Morgunblaðið - 08.10.2021, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
T H E T E L E G R A P H
S . F. C H R O N I C L E
B B C
T I M E O U T
90%
F R Á L E I K S T J Ó R A T H E R I T U A L
R E B E C C A H A L L
N I G H T H O U S E
T H E
T O D A R K A N D D A N G E R O U S P L A C E S”
“A F I L M T H A T A L L O W S T H E M I N D T O G O
S I L V E R S C R E E N R I O T
86%
O R I G I N A L C I N
T H E A U ST I N C H R O N I C L E
SÍÐASTA BOND MYNDIN MEÐ DANIEL CRAIG
ÞESSA VERÐA ALLIR AÐ SJÁ Í BÍÓ
84%
K
vikmyndagerðarmaðurinn
Árni Ólafur Ásgeirsson
lést 26. apríl á þessu ári,
aðeins 49 ára að aldri, eft-
ir alvarleg veikindi. Árni nam kvik-
myndaleikstjórn í Póllandi við virtan
kvikmyndaskóla í Lodz og var altal-
andi á pólsku. Fyrsta kvikmynd hans
í fullri lengd, Blóðbönd, kom út árið
2006 og þótti áhrifaríkt fjöl-
skyldudrama. Önnur kvikmyndin,
Brim, þótti einnig vel heppnuð sem
og teiknimyndin Lói – þú flýgur aldr-
ei einn, sem var hans þriðja bíómynd,
frumsýnd árið 2018 og sagði af lóu-
unga sem skilinn er eftir af fjölskyldu
sinni og þarf að lifa veturinn af.
Allt eru þetta í grunninn drama-
tískar myndir, líkt og síðasta kvik-
mynd Árna í fullri lengd, Wolka, sem
frumsýnd var í öllum sölum Bíós
Paradísar í fyrrakvöld. Er sú fram-
leidd af íslenskum og pólskum fyr-
irtækjum og með styrkjum frá
kvikmyndamiðstöðvum beggja
landa. Myndin er að mestu tekin upp
í Vestmannaeyjum og nær eingöngu
töluð pólska í henni. Er þetta því
fyrsta kvikmynd íslensks leikstjóra
þar sem pólska er aðaltungumál
myndarinnar og nær allir leikarar
pólskir. Tími til kominn, mætti segja,
því á þriðja tug þúsunda Pólverja búa
á Íslandi. Og í mynd Árna er ekki
bara einhver pólskur leikari í
aðalhlutverki heldur ein skærasta
kvikmyndastjarna Póllands, Olga
Boladz, sem leikur söguhetjuna
Önnu.
Wolka er, samkvæmt minni eftir-
grennslan, pólskt slanguryrði yfir
„tugthúslim“ og bið ég alla Pólverja
og pólskumælandi sem þetta sjá af-
sökunar ef svo er ekki. En líklegt
þykir mér að það sé rétt því í mynd-
inni segir af Önnu sem lokið hefur af-
plánun 15 ára fangelsisdóms í heima-
landi sínu Póllandi. Fyrir hvaða sakir
kemur fyrst í ljós í lokahluta mynd-
arinnar en skiptir svo sem ekki höf-
uðmáli fyrir framvinduna. Anna er
hörð í horn að taka eins og sjá má
strax í einu fyrsta atriði myndarinnar
þar sem hún nefbrýtur einn sam-
fanga sinna fyrir að rífa kjaft. Anna
virðist ofarlega í goggunarröð fang-
elsisins og þegar hún öðlast frelsi
heldur hún beint í gamla hverfið sitt
á fund náunga sem kallaður er Páf-
inn. Sá virðist vera einhvers konar
glæpaforingi og biður hún hann að
hafa uppi á konu að nafni Dorota.
Hver þessi Dorota er kemur ekki í
ljós fyrr en vel er liðið á myndina og
reynist það áhugaverð ráðgáta fyrir
bíógesti.
Dorota býr í Vestmannaeyjum og
þangað heldur Anna með fölsuð skil-
ríki. Með því hefur hún rofið skilorð
og greinilegt að glæpir eru henni
tamir því við það eitt að komast til
Vestmannaeyja fremur hún þrenns
konar glæpi, sem ekki verður nánar
farið út í. Hún hefur uppi á Dorotu
sem fölnar upp þegar hún sér Önnu
og greinilegt að heimsóknin er henni
ekki að skapi. Eiginmaður Dorotu
býður Önnu að snæða kvöldverð með
fjölskyldunni, þeim hjónum og tveim-
ur börnum þeirra, ungri dóttur og
unglingssyni, Tomma. Dorota gerir
Önnu grein fyrir í einrúmi að hún
vilji ekki sjá hana, vilji að hún fari frá
Vestmannaeyjum og komi aldrei aft-
ur. Anna lætur ekki segja sér fyrir
verkum og fer að starfa í frystihúsi
við að spúla fiskikör. Hún venur einn-
ig komur sínar á bar og kynnist þar
vingjarnlegum barþjóni sem Guð-
mundur Ingi Þorvaldsson leikur
ágætlega. Meira skal ekki sagt um
söguþráðinn en þó það að ráðgátan
er leyst um miðbik myndarinnar, þ.e.
hver tengsl Önnu og Dorotu eru og
upp úr því stefnir í dramatískt upp-
gjör kvennanna. Inn í fléttast svo
óvæntur vinskapur Önnu og Tomma
sem dreymir um að losna undan oki
foreldra sinna og ganga í pólska her-
inn.
Wolka er vönduð kvikmynd, fag-
mannlega leikstýrt og leikurinn er
prýðilegur. Ekki vissi ég að aðal-
leikkonan, Boladz, væri kvikmynda-
stjarna í heimalandinu og það kemur
mér ekki á óvart eftir að hafa horft á
hana í hlutverki Önnu. Áhrifamest
eru þau atriði þar sem Anna fellir
grímuna og gerir áhorfendum grein
fyrir þeim mikla missi og sársauka
sem hún hefur mátt þola. Það örlar á
von um að Anna geti fundið hamingj-
una á ný og jafnvel eignast fjölskyldu
og hafið nýtt líf en hvatvísin er henn-
ar akkilesarhæll og lífi hennar virðist
ætlað að vera harmleikur. Frelsið er
vissulega yndislegt, eins og Nýdönsk
söng um hér um árið, en Anna virðist
ekki kunna með það að fara.
Aðrir leikarar gefa Boladz lítið eft-
ir og Anna Moskal er þar einna
eftirminnilegust sem hin stranga
Dorota. Hinn ungi Jan Cieciara
stendur sig líka afbragðsvel í hlut-
verki Tomma og Eryk Lubos í hlut-
verki eiginmanns Dorotu, Krystian.
Wolka hefur verið skilgreind sem
þriller en ég er frekar á því að hún sé
drama og harmleikur þótt spennandi
sé á köflum. Árni og meðhandritshöf-
undur hans halda áhorfandanum á
tánum framan af en eftir að í ljós
kemur hvernig í pottinn er búið, þ.e.
hver forsaga kvennanna tveggja er,
missir sagan nokkuð dampinn og
endalokin verða heldur fyrirsjáanleg.
Því miður, verður að segjast, því
framan af er Wolka mjög áhugaverð
og mann þyrstir í að vita meira.
Engu að síður er hiklaust hægt að
mæla með þessari vönduðu kvik-
mynd Árna heitins, líkt og fyrri verk-
um hans.
Þekkt Olga Boladz í hlutverki Önnu í Wolku. Boladz mun vera afar þekkt og virt leikkona í Póllandi.
Frelsið er yndislegt
Bíó Paradís
Wolka bbbmn
Leikstjórn: Árni Ólafur Ásgeirsson.
Handrit: Árni Ólafur Ásgeirsson og
Michal Godzic. Aðalleikarar: Olga Bo-
ladz, Anna Moskal, Eryk Lubos, Jan
Cieciara og Guðmundur Ingi Þorvalds-
son. Ísland, Pólland, 2021. 100 mín.
Sýnd á RIFF.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Rokksveitin
Dimma fagnar
útgáfu nýjustu
breiðskífu sinn-
ar, Þögn, með
tónleikum í Eld-
borg í Hörpu í
kvöld kl. 20.30.
Dimma hefur
gefið út sex
hljóðversplötur,
fimm tónleikaplötur og átt fjölda
vinsælla laga í útvarpi.
Á útgáfutónleikunum mun sveit-
in flytja Þögn í heild sinni auk fleiri
vinsælla laga af ferli sveitarinnar.
Hljómsveitina skipa söngvarinn
Stefán Jakobsson, gítarleikarinn
Ingó Geirdal, bassaleikarinn Silli
Geirdal og trommuleikarinn Egill
Örn Rafnsson.
Dimma fagnar
Þögn í Eldborg
Stefán Jakobsson
Menningarhátíð
hófst í gær á Sel-
tjarnarnesi og
stendur yfir til
sunnudags. Tvær
sýningar voru
opnaðar í gær,
annars vegar á
hljóðverki Gunn-
ars Gunnsteins-
sonar, „Sækúlu“,
í Gróttuvita og hins vegar á sýn-
ingu frönsku myndlistarkonunnar
Mathilde Morant, Viti Project, í
Vitavarðarhúsinu en þar sýnir hún
vatnslitamyndir af 110 vitum á Ís-
landi. Guðrún Einarsdóttir opnaði
einnig sýninguna Málverk í Gall-
eríi Gróttu á Eiðistorgi og sýn-
ingin Sköpunarkraftur kynslóð-
anna var opnuð í bókasafninu.
Ýmislegt verður í boði um
helgina, Gunnar Helgason rithöf-
undur kemur í heimsókn á bóka-
safnið og Árni Heimir Ingólfsson,
píanóleikari og tónfræðingur, býð-
ur upp á Kyrrðarstund með Bach.
Pálmi Jónasson sagnfræðingur,
rithöfundur og fréttamaður stend-
ur fyrir menningargöngu um
æskuskóðir sínar og boðið verður
upp á Bílabíó, svo fátt eitt sé nefnt.
Dagskrá má finna á seltjarn-
arnes.is.
Menningarhátíð
á Seltjarnarnesi
Gunnar Helgason