanna aðstæður,“ segir Hreiðar
Hreiðarsson hjá lögreglunni á Norð-
urlandi eystra, varðstjóri á Húsavík,
í samtali við Morgunblaðið.
Í Út-Kinn þurfti fólk á bæjunum
Björgum, Nípá, Geirbjarnarstöðum,
Engihlíð og Ófeigsstöðum að fara að
heiman í varúðarskyni seint á laug-
ardagskvöldið – og um nóttina sem
þá fór í hönd. Á sunnudagskvöldið
var svo ákveðið rýma bæi sunnar í
Kinninni, það er Torfunes, Háls,
Kvíaból, Arnþórsgerði, Hnjúk og
Hrafnsgerði.
Alls um 50 manns hafa þurft að
yfirgefa heimili sín í þessum aðgerð-
um, sem eru fordæmalausar. Vegna
þessa er þjóðvegurinn til og frá
Húsavík um Kinn lokaður og umferð
beint um Fljótsheiði og Aðaldal.
Björgunarsveitarmenn frá Húsa-
vík og úr Aðaldal aðstoðuðu bændur í
Kinn við að komast til gegninga í
gær. Torfært er að bæjum. Að Björg-
um sem er nyrst og yst í Kinn var að-
eins fært um tún og utanvega á bökk-
um Skjálfandafljóts, sem þarna
fellur fram. Austan fljóts, við bæina
Húsabakka og Sand, voru vísinda-
menn sem fylgdust með framvindu.
Notuðu til þess dróna sem flogið var
að fjöllum en þannig má afla mynd-
efnis til að meta aðstæður og áhættu.
Fólkið er í áfalli
„Að skriður féllu á þessum slóðum
var ekki í neinum viðbragðsáætlun-
um sem fyrir lágu. Þetta kom flestum
á óvart og fólk er í áfalli. Allir eru þó
þakklátir fyrir þá hjálp sem er veitt
og öllum leiðbeiningum og skipunum
er tekið vel,“ segir Hreiðar Hreiðars-
son.
Umfang skemmda í þessum nátt-
úruhamförum liggur enn ekki fyrir,
en fyrir liggur að girðingar hafa eyði-
lagst, tún skemmst og rafmagnslínur
og ljósleiðari farið í sundur. Dagbjört
Jónsdóttir, sveitarstjóri Þingeyjar-
sveitar, segir nú stórt verkefni bíða
sveitarstjórnar og íbúa á svæðinu.
„Þarna hafa þó ekki farið skriður á
íbúðarhús svo ég viti,“ sagði sveitar-
stjórinn í samtali við mbl.is í gær.
Hún beið þá beið upplýsinga frá al-
mannavörnum svo ákveða mætti
framhaldið og aðgerðir.
Engar úrkomumælingar eru gerð-
ar reglulega við Skjálfanda og í Kinn,
en kunnugir geta ráðið í eyðurnar til
dæmis með því að skoða veðurspár
og -sögur. Einar Sveinbjörnsson veð-
urfræðingur sagði í gær á vefsíðu
sinni að ætla mætti að ofan við bæina
í Útkinn hefði úrkoman frá kl. 06 á
föstudag til kl. 06 á sunnudag verið
allt að 200-230 millimetrar. Mest
hefði hún væntanlega verið við
Björg. Líklegast hafi úrkomuþung-
inn svo verið enn meiri utar og norð-
ar, það er ofan eyðibyggðanna í Nátt-
faravíkum. Því sé líklega ekki
vanáætlað að í Út-Kinninni hafi úr-
koman frá kl. 06 á föstudag til kl. 06 á
sunnudag numið allt að 200-230 mm.
„Þeir sem horfa út eftir Flateyjar-
dal, til dæmis af Víkurskarði, velkj-
ast ekki í vafa um hve úrkomusamt
er á þessu svæði og mikið snjóar á
vetrum í ríkjandi NA-áttinni. Er sem
jökul að sjá í Víknafjöllunum langt
fram eftir sumri alla jafna,“ segir
Einar.
Algjörlega út í hött
„Hávaðinn sem fylgdi skriðunum
var mikill. Engu var líkara en himn-
arnir væru að rifna. Ég var úti í fjósi
á laugardagskvöldið þegar þetta
byrjaði og mér brá talsvert,“ segir
Bragi Kárason, bóndi á Nípá í Út-
Kinn. Þar stendur hann að búi með
Óla Friðbirni bróður sínum, en þeir
nýta einnig Geirbjarnarstaði, en lönd
þeirra liggja að Nípá.
„Ég gerði mér strax grein fyrir því
að skriður væru að falla en gerði mér
ekki grein fyrir því þarna í myrkrinu
hvert umfangið væri. Héðan frá Nípá
út í Björg eru um tveir kílómetrar og
á því belti eru skriður alls staðar í
fjallinu. Þriðjungur af Bjargafjallinu
er kominn á láglendi. Vatn er yfir
stórum svæðum hér og skurðirnir
eru stíflaðir. Auðvitað hafa oft komið
hér minniháttar spýjur úr fjallinu og
náttúran er lifandi, en núna er þetta
allt miklu stærra en hefði verið hægt
að ímynda sér. Þetta er eiginlega al-
gjörlega út í hött,“ segir Bragi.
Jóna Björg Hlöðversdóttir, bóndi
á Björgum í Út-Kinn, segir ekki
hægt að meta tjónið þar á bæ. Ásýnd
bæjarstæðisins er gjörbreytt; lúp-
ínubreiður og skógarbrekkur.
Í gær fór Jóna með systur sinni og
mági í fylgd með björgunarsveit til
bústarfa. Komu frá Húsavík og tók
ferðin um hálfa aðra klukkustund,
sem er um þrefalt lengri tími en
vanalega.
„Þetta er náttúrlega mikið bras.
Torvelt færi, mikil bleyta og vatn alls
staðar. Það hafa fallið aurskriður yfir
vegi og svo var líka farið að flæða yfir
veginn,“ segir bóndinn á Björgum.
Þingmenn fylgjast með
Víða er fylgst með framvindu mála
í Kinninni, enda er staðan alvarleg.
„Ég hef verið í sambandi við al-
mannavarnir og heimafólk til að fá
upplýsingar. Við þingmenn á svæð-
inu stefnum svo á fund með fólki
þarna í næstu viku,“ sagði Ingibjörg
Ólöf Isaksen, 1. þingmaður Norð-
austurkjördæmis.
Hávaði mikill og himnar rifnuðu
- Náttúruhamfarir á Norðurlandi - Úrkomuþungi í Út-Kinn engu líkur - Aurskriður, spýjur og brekk-
urnar eins og blautur svampur - Aurskriður og fjöldi bæja rýmdur - Staðan metin nú í morgunsárið
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Út-Kinn Eftir skriðuföll eru hlíðar stórt svað á löngum köflum og jarðvegur vatnsósa. Tún eru á floti og skurðakerfið ræður ekki við vatnselginn úr fjallinu.
BjörgÚt-Kinn
Ka
ld
ak
in
n
Sk
já
lfa
nd
afl
jó
t Laxá
Náttfaravík
Nípá
Aurskriður á
Norðurlandi
Húsavík
87
85
Jóna Björg
Hlöðversdóttir
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2021
„Þessar náttúruhamfarir er með
því rosalegasta sem ég hef séð,“
segir Birgir Mikaelsson, formaður
Björgunarsveitarinnar Garðars á
Húsavík. Sveitin var með mann-
skap á tveimur bílum á hamfara-
svæðinu í gærdag og sá um að
flytja bændur í Út-Kinn til gegn-
inga. Hjálparsveit skáta í Aðaldal
sinnti aðgerðum sunnar í Kinninni,
þar sem aðstæður eru öllu skárri.
Þegar björgunarlið kom í Út-
Kinn í gærmorgun var ekið fram á
stóra skriðu á móts við Þórodds-
staði, sem lokaði veginum þar.
Skriða þessi hafði fallið um nótt-
ina.
„Við fórum út fyrir veg og í
gegnum kvísl frá Skjálfandafljóti
sem þarna fellur fram. Annar bíll-
inn okkar var kominn í gegn þegar
hinn festist í sandbleytu. Því þurfti
að ná bílnum upp en svo gátum við
farið út að Björgum,“ segir Birgir.
Fólk á svæðinu segir Birgir skek-
ið og í áfalli eftir þessar hamfarir.
Menn deyi þó ekki ráðalausir og
bændur í Árteigi – sem eru þekktir
hagleiks- og vélamenn – hafi í gær
verið að búnir að draga fram
vinnuvélar. Hreinsunarstarfið hefj-
ist fljótlega og lífið haldi áfram.
Bændurnir í Kinninni deyja ekki ráðalausir
BJÖRGUNARSVEITIR FERJUÐU FÓLK TIL BÚSTARFA OG GEGNINGA
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Leiðangur Björgunarsveitarbíl ekið yfir kvísl í Kinninni á leiðinni í hjálparstörf.