Morgunblaðið - 05.10.2021, Síða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2021
PON er umboðsaðili
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður
Sími 580 0110 | pon.is
Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna!
GÆÐI OG ÞJÓNUSTA
Ungmenni á Íslandi fara mun
seinna að sofa en evrópskir jafn-
aldrar þeirra þó þau þurfi að vakna
á sama tíma í skóla og sofa þar af
leiðandi minna. Um 17% nemenda í
áttunda til tíunda bekk grunnskóla
sofa aðeins um sex stundir eða
minna á hverri nóttu samkvæmt
nýlegum rannsóknum. Um 43%
unglinga á þessum aldri sofa sjö
stundir eða minna á nóttu.
Þessar upplýsingar koma fram í
aðgerðaáætlun sem landlæknisemb-
ættið hefur birt í tengslum við vit-
undarvakningu um mikilvægi
svefns, sem hleypt var af stokk-
unum 1. október. Rannsóknir sem
gerðar hafa verið af Rannsóknum
og greiningu leiða í ljós að þriðj-
ungur barna í fimmta til sjöunda
bekk grunnskóla hafa átt erfitt með
að sofa.
Með tölvu eða síma upp í rúm
„Samkvæmt gögnum úr Ískrá
Heilsugæslunnar sem koma fram í
óbirtri ársskýrslu um heilsuvernd
skólabarna fyrir árið 2019-2020,
sögðust 37% barna í 9. bekk og 12%
barna í 7. bekk fara „alltaf“ eða
„oft“ með tölvuna eða símann upp í
rúm þegar þau fara að sofa á kvöld-
in. Þá sögðust 63% barna í 1. og 4.
bekk fara að sofa fyrir klukkan níu
á kvöldin, 57% barna í 7. bekk fara
að sofa fyrir klukkan tíu og 53%
barna í 9. bekk fara að sofa fyrir
klukkan ellefu, sem ætti að gefa
vísbendingar um það hlutfall sem
nær ráðlögðum svefntíma miðað við
aldur. Í 4., 7. og 9. bekk voru 14%
barna sem sögðust vera „alltaf“ eða
„oft“ þreytt á daginn,“ segir í að-
gerðaáætluninni.
Fram kemur að ein líklegasta
skýringin á svefnleysi meðal ung-
linga sé röng staðarklukka Íslands
og að unglingar séu að upplifa
klukkuþreytu, þ.e.a.s. misræmi á
eigin líkamsklukku og sólargangi.
Einnig eigi hlut að máli að mörg
ungmenni drekka orkudrykki dag-
lega.
Greint er frá því að samkvæmt
bráðabirgðaniðurstöðum úr rann-
sókn sem gerð var meðal nemenda í
Háskólanum í Reykjavík í febrúar
sl. töldu einungis um 35% nemenda
svefngæði sín vera mikil en alls
bárust svör frá um 800 nemendum.
Svefnvenjur fullorðinna eru einn-
ig kannaðar reglulega. Í aðgerða-
áætluninni er bent á að fullorðinn
einstaklingur þarf um sjö til níu
tíma svefn á nóttu en skv. gögnum
landlæknis sefur rétt undir fjórð-
ungur fullorðinna sex tíma eða
skemur á nóttu. Áætlað er að 40-
70% eldra fólks frá 65 ára aldri
glími við langvarandi svefntruflanir.
Embætti landlæknis stýrir vit-
undarvakningunni um mikilvægi
svefns til að stuðla að bættum
svefni Íslendinga sem unnin er í
samstarfi við Betri svefn, Þróun-
armiðstöð íslenskrar heilsugæslu,
Rannsóknir og greiningu, Landspít-
ala – háskólasjúkrahús, Svefnsetur
Háskólans í Reykjavík, Reykjavík-
urborg og Háskólann í Reykjavík.
omfr@mbl.is
Vansvefta og upplifa klukkuþreytu
Svefn nemenda í 8.-10.bekk á Íslandi
Þróun svefntíma 2012-2021 Svefntími nemenda í
8.-10. bekk í febrúar 2021
80%
60%
40%
20%
0%
2012 2014 2016 2018 2020 2021
Heimild: Embætti
landlæknis
<6 6 7 8 9 >9
Klukkustundir svefns á nóttu:
Sofa 7-8 klst. á nóttu
Sofa 9 klst. eða lengur
Sofa 6 klst. eða skemur
5%
61%
26%
13%
62%
21%
17%
6%
16%
11%
35% 27%
- Aðgerðaáætlun og vitundarvakning um mikilvægi svefns - 17% nemenda í 8.-10. bekk sofa í sex
stundir eða minna - 35% nemenda í HR telja svefngæði sín mikil - Eldra fólk glímir við svefntruflanir
Svefninn í brennidepli
» Sjónum verður beint að
svefni og andlegri líðan ung-
menna á forvarnardeginum á
morgun í grunn- og framhalds-
skólum.
» Rúmur helmingur ung-
menna í 10. bekk grunnskóla
fær ekki nægan nætursvefn.
» Í aðgerðaáætlun sem sett
hefur verið í gang til að stuðla
að bættum svefni eru m.a.
mælingar, málþing og aukin
fræðsla sem á að ná til fólks á
öllum æviskeiðum.
Líflegt hefur verið á síldarmið-
unum fyrir austan land undan-
farið, m.a. í Héraðsflóa í síðustu
viku, þar sem þessi mynd var tek-
in. Vel hefur aflast og stutt verið
fyrir flest skipanna að sigla með
afla til löndunar. Samkeppni er
um silfur hafsins og fleiri sem
hafa áhuga á síldinni en sjómenn-
irnir.
Flokkur háhyrninga fylgist
gjarnan með í skipulegri röð og
gerir sér mat úr því sem til fellur
þegar dælt er úr flottrollinu.
Þekkt er að háhyrningar halda sig
í fjölskylduhópum og vinna ein-
staklingarnir saman við fæðuöfl-
un. Þeir eru algengir við landið,
ekki síst þar sem síldar er von.
Talið er að fullvaxinn háhyrnings-
tarfur hér við land geti vegið 7-8
tonn og þurfi um 150 kíló af fiski
eða kjöti á dag. aij@mbl.is
Áhuga-
samir
um silfur
hafsins
Morgunblaðið/Börkur Kjartansson
Háhyrningar í fjölskylduhópum fylgjast með síldveiðum í Héraðsflóa og víðar
Vanda Sigurgeirsdóttir tók við for-
mannsembætti Knattspyrnu-
sambands Íslands eftir að ný bráða-
birgðastjórn var kjörin á aukaþingi
sambandsins um helgina. Fyrsti
starfsdagur Vöndu var svo í gær og
virtist hún vera að koma sér vel fyrir
er ljósmyndara Morgunblaðsins bar
að garði. „Fyrsti dagurinn gekk
bara mjög vel, ég var á nokkrum
fundum, að hitta starfsfólkið og
svona koma mér inn í kerfið, allt
þetta praktíska,“ sagði Vanda. Hún
sagði að dagurinn hefði aðallega far-
ið í það að koma sér fyrir og fara yfir
hvaða verkefni bíða hennar. „Ég er
mjög spennt og ég held að þetta
verði mjög skemmtilegt en að sama
skapi krefjandi og það er bara eitt-
hvað sem ég held að eigi vel við
mig.“ Vanda segir að til standi að
halda fyrsta stjórnarfundinn á
fimmtudag. „Ég er líka spennt að
hitta nýja stjórn og byrja að vinna
með þeim og kynnast þeim.“
rebekka@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Formaður Fyrsti dagur í starfi sem nýr formaður KSÍ var í gær og Vanda
Sigurgeirsdóttir er að koma sér fyrir á skrifstofunni í Laugardalnum.
Skemmtilegt en krefjandi
- Fyrsti dagur
Vöndu sem for-
maður KSÍ