Morgunblaðið - 05.10.2021, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 05.10.2021, Qupperneq 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2021 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „Þetta er mín fyrsta sýning á Íslandi og líka í fyrsta sinn sem ég kem til Íslands,“ segir enski myndlistar- maðurinn Perry Roberts sem opnaði fyrir skömmu sýninguna Below and Beyond, sem þýða mætti sem Undir niðri og handan við, í Hverfisgalleríi. Þar hitti blaðamaður hann fyrir í vikunni og virti fyrir sér heillandi málverk sem eru ekki öll þar sem þau eru séð og vaxa eftir því sem lengur er horft. Roberts fæddist 1954, stundaði grunnnám í myndlist í Dyfed-lista- háskólanum í Wales og hlaut BA- og MFA-gráður frá Goldsmith’s lista- háskólanum í London. Þar lauk hann meistaranámi árið 1989. Hann býr nú og starfar í Antwerpen í Belgíu og hafa verk hans verið sýnd á tug- um sýninga í fjölda landa og virtum sýningarrýmum á borð The Draw- ing Center í New York og Whitecha- pel-galleríið í London. Saumar verkin sjálfur Við hefjum samtalið á ástæðu þess að Roberts er að sýna hér á landi. „Ég á nokkra íslenska vini í Ant- werpen,“ svarar Roberts og segist þannig hafa fundið fyrir tengingu við Ísland. Vindurinn gnauðar fyrir utan og greinilegt að veturinn er á næsta leiti. Hann reynist fullkomin hljóðmynd fyrir blæbrigðarík og naumhyggjuleg verk Roberts sem máluð eru í ólíkum tónum svarts og hvíts og oft glittir í brúnleitan strig- ann. Þegar nær er farið koma saum- ar í ljós og Roberts útskýrir að verk- in séu málaðir flekar sem saumaðir hafa verið saman listavel. Hann seg- ist sjálfur sjá um saumaskapinn og nota til þess frekar hefðbundna saumavél sem dóttir hans á. Roberts egir þessa saumaaðferð heldur nýtil- komna hjá sér. Mætti mótspyrnu Roberts segir að á fyrri hluta fer- ils síns hafi hann gert póst-mínímal- ísk verk og þau hafi mætt nokkurri andspyrnu á þeim tíma þar sem hin nýja fígúrasjón naut vaxandi vin- sælda. „Ég þurfti stundum að verja verkin mín af krafti fyrir fólki sem gagnrýndi þau harðlega, sagði þau leiðinleg og ekkert væri að gerast í þeim,“ segir Roberts kíminn. Námið í Goldsmith’s hafi reynst dýrmætur undirbúningur, bæði hvað listsköp- un varðar og sjálfsvörn því nemend- ur hafi verið duglegir við að gagn- rýna verk hver annars og mikið spáð og spekúlerað í listina með kennur- um sínum. Roberts er spurður hvort hann hafi fundið rödd sína snemma í mál- aralistinni og segist hann reyndar hafa byrjað í skúlptúr á áttunda ára- tugnum. Hann hafi síðar flutt til London, þurft að fóta sig í stórborg- inni, læra að lifa af og borga reikn- ingana. „Það var ekki fyrr en ’87 eða ’88 sem ég fór að gera verk sem mér fannst dálítið róttæk og áhugaverð og fór að finna mína rödd,“ útskýrir Roberts. „Goldsmith’s hjálpaði mik- ið til hvað það varðar.“ Leikur að pósitífu og negatífu Verk Roberts í Hverfisgalleríi eru „afrakstur agaðrar þróunar hans á abstrakt og naumhyggjulegu sjón- rænu tungumáli sem á í samræðu við arkitektúr og málarahefðina, að miklu leyti innblásin af hugmynda- og naumhyggjulist sjötta og sjöunda áratugarins“, svo vitnað sé í texta Birtu Guðjónsdóttur og Roberts leikur sér með hið pósitífa og nega- tífa bæði í málverkum og teikn- ingum, skefur litinn af eða byggir upp. Liturinn er stundum næfur- þunnur, stundum þykkur og í teikn- ingum sem sjá má í römmum innar í galleríinu hefur hann skafið ofan í litaðan pappír svo úr verður hálf- gerð sjónhverfing, ekki ljóst í fyrstu hver aðferðin er, hvað er undir og hvað ofan á. Þessu líkir Roberts við vinnu fornleifafræðinga, uppgröft og úrvinnslu. Hann segir verk sín að hluta til snúast um listmálun sem gjörning, þ.e. að mála málverk. Og svartur er ekki bara svartur og hvítur ekki bara hvítur heldur eru blæbrigðin ótalmörg. „Ég hef gert heilu mál- verkasyrpurnar út frá ólíkum hvít- um tónum,“ bendir Roberts á og að þau blæbrigði séu vissulega fínleg. Horfir inn á við Roberts er spurður hvernig hon- um hafi gengið sem listamanni í kóf- inu og segist hann lítið hafa fundið fyrir því hvað listsköpunina varðar, enda vanur að vinna einn á sinni vinnustofu. „Ég horfi mikið inn á við í verkum mínum, þau snúast um listina sjálfa þannig að utanaðkom- andi áhrif eru lítil sem engin,“ bend- ir hann á. Roberts hefur komið víða við á ferlinum og unnið með fólki úr öðr- um skapandi greinum, þeirra á með- al arkitektum og hönnuðum og gert vegglistaverk, rýmisverk og texta- verk, hannað húsgögn og verið sýn- ingarstjóri, svo fátt eitt sé upp talið og sjá má í formi texta og mynda á vefsíðu hans, perryroberts.com. Síðast en ekki síst hefur Roberts sinnt háskólakennslu sem hann seg- ist hafa gaman af þó hann hafi að vísu stundum áhyggjur af nemend- um sínum, hvernig þeim líði og hvernig þeim gangi í listsköpun sinni. Ótalmörg og fínleg blæbrigði - Enski myndlistarmaðurinn Perry Roberts sýnir í fyrsta sinn á Íslandi - Tenging við Ísland í gegnum íslenska vini - Segir nám í Goldsmith’s hafa reynst sér vel í að skapa list og verja hana Morgunblaðið/Unnur Karen Sý fyrsta Sýning Perry Roberts í Hverfisgalleríi er fyrsta sýning hans hér á landi. Sýningunni lýkur 6. nóvember. Verkefnið Húsnæðiskostur & hí- býlaauður hlaut styrk úr Minningar- sjóði Guðjóns Samúelssonar er út- hlutað var úr sjóðnum fyrir helgi. Alls bárust tólf umsóknir um styrk- inn en í tilkynningu segir að eftir yfirlegu stjórnar sjóðsins hafi verið ákveðið að veita verkefninu styrk- inn. Að verkefninu Húsnæðiskostur & híbýlaauður standa Anna María Bogadóttir arkitekt og menningar- fræðingur, Hildur Gunnarsdóttir arkitekt, Ásgeir Brynjar Torfason viðskiptafræðingur, Hrefna Björk Þorsteinsdóttir arkitekt, Hólmfríður Jónsdóttir arkitekt og Snæfríð Þor- steins hönnuður. Veittur er styrkur til útgáfu bókar og miðlunar rannsókna á sviði hús- næðismála frá sjónarhóli arkitekt- úrs og hönnunar. Í bókinni er þróun húsnæðiskosta á Íslandi spegluð í al- þjóðlegu samhengi hugmynda-, fé- lags- og fagurfræði sem og hag- rænna þátta og verður lögð áhersla á gæði húsnæðis og áhrif þeirra á heilsu og upplifun fólks. Markmiðið með útgáfunni er að brýna rödd og þekkingu fag- og fræðafólks á sviði hönnunar og arkitektúrs til áhrifa á sviði húsnæðismála. Aukin þekking á húsagerðarlist Minningarsjóður Guðjóns Sam- úelssonar var stofnaður samkvæmt erfðaskrá Guðjóns Samúelssonar húsameistara, en Guðjón lést í apríl árið 1950. Hann var ókvæntur og barnlaus þegar hann lést. Í erfða- skránni kemur fram að það sem af- gangs verður af eignum hans skuli renna til stofnunar sjóðs í hans nafni og skal tilgangurinn vera að breiða út þekkingu á íslenskri húsagerðar- list. Minningarsjóðurinn hefur veitt styrki frá árinu 1995 í kjölfar sölu á húseign hans á Skólavörðustíg 35. Guðjón er einn áhrifamesti og af- kastamesti arkitekt sem Ísland hef- ur alið. Hann var fyrstur Íslendinga á 20. öld til að ljúka háskólaprófi í byggingarlist og gegndi stöðu húsa- meistara ríkisins nær allan sinn starfsferil. Guðjón teiknaði margar af helstu byggingum Reykjavíkur og kennileiti bæja og byggðarlaga víða um landið. Eins kom hann að skipu- lagsmálum, og gerði skipulags- uppdrætti að mörgum bæjum. Hlutu styrk Guðjóns - Húsnæðiskostur & híbýlaauður hlaut styrk úr Minningar- sjóði Guðjóns Samúelssonar - Rannsaka húsnæðismál Minningarstyrkur Þátttakendur í verkefninu Húsnæðiskostur & híbýlaauð- ur veittu styrknum viðtöku en hann verður notaður til útgáfu og miðlunar. Myndlistarmað- urinn Guðjón Ketilsson hefur verið valinn til þess að halda yfirlitssýningu á verkum sínum í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum haustið 2022. Verk Guðjóns verða þá sýnd í sýningarröð þar sem sjónum er beint að ferli starf- andi listamanna sem þegar hafa með fullmótuðum höfundar- einkennum sett svip sinn á íslenska listasögu. Fyrri listamenn í sýning- arröðinni eru Guðný Rósa Ingi- marsdóttir – en sýning hennar var opnuð um liðna helgi, Sigurður Árni Sigurðsson, Ólöf Nordal, Har- aldur Jónsson og Anna Líndal. Guðjón (f. 1956) hefur komið víða við á löngum ferli. Einkum hefur hann lagt rækt við skúlptúr en teikning leikur einnig stórt hlut- verk í listsköpun hans. Áberandi í verkum hans er áherslan á hand- verk, enda eru verk hans kunn fyrir listfengi, hugvitssemi og alúð. Hann hefur haldið á þriðja tug einkasýninga og tekið þátt í fjölda samsýninga, heima og erlendis. Guðjón valinn til að sýna næstur Guðjón Ketilsson - Sýnir næsta haust Í tengslum við sýninguna Mannamyndir, sem var opnuð í Ljósmyndasal Þjóðminjasafns um liðna helgi, fjallar María Kjartansdóttir ljósmyndari um mannamyndir út frá sjónarhóli myndlistarinnar í fyrirlestri í safn- inu í hádeginu í dag. Fyrirlesturinn hefst kl. 12 og verður einnig streymt á YouTube. Verk Maríu sýna oft mannverur í samspili við náttúruna og eru gjarn- an nokkurs konar könnun á mögu- leikum hvers staðar. Ljósmyndir hennar eru draumkenndar í frásögn sinni en búa jafnframt yfir sam- kennd með viðfangsefninu. María útskrifaðist með MFA- gráðu frá Glasgow Shool of Art árið 2007. Síðan hefur hún búið og starf- að í London, Glasgow, París og nú síðast í Reykjavík og sýnt ljós- myndun og myndbandalist víða. Nýjasta verkefni hennar er stutt- myndin og ljósmyndasyrpan Sprungur. Aðgöngumiði í safnið gildir að fyrirlestrinum. Fjallar um manna- myndir - María segir frá María Kjartansdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.