Morgunblaðið - 08.10.2021, Page 1
F Ö S T U D A G U R 8. O K T Ó B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 236. tölublað . 109. árgangur .
TÆKIFÆRI
TIL AÐ EFLA
SAMSKIPTIN UNGT OG ÓREYNT LIÐ
SKRIFAR
UM ÖRLÖG
FLÓTTAMANNA
ÍSLAND MÆTIR ARMENÍU Í KVÖLD 27 GURNA FÉKK NÓBELINN 28ÍSLAND OG PÓLLAND 14
fyrra ári, m.a. vegna aukinna
launaútgjalda sem virðist vera
langt umfram tekjuaukningu vegna
útsvars.
Sigurður sagði hratt vaxandi
launakostnað sannarlega vera eina
helstu ógnina í fjármálum sveitar-
félaga. „Við sjáum líka að launa-
hækkanir hafa verið miklu meiri
hjá sveitarfélögum en á almenna
markaðnum og jafnvel hjá ríkinu.
Það á sérstaklega við árið í ár,“
sagði hann. »4
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Sveitarfélög sem eru með mikil út-
gjöld vegna þjónustu við fatlað fólk
eru varla fjárhagslega sjálfbær,
nema til komi aukið fjármagn frá
ríkinu. Þetta kom fram í máli Sig-
urðar Á. Snævars, sviðstjóra hag-
og upplýsingasviðs Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, á fjármála-
ráðstefnu sambandsins í gær.
Vitnaði hann til rannsóknar
Analytica á fjárhagslegri sjálfbærni
sveitarfélaga sem kynnt verður
innan tíðar en Sigurður sagði að
málefni fatlaðs fólks væru líklega
ein stærsta áskorun sveitarfélaga.
Fram kom á ráðstefnunni í gær
að sveitarstjórnarfólk hefur veru-
legar áhyggjur af auknum launa-
kostnaði sveitarfélaga. Aldís Haf-
steinsdóttir, formaður stjórnar
sambandsins, sagði líkur benda til
að á yfirstandandi ári muni fjár-
hagsstaða sveitarfélaga versna frá
Sum eru varla fjárhagslega sjálfbær
Morgunblaðið/Eggert
Umræður Um 400 fulltrúar eru
saman komnir á fjármálaráðstefnu.
- Sveitarstjórnarfólk hefur áhyggjur af hærri launakostnaði
_ Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir,
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköp-
unarráðherra, segir að saman þurfi
að fara hljóð og mynd þegar við
segjumst vilja orkuskipti í sam-
göngum. „Til að ná þessum mark-
miðum þarf að vera til raforka, því
hún er nýtt í þetta allt saman,“ seg-
ir Þórdís sem kveðst taka undir orð
Tómasar Más Sigurðssonar, for-
stjóra HS Orku, í ViðskiptaMogg-
anum í fyrradag um að virkja þyrfti
meira af endurnýjanlegum orku-
gjöfum hér vegna orkuskipta í sam-
göngum, þ.e. rafvæðingar bílaflot-
ans og framleiðslu eldsneytis. »6
Raforkan þurfi að
vera til staðar
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Gríðarleg tækifæri eru fyrir Ísland á hinum sí-
stækkandi markaði rafíþrótta. Um þessar mund-
ir fer fram heimsmeistaramót í tölvuleiknum
League of Legends í Laugardalshöll, sem ráð-
gert er að hundruð milljóna manna muni fylgjast
með um allan heim. Eins og sést á myndinni að
ofan er Laugardalshöllin nær óþekkjanleg fyrir
vikið.
„Það sem hefur verið gefið út er að þetta séu
um 100 milljónir svokallaðra tenginga inn á úr-
slitaviðureignina. Það er erfitt að vita hvað eru
margir á bak við öll þau merki,“ segir Ólafur
Hrafn Steinarsson, formaður Rafíþrótta-
sambands Íslands, og bætir við að margir geti
að festa okkur í sessi sem áfangastaður í þessu.
Þetta er algjör hvalreki fyrir okkur að fá þetta,“
segir Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri
greiningar hjá Íslandsbanka, við Morgunblaðið.
Hann segir einnig að rafíþróttir séu komnar
fram úr hjólreiðum, tennis og formúlu 1 hvað
tekjur og verðlaunafé varðar.
Hildur Bæringsdóttir, verkefnastjóri hjá Ís-
landsstofu, segir það hlutverk Íslandsstofu að fá
aðstandendur viðburða, á borð við þann sem nú
er haldin í Höllinni, til þess að líta til Íslands.
„Við erum nú þegar byrjuð og komin í samtal
við aðra mótshaldara á sviði rafíþrótta,“ segir
Hildur.
Ítarleg umfjöllun um heimsmeistaramótið í
Laugardalshöll er á sérstökum rafíþróttavef
mbl.is, mbl.is/sport/rafithrottir.
safnast saman til þess að horfa á mótið í gegnum
eitt streymi. Þótt það geti komið Íslendingum
spánskt fyrir sjónir safnast rafíþróttaáhuga-
menn, t.d. í Asíu, gjarnan saman í partíum til
þess að horfa á heimsmeistaramótið, rétt eins og
Íslendingar gera þegar Eurovision eða heims-
meistaramótið í knattspyrnu er á dagskrá.
Stærsti viðburður í Íslandssögunni
„Við getum gengið út frá því að á meðan mótið
er í gangi séu, á hverri stundu, tugir milljóna um
allan heim að mæta í einhver partí til þess að
fylgjast með einhverju sem er að gerast í ein-
hverri handboltahöll í Laugardalnum,“ segir
Ólafur og fullyrðir að mótið sé stærsti viðburður
sem haldin hefur verið á Íslandi fyrr og síðar.
„Ég sé ekki annað en að við getum grætt á því
Dauðafæri fyrir Ísland
Ljósmynd/Riot Games-Wojciech Wandzel
Rafíþróttamót League of Legends í Laugardalshöll. Liðið Cloud9 frá Kaliforníu atti kappi gegn tyrkneska liðinu Galatasaray og bar sigur úr býtum.
- Augu hundraða milljóna manna beinast að Laugardalshöll - Gríðarleg tækifæri
fólgin í því að halda fleiri stórmót - Búið að bóka allt að 20 þúsund gistinætur
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ólafur Sindri Helgason, yfirhag-
fræðingur Húsnæðis- og mann-
virkjastofnunar, telur fátt benda til
að raunverð íbúða á höfuð-
borgarsvæðinu lækki á næstunni.
Tilefnið er að það hefur aldrei
verið jafn hátt og að Seðlabankinn
skuli hafa vísað til hækkandi íbúða-
verðs við vaxtaákvörðun í fyrradag.
Nafnverð íbúða á höfuðborgar-
svæðinu hefur u.þ.b. fimmfaldast
síðan 2002 og raunverðið ríflega tvö-
faldast. Íbúð sem kostaði 30 millj-
ónir árið 2002 kostar því nú rúmar
65 milljónir miðað við raunverð, þ.e.
að teknu tilliti til verðbólgu.
Fjórfalt lægri en árið 2002
Magnús Árni Skúlason, hagfræð-
ingur hjá Reykjavík Economics,
bendir á að meginvextir Seðlabank-
ans hafi lækkað úr rúmlega 6% í des-
ember 2002 í 1,5% í dag.
„Vextir á íbúðalánum endurspegla
þessa breytingu. Verð eigna hækkar
í takt við lækkandi vexti og öfugt.
Kaupmáttur launa hefur aukist um
50% á sama tíma,“ segir Magnús
sem tekur undir að fátt bendi til að
raunverð íbúða á höfuðborgarsvæð-
inu muni lækka á næstunni.
Áfram
sögulega
hátt verð
- Fátt þykir benda
til að íbúðaverð lækki
Vísitala íbúðaverðs
700
600
500
400
300
200
100
2002 2021
Höfuðborgarsvæðið, 2002-2021
Jan. 1994= 100
Nafnverð
Raunverð
Heimild: Seðlabankinn
MSpá áfram … »12