Morgunblaðið - 05.10.2021, Page 18

Morgunblaðið - 05.10.2021, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2021 ✝ Ruth Bredahl Sörensen fædd- ist 4. febrúar 1941 í Danmörku. Hún lést á lyflækn- ingadeild Sjúkra- hússins á Akureyri 20. september 2021. Foreldrar hennar voru Jens Peter Pedersen bóndi, f. 1914, d. 2001, og Marie Bre- dahl Pedersen, f. 1916, d. 1977 systkini Ruthar eru: Tove Bre- dahl, f. 1943, Mogens Bredahl, f. 1945, Grethe Bredahl, f. 1949, d. 2019, Erik Bredahl, f. 1947, Kirsten Bredahl, f. 1951, Kristi- an Bredahl, f. 1954, og Ulla Bre- dahl, f. 1960. 3) Elva Bredahl, f. 1964, maki Hörður Lilliendahl, f. 1963, þeirra börn eru Davíð, f. 1994, d. 1994, Bjarki, f. 1995, og Egill, f. 1997. 4) Brynjar Bredahl, f. 1974, maki Rán Lárusdóttir, f. 1977, þeirra börn eru Karen Rut, f. 2002, og Ester Katrín, f. 2008. Ruth fæddist í Danmörku en fluttist til Akureyrar 1958. Ætlaði upphaflega aðeins að vera í nokkra mánuði við vinnu en ílengdist og settist að á Ís- landi. Ruth bjó fyrst í Skjald- arvík og starfaði þar sem starfsstúlka en síðar flutti hún inn á Akureyri og vann m.a. hjá Útgerðarfélagi Akureyr- inga, Sambandsverksmiðjun- um og Heilsuræktinni. Síðustu áratugina starfaði hún sem matráðskona á Heilsugæslu- stöðinni á Akureyri eða til árs- ins 2008. Útför Ruthar fer fram frá Glerárkirkju í dag, 5. október 2021, kukkan 13. Ruth giftist Brynjari (Benny) Sörensen 29. októ- ber 1960. Brynjar fæddist í Dan- mörku 1. maí 1938. Hann lést 1. janúar 1989. Síðar eign- aðist Ruth góðan og traustan vin, Eið Eiðsson, f. 1935 sem fylgdi henni til æviloka. Börn Ruthar og Brynjars eru: 1) Dan Jens, f. 1960, maki Björk Guðmundsdóttir, f. 1961, þeirra börn eru Ágúst Freyr, f. 1988, Hákon Valur, f. 1993, og Arnar Birkir, f. 1997. 2) Esther María, f. 1963, d. 1963. Í dag kveðjum við elsku tengdamömmu, Ruth Bredahl Sörensen. Þó svo maður hafi vitað í hvað stefndi er maður aldrei tilbúinn að kveðja þegar kallið kemur. Tengdamamma var ynd- isleg kona. Hún flutti 17 ára hing- að til lands frá Danmörku og ætl- aði bara að dvelja í nokkra mánuði. Hér hitti hún drauma- prinsinn Benna, líka frá Dan- mörku, og stuttu seinna var minn maður Dan kominn í heiminn. Þau voru dugnaðarforkar bæði tvö og komu sér vel fyrir hér á landi og ólu hér upp börnin sín þrjú, Dan, Elvu og Brynjar. Því miður voru mínar stundir með Benna allt of fáar, en hann lést eftir skammvinn veikindi, aðeins 50 ára gamall. Ég man þann dag eins og gerst hefði í gær, en þá stóð Ruth eins og klett- ur og studdi okkur hin. Ruth var dásamleg amma. Barnabörnin voru henni mikils virði og hún fylgdist vel með hvað þau voru að bardúsa. Hún elskaði t.d. að fá að fylgjast með börnun- um á Snapchat og kvartaði ef þau voru ekki nógu dugleg að setja myndir eða myndbönd þar inn. Þessi virðing og ást var gagn- kvæm og þótti barnabörnunum voða gott að koma til ömmu og ekki spillti fyrir ef ömmukæfa var á boðstólnum, en Ruth gerði heimsins bestu lifrarkæfu. Þegar strákarnir okkar Dans voru litlir var ekki slæmt að geta leitað til ömmu með pössun hvort sem það var að fara til hennar eða hún kom til okkar og ekki stóð á því ef möguleikinn var fyrir hendi. Nokkru eftir fráfall Benna kynnt- ist Ruth Eiði og er hann fjölskyld- unni afar kær. Ruth og Eiður nutu þess að vera saman, fóru ófá- ar ferðir t.d. til Danmerkur og þegar við Dan dvöldum í Edin- borg komu þau og dvöldu með okkur í nokkra daga þar. Þetta síðasta ár hafði Ruth heilsu sinnar vegna ekki tök á að fara í lang- ferðir, en kvöldrúnturinn hjá Ruth og Eiði var eitthvað sem helst mátti ekki klikka og fram hjá Þrumutúninu var yfirleitt keyrt um kl. 22. Já, það er alltaf sárt að kveðja, en við erum óendanlega þakklát fyrir allar ljúfu samverustundirn- ar sem við áttum með þér Ruth og allt það góða sem þú kenndir okk- ur. Veit að þú ert komin í drauma- landið og færð góðar móttökur þar. Ljúfar minningar lifa. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Takk fyrir allt elsku Ruth. Björk Guðmundsdóttir. Amma var ótrúlega hlý, klár og traust kona. Ef eitthvað óvænt kom upp mátti alltaf stóla á hana, allt frá því að ná silfruðu hár- spreyi, sem reyndist vera styttu- lakk, úr hári, „brjótast“ inn í Ekrusíðuna og yfir í að pakka glæsilega inn gjöfum með endur- nýttum gjafapappír. Amma var matgæðingur mikill og bjó til danska lifrarkæfu, par excellence. Eplakökur, pizzasnúð- ar og annað lostæti sem hún útbjó sjálf var reglulega á boðstólnum og sló alltaf í gegn. Amma átti líka alltaf lakkrístoppa langt fram í janúar á hverju ári. Eftir á að hyggja var það sennilega ekki óviljandi að hún bakaði alltaf jafn marga á ári hverju en hún vissi vel að yngsta bróðurnum fannst gott að lauma sér í einn eða tvo þegar komið var í heimsókn. Amma fylgdist vel með og hafði alltaf mikinn áhuga á því sem við bræðurnir vorum að bralla og í seinni tíð hafði hún rosalega gam- an af því að fá snapchat enda ávallt með puttann á púlsinum. Hún skildi samt ekki alltaf hvað við bræður vorum að bralla og er einkar minnisstætt þegar einhver spurði hana á förnum vegi hvað við værum að læra. Svarið var einfalt, „eitthvað með tölum“, sem var vissulega hárrétt hjá þeirri gömlu. Það var alltaf stutt í gleðina hjá ömmu og tók hún furðuvel í nánast öll okkar fíflalæti. Hún hafði mjög gaman af léttu slúðri og góðum sögum af okkur bræðrunum og var hægt að ræða lengi við hana um daginn og veginn. Ber er hver að baki nema sér bestu ömmu eigi. Leita þarf bæði á láði og legi í leit að betra lakkrístoppadeigi. Við munum sakna þinnar hlýju nærveru og umhyggjusemi, takk fyrir allt og hvíl í friði elsku amma. Arnar Birkir, Ágúst Freyr og Hákon Valur. Kær vinkona mín í sextíu ár, Ruth Bredahl Sörensen, er látin eftir hetjulega baráttu við erfiðan sjúkdóm. Við Ruth höfum verið saman í vinahópi erlendra kvenna, sem margar fundu sér íslenska maka, þó ekki Ruth því Benny fann hana. Þegar Benny kom fyrst til Ís- lands vann hann við bústörf á Skjaldarvíkurbúinu við Akureyri. En á sama tíma var rekið elliheim- ili í Skjaldarvík og þar vantaði konur til starfa við aðhlynningu vistmanna og við störf í eldhúsi. Benny dreif sig til Danmerkur og réð þá til starfa, fyrir hönd Stefáns eiganda Skjaldarvíkurheimilisins, systur sína og vinkonu hennar, sem var Ruth okkar. Ruth var þá aðeins 17 ára. Óhætt er að segja að þar hafi verið á ferð ást við fyrstu sýn. Ruth og Benny gengu í hjóna- band árið 1960 og eignuðust sitt fyrsta barn sama ár. Börnin urðu fjögur, Dan, Ester María, Elva og Brynjar. Ester María lifði aðeins í fáeina daga. Ruth og Benny fluttu til Akureyrar og settust þar að. Ruth vann við ræstingar á Sjúkrahúsinu á Akureyri í nokk- ur ár en ég var svo lánsöm að fá hana til samstarfs við Heilsu- gæslustöðina á Akureyri. Þar starfaði hún á kaffistofu starfs- manna. Á kaffistofunni skapaði Ruth einstaklega gott andrúms- loft, sem auðveldaði starfsfólkinu að slaka á og safna kröftum við sín daglegu störf. Það er svo eft- irminnilegt og ánægjulegt að hugsa til þess að fyrir hver jól bauð hún starfsfólkinu upp á heimalagaðan „dansk julefro- kost“ eins og hann gerist bestur. Allir sem þar sátu muna eftir síld- arréttunum hennar og heimalag- aðri lifrarkæfunni. Ruth eignaðist sjö barnabörn. Hún fylgdist vel með þeim öllum í námi og starfi og var verulega stolt af þeim. Það var mikið áfall þegar Benny lést skyndilega, að- eins fimmtugur. Benny starfaði þá sem bílstjóri hjá Shell og var á leið frá Dalvík til Akureyrar. Á leið sinni kom hann þar að fólks- bíl, sem hafði lent utan vegar. Hann bauðst til að draga bílinn upp á veginn en við það verk missti hann meðvitund og lést skömmu síðar. Í þeirri óvæntu sorg studdu Ruth og börnin hvert annað og stóðu sig hetjulega. Ruth kynntist síðar Eiði Eiðs- syni. Vinátta þeirra hefur nú stað- ið í 30 ár og verið þeim báðum mjög mikils virði. Við Kristinn og börnin okkar Hanna og Jens sendum Eiði, okk- ar kæra vini, og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. Konny Kristjánsdóttir. Ruth Bredahl Sörensen Það kemur margt í hugann þegar eldri bróðir er kvaddur eftir krókótta en nána samleið síð- ustu 70 árin. Gösli var lifandi og litríkur persónuleiki alla tíð. Það var ævintýri þegar ég fékk að skondra með í fyrstu smala- mennskurnar mínar. Hann stjórn- aði okkur í Tungunum. Þar lýsti hann örnefnum svæðisins eins og góðra leitarstjóra er háttur. Þegar hann í seinni ferðum var beðinn skýringa á ástæðum örnefnanna stóð ekki á þeim. Síðar komst ég reyndar að því að þar hafði nú kannski ekki alltaf verið kafað djúpt í sagnfræðinni. Stundum brá barna- og ung- lingahópurinn í Dalsmynni sér í sund niður í Kolviðarneslaug. Far- arskjótinn var 15 ha. Deutz með ófullkomnum palli. Raðað á aftur- brettin og pallinn eins og á tolldi. Svo fór það eftir því hvort Reynir eða Gösli keyrðu, hversu gætilega var farið. Kraftaverk að aldrei varð slys í þessum ferðalögum. Innan við tvítugt gerðist hann verktaki í jarðvinnslu. Fór um á dráttarvél með jarðtætara. Drátt- arvélin var húslaus 25 ha. Deutz með rúmlega metersbreiðum tæt- ara. Eftirspurnin mikil og verk- takinn ósérhlífinn. Lítið sofið. Töldu ýmsir að hann væri kominn upp á lag með að vinna þetta sof- andi. Gösli var vinnufíkill. Hann lagði múrverk fyrir sig og var af- kastamikill og virtur í því. Fræg er sagan sem gerðist fyrir tíma farsíma. Maður hringdi á símstöð- ina í Borgarnesi og bar upp vand- Ágúst Guðjón Guðmundsson ✝ Ágúst Guðjón Guðmundsson (Gösli) fæddist 6. júlí 1943. Hann lést 17. september 2021. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. ræði sín Hann þurfti að ná í mann sem ætti heima í Borgar- nesi, vissi ekki nafn- ið en væri kallaður Gösli. Símastúlkan vön slíkum símtöl- um var með síma- númerið í kollinum. Gösli heyrði þessa sögu og skráði sig Gösla í símaskránni eftir það. Hann var á löngu tímabili umfangsmikill með nokkra starfsmenn í vinnu. Hélst vel á starfsmönnum, enda alltaf létt yfir hópnum. Þegar mikið var undir var sólarhringurinn nýttur og helgarnar sömuleiðis. Hann var alltaf vakinn og sofinn yfir því að létta sér og sínum vinnuna með allskonar breytingum á tækjum sem notuð voru. Eða finna upp og jafnvel smíða verkfæri sem nýtt- ust vel. Ég sé hann enn ljóslifandi fyrir mér taka pásu í plötusteyp- unni, finna sér sæti og draga upp pípuna. Þegar hún var klár kom saga. Einhver góð saga sem hann kunni ógrynni af enda sögumaður af guðsnáð. Eða smellin vísa og tildrög hennar. Hann var að sjálf- sögðu ákaflega vel meðvitaður um að sannleikurinn má aldrei spilla góðri sögu. Já Gösli kunni ógrynni af snjöllum ljóðum og hnyttnum lausavísum sem hann fór með við öll möguleg og ómöguleg tæki- færi. Reyndar prýðilega hag- mæltur sjálfur. Hann var síðan einstakur öðlingur í umgengni, vildi hvers manns vanda leysa ef hann hafði tök á því. Reyndar hef ég hiklaust haldið því fram að ef allir væru eins og Gösli væru eng- in vandamál til í heiminum. Síðustu metrana glímdi hann við erfið veikindi sem reyndu bæði á hann og hans nánustu. Það var aðdáunarvert að sjá hvernig þeir stóðu eins og klettur að baki honum og gerðu honum kleift að eyða síðustu ævidögunum heima. Frá Dalsmynni fáið þið innileg- ar ástar- og samúðarkveðjur. – Hafdís, Freysi og þið öll. Svanur Heiðar Guðmundsson. Þá er enn eitt sumarið liðið. Tíminn týnist. Bróðir okkar Ágúst Guðjón, eða Gösli eins og flestir kannast betur við, hefur kvatt þennan heim eftir langa og stranga bar- áttu við krabbamein. Gösli var þriðja barnið í ört stækkandi systkinahópi og oft líf og fjör á heimilinu. Hann varð snemma fyrirferð- armikill, lífsglaður og hörkudug- legur. Eins og börn til sveita á þessum tíma lærði hann snemma að vinna og gera gagn, enda í mörg horn að líta við búskapinn. Hann fór sjaldnast troðnar slóðir, var mjög hugmyndaríkur og skreytti tilveruna með uppá- tækjum og sögum, alltaf hrókur alls fagnaðar. Reynir bróðir sem féll líka allt- of snemma frá var tveimur árum eldri. Þeir voru mjög samrýmdir í uppvextinum og tilviljanir réðu því að þeir fóru báðir í múraraiðn og unnu við hana alla tíð. Á þessum tímum þekktist ekki stytting vinnuvikunnar eða frí ef næg verkefni lágu fyrir og oft runnu saman dagur og nótt. At- hafnasemin og seiglan var alltaf söm. Við systkinin eigum ótal minn- ingar um góðan og lífsglaðan bróður og þökkum fyrir samfylgd- ina. Á svona tímamótum verða minningarnar dýrmætari. Elsku Hafdís og allur ykkar stóri hópur, innilegar samúðar- kveðjur. Megi bróðir okkar hvíla í friði. Kærleikskveðjur frá systkin- um. Tryggvi G. Guðmundsson. Ágúst Guðjón Guðmundsson, betur þekktur sem Gösli er fallinn frá. Hann var bróðir mömmu, gat því verið stoltur af því að geta kall- að hann Gösla frænda. Ég var svo heppinn að reglu- lega lágu leiðir okkar saman í vinnunni, ég í húsasmíðinni og hann að sjálfsögðu í múrverkinu. Það var alltaf skemmtileg upp- lifun að fá að vinna í kringum hann, alltaf nóg af sögum og vís- um. Alltaf upplifði maður eitthvað nýtt hjá honum, t.d. að fá sér kleinu með tveggja tommu þykku smjöri (aldrei séð neinn smyrja kleinu og aldrei séð svona þykkt lag af smjöri notað) þetta í fyrsta og eina skipti sem ég sá þessa út- færslu á kleinuáti, enda grenjaði ég úr hlátri yfir þessu. Stundum kom maður að hon- um í byrjun vinnudags, bíllinn í gangi og hann að leggja sig, ætl- aði sko ekki að missa plötuna, hreinlega vakinn og sofinn yfir hverju verkefni sem hann tók að sér og skilaði fagmannlega af sér. Ég stóð í íbúðarkaupum nokkrum sinnum og aldrei stóð á honum að koma og aðstoða. Eins og t.d. við fyrstu íbúðina sem ég keypti, fékk hann til að flísalegga baðherbergið fyrir mig. Hann gerði það vel og vandlega og að verki loknu fór ég að rukka hann um reikninginn en hann tók ekki í mál að rukka mig. Væri bara regla að mamman ætti að borga þegar um fyrstu íbúð væri að ræða. Hann rukkaði því systur sína en gaf henni fjölskylduaf- sláttinn. Endalaust væri hægt að rifja góðar sögur af honum, t.d. brenna sig á ljóskastaranum beint á vörumerkið, viðskipti hans við pípara, brunað út í búð eftir nýmjólk og slátri á meðan hinir pöntuðu sér pítsu, sitthvor ullarskokkurinn, klæða sig upp eftir erfiðan vinnudag til að fara út að borða og þá verður skalla- grímsbolur fyrir valinu og margt, margt fleira. Á svona stundum yljar maður sér við allar góðu minningar um þennan heiðursmann og höfð- ingja. Þær eru skemmtilegar, fá mann til að brosa og hlæja. Hafdísi, Óðni, Freysa, Ægi, Ölmu, Sonju og fjölskyldum votta ég samúð mína. Hvíl í friði frændi. Guðjón Heiðar Sveinsson. Skáldkonur ættu aldrei að deyja hvorki andlega né líkamlega séð. Í raun og veru deyja þær aldrei heldur gefst líkami þeirra upp á lífinu með sama hætti og líkami annarra. En þær hverfa þannig að þær leggjast bara í dvala og færast inn í minningu þeirra sem lifa og þekktu þær. Vilborg Dagbjartsdóttir var ein síðasta manneskjan sem mundi eftir því hvernig lífið var á Íslandi fyrir stríð og hvernig það var í þorpi að alast upp í kreppunni eftir 1930. Hún mundi líka eftir árunum þegar ameríski herinn fæddi þjóðina úr fátækt með fyrstu komu sinni og hvað seinni koma hans olli von- brigðum þegar Nato var stofnað og gerði að engu óskina um var- anlegan frið eftir að Bandaríkin og Rússland, vinaþjóðir, höfðu sigrað nasismann. Með Nato var bræðralag þeirra gert að engu. Fólk til vinstri leit þess vegna á Nato sem harmleik. Því fannst að með því hefðu leifarnar af djöfli nasismans smeygt sér á milli bræðraþjóða, sundrað hug- sjónum og leitt til þess að kalt stríð hófst sem átti eftir að vekja tortryggni og pólitíska hjátrú, auk fordóma. Vilborg kom af útkjálka líkt og flestir nemendur gamla Kennaraskólans en þar vöktu þeir andrúmsloft frjálslyndis þótt ekki væru allir sammála í stjórnmálum. Hugmyndin um mannúð var öllu ofar skyld sam- hjálpinni sem hafði löngum ein- Vilborg Dagbjartsdóttir ✝ Vilborg Dag- bjartsdóttir fæddist 18. júlí 1930. Hún lést 16. september 2021. Útförin fór fram 28. september 2021. kennt líf almenn- ings í listinni að lifa við þröngan kost. Í skólanum þrengdi útkjálkinn sér líka inn á miðju hug- mynda um að þjóð- lífið ætti að vera eins og hjá kenn- arastéttinni að allir væru jafn réttháir. Með þeim rétti fylgdi jöfn skylda sem tengdist hvorki samkeppni né algeru frelsi. Enda ef frelsið er algert víkur það frá skyldum og vekur hugmyndir sem leiða til öngþveitis. Kennarinn átti að vera andstæða þess. Hann er hliðstæður móður sem heldur óreiðunni í skefjum. Á tímum kalda stríðsins varð heimili Vilborgar og Þorgeirs Þorgeirssonar samkomustaður stöðugrar samræðu fremur en byltingar. Þrátt fyrir Nato, járn- tjaldið og kalda stríðið, eða kannski vegna þessa tvenns, urðu tímarnir frjóir fyrir listir og hugsun með þörf fyrir að vakna á öllum sviðum og vera ís- lensk og alþjóðleg í senn. Þannig kom fram sú skoðun að í marx- ismann vantaði að öreiginn hefði sálarlíf, hann var ekki bara kúg- að vinnudýr. Börn urðu börn sem höfðu ekki bara notagildi til hagsældar í framtíðinni. Í þessa átt gat andinn leitað í Kenn- araskólanum og á heimili Vil- borgar og Þorgeirs sem hafði fram yfir hana að hafa lært í Menntaskólanum latínu og hún saknaði þess að í Kennaraskól- anum hefði ekki verið kennd þessi dána eilífa tunga. Nú dvelur Vilborg í einu sí- gildu tungu lífsins, þeirri að vera að eilífu dáin. En sál mín og okk- ar, sem lifum enn og söknum hennar, er „barmafull af tárum“ eins og segir í ljóði. Guðbergur Bergsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.