Morgunblaðið - 05.10.2021, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.10.2021, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2021 Fjallganga Útivist er allra meina bót og fínt er að fá súrefni í lungu og liðka limi. Margir ganga á Úlfarsfell, þar sem sést vel yfir Mosfellsbæ af útsýnispalli sem þar var settur upp á dögunum. Sigurður Bogi Nú er rétt ár liðið frá því sveitarfélagið Múlaþing varð til eftir að íbúar á Borgarfirði eystra, Djúpavogs- hreppi, Fljótsdalshér- aði og Seyðisfirði sam- þykktu sameiningu í kosningum 25. sept- ember á síðasta ári. Þetta fyrsta ár nýs sveitarfélags hefur á margan hátt verið mjög sérstakt, sumt hefur reynst fyrirsjáanlegt, annað ekki. Það blasti til dæmis við að kjörnir fulltrúar, starfsfólk sveitarfélagsins og íbúar myndu þurfa tíma til að aðlagast nýju stjórnskipulagi þar sem heimastjórnir voru kynntar til sögunnar. Einnig þeirrar áherslu sem lögð hefur verið á fjarfundi þegar því verður við komið til að tryggja jafna möguleika til þátttöku í sveit- arstjórnarmálum í víð- feðmu sveitarfélagi óháð búsetu. Fyrir íbúa minni byggða- kjarnanna voru það líka viðbrigði að hafa ekki lengur sveitar- eða bæjarstjórann í kallfæri og áfram mætti telja. Það sem ekki varð séð fyrir hins vegar var að þetta fyrsta ár myndi líða í skugga heimsfaraldurs með tilheyr- andi álagi á innviði og að í aðdrag- anda jóla þyrfti að rýma Seyð- isfjörð í kjölfar náttúruhamfara. Atburðarásin sem fylgdi í kjölfar skriðufallanna á Seyðisfirði ein- kenndist af samstöðu og samhjálp. Allir í Múlaþingi lögðust á eitt við að aðstoða þá sem áttu um sárt að binda og þegar litið er til baka er ljóst að á þessum tíma vorum við öll Seyðfirðingar. Það var líka mik- ilvægt að finna þann stuðning sem sveitarfélagið fékk frá ríkinu og í samstarfi við starfshóp ráðuneyta um uppbyggingu á Seyðisfirði hefur margt áunnist þótt enn séu verk- efnin næg. Þrátt fyrir og kannski að hluta til vegna þessa hefur þetta fyrsta ár í Múlaþingi gengið vel og það er líf og kraftur í nýju sveitarfélagi. At- vinnuástand er gott. Á Djúpavogi standa yfir framkvæmdir við höfn- ina þar sem verið er að endurnýja og lengja viðlegukant. Samhliða er í byggingu 2.800 ferm. umbúðaverk- smiðja sem ætlunin er að taka í notkun fyrri hluta næsta árs. Einn- ig er í byggingu fimm íbúða raðhús auk þess sem nokkrir einstaklingar eru að hugsa sér til hreyfings varð- andi byggingu einbýlishúsa. Á Eg- ilsstöðum er uppbygging. Nýr leik- skóli, sem tekinn verður í notkun á næsta ári er í byggingu og nýtt deiliskipulag fyrir miðbæinn hefur tekið gildi auk þess sem metn- aðarfullar hugmyndir eru uppi um skipulagningu nýs íþróttasvæðis. Á Seyðisfirði hefur verið lyft grett- istaki í kjölfar skriðufallanna í vet- ur, s.s. í gatnagerð, malbikun og við gerð varnargarða og verða verktak- ar og aðrir sem að því komu ekki dásamaðir nóg. Unnið er að því að tryggja örugga landtengingu fyrir ferjuna, flutning húsa og stefnt er að gerð landfyllingar fyrir botni fjarðarins. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Borgarfirði, hvort tveggja í íbúðarhúsnæði og í tengslum við ferðaþjónustu og nú er meira að segja hægt að fara í ríkið og kaupa borgfirskan landa! Samstarf í sveitarstjórn undir forystu Sjálfstæðisflokksins hefur gengið vel og fyrir það ber að þakka. Hinu má ekki gleyma að þótt svo margt hafi áunnist og gengið vel á þessu fyrsta ári bíða fjölmörg verkefni, s.s. á sviði at- vinnu-, samgöngu-, mennta- og um- hverfismála. Íbúar Múlaþings hafa hins vegar fulla ástæðu til bjartsýni og geta litið um öxl stoltir yfir því sem áunnist hefur á þessu fyrsta ári í lífi nýs sveitarfélags. Við gerð- um þetta öll saman. Eftir Gauta Jóhannesson » Íbúar Múlaþings geta litið um öxl stoltir yfir því sem áunnist hefur á þessu fyrsta ári í lífi nýs sveit- arfélags. Gauti Jóhannesson Höfundur er forseti sveitarstjórnar Múlaþings. gauti.johannesson@mulathing.is Nú árið er liðið Það að stuðla að minni losun kolefna út í andrúmsloftið var ein stærsta skrautfjöður Borgarlínu á sínum tíma. Þessi fjöður byggðist frá upphafi á áformum um að nota hreinorkuvagna í Borgarlínu og er þann- ig í reynd lánsfjöður frá strætó sem Borg- arlína á að leysa af, en stefna Strætó bs. er að nýta hrei- norkuvagna í framtíðinni. Það að skreyta þungu Borgarlínuna þessari fjöður er að auki fölsun, því hún mun valda miklum töfum á annarri bíla- umferð og þær tafir valda mikilli aukningu á loftmengun. Þessi mengandi áhrif þungu Borg- arlínunnar sjást best ef litið er á þversnið Suðulandsbrautar eins og það er teiknað í frumdragaskýrslu 1. lotu Borgarlínu frá jan. 2021. Þar sést að sérakreinar Borgarlínu eru settar í miðju vegar og ein akrein fyrir aðra bílaumferð verður sín hvorum megin. Með þessu verða teknar tvær akreinar af almennri bílaumferð og hægt á hraða að auki, því hámarkshraði verður settur 30 km/klst., sem liggur neðan hins græna hraðasviðs (40 til 80 km/klst.) þar sem bílar nútímans nota minnst eldsneyti á ekinn km. Flutningsgeta Suður- landsbrautar er þannig minnkuð verulega og mun umferðin þá tefj- ast og leita að hluta á götur til hliðar þannig að leiðin lengist og verður seinfarin. Þann- ig mun öll almenn bíla- umferð um Suðurlandsbraut og þar í kring tefjast og mengandi útblástur bílanna aukast verulega. Að auki mun vinstri beygja verða bönnuð víða, sem lengir leið margra sem þarna fara og eykur enn útblástur mengandi lofttegunda. Til samanburðar þá yrðu sér- akreinar léttu Borgarlínunnar settar sín hvorum megin fjögurra akreina fyrir almenna umferð Suðurlands- brautar og hámarkshraði þar settur inni á hinu græna hraðasviði. Létta Borgarlínan mun því ekki valda auk- inni mengun eins og sú þunga gerir. Þeirra tafa sem þunga Borgar- línan veldur annarri umferð er hvergi getið í birtum skýrslum um Borgarlínu og sennilega hafa þær ekki einu sinni verið reiknaðar. Í skjóli þess hafa fylgjendur hennar getað haldið því fram að hreinorku- vagnar hennar myndu spara meng- andi útblástur en þau vagnaskipti eru alveg óháð Borgarlínu, strætó mun taka upp hreinorkuvagna hvort eða er, þannig að hér er um óverð- skuldaða lánsfjöður að ræða. Orku- skipti í almenningssamgöngum eru verkefni innan orkuskiptastefnu rík- isstjórnarinnar og Borgarlínu óvið- komandi. Í aðdraganda nýliðinna kosninga kom ítrekað fram vilji, þvert á flokka, að taka nú til hendi í lofts- lagsmálum með alvöru aðgerðum. Eins og að framan segir er þunga Borgarlínan neikvætt innlegg í lofts- lagsmálin og nauðsynlegt að snúa sér að þeirri léttu til að seinka ekki árangri í samdrætti á losun kolefna í landinu. Þó kolefnalosun vegna um- ferðartafa hafi ekki verið reiknuð út er ljóst að þar er um að ræða marga tugi þúsunda tonna kolefnisígilda og áhrif þungu Borgarlínunnar verða til að auka það umtalsvert. Með því að fara leið léttu Borg- arlínunnar sparast miklir fjármunir til fjárfestinga sem nota má til kaupa á hreinorkuvögnum en einnig til fjölgunar biðskýla fyrir strætó, t.d. skjólgóðra skýla með upplýsinga- töflum sem auðvelda notkun strætó á höfuðborgarsvæðinu. Á þann hátt má fjölga notendum strætó til við- bótar þeirri fjölgun sem fæst með aukinni tíðni ferða. Mikilvægt er að hratt vaxandi fjöldi erlendra ferða- manna verði hvattur til að fara út- sýnisferðir með strætó í stað þess að keyra um höfuðborgarsvæðið á bíla- leigubíl og auka þannig hið meng- andi öngþveiti sem oft er í umferð- inni. Stefna um skipulag höfuðborg- arsvæðisins var samþykkt 2015 og átti Borgarlína að leika stórt hlut- verk við þá umbreytingu þéttbýlis- ins sem þá var samþykkt. Undirbún- ingur þeirrar stefnumörkunar var m.a. sviðsmyndagreining þar sem borinn var saman kostnaður vegna léttlestar og „BRT-Gold“-kerfis, sem er þung Borgarlína. Ódýrari möguleikar til að fullnægja þörfum fyrir almenningssamgöngur á svæð- inu hafa, að því er fram hefur komið, ekki verið kannaðir enn. Inn í grein- inguna voru sett hástemmd mark- mið um breyttar ferðavenjur íbúa, sem síðan hafa sýnt sig að vera óraunhæf. Ábati fékkst einungis í þessari greiningu með því að reikna með að umferðartafir myndu minnka vegna hinna breyttu ferða- venja og bílum landsmanna mundi fækka samsvarandi aukinni notkun almenningssamgangna, sem er afar vafsöm forsenda svo ekki sé meira sagt. Þessi greining var því óraun- hæf og rétt niðurstaða úr henni hefði átt að vera sú að gera ekki neitt. Árangur þessa stórgallaða und- irbúnings er sá að í stað þess að hefj- ast handa við að bæta biðstöðvar, skipta yfir í hreinorkuvagna og flýta för vagnanna þar sem þarf er nú áhersla lögð á rándýrar fjárfestingar í miðjusettum sérakreinum sem eng- in þörf verður fyrir næstu áratugi og auka vanda í loftslagsmálum. Af þessari leið ber að snúa og byggja þess í stað létta Borgarlínu með sér- akreinar til hægri eftir þörfum. Eftir Elías Elíasson » Þeirra tafa sem þunga Borgarlínan veldur annarri umferð er hvergi getið í birtum skýrslum um Borgar- línu og sennilega hafa þær ekki einu sinni ver- ið reiknaðar. Elías Elíasson Höfundur er verkfræðingur. eliasbe@simnet.is Borgarlínan og loftslagsmál

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.