Morgunblaðið - 05.10.2021, Page 11

Morgunblaðið - 05.10.2021, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2021 Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann. Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum. Blettaþolið SýruþoliðHögg- og rispuþolið HÁTT HITAÞOL Síðastliðinn sunnudag, 3. október, voru 45 ár liðin síðan sex prestar voru vígðir saman í Dómkirkjunni af Sigurbirni Einarsyni, þáverandi biskupi Íslands. Var þetta fjölmenn- asta vígsla í biskupstíð Sigurbjörns og ein sú fjölmennasta sem fram hefur farið hér á landi. Fjórir prestar af þessum sex eru á lífi, en formlega hættir prests- skap, þeir Gunnþór Þ. Ingason, Vigfús Ingvar Ingvarsson, Vigfús Þór Árnason og Hjálmar Jónsson. Pétur Þórarinsson í Laufási og Sig- hvatur Birgir Emilsson eru látnir. Fjórmenningarnar þjónuðu við messu í Dómkirkjunni sl. sunnudag af þessu tilefni, auk Sveins Val- geirssonar, sóknarprests við Dóm- kirkjuna. Ljósmynd/Sigríður Hjálmarsdóttir 2021 Fyrir utan Dómkirkjuna sl. sunnudag, f.v. Gunnþór Þ. Ingason, Vigfús Ingvar Ingvarsson, Vigfús Þór Árna- son og Hjálmar Jónsson. Tveir úr hópnum eru látnir, þeir Pétur Þórarinsson og Sighvatur Birgir Emilsson. Þjónuðu á vígsluafmæli - Fjórir á lífi af sex sem vígðust saman 3. október 1976 1976 Nývígðir í Dómkirkjunni 3. október, f.v. Vigfús Ingvar Ingvarsson, Gunnþór Þ. Ingason, Hjálmar Jónsson, Vigfús Þór Árnason, Pétur Þórar- insson og Sighvatur Birgir Emilsson. Sigurbjörn Einarsson biskup vígði þá. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Í sumar hófst samstarfsverkefni Ís- lendinga og Skota, sem felst m.a. í að kortleggja upp á nýtt vetrarút- breiðslu íslenskra grágæsa á Bret- landseyjum með hjálp staðsetninga- búnaðar sem gæsirnar bera. Skoska umhverfisstofnunin NatureScot lagði til 33 senditæki sem fulltrúar Náttúrustofu Austurlands, Náttúru- stofu Norðausturlands, Náttúru- fræðistofnunar Íslands og Verk- fræðistofunnar Verkís hafa unnið saman að því að merkja gæsir með. Í sumar voru 23 fullorðnar grá- gæsir í sárum veiddar í netgildrur eða hlaupnar uppi og háfaðar víða um land. Síðustu daga hefur verið reynt að fanga gæsir í skotnet á Suðurlandi til að koma út síðustu 10 senditækjunum, en án árangurs að sögn Guðmundar A. Guðmundsson- ar, dýravistfræðings hjá Náttúru- fræðistofnun. Stefnt er að því að ljúka merkingum í október. Hrun, skekkja eða breytingar? Seinustu fjögur ár hafa talningar á grágæs á Bretlandseyjum bent til hruns í grágæsastofninum, að sögn Guðmundar. Fjöldi þeirra hér á landi var lengi talinn 100-110 þús- und fuglar að loknu gæsaveiðitíma- bilinu á haustin, en er nú metinn vera um 60 þúsund fuglar. Guð- mundur segir hugsanlegt að um skekkju sé að ræða og að út- breiðslusvæðið hafi breyst á síðustu árum og dreifing gæsarinnar sé meiri en áður var. Hann nefnir í því sambandi að sjónir manna beinist meðal annars að Orkneyjum. Þar hafi grágæsin stoppað mikið á síðustu árum og hafi nýtt sér aukna uppskeru og ak- uryrkju. Þar sé stofn staðfugla sem erfitt sé að aðgreina frá gæsunum sem dvelja á Íslandi sumarlangt. Grágæsastofninn hefur verið vaktaður á Bretlandseyjum síðan um 1960 með árlegum talningum í nóvember. Gæsunum fjölgaði hratt fram undir 1990, fækkaði þá nokk- uð, en fjölgaði síðan í fyrra horf. Stofnstærð hafði lítið breyst frá 2000 og var lengi um 100 þúsund fuglar fram til 2016 og náði hámarki 2011 er taldir voru 112 þúsund fugl- ar. 2018 voru gæsirnar taldar vera um 56 þúsund sem er það minnsta frá 1976, 2019 bentu talningar til að í stofninum væru um 73 þúsund fuglar og í fyrra var metið að fugl- arnir væru aðeins 60.061 fugl. Við upphaf grágæsaveiðitíma- bilsins í ágústmánuði hvatti Um- hverfisstofnun til þess að veiðimenn gættu hófs við veiðar í ljósi fækk- unar síðustu ár. Hrun í stofni grágæsar eða breytt dreifing? - Reynt að kortleggja vetrarútbreiðslu grágæsa upp á nýtt - Horft til Orkneyja Ljósmynd/Guðmundur A. Guðmundsson Merkingar Arnór Þ. Sigfússon, dýravistfræðingur hjá Verkís, með merkta gæs á Breiðafirði í sumar. Í alþingiskosningunum í september stóð hverjum og einasta kjósanda í Reykjavíkurkjördæmunum til boða að fá sinn eigin blýant. Fjöldi blýant- anna hlýtur því að nema um 91 þús- und þar sem á kjörskrá í Reykjavík- urkjördæmunum eru samtals um 91 þúsund manns. Helga Björk Laxdal, skrifstofu- stjóri borgarstjórnar, segir kostnað- inn við innkaupin hafa numið um einni milljón. Blýantar þessir voru keyptir fyrir forsetakosningarnar í fyrra og nýttust síðan aftur í ár. „Fyrir síðustu forsetakosningar þegar við vorum með strangari Co- vid-aðgerðir þá var þetta eitt af því sem við gerðum. Allir gátu fengið nýjan blýant en svo gátu kjósendur líka nota blýantana sem voru inni í kjörklefunum sem voru sótthreins- aðir reglulega yfir daginn.“ Nú er Reykjavíkurborg vel sett hvað varðar skriffæri. „Kosningala- ger Reykjavíkurborgar hefur þá til umráða svo nú eigum við ábyggilega blýanta fyrir næstu hundrað kosn- ingar.“ Helga segir aukinn kostnað hafa bæði fylgt alþingiskosningunum í ár og í forsetakosningunum í fyrra vegna sóttvarnaráðstafana en hver yfirkjörstjórn hafi samið sérstaka sóttvarnaáætlun í samræmi við for- skrift frá dómsmálaráðuneytinu og gildandi sóttvarnareglur. 91 þúsund blýantar til reiðu í Reykjavík - Kostaði borgina um eina milljón Morgunblaðið/Eggert Kjörstaður Keyptur var blýantur fyrir hvern kjósanda í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.