Morgunblaðið - 08.10.2021, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 08.10.2021, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 2021 „Á SAMA TÍMA Í NÆSTU VIKU?“ „OK, ÞÚ MÁTT KLÆÐA ÞIG AFTUR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... hugsun sem lætur þig ekki í friði. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann OG ÞAR FÓR FERILLINN ÉGÆTLAÐI AÐ TAKA ÍÞRÓTTIR SEM VAL Í GAGGÓ EN ÉG MEIDDIST NÚ? ÉG SKAR MIG Á EYÐUBLAÐINU HÉR ER ÉG MÆTTUR TIL ÞESS AÐ TAKA ALLAR EIGUR ÞÍNAR! ERTU MEÐ STEIN- HJARTA? ÉG SKAL FELLA NIÐUR FLUTNINGSGJALDIÐ! skrifstofustjóri á Siglufirði, síðar í Reykjavík og Garðabæ, og Stein- unn Stefánsdóttir, f. 13.11. 1907, d. 23.6. 1995 húsmóðir. Börn Friðriks og Önnu eru: 1) Jón Fjölnir Hjartar, f. 17.12. 1977, rafmagnsverkfræðingur, fram- leiðslustjóri hjá Tempra, býr í Garðabæ. Eiginkona hans er Ro- dica Dinulescu Hjartar, sérfræð- ingur í gæðamálum hjá Alvotech. Börn þeirra eru Ísabella María, Daníel Friðrik og Arnar Viorel; 2) Kristrún Hjartar, f. 30.5. 1980, hönnuður og listamaður í San Francisco. Eiginmaður hennar er Arvind Gupta fjárfestir. Dætur þeirra eru Lukka Shakuntala og Freyja Mridula; 3) Steinunn Ragna Hjartar, f. 14.11. 1981, við- skiptafræðingur, verkefnastjóri hjá Aztiq og meistaranemi í HR. Býr í Garðabæ. Maki hennar er Sölvi Sigurðsson, hönnuður hjá Sidekick Health. Börn þeirra eru Sólon Kári, Ragna Móey og Sóley Katla. Bræður Friðriks: Hjörtur Hjart- ar, f. 11.6. 1948, d. 17.11. 2019, rekstrarhagfræðingur, bjó síðast í Reykjavík, og Rúnar J. Hjartar, f. 27.9. 1958, vélvirkjameistari og sölumaður, býr í Kópavogi. Foreldrar Friðriks voru hjónin Jón F. Hjartar, f. 15.8. 1916, d. 31.5. 1996, íþróttakennari að mennt en starfaði lengst af við skrifstofustörf, síðast sem deild- arstjóri hjá Kópavogsbæ, og Ragna H. Hjartar, f. 3.7. 1927, d. 11.11. 2019, póstafgreiðslumaður á Flateyri og síðast ritari útibús- stjóra Landsbanka Íslands. Þau bjuggu í Reykjavík frá 1973. Friðrik Jónsson Hjartar Hjörtur Bjarnason bóndi á Klukkulandi og víðar í Dýrafirði, síðar sjómaður á Þingeyri Steinunn Guðlaugsdóttir húsfreyja á Klukkulandi og víðar í Dýrafirði, síðast á Þingeyri Friðrik Sigurbjörn Hjartarson Hjartar skólastjóri í Súgandafirði, á Siglufirði og Akranesi Þóra Hjartar húsmóðir á Suðureyri, Siglufirði og Akranesi Jón Friðriksson Hjartar íþróttakennari, fulltrúi sveitarstjóra í Borgarnesi og deildarstjóri í Kópavogsbæ Kristín Kristjánsdóttir húsfreyja á Suðureyri Jón Einarsson bóndi og íshússtjóri á Suðureyri. Hinrik Biering Þorláksson kennari á Flateyri Kristrún Friðriksdóttir húsfreyja í Hinrikshúsi á Flateyri Hjörtur Hinriksson sjómaður á Flateyri Guðríður María Þorsteinsdóttir verkakona á Flateyri Þorsteinn Ólafsson sjómaður í Þorsteinshúsi á Flateyri Jónína Guðmunda Þórarinsdóttir húsfreyja í Ögurþingum Ætt Friðriks Hjartar Ragna Hjartardóttir Hjartar póstafgreiðslumaður á Flateyri, skrifstofum. í Borgarnesi og síðar bankaritari hjá Landsbankanum Skagfirðingurinn Gunnar Rögn- valdsson átti afmæli á dög- unum og bárust honum margar kveðjur af því tilefni. Gunnar þakk- aði fyrir sig með þessum orðum: Aldurinn sem á mér sést ekki er mjög til baga. Kemst á fætur fyrir rest flesta virka daga. Ólafur Sigurgeirsson á Kálfs- stöðum i Hjaltadal sendi Gunnari vini sínum svohljóðandi afmæl- iskveðju: Kærleiksríka kveðju fær kannski nokkuð seint. Það er eins og endranær ekki illa meint. Helgi R. Einarsson sendi mér póst og sagði að flestir þekktu þessa stöku: Lati Geir á lækjarbakka lá þar til hann dó; vildi ’ann ekki vatnið smakka var hann þyrstur þó. Þykir Helga þetta frekar leið- inlegur endir og tók hann því til endurskoðunar. Niðurstaðan varð limran „Áhrifavaldurinn“: Lilja af Geir’ hinum lata á lækjarbakka fékk pata, sem því ekki dó heldur þambaði og hló og þess vegna náði’ aftur bata. Ólafur Stefánsson yrkir á Boðn- armiði og kallar „Loðnugleði“: Krónan er stöðugt að styrkjast þótt stórfljótin megi’ ekki virkjast. né fallvötn á fjöllum, svo falin þó öllum, – því loðnan má kveljast og kyrkjast. Helgi Ingólfsson yrkir: Sást það vel í september og sjálfsagt gleður okkur að Samfylkingin orðin er aurasálnaflokkur. Gunnar Hólm Hjálmarsson yrkir: Um vini mína er mér annt ávallt mun það sýna. Ég er aðeins upp á kant við eigin bresti mína. Jón Gissurarson: Ennþá við á ýmsar lundir yrkjum hér á Fésinu, meðan kraumar eldur undir öllu Reykjanesinu. Starkaður frá Stóruvöllum í Bárðardal á unnustu í Gnúpverja- hreppi, fer að finna hana, verður úti undir steini og kveður síðan á glugga yfir unnustu sinni (þjóð- sögn): Angur og mein fyrir auðar rein oft hafa skatnar þegið: Starkaðar bein und stórum stein um stundu hafa legið. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Lati Geir og loðnugleði STOFNAÐ 1953 Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími 553 1380 20% afsláttur af yfirhöfnum Tilboðið gildir út 20. október

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.