Morgunblaðið - 05.10.2021, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 05.10.2021, Qupperneq 27
HANDBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Hafnfirðingurinn Gísli Þorgeir Kristjánsson, landsliðsmaður í handknattleik, er kominn á fulla ferð með þýska liðinu Magdeburg. Gísli hefur jafnað sig eftir aðgerð á öxl og hefur lagt sitt af mörkum hjá Magdeburg sem hefur byrjað nýtt keppnistímabil frábærlega og er taplaust. „Ég er bara góður og með fullt sjálfstraust varðandi sjálfan mig og öxlina. Það hefur ekkert plagað mig hingað til og mér líður vel í öxlinni. Ég hef verið með á öllum æfingum síðustu mánuði og gengið hrikalega vel. Ég hef spilað meira og meira. Í síðasta leik á móti Melsungen spil- aði ég í 40 mínútur sem var ekki auðveldur leikur fyrir okkur að vinna. Í leiknum þar á undan á móti Leipzig spilaði ég síðasta korterið og kom inn á þegar við vorum und- ir. Það er skemmtilegt að koma aft- ur inn í slíkar aðstæður, þegar spennan er sem mest. Ég er í raun kominn aftur í handboltagírinn,“ sagði Gísli þegar Morgunblaðið heyrði hljóðið í honum. Gísli fór úr axlarlið 21. mars og fór í aðgerð í framhaldinu. „Ég myndi segja að bataferlið hafi verið nokkurn veginn á áætlun. Eftir að hafa rætt við lækninn gerði ég mér engar væntingar um að komast snemma af stað aftur. Ég vildi taka mér eins mikinn tíma og ég þyrfti til að fá mig góðan. Þegar ég meiddist var ég ekki með sér- staka tímasetningu í huga en gerði mér þó ákveðnar vonir um að vera leikfær þegar deildin byrjaði. Þetta er allt gott og blessað núna. Ég sé heldur ekki eftir því að hafa gefið mér tíma til að koma öxlinni í gang. Þetta lítur vel út og er allt sam- kvæmt áætlun.“ Framtíðin er spennandi Þrátt fyrir að vera tiltölulega ungur leikmaður hefur Gísli fengið stóran skammt af meiðslum og hef- ur þrívegis lent í axlarmeiðslum. Hjálpaði það honum að hafa áður gengið í gegnum svipað endurhæf- ingarferli? „Ég er auðvitað búinn að lenda þrisvar í einhverjum axlar- meiðslum. Það hjálpaði mér á viss- an hátt í endurhæfingunni því ég vissi betur hvað er óhætt að gera og hvenær. Það hjálpaði auðvitað að þekkja ferlið. Ef ég ætti að fara í verknám í sjúkraþjálfun þá myndi ég segja að ég væri búinn með það varðandi axlir og það sem þeim tengist. Ég er orðinn góður í því,“ sagði Gísli í léttum dúr en bætti við á alvarlegri nótum: „Maður er búinn að upplifa nokk- uð margt varðandi meiðsli og kannski aðeins of mikið. En ég tek það fram að ég er mjög sáttur á þeim stað sem ég er í dag og fram- tíðin er spennandi. Ekki síst þar sem við erum með frábært lið hjá Magdeburg og góðan þjálfara. Félagsskapurinn er góður. Ég get ekki beðið um meira.“ Stefnan sett á titilinn Talandi um styrk Magdeburgar- liðsins þá hefur hann komið fram í upphafi keppnistímabilsins. Liðið hef- ur unnið fyrstu sex leikina í þýsku bundesligunni og er í toppsætinu. „„So far, so good.“ Við stefnum á að vinna hvern einasta leik í deildinni og taka titilinn. Svo einfalt. Alvörumark- mið fyrir alvörulið. Það er bara stað- an,“ sagði Gísli og að hans mati er breiddin hjá Magdeburg nægilega góð til að halda dampi heima fyrir og í Evrópudeildinni þar sem liðið mun spila við Logrono, Sävehof, Aix, RK Gorenje og Nexe í riðlakeppninni. „Já ég myndi segja að Magdeburg væri með meiri breidd en undanfarin ár og liðið lítur vel út. Við höfum fengið flotta leikmenn. Tvo Dani, Magnus Saugstrup og Mike Jensen, einn Þjóðverja, Philipp Weber, og Hollendinginn Kay Smits. Þeir eru frábær viðbót og pluma sig vel í okk- ar leikstíl. Það verður brjálað álag á okkur næstu mánuði og þétt spilað. Í byrjun nóvember verður landsliðs- pása og þá væri fínt að komast að- eins heim.“ Keppir aftur í heimsbikarnum Gísli var staddur í Sádi-Arabíu þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær. Þangað kom lið Magdeburgar á sunnudaginn eftir tólf tíma ferða- lag. Þar mun liðið hefja leik í dag í heimsbikar félagsliða. „Jú, ég fór í þessa keppni fyrir tveimur árum með Kiel og þá urðum við í 2. sæti. Þessi keppni er alltaf að stækka og Barcelona og Álaborg eru til dæmis hérna. Þetta er alvörumót og við tökum það að sjálfsögðu alvar- lega. Góður árangur í þessu móti getur hjálpað liðinu fjárhagslega. Við vonumst eftir því að vinna fyrstu tvo leikina og þá ættum við að lenda á móti Álaborg í undanúrslitum,“ sagði Gísli Þorgeir en með Álaborg leikur Aron Pálmarsson sem kunn- ugt er. Gísli Þorgeir er kominn aftur í handboltagírinn - Kennir sér einskis meins í upphafi nýs tímabils - Metnaður hjá Magdeburg AFP Mættur Gísli Þorgeir Kristjánsson sem hér fagnar marki í leik gegn Frökkum á heimsmeistaramótinu í Egypta- landi í byrjun þessa árs, er kominn á fulla ferð aftur með liði Magdeburg sem hefur unnið alla sína leiki í haust. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2021 Þeir sem höfðu áhyggjur af því fyrir ekki svo löngu að hægt gengi að endurnýja íslenska karlalandsliðið í fótbolta geta varpað öndinni léttar. Hlutirnir hafa gerst hratt á þessu ári, sérstaklega á síðustu vikum. Af 22 leikmönnum sem skipuðu hóp Íslands í fyrsta leik ársins 2021, gegn Þýskalandi í Duisburg í mars, eru aðeins átta í hópnum fyrir leikina tvo gegn Armeníu og Liechtenstein. Og samt vantaði bæði Alfreð Finn- bogason og Gylfa Þór Sigurðs- son í þann leik. Ástæðurnar fyrir þessu eru fyrst og fremst þríþættar. Þó nokkrir glíma við meiðsli, í það minnsta tveir eru hættir með landsliðinu og svo eru það erfiðu málin sem hafa skekið íslenska fótboltaheiminn í haust. Þar eru nú þrír lykilmanna Íslands undanfarin ár utan hóps. Enginn veit í dag hvort þeir eigi eftir að spila aftur fyrir Íslands hönd. Uppbygging á nýju liði er því hafin þó það sé á öðrum for- sendum en til stóð. Arnar Þór Viðarsson er með fullt af ungum og efnilegum leikmönnum í hópnum og það verður fróðlegt að sjá enn fleiri af þeim fá tæki- færi í leikjunum tveimur. Í raun minnir þetta um margt á umskiptin á landsliðinu árin 2009-2011 þegar Ólafur Jóhann- esson þáverandi landsliðsþjálfari stokkaði upp liðið, tók inn alla þá ungu og efnilegu menn sem þá voru nýkomnir fram í sviðsljósið og gaf þeim dýrmæta reynslu. Þeir fóru í gegnum sína fyrstu undankeppni stórmóts án þess að fá mörg stig en það breyttist hratt á næstu árum. Ef rétt er staðið að hlutunum núna er hægt að endurtaka leikinn og eignast virkilega samkeppnis- hæft landslið á ný á fáum árum. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Arnar Davíð Jónsson varð um helgina í öðru sæti á Brunswik Open 2021 í Wittelsheim í Frakk- landi en mótið er hluti af evrópsku mótaröðinni í keilu. Arnar varð í 26. sæti í forkeppni mótsins en komst síðan upp í efsta sætið fyrir lokaúrslitin. Þar beið hann síðan lægri hlut fyrir Carl Eklund frá Svíþjóð í tveimur leikjum, 245:244 og 213:258. Arnar vann þessa móta- röð fyrstur Íslendinga árið 2019 en hún hefur að miklu leyti legið niðri síðan og er nú smám saman að kom- ast aftur í eðlilegt horf. Arnar varð ann- ar í Frakklandi Silfur Arnar Davíð Jónsson lék til úrslita á mótinu í Frakklandi. Knattspyrnusamband Evrópu veitti í gær Breiðabliki undanþágu til að leika heimaleikinn gegn París SG í Meistaradeild kvenna annað kvöld á Kópavogsvelli. Áður hafði Kópa- vogsvelli verið hafnað sem keppn- isstað þar sem ekki væri nægilegt ljósmagn í flóðljósum vallarins. Ey- steinn Pétur Lárusson fram- kvæmdastjóri Breiðabliks sagði við Morgunblaðið í gær að hægt væri að auka ljósmagnið um 15 prósent og UEFA hefði fallist á að það væri nóg þó það uppfyllti ekki kröfurnar að fullu. Undanþága fyr- ir Kópavogsvöll Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kópavogur Breiðablik tekur á móti stórliði PSG annað kvöld. Íslendingaliðin Magdeburg og Aalborg taka þátt í heimsbikarkeppni fé- lagsliða karla í handknattleik sem hefst í Jeddah Sádi-Arabíu í dag. Þar leika tíu lið úr öllum heimsálfum um heimsbikarinn, eða Super Globe. Magdeburg, Aalborg og Barcelona eru fulltrúar Evrópu, Al Duhail frá Katar er fulltrúi Asíu, Zamalek frá Egyptalandi er fulltrúi Afríku, San Francisco CalHeat frá Bandaríkjunum er fulltrúi Norður-Ameríku og Kar- íbahafsins, Pinheiros frá Brasilíu er fulltrúi Suður- og Mið-Ameríku og Sydney University frá Ástralíu er fulltrúi Eyjaálfu. Þá eru tvö sádiarabísk lið með sem gestgjafar, Al Wehda og Al-Noor. Magdeburg mætir Sydney University í fyrstu umferð í dag og Al Wehda mætir San Francisco. Í 8-liða úrslitum á morgun leikur Magdeburg eða Sydney við Al Duhail, Aalborg mætir Al Wehda eða San Francisco, Pinheiros mætir Al-Noor og Barcelona mætir Zamalek. Undanúrslitin eru leikin á fimmtudag og þar myndu Magdeborg og Aal- borg mætast ef þau vinna sína leiki. Síðan fara úrslitaleikir um fyrsta og þriðja sætið fram á laugardaginn. Tíu lið leika um heimsbikarinn Sennilega hafa ekki margir af- rekað það að dæma tvo bik- arúrslitaleiki í tveimur íþrótta- greinum á sama sólarhringnum. Það gerði hins- vegar Sigurður Hjörtur Þrast- arson, dómari í knattspyrnu og handknattleik, um nýliðna helgi. Á föstudagskvöld var Sigurður á Laugardalsvellinum og dæmdi þar úrslitaleik Breiðabliks og Þróttar í bikarkeppni kvenna í knattspyrnu, Mjólkurbikarnum. Sá leikur hófst klukkan 19.15 og var lokið um klukkan 21.10. Um hádegisbilið á laugardag var Sigurður mættur á Ásvelli í Hafn- arfirði og var þar annar dóm- aranna á úrslitaleik KA/Þórs og Fram í bikarkeppni kvenna í hand- knattleik, Coca Cola-bikarnum. Sá leikur hófst klukkan 13.30, eða aðeins rúmum sextán klukku- tímum eftir að úrslitaleiknum á Laugardalsvellinum lauk. vs@mbl.is Dæmdi tvo úrslitaleiki á sama sólar- hringnum Sigurður Hjörtur Þrastarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.