Morgunblaðið - 05.10.2021, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 05.10.2021, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2021 Svíþjóð B-deild: Brage – Öster........................................... 2:2 - Bjarni Mark Antonsson var ekki í leik- mannahópi Brage. - Alex Þór Hauksson lék allan leikinn og skoraði fyrir Öster. Danmörk B-deild: Esbjerg – HB Köge.................................. 2:0 - Ísak Óli Ólafsson kom inn á sem vara- maður á 29. mínútu hjá Esbjerg og Andri Rúnar Bjarnason var ekki í leikmanna- hópnum. 0-'**5746-' HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Ásvellir: Haukar – Selfoss ................... 19.30 Í KVÖLD! DÓMARAR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Erlendur Eiríksson, reyndasti dómari úrvalsdeildar karla í fótbolta árið 2021 var jafnframt besti dómari deild- arinnar samkvæmt einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gunnar Oddur Hafliðason, einn af yngstu dómurum landsins, var hins vegar besti dómarinn í úrvalsdeild kvenna samkvæmt sömu einkunna- gjöf. Morgunblaðið gefur dómurum ein- kunnir á skalanum einn til tíu fyrir alla leiki í úrvalsdeildum karla og kvenna. Erlendur, sem varð fimmtugur á árinu, dæmdi fjórtán leiki í úrvals- deild karla og sýndi mesta stöðug- leikann af þeim ellefu dómurum sem dæmdu 131 af 132 leikjum deild- arinnar á nýliðnu keppnistímabili. Nítjánda tímabilið Erlendur, sem hefur nú dæmt nítján tímabil í úrvalsdeild karla, fékk níu sinnum einkunnina 8 og einu sinni einkunnina 9 fyrir frammistöðu sína. Þá fékk hann þrisvar sinnum 7 í einkunn og aðeins einu sinni 6. Hann fékk þar með hæstu meðalein- kunnina, 7,71 fyrir leikina fjórtán. Pétur Guðmundsson, Jóhann Ingi Jónsson og Þorvaldur Árnason voru í næstu sætum á eftir Erlendi. Vil- hjálmur Alvar Þórarinsson var besti dómarinn samkvæmt einkunnagjöf- inni undanfarin þrjú ár en varð að sætta sig við sjötta sætið að þessu sinni. Dómararnir ellefu sem dæmdu í ár fengu þessar einkunnir: 1: Erlendur Eiríksson fékk 7,71 í meðaleinkunn í 14 leikjum. 2: Pétur Guðmundsson fékk 7,57 í meðaleinkunn í 7 leikjum. 3: Jóhann Ingi Jónsson fékk 7,43 í meðaleinkunn í 14 leikjum. 4: Þorvaldur Árnason fékk 7,43 í meiðaleinkunn í 7 leikjum. 5: Ívar Orri Kristjánsson fékk 7,38 í meðaleinkunn í 16 leikjum. 6: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson fékk 7,29 í meðaleinkunn í 17 leikj- um. 7: Sigurður Hjörtur Þrastarson fékk 7,27 í meðaleinkunn í 11 leikj- um. 8: Elías Ingi Árnason fékk 7,25 í meðaleinkunn í 8 leikjum. 9: Helgi Mikael Jónasson fékk 7,13 í meðaleinkunn í 16 leikjum. 10: Einar Ingi Jóhannsson fékk 6,91 í meðaleinkunn í 11 leikjum. 11: Egill Arnar Sigurþórsson fékk 6,80 í meðaleinkunn í 10 leikjum. Tólfti dómarinn sem dæmdi í deildinni var Arnar Þór Stefánsson sem dæmdi einn leik, í lokaumferð- inni, og fékk þar 6 í einkunn. Gunnar Oddur fékk átta í meðaleinkunn Í úrvalsdeild kvenna er öðruvísi fyrirkomulag en þar dæmir ekki fá- mennur hópur eins og í karladeild- inni. Alls dæmdu 30 dómarar leikina 90 í deildinni og margir þeirra aðeins einn til tvo leiki. Gunnar Oddur, sem er 25 ára gamall, fékk tvívegis einkunnina 9 í þeim fimm leikjum sem hann dæmdi í deildinni. Aðeins þeir sem dæmdu fimm leiki eða meira komu til greina í út- reikningunum á besta dómaranum og þar varð niðurstaðan þessi: 1: Gunnar Oddur Hafliðason fékk 8,00 í meðaleinkunn í 5 leikjum. 2: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson fékk 7,60 í meðaleinkunn í 5 leikjum. 3: Gunnar Freyr Róbertsson fékk 7,40 í meðaleinkunn í 5 leikjum. 4: Guðmundur Páll Friðbertsson fékk 7,25 í meðaleinkunn í 8 leikjum. 5: Ásmundur Þór Sveinsson fékk 7,00 í meðaleinkunn í 9 leikjum. 6: Helgi Ólafsson fékk 6,17 í með- aleinkunn í 6 leikjum. Samkvæmt sömu einkunnagjöf var Guðmundur Páll Friðbertsson besti dómarinn árið 2020. Árið 2019 fengu dómarar í úrvalsdeild kvenna í fyrsta sinn einkunnir í Morg- unblaðinu og þá urðu Gunnar Oddur Hafliðason og Gunnar Freyr Ró- bertsson efstir og jafnir. Sá reyndasti var bestur á árinu 2021 - Erlendur Eiríksson og Gunnar Oddur Hafliðason efstir í einkunnagjöf dómara Ljósmynd/Kristinn Steinn Traustason Bestur Erlendur Eiríksson hugar að Orra Hrafni Kjartanssyni, leikmanni Fylkis, í leik Árbæjarliðsins gegn Breiðabliki á Íslandsmótinu í sumar. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Bestur Gunnar Oddur Hafliðason fékk bestu einkunnir allra í úrvalsdeild kvenna. Hér sýnir hann Gary Martin gula spjaldið í leik í 1. deild karla. Markvörðurinn Elías Rafn Ólafsson sló um helgina met í dönsku úrvals- deildinni þegar hann lék sinn fimmta leik með Midtjylland í deild- inni í 4:0 sigri gegn AGF. Hefur hann ekki enn fengið á sig mark í leikjunum fimm. Með því að halda hreinu í fyrstu fimm úrvalsdeildarleikjum sínum í Danmörku sló Elías Rafn met sem danski landsliðsmarkvörðurinn Frederik Rönnow átti. Sá fékk á sínum tíma ekki á sig mark í fyrstu fjórum leikjum sínum með liði Hor- sens í dönsku úrvalsdeildinni. Elías Rafn sló met í Danmörku Ljósmynd/Szilvia Micheller Öflugur Elías Rafn hefur farið frá- bærlega af stað með Midtjylland. Þorvaldur Örlygsson verður ekki áfram þjálfari karlaliðs Stjörn- unnar í knattspyrnu. Félagið til- kynnti í gær að hann hefði verið ráðinn í starf sem rekstrarstjóri knattspyrnudeildar félagsins. Þorvaldur kom til liðs við Stjörn- una síðasta vetur, fyrst til að vera samhliða Rúnari Páli Sigmunds- syni, en tók síðan alfarið við liðinu þegar Rúnar hætti störfum eftir fyrsta leikinn á Íslandsmótinu í vor. Karlalið Stjörnunnar er því án þjálfara um þessar mundir og er leit hafin að arftaka Þorvalds. Stjarnan leitar að nýjum þjálfara Ljósmynd/Kristinn Steinn Traustason Breyting Þorvaldur breytir til og tekur við nýju starfi hjá Stjörnunni. _ Álftnesingurinn Alex Þór Hauksson skoraði sitt fyrsta mark í atvinnu- mennsku þegar hann komst á blað hjá Öster í 2:2-jafntefli liðsins gegn Brage í sænsku B-deildinni í knatt- spyrnu karla í gærkvöldi. Alex Þór, sem er 21 árs, gekk til liðs við Öster frá Stjörnunni í janúar á þessu ári og var að spila sinn 11. deildarleik á tímabilinu. _ Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur samið við ísraelska leikstjórn- andann Naor Sharon Sharabani og mun hann leika með karlaliði félags- ins á komandi tímabili. Sharabani er ætlað að fylla skarð Dags Kárs Jóns- sonar sem samdi við spænska C- deildarliðið Ourense um liðna helgi. Sharabani hefur áður leikið hér á landi, en hann var á mála hjá Val síð- ari hluta tímabilsins 2019/2020, þar sem hann var með 13,8 stig og 6,9 stoðsendingar í leik að meðaltali áður en það var flautað af vegna kórónu- veirufaraldursins. _ Englendingurinn Chris Brazell, sem er aðeins 29 ára gamall, hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Gróttu í knattspyrnu en hann tekur við af Ágústi Þór Gylfasyni sem hefur stýrt liðinu undanfarin tvö tímabil. Brazell hefur starfað hjá Gróttu í tvö ár og verið yfirþjálfari yngri flokka, auk þess sem hann var aðstoðarþjálfari karlaliðsins á nýloknu keppnistímabili. _ Viðræður um að sameina karlalið Leiknis á Fáskrúðsfirði og Fjarða- byggðar í knattspyrnu eru að fara af stað en Austurfrétt skýrði frá þessu í gær. Sameiginlegt lið myndi væntan- lega taka sæti Leiknis í 2. deild en Fjarðabyggð féll niður í 3. deildina í haust. _ Aðfaranótt mánudags sló leik- stjórnandinn Tom Brady hjá Tampa Bay Buccaneers met í NFL-deildinni í ameríska fótboltanum og það gegn sínu gamla liði New Eng- land Patriots. Hann er nú orðinn sá leik- stjórnandi sem hefur náð flestum heppn- uðum sendingum í jördum talið. Í fyrsta leikhluta sló hann metið og var þá kominn í 80,359 jarda. Eitt ogannað Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Eftir að tveir af elstu leikmönnunum í íslenska A-landsliðshópnum heltust úr lestinni í gær vegna meiðsla, þeir Jóhann Berg Guðmundsson og Jón Guðni Fjóluson, er ljóst að Ísland hefur sjaldan eða aldrei teflt fram jafn reynslulitlum hópi í undan- keppni stórmóts og gegn Armeníu og Liechtenstein á föstudag og mánudag. Í þeim 25 manna hópi sem nú stendur eftir hefur Arnar Þór Við- arsson landsliðsþjálfari til umráða átján leikmenn sem hafa spilað 12 eða færri landsleiki. Níu þeirra eru með fimm eða færri leiki að baki. Mikael Egill Ellertsson, 19 ára framherji frá SPAL á Ítalíu, sem bættist við í gær, hefur aldrei spilað A-landsleik og Daníel Leó Grét- arsson, 26 ára varnarmaður frá Blackpool á Englandi, hefur leikið einn vináttulandsleik. Þeir sjö sem eftir standa af þeim reyndari eru Birkir Bjarnason og Birkir Már Sævarsson sem hafa leikið 101 landsleik hvor, Ari Freyr Skúlason með 81 landsleik, Viðar Örn Kjartansson með 30, Guðlaugur Victor Pálsson með 28, Albert Guð- mundsson með 25 og Hjörtur Her- mannsson með 23 landsleiki. Næstir á eftir þeim koma síðan Jón Dagur Þorsteinsson og markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson með 12 leiki hvor. Sjö leikmenn í hópnum eru enn þá gjaldgengir með 21-árs landsliðinu sem spilar einmitt næsta leik sinn í undankeppni Evrópumótsins gegn Portúgal á þriðjudaginn kemur, 12. október. Ljósmynd/@BlackpoolFC Valinn Daníel Leó Grétarsson hefur leikið einn A-landsleik. Átján reynslulitlir í landsliðinu - Sjö í hópnum hafa spilað fleiri en 12 landsleiki

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.