Morgunblaðið - 08.10.2021, Síða 32
O
U
T
L
E
T
Ú
T
S
A
L
A
G
E
R
Ð
U
F
R
Á
B
Æ
R
K
A
U
P
HEILSUDÝNUR
SÆNGUR & KODDAR
SÓFAR &
HVÍLDARSTÓLAR
KODDAVER
HANDKLÆÐI
HÖFUÐGAFLAR
LAMPAR & FLEIRA
ALLT AÐ
70%
AFSLÁTTUR
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
Verðlaunatónlist Hildar Guðnadóttur við kvikmyndina
Joker verður flutt á tónleikabíósýningu í Eldborg á
sunnudaginn, 10. október, kl. 19.30. Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands, SinfoNord, sér um hljóðfæraleik og stjórn-
andi verður faðir Hildar, Guðni Franzson. Joker hlaut
tvenn Óskarsverðlaun og þrenn Bafta-verðlaun og þeirra
á meðal fyrir bestu kvikmyndatónlist og besta aðalleik-
ara, Joaquin Phoenix. Hlutu þau tvö einnig Golden Globe
og Critics’ Choice-verðlaun fyrir afrek sín. Kvikmynd-
inni verður varpað á stórt tjald í Eldborg með tali og
áhrifahljóðum og sinfóníuhljómsveitin leikur undir.
Hildur segir í tilkynningu að það sé henni
mikið ánægjuefni að fá að sjá og heyra
Joker á kvikmyndasýningu með lifandi sin-
fóníuhljómsveit. Hljómsveitin hafi komið
með svo mikla dýpt og næmni í
flutningi sínum við hljóðritun
tónlistarinnar. „Þetta var svo
fallegt ferðalag og það gleður
mig mjög að áhorfendur fái nú
að njóta þess á sama hátt,“ segir
Hildur.
Joker á kvikmyndatónleikum
FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 281. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Kvennalandslið Íslands í handknattleik hóf und-
ankeppni Evrópumótsins á þrettán marka ósigri gegn
öflugu liði Svía í Eskilstuna. Öflugur varnarleikur Svía
og hraðaupphlaup í kjölfarið voru banabiti íslenska
liðsins sem mætir Serbum í öðrum leik sínum í keppn-
inni á Ásvöllum á sunnudaginn. »26
Stórt tap gegn sterkum Svíum
ÍÞRÓTTIR MENNING
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Mér finnst rosa gaman að kenna á
Siglufirði, þetta er geggjaður staður
umvafinn háum fjöllum. Bæjar-
stæðið er svo fallegt við höfnina og
þar er gott að sitja og njóta útsýnis,
en ég var með sams konar námskeið
á Sigló í vor og það var mikið ævin-
týri. Við gistum á Hótel Siglunesi
þar sem er marokkóskur veitinga-
staður og ilmurinn af matargerðinni
hans Jaouads Hbibs er alltumlykj-
andi. Heillandi verk eftir listakon-
una Huldu Vilhjálms eru um alla
veggi, sem skapar líka ákveðna
stemningu,“ segir Auður Jónsdóttir
rithöfundur sem ætlar að leiða sams
konar ritsmiðjunámskeið nú í októ-
ber á Sigló. Þar verður ekki aðeins
boðið upp á leiðsögn Auðar í skap-
andi skrifum heldur er líka boðið
upp á útijóga, gómsætan marokk-
óskan mat, heita potta og samveru.
„Mér finnst sniðugt að blanda
þessu öllu saman hjá fólki á ritlistar-
námskeiði, því það getur gengið svo
á orkuna hjá fólki sem er að opna
fyrir að fara í flæði. Stundum þarf að
fá fólk til að slaka vel á áður en það
þorir að sleppa hömlunum. Nám-
skeiðin hjá mér ganga svolítið út á
að fá fólk til að sleppa tökum á
sjálfsritskoðaranum og öðru sem
hamlar í skrifum. Við skrifum í
ákveðinn tíma en gerum líka eitt-
hvað allt annað til að fá andlega nær-
ingu.“
Auður segir að það sé gott fyrir
fólk sem er á ritsmiðjunámskeiði að
fara burt frá eigin hversdagslífi,
færa sig á nýjan stað.
„Við göngum inn í ákveðinn
heim og það myndast sérstök stemn-
ing hjá hópnum. Ég fann það sjálf
þegar ég skrapp til Köben í sumar
að það opnast fyrir nýjar hugmyndir
við það eitt að fara í annað umhverfi.
Þá opnast fyrir nýja hugsun og við
sjáum ýmislegt í nýju samhengi. Við
þorum þegar við stígum út úr hvers-
deginum og inn í annað rými, þá
opnast fyrir skapandi hugsun sem
við leyfum okkur kannski ekki ann-
ars. Svona námskeið gengur út á að
hjálpa fólki að leyfa sér skapandi
hugsun, að skrifa til að skilja og sjá
sögurnar í lífinu. Að skrifa er vald-
eflandi tæki, af því lífið er svo mikið
kaos og óreiða. Með skrifunum get-
ur fólk skoðað hvar það leggur
merkingu í lífið, þetta er ákveðið
valdaleiktæki með veruleikann og
það er styrkjandi og heilandi að
segja sögu, hvort sem fólk skrifar
fyrir sjálft sig eða aðra. Að venja sig
á að setja atburði og hluti í sögu. Við
gjörninginn að skrifa opnast fyrir
skilninginn, hann víkkar út.“
Auður getur vart beðið eftir að
fara aftur til Siglufjarðar. „Þar er
líka æðislegt súkkulaðikaffihús, ég
hlakka til að komast aftur þangað,“
segir Auður og bætir við að ferða-
skrifstofan Mundo standi fyrir rit-
smiðjunni.
„Hún Margrét Jónsdóttir hjá
Mundo fær margar góðar hug-
myndir og er flink að búa til ævin-
týri,“ segir Auður og bætir við að
smiðjan sé fyrir fólk á öllum aldri.
„Innan hópsins hverju sinni
verður til áhugvert samtal, en ég hef
líka verið með ritlistarnámskeið sem
við köllum Flot og flæði, þá fljótum
við fyrst saman í vatni og skrifum
svo að því loknu.“ Ritsmiðjunám-
skeið Auðar á Siglufirði verður dag-
ana 15.-17. okt. Nánar á mundo.is
Gott bragð í ritsmiðju
- Auður Jónsdóttir rithöfundur með ritsmiðju á Sigló
- Marokkóskur kokkur sér um veitingar - Útijóga og sæla
Ljósmynd/Björn Valdimarsson
Listakokkur Jaouad Hbib eldar ofan í námskeiðsfólk.
Ljósmynd/Saga Sig
Auður „Við þorum þegar við stígum út úr hversdeginum.“