Morgunblaðið - 05.10.2021, Blaðsíða 32
Fyrsta Kúnstpása nýs starfsárs Íslensku óperunnar
verður í hádeginu í Norðurljósasal Hörpu í dag, kl. 12,
og ber yfirskriftina „Ástríður og örlög“. Flytjendur á
tónleikunum eru Egill Árni Pálsson tenór, Ingibjörg Al-
dís Ólafsdóttir sópran og Hrönn Þráinsdóttir píanóleik-
ari. Listamennirnir hafa starfað saman um árabil og
komið víða fram saman á tónleikum, bæði hérlendis og
erlendis. Á efnisskránni eru vel þekktar aríur og dúett-
ar. Tónleikarnir marka upphaf starfsárs Íslensku óper-
unnar. Aðgangur er ókeypis.
Egill Árni og Ingibjörg Aldís syngja
í Kúnstpásu Óperunnar í hádeginu
Ómar Garðarsson
Vestmannaeyjum
Sigurmundur Gísli Einarsson er
einn öflugra frístundabænda í Vest-
mannaeyjum sem nýta heimalandið,
Heimaey og stærstu úteyjarnar, til
sumarbeitar. Slátra sjálfir og allt er
nýtt. Líka mörinn sem notaður er í
sláturgerð en einnig í tólg eins og við
þekkjum sem teljum soðinn fisk,
saltaðan og skötu heimsins mesta
lostæti.
Þegar tólgin fór að pirra magann
byrjaði Sigurmundur að leita nýrra
verkunaraðferða. Leitaði í smiðju
Vestfirðinga með sinn hnoðmör en
þróaði hann áfram. Niðurstaðan er
einstök afurð og brjóstsviðinn er á
bak og burt.
„Við bjuggum á Arnarhóli, Faxa-
stíg 10, og þar var fjárhús. Þetta var
lítill hringur, Reykir rétt hjá þar
sem voru kindur og Bjarni í Breið-
holti var með kindur og svo var
slátrað heima,“ segir Sigurmundur
um uppvaxtarárin í Eyjum. „Þegar
kom að því að slátra fullorðnum
kindum gátu pabbi og afi ekki komið
að því. Það urðu aðrir að gera. Þær
voru vinir þeirra og þeir áttu erfitt
með að sjá á eftir þeim,“ bætir
Simmi við en faðir hans er Einar
Gíslason, oft kenndur við Betel í
Vestmannaeyjum, og afi hans Gísli
Jónsson. Bjó hann í kjallaranum á
Arnarhóli.
„Þannig að maður ólst upp við
þetta og heldur í hefðirnar. Einn ná-
granninn var Svenni Tomm, en við
vorum á Ísleifi VE þegar hann
strandaði austur við Ingólfshöfða
1975. Einhvern tímann var Svenni
fenginn til að fylgjast með þegar
hleypt var til. Hrútarnir hétu eftir
helstu höfðingjum heimsins á þeim
tíma, Krúsjeff og Kennedy, og pabbi
sagði við Svenna að þeir vissu alveg
hvað ætti að gera. „Sérðu girndina,
sérðu lostann, hann skín framan úr
honum,“ sagði hann og benti á einn
hrútinn.“
Passað var upp á skyldleikann en
einhvern tímann klikkaði það og þá
hrópaði Einar: „Sveinn, æ, æ, þetta
er amma hans.“
Þessi hefð hefur haldist en úr
vöndu var að ráða þegar tólgin lét
finna fyrir sér hjá Simma. „Ég fékk
alltaf brjóstsviða af feitinni og þá fór
ég að leita annarra leiða í staðinn
fyrir að henda henni út. Vestfirð-
ingar eru þekktir fyrir sinn hnoðmör
sem þeir verka á sérstakan hátt.
Gústi á Kap, vinur minn, pantaði
alltaf skötu að vestan fyrir okkur,
ósaltaða tindabikkju. Það fylgdi allt-
af með pakki af grænum mör og ég
tók eftir því að ég fékk ekki brjóst-
sviða af honum.“
Þetta varð til þess að Simmi fór að
leita leiða til að búa til sinn eigin
hnoðmör. „Nú er ég kominn með það
sem passar mér. Tek mörinn, bý til
kúlu sem ég loka af þannig að loft
kemst ekki að og geymi í kaldri
geymslu þar sem ljós kemst ekki að.
Hér er ég með ársgamlan mör sem
sannar að þetta er geymsluaðferð
sem hefur virkað og tólgin er ljúf á
bragðið með sætu eftirbragði. Núna
viljum við Unnur ekkert annað út á
saltfisk og skötu. Finnst ekkert var-
ið í hann öðruvísi. Erum búin að
finna bragð sem okkur þykir mjög
gott. Tek skræðurnar frá,“ segir
Simmi.
Framleiða hnoðmör
með ljúfu eftirbragði
- Fjárbændur í Eyjum leita nýrra leiða við að verka mör
Morgunblaðið/Óskar Pétur
Veisla Hjónin Sigurmundur Gísli Einarsson og Unnur Ólafsdóttir.
Rúningur Fjárbændur í Vestmannaeyjum rýja fé í Heimakletti.
2021
MIÐASALAHEFSTÁ
FIMMTUDAGKL. 10!
18.DESEMBERÍHÖLLINNI
FJARÐARKAUPOGGÓA
KYNNA Í SAMVINNU VIÐCOCA-COLA
EYÞÓRINGI · GISSURPÁLL
HÖGNI · JÓHANNAGUÐRÚN
MARGRÉTRÁN · STEFANÍASVAVARS
SVALA · SVERRIRBERGMANN
JÓLASTJARNAN ·SIGURVEGARI Í JÓLALAGAKEPPNI RÁSAR 2
FIT JÓLAGESTIR WWW.JÓLAGESTIR.IS
ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 278. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Erlendur Eiríksson var besti dómarinn í úrvalsdeild
karla í fótbolta á árinu 2021 og Gunnar Oddur Hafliða-
son besti dómarinn í úrvalsdeild kvenna. Þetta var
niðurstaðan úr einkunnagjöf Morgunblaðsins fyrir leik-
ina í þessum deildum á nýliðnu keppnistímabili. »26
Erlendur og Gunnar bestu dómarar
ÍÞRÓTTIR MENNING