Morgunblaðið - 05.10.2021, Qupperneq 12
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2021
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
„Ég bauð í skipið fyrst árið 2008
en það var ekki fyrr en átta árum
síðar sem við Røkke náðum saman
og hann seldi.“
Verkefnalaust frá 2007
Vísar Haraldur þar til norska út-
gerðarkóngsins Kjell Inge Rökke
sem lét smíða skipið árið 1996.
Hafði skipið legið bundið við
bryggju í skipasmíðastöð í Króatíu
og verkefnalaust, allt frá árinu 2007.
Hann segir að JSC Akros sé
fyrirtæki sem staðsett sé á Kams-
jatka-skaga í austurhluta Rúss-
lands og að sennilega fari skipið til
veiða á Kyrrahafi í kjölfar breyt-
inga.
Stórt á alla mælikvarða
„Við gerðum talsverðar breytingar
á skipinu á sínum tíma. Bjuggum það
til uppsjávarveiða, settum upp
vinnslulínur og frystibúnað fyrir upp-
sjávarskip og endurnýjuðum raf-
eindabúnað í brúnni. Mér skilst á
kaupendunum að þeir muni auka við
vinnslugetu skipsins enn frekar og
bæta fiskimjölsverksmiðju við skip-
ið.“
Það er engin smásmíði. Stærsta
fiskiskip sem nokkru sinni hefur verið
í eigu íslensks aðila. Vinnslugeta þess
er 220 tonn af frystum afurðum á sól-
arhring. Lengd þess er 121 metri en
til samanburðar er lengsta skip
Brims, Víkingur AK 100, 81 metri á
lengd. Þá er Beitir NK 122, sem er í
eigu Síldarvinnslunnar, 89 m á lengd.
Navigator er 18,5 metrar á breidd og
8.913 brúttórúmlestir.
70-80 í áhöfn á hverjum tíma
„Í áhöfn hafa verið á bilinu 70-80
manns á hverjum tíma og við höfum
gert það út með tveimur áhöfnum,“
segir Haraldur. Skipstjórar á skipinu
hafa verið þeir Páll Kristjánsson og
Albert Haraldsson en sá síðarnefndi
hélt í gær upp á afmæli sitt, sama dag
og skipið færðist í eigu JSC Akros.
Kaupverðið er trúnaðarmál að
sögn Haraldar en hann viðurkennir
þó að hann sé mjög sáttur við við-
skiptin. Ekki hafi í raun staðið til að
selja skipið heldur hafi ætlunin verið
að gera það áfram út. Hann segir
óljóst hvað taki við. Spurður út í hvort
langri útgerðarsögu sé nú lokið, vill
Haraldur ekki kveða upp úr um það.
„Það eru mörg tækifæri og ýmsir
möguleikar sem vert er að skoða en
það er ekkert ákveðið enn þá,“ segir
hann.
Stærsta skipið selt til Rússlands
- Span Ice selur risatogarann Navigator til rússnesks útgerðarfélags - Stærsta fiskveiðiskip sem ver-
ið hefur í eigu Íslendings - Eigandinn keypti skipið af Rökke árið 2016 en bauð fyrst í það árið 2008
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Fyrirtækið Span Ice hefur selt rúss-
neska útgerðarfyrirtækinu JSC Ak-
ros risatogarann Navigator. Harald-
ur Reynir Jónsson er eigandi Span
Ice en systurfyrirtæki þess, Úthafs-
skip, hefur annast útgerð Navigator
við strendur Máritaníu frá árinu
2017. Skipið keypti Span Ice árið 2016
og réðst í kjölfarið í talsverðar end-
urbætur á því.
Morgunblaðið
náði tali af Har-
aldi í gær,
skömmu eftir að
afhending skips-
ins fór fram á Las
Palmas á Kanarí-
eyjum, þaðan sem
skipið hefur verið
gert út.
„Þetta eru mik-
il tíðindi fyrir okk-
ur en með þessu fer síðasti togarinn
úr eigu okkar. Í fyrra seldum við
skipin Viktoríu og Gloríu til Óman,“
segir Haraldur. Hann segir að tals-
verður aðdragandi hafi verið að söl-
unni. Þannig hafi kaupendurnir nálg-
ast hann á síðasta ári og fyrir um
mánuði hafi kaupsamningur verið
undirritaður.
Það er þó ekki langur tími, saman-
borið við það hversu langur tími leið
frá því að Haraldur fékk þá hugdettu
að kaupa Navigator og þar til skipið
komst í hans eigu.
Ljósmynd/Albert Haraldsson
Navigator er engin smásmíði Hann er 121 m á lengd og hefur frá 2017 verið á veiðum úti fyrir ströndum Máritaníu.
Haraldur Reynir
Jónsson
Navigator
» Skipið var smíðað fyrir Kjell
Inge Rökke árið 1996.
» Komst í eigu Span Ice árið
2016 og ráðist var í miklar end-
urbætur á því.
» Skipið er 121 metri á lengd,
breidd þess er 18,6 metrar.
» Það er 8.913 brúttórúmlest-
ir á stærð.
» Vinnslugetan er 220 tonn af
frystum afurðum.
Í áhöfn eru 70-80 manns á
hverjum tíma.
» Skipstjórar hafa verið Ís-
lendingarnir Páll Kristjánsson
og Albert Haraldsson.
samkvæmt tölum fyrir ágústmánuð.
Gerir Landsbankinn því skóna að
minni spurn eftir leiguhúsnæði hafi
talsvert að segja með þessa þróun á
markaðnum. Heimsfaraldur
kórónuveiru hafi dregið úr henni
vegna minni fólksflutninga til
landsins og að þá hafi fleiri getað
fjárfest í húsnæði vegna lækkandi
vaxtastigs. Bendir bankinn einnig á
að það sé ekki aðeins eftirspurnin
sem hafi minnkað heldur séu líkur
til að framboð á leiguhúsnæði hafi
aukist vegna minni umsvifa í
tengslum við útleigu húsnæðis til
ferðamanna. Airbnb-íbúðir kunni að
hafa ratað í almenna leigu og þá
hafi stjórnvöld beitt sér fyrir
óhagnaðardrifinni uppbyggingu
leigufélaga.
Samkvæmt samantekt Lands-
bankans koma verðbreytingar á
leigumarkaði fyrst og fremst fram í
nýjum samningum sem gerðir eru
en að eldri samningar sem endur-
nýjaðir eru virðist halda gildi sínu.
Síðustu tólf mánuði hefur raun-
hækkun leiguverðs aðeins numið
0,2%. Þetta kemur fram í nýrri
Hagsjá Landsbankans. Þar er bent
á að leiguverð á íbúðarhúsnæði hafi
hækkað um 3,5% síðasta árið en að
verðlag hafi yfir sama tímabil
hækkað um 3,3%.
Á sama tíma og leiguverðið
stendur í stað hafa miklar hækk-
anir orðið á fasteignamarkaði.
Þannig mælist 12 mánaða raun-
hækkun íbúðaverðs í fjölbýli 11,3%
Leigan heldur ekki í við markaðinn
- Fleiri geta keypt og tappar það um leið af eftirspurn eftir leiguhúsnæði
Morgunblaðið/sisi
Leigufélög Óhagnaðardrifin upp-
bygging eykur framboðið.
5. október 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 129.05
Sterlingspund 174.78
Kanadadalur 101.85
Dönsk króna 20.129
Norsk króna 14.94
Sænsk króna 14.744
Svissn. franki 138.73
Japanskt jen 1.1609
SDR 182.27
Evra 149.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 184.2288
Fyrstu níu mánuði yfirstandandi árs
voru nýorkubílar svokallaðir, þ.e.
hreinir rafbílar, tvinnbílar (e. hy-
brid) og tengiltvinnbílar (e. plug-in
hybrid) í fyrstu þremur sætunum yf-
ir mest seldu bíla á landinu, á undan
bílum knúnum með jarðefnaelds-
neyti, þ.e. bensíni og dísli.
Þetta má sjá í tölum frá Bílgreina-
sambandinu.
Þannig voru hreinir rafbílar 24,3%
af seldum bílum á tímabilinu, eða
samtals 2.376 talsins, tengiltvinn-
bílar voru 23,8%, eða 2.334 og tvinn-
bílar voru 20,2% allra seldra bíla,
eða 1.976 talsins.
Bílar sem nota bensín voru 18,9%
og dísilbílar
12,8%.
Til saman-
burðar voru raf-
bílar mest seldu
bílar á síðasta ári,
eða 25,3% allra
seldra bíla, eða
2.356, bensínbílar
voru í öðru sæti
með 23%, eða
2.140, tengil-
tvinnbílar voru 19,9% allra seldra
bíla, eða 1.859 og dísilbílar 18,8% eða
1.753. Seldir tvinnbílar á síðasta ári
voru 1.175 eða 12,6% af heildarfjöld-
anum.
Bensín og dísill gefur eftir
Til gamans má geta þess að hlut-
deild bensín- og dísilbíla hefur farið
hratt lækkandi á síðustu árum. Árið
2016 voru bensínbílar til dæmis
45,5% allra seldra bíla og 44,3% allra
seldra bíla voru knúin með dísilolíu.
Það ár var hlutfall hreinna rafbíla
aðeins 1,2%, tengiltvinnbílar voru
3,3% af heildinni og hlutur tvinnbíla
var 3,8%.
Þegar gögn Bílgreinasambands-
ins eru skoðuð eftir bíltegundum er
Kia söluhæsta tegundin á fyrstu níu
mánuðum ársins á undan Toyota
sem er næstmest selda bíltegundin.
Nýorkubílar í fyrstu
þremur sætunum
Orka Bensín og
dísill er á útleið.
- Bensín og dísill gefur eftir - Rafbílar 1,2% árið 2016