Morgunblaðið - 05.10.2021, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2021
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
vinnuföt fást einnig í
40 ÁRA Ingi Þór Ingi-
bergsson er Keflvíkingur
og er með diplómu í upp-
tökutækni og kerfisstjórn
frá Promennt. Hann er
kerfisstjóri hjá Reykjanes-
bæ og dagskrárgerðar-
maður hjá RÚV. „Ég er
með næturvaktina annan
hvern laugardag á Rás 2.
Ég var hjá Rúv til 2012 en
varð eftir það tæknistjóri í
Hljómahöllinni. Núna sé ég
um tölvukerfið hjá bænum
en við erum þrír kerfis-
stjórar þar.“
Tónlist, veiði, golf, bad-
minton, borðtennis, útivera
og kaldir pottar eru meðal
áhugamála Inga Þórs. „Ég
elska að vera í köldu vatni
og var fyrir stuttu á nám-
skeiðinu Kaldir karlar hjá
Andra Iceland. Það var æðislegt.
Svo er ég tónlistarmaður sjálfur og er akkúrat í þessum töluðum orðum að
skrá fyrstu plötuna mína á hljodrit.is og er að fara að setja hana út á Spotify.
Markmiðið er að hún komi út á afmælisdaginn en ég veit ekki hvort það
tekst,“ segir Ingi Þór, en rætt var við hann á föstudaginn. „Þetta eru lög sem
ég gerði fyrir 20 árum. Þetta er tölvutónlist með ekta stöffi líka, alls konar
sömplum. Ég veit eiginlega ekki hvaða stimpil ég á að setja á þetta.“ Lista-
mannsnafn Inga Þórs er Ingi Thoe.
FJÖLSKYLDAN Eiginkona Inga Þórs er Anna Margrét Ólafsdóttir, f.
1981, jógakennari og grunnskólakennari í Vífilsstaðaskóla á miðstigi. Börn
þeirra eru Bergrún Björk, f. 2007, Skarphéðinn Óli, f. 2009, og Rannveig
Guðrún, f. 2018. Foreldrar Inga Þórs eru Ingibergur Þór Kristinsson, f.
1949, húsasmíðameistari, og Guðrún Júlíusdóttir, f. 1953, fyrrverandi sýning-
arstjóri á Keflavíkurflugvelli. Þau eru búsett í Keflavík.
Ingi Þór Ingibergsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þrátt fyrir að þú viljir losna úr viðj-
um vanans er metnaðargirnd þín vakin.
Orka þín og ákvarðanir láta hlutina gerast,
ekki bara fyrir þig.
20. apríl - 20. maí +
Naut Margt verður til að dreifa athygli
þinni. Hafðu augun opin fyrir tækifærum og
nýttu þér alla þá fyrirgreiðslu sem þér
býðst.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Hættu að vantreysta sjálfum þér
því þú ert fullfær um að takast á við hlutina
og hefur nægilega þekkingu. Nýir mögu-
leikar eru fyrir hendi sem þú ættir að reyna
að nýta þér.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Búðu þig undir miklar breytingar
sem dynja yfir innan skamms. Breyttu við-
brögðum þínum, ekki síst við ástvinum sem
endurtaka sig eins og rispaður geisladiskur.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þeir eru nærri sem vilja ólmir fá að
nýta sér starfskrafta þína. Er ekki frábært
hversu góðum árangri maður nær ef maður
er sáttur þótt aðrir haldi að maður hafi
rangt fyrir sér.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Réttu einhverjum í fjölskyldunni eða
á heimilinu hjálparhönd. Láttu eftir í litlu
málunum og haltu þínu striki í þeim stóru.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú þarft að horfast í augu við vanda-
mál liðins tíma. Láttu það eftir þér að vera
þú sjálfur og hafðu ekki óþarfa áhyggjur.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú þarft að ræða málin við
vinnufélaga þína svo einhver skriður komist
á samstarfið. Þú þarft líka að sýna þolin-
mæði og tillitssemi í dag.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Stundum er nauðsynlegt að
geta ekki bara lesið það sem á blaðinu
stendur heldur líka það sem er skrifað milli
línanna.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Fjölskyldumálin virðast stefna í
einhvern hnút. Þú gefur mikið af sjálfum
þér og lætur skoðanir þínar sterklega í ljós.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Að þínu mati er mikilvægara að
gera gagn en að vera miðdepill en ekki fara
allir eftir reglunum í bókinni þinni.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú hefur byrinn með þér til að klára
þau verkefni sem setið hafa á hakanum.
Með örlítilli fyrirhyggju ættirðu að geta
sveigt atburðarás dagsins þér í hag.
horfa á, telja og merkja fugla. „Megn-
ið af mínum sumarfríum undanfarin
ár hefur farið í svoleiðis fuglastúss,
vinnu með fuglafræðingum og fugla-
fólki við rannsóknir og skráningu, að-
allega í Flatey á Breiðafirði. Svo það
sem Geirfuglunum og Benna Hemm
Hemm auk þess að vera meðlimur í
hljómsveitarkórnum Kliði. Hann býr
og starfar í Reykjavík.
Helstu áhugamál Ragnars Helga
eru tónlist og fuglar, sem sagt það að
R
agnar Helgi Ólafsson er
fæddur 5. október 1971
í Reykjavík og ólst upp
í Fossvoginum. Hann
gekk í Fossvogsskóla
og Réttarholtsskóla og varð stúdent
frá Menntaskólanum við Sund 1991.
Hann lauk BA-prófi í heimspeki frá
Háskóla Íslands 1997, diplómanámi í
kvikmyndaleikstjórn við The New
York Film Academy 1998, MA-prófi í
myndlist frá École Supérieure des
Beaux-Arts í d’Aix-en-Provence,
Frakklandi 2001 og MA-prófi í ritlist
frá Háskóla Íslands 2016
Ragnar er höfundur sjö bóka. Sú
nýjasta, Bókasafn föður míns – sálu-
messa, kom út á haustdögum 2018 og
hlaut tilnefningu til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna. Áður hafði
Ragnar hlotið Bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar fyrir bók
sína Til hughreystingar þeim sem
finna sig ekki í samtíma sínum og
verið tilnefndur til Menningar-
verðlauna DV og Íslensku bók-
menntaverðlaunanna fyrir bókina
Handbók um minni og gleymsku.
Bækur Ragnars hafa komið út er-
lendis í frönskum og þýskum þýð-
ingum. Nýjasta bók hans, Laus blöð,
er væntanleg í nóvember 2021.
Ragnar Helgi hefur sýnt innsetn-
ingar og tekið þátt í gjörningum víða
um heim, í söfnum eins og KIASMA í
Helsinki, MoMA PS1-Colony í New
York, TBA21 í Vínarborg, Dimen-
sions Variable í Miami, Nýló, Lista-
safni Reykjavíkur og Listasafni Ís-
lands. Næsta sýning hans verður í
Moskvu í desember en verk hans
„Dagrenning, að eilífu“ verður hluti
af opnunarsýningu nýs samtíma-
listasafns borgarinnar, GES-2, sem
hefur starfsemi í gömlu gasstöð
Kremlverja í nágrenni við Rauða
torgið.
Ragnar Helgi er annar aðstand-
enda bókaútgáfunnar Tunglsins for-
lags og ritstjóri tímaritsins Ljóð-
bréfs. Ragnar Helgi hefur um árabil
hannað bækur og kápur fyrir bóka-
forlög á Íslandi og á meginlandinu.
Eftir hann liggja ríflega 500 bók-
arkápur.
Ragnar Helgi kennir stunda-
kennslu við Listaháskólann og leikur
tónlist með ýmsum hljómsveitum svo
að horfa á fugla er líklega það sem
næst kemst því að kallast mitt hobbí.
Þegar ég var strákur voru for-
eldrar mínir á kafi í bókaútgáfu og
fastir gestir á Bókamessunni í Frank-
fúrt. Hún var jafnan sett til höfuðs af-
mælisdeginum mínum, svo þau voru
gjarnan í útlöndum þennan dag og
við bræðurnir í pössun hjá ömmu og
afa eða frænkum. Nú er það síðan ég
sjálfur sem er á kafi í bókaflóðinu í
september og október, að lesa yfir og
hanna bækur annarra og ganga frá
mínum eigin,“ en Ragnar Helgi
reiknar með að nýjasta bókin eftir
hann fari í prentun í dag, á sjálfan af-
mælisdaginn. „Það er nokkuð gild-
vaxið safn ljóða og texta sem ber tit-
ilinn Laus blöð. Það hefur því lítið
breyst frá æskuárunum: Afmælið
mitt er alltaf í miðjum heyönnum
bókafólksins svo það gefst jafnan lítill
tími til hátíðarhalda.
Venjulega lofa ég sjálfum mér að
halda einhverja litla hátíð nokkru síð-
ar, þegar maður hefur blásið úr nös –
en það er nú upp og ofan hvort af því
Ragnar Helgi Ólafsson, rithöfundur og myndlistarmaður – 50 ára
Stórfjölskyldan Sjötugsafmæli Elínar, móður Ragnars Helga, í Sarasota í Flórída árið 2019.
Afmælið alltaf í miðju bókastússi
Með rafmagnsgítar Ragnar Helgi
spilar með ýmsum hljómsveitum.
Í Flatey Ragnar Helgi ásamt Vöku,
barnabarni sínu, og þrastarunga.
Til hamingju með daginn