Morgunblaðið - 08.10.2021, Page 15

Morgunblaðið - 08.10.2021, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 2021 Geldinganes Sól rís, sól sest, söng Róbert Arnfinnsson um árið í söngleiknum Fiðlaranum á þakinu. Hann hefði án efa tekið lagið við þessa sjón í Geldinganesi er sólin hneig þar til viðar eitt kvöldið. Báturinn hefur farið í sína hinstu för. Unnur Karen Hvernig stendur á því að stjórn- málaflokkarnir bregðast ekki við aug- ljósum annmörkum á lagareglum um dómstóla, þó að ítrekað hafi verið bent á þá með þeim hætti að enginn þarf að efast? Ég hef um árabil fjallað um þetta í ræðu og riti og fært fram lýsingu á stað- reyndum sem enginn hefur getað efast um að séu réttar. Nú síðast sendi ég frá mér hlaðvarps- þætti (sex talsins) þar sem farið er yfir meginreglur sem dómstólum ber að virða í störfum sínum og nefni dæmi um að freklega hafi verið brotið gegn þeim. Í síðasta þættinum ræði ég umbætur á lögum sem auðvelt er að koma á til þess að bæta þessa þýðingarmiklu starf- semi svo um munar. Af einstökum breytingum er þýðing- armest að afnema sjálfdæmi dómaraelít- unnar um val á nýjum dómurum í Hæstarétt. Á því sviði liggja fyrir handföst dæmi um misnotkun á valdi til þess arna. Þannig eru bein dæmi um að við mat á umsækjendum sé breytt um viðmiðanir milli ára í því skyni að hefja vini og kunningja upp yfir aðra sem sitjandi dómurum kann að vera í nöp við. Þetta hafa allir séð og margir lögfræðingar fjallað um á opinber- um vettvangi. En það er eins og stjórnmálamönnum sé alveg sama. Nú er verið að mynda nýja ríkisstjórn og mætti þá ætla að fjallað væri um úrbætur á lagareglum um dómstóla sem allir sjá að eru nauðsynlegar í því skyni að reyna að uppfylla þær kröfur sem lýð- ræðislegt réttarríki hlýtur að gera til þessara stofnana. Ég spái því að ekki muni sjást orð um þetta í komandi sáttmála um stjórnarmyndun. Þetta er eins og logandi eldhnöttur sem enginn þorir að taka á, þó að staðreyndirnar liggi fyrir og auðvelt sé að gera lagabreytingar til umtalsverðra bóta. Kannski stjórnmálamennirnir séu að bíða eftir að þeir sjálfir eða ástvinir þeirra þurfi að prófa þetta spillta kerfi á sjálfum sér? Á meðan eru aðrir borgarar látnir bera skaðann af spillingunni. Reynið frekar að vakna og gera strax þær úrbætur sem gera þarf. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson »Kannski stjórn- málamennirnir séu að bíða eftir að þeir sjálfir eða ástvinir þeirra þurfi að prófa þetta spillta kerfi á sjálfum sér? Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er fyrrverandi dómari við Hæstarétt Íslands. Aðgerðaleysi Fyrir 12 dögum fóru fram kosningar til Alþingis. Sá er þetta ritar hefur lifað 22 kosningar til Alþingis og man vel 19 slíkar kosningar. Lengi framan af snerust kosningar um það á hvern hátt væri hægt að sauma betur að þjóðinni með skömmt- unarráðstöfunum og draga sem mest úr frjálsum við- skiptum. Þá var það svo að alþingismenn urðu að vera reiðubúnir að ganga á mála hjá lyginni, alls staðar, í öllu og ávallt. Íbúar heilla sveita skrif- uðu miða til síns þingmanns, sem hafði valdatækið skömmtun. Á mið- anum voru óskir um mismunun og hagsmunafé sveitungum til handa. Í þeirri mismunun voru sveitungar misjafnlega jafnir. Jeppaleyfi var æðsta stig af hagsmunafé. „Ísland úr NATO – herinn burt!“ Þá var einnig hrópað: „Ísland úr NATO – herinn burt!“ Mikhail Gor- bachev tók Ísland úr NATO burt með því að öll fylgiríki Sovétsins gerðust aðildarríki NATO. Donald Rumsfeld tók svo herinn burt. Þá varð einn stjórnmálaflokkur, sem hafði ekkert til að berjast fyrir, og varð V... grænn! Ekki var stríðsæsingurinn horf- inn því nú vilja nokkrir í þeim flokki lýsa yfir hættuástandi í loftslags- málum! Helst stríðsyfirlýsingu um loftslagsmál! Vopnið er skattar! Óljóst er hver andstæðingurinn er. Svo virðist sem það sé venjulegt fólk, því hugmyndaauðgin um skatt- lagningu á venjulegt fólk á sér engin tak- mörk. Er ekki best að gera ekki neitt! Eins og flestum er kunnugt þá er það sem sýnist það sem er. Ann- að skiptir ekki máli! Þannig lenti einn flokk- ur í mikilli tilvistar- kreppu að þessu sinni. Hvernig átti flokkurinn að aðgreina sig? Það var erfitt. Því varð það spurning: Er ekki bara best að kjósa Framsóknarflokkinn? Og það svínvirkaði! Í öllu falli á þá sem áður kusu Miðflokkinn, sem hafði orðið til úr tilvistarkreppu glataðs snillings! Sá flokkur hafði ekkert að berjast fyrir nema al- menna heilsuvernd! Sennilega með loforði um eilíft líf. Líf þess flokks er nú ei líft! Sambandslaus flokkur og skiptir engu máli. Sjálfstæðisflokkurinn rak sína kosningabaráttu á stuttum setn- ingum án samhengis og kynnti helst frambjóðendur úr öðrum hreppum! Í það minnsta í mínu kjördæmi! Skal ósagt látið um niðurstöðuna! Leiðinleg, skapvond og andleg auðn! Einn flokkur skar sig úr frá öðr- um flokkum í kosningabaráttunni. Það er turninn Samfylking! Sam- bræðingur sósíaldemókrata, sósíal- ista og femínista! Eiginlega er flokkurinn ekkert af þessu! Flokk- urinn er fyrst og fremst andleg auðn! Eiginlega ekki neitt og enginn vill bjóða þessum turni upp í dans! Formaðurinn alltaf í vondu skapi í ásýnd þjóðarinnar. Nokkrir fram- bjóðendur illgjarnir. Sífelldar hót- anir um skattahækkanir og stýringu á öllu í mannlegu atferli með skött- um og álögum. Nokkrir sem sýna af sér yfirgripsmikla vanþekkingu. Fornaldarkratarnir eru horfnir! Það sem einkennir turninn er ráðaleysi Kvennalista. Tómt flatbotna rím! Þó öllu ljúfara lið en margblaða Smári! Um það lið má segja að útlit- ið hafi verið innrætinu skárra og var þó með því alskuggalegasta! Eins og ræpan í nútímaskáldskap! Margt sagt eins og verið væri að klóra striga! Kosningabaráttan var leiðinleg og ekki með hagsmuni almennings að leiðarljósi! Hagsmunasamtök Að þessu sinni voru það ýmis hagsmunasamtök sem gerðust stjórnmálaflokkar en buðu þó ekki fram til Alþingis. Öryrkjabandalag- ið og Sálfræðingafélagið gengu í bandalag. Alþýðusambandið taldi kjósendum trú um að hagfræðin væri úrelt vísindi því það er nóg til! Lögmál skortsins horfið! Lífs- kjarasamningar snerust um kröfur gagnvart löggjafanum í skýrri and- stöðu við ákvæði laga um stétt- arfélög og vinnudeilur. Afskipti hagsmunahópa með þessum hætti, þótt stéttarfélög séu, eru tilræði við lýðræði. Ef stétt- arfélög vilja verða stjórnmálaflokk- ar, þá verða þau það, en sem stétt- arfélög búin að vera. Þá verður erfitt að verja forgangsréttarákvæði í kjarasamningum. Enda standast þau ekki lög og hugmyndir um mannréttindi hvort eð er! Hvað svo? Eftir að kosningavíman er runnin af þjóðinni og þjóðkjörnum fram- bjóðendum rennur á alla óráð raun- veruleikans. Hafrannsóknastofnun gefur von! Loðna sem aldrei fyrr. Sennilega vita allir að allt er á hausnum hjá hinu opinbera nema skattstofan. Opinberar skuldir eru sem næst 1.100 milljarðar. Um þessar skuldir var ekki kosið. Þetta eru að vísu mestan part skuldir okkar á milli. Þær þarf ekki að borga með útlendum peningum! Í raun sannaðist það sem þingmað- urinn góði sagði eitt sin í sínu óráði: „Hvað varðar oss um þjóðarhag!“ Það var heldur ekki kosið um hvernig á að koma 3.000 bændum úr fátækt! Laxveiðihlunnindi bjarga nokkrum! Flokkur fátækra fjallaði alls ekki um það, heldur beit í Borg- ara og fór í Stuð. Í óráði raunveruleikans sitja þrír flokksformenn og reyna að koma sér saman um óljósa framtíð. Einn flokkurinn er með nokkrar órólegar deildir. Hver og ein deild er með ófrávíkjanlegar kröfur. Stundum um stríð! Eins og loftslagsstríð! Stríð sem enginn bað um. Það er margt auðvitað! Það liggur fyrir að langflestir þeirra sem hér búa nú ætla sér að lifa hér áfram. Til þess að geta lifað eðlilegu lífi þarf innviði. Innviðir eru sjúkrahús, skólar, vegir, virkjanir, flugvellir og svo má lengi telja. Ef innviðir eru fyrir hendi eru borg- urunum margir vegir færir, svo fremi að lamandi hönd leggist ekki gegn frumkvæði. Það kann að orka tvímælis í hve ríkum mæli kjörnir fulltrúar geta tekið sér vald til að færa eignir á milli hópa í samfélaginu. Hæstirétt- ur kveður stundum upp undarlega dóma. Þannig segir einn undarlegur hæstaréttardómur um lögmæti skattlagningar: „Sökum þess að löggjafanum hef- ur verið játað verulegu svigrúmi til að ákveða þau sjónarmið sem búa að baki skattlagningu og að teknu tilliti til þess að auðlegðarskattur er tímabundinn er ekki næg ástæða að líta svo á að með þeim mun á skatt- leysismörkum, sem gerður er í ákvæðum til bráðabirgða XXXIII og XLVII, sé brotið gegn 65. gr., sbr. 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrár- innar.“ Annaðhvort felur skattur í sér lögmæti eða ekki. Tímabundið lög- mæti! Er það hlutverk Hæstaréttar að ákveða slíkt? Eftir stendur að 30% skattgreið- enda greiða sem næst 80% af álögð- um sköttum, þá er spurning hvort skattlagning sé almenn! Eftir stendur almenningur Nýliðnar kosningar snerust aldrei um hagsmuni almennings. Oftast gegn hagsmunum almennings. Við skulum vona að guð láti gott á vita og formenn vitrænna stjórnmála- flokka í óráði raunveruleikans hafi hagsmuni almennings að leiðarljósi í stjórnarmyndunarviðræðum. Það er ekki á ungt fólk leggjandi að borga endalaust fyrir óskhyggju vegna góðmennsku í garð gamals fólks! En hvurnin eiga karlmenn að skilja kvenmenn? Það eru ekki til ólíkari skepnur! Annaðhvort að trúa ykkur eða ekki! Það er þó venjulegt fólk sem byggir þetta land! Eftir Vilhjálm Bjarnason » Það er ekki á ungt fólk leggjandi að borga endalaust fyrir óskhyggju vegna góð- mennsku í garð gamals fólks! Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Hvað ætlið þið að gera fyrir unga fólkið, gamla fólkið og á ekkert að gera fyrir venjulegt fólk?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.