Morgunblaðið - 12.10.2021, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 2. O K T Ó B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 239. tölublað . 109. árgangur .
ÓÐUR SETUR
UPP ÁSTAR-
DRYKKINN VILJA TILHEYRA ESB
GLÆPASÖGUR
OG ÞJÓÐLEGUR
FRÓÐLEIKUR
MÓTMÆLI Í PÓLLANDI 13 VERÖLD 28ÓPERUDAGAR 29
Hinn nítján ára gamli Andri Lucas Guðjohnsen innsiglaði
stórsigur Íslands á Liechtenstein, 4:0, í undankeppni heims-
meistaramótsins í fótbolta á Laugardalsvellinum í gærkvöld
þegar hann skoraði síðasta mark íslenska liðsins eftir send-
ingu frá bróður sínum, Sveini Aroni Guðjohnsen. Bræðurnir
féllust að vonum í faðma eftir markið. Albert Guðmundsson
skoraði tvö mörk og Stefán Teitur Þórðarson eitt í þessum
síðasta heimaleik Íslands í keppninni frammi fyrir um 4.500
áhorfendum sem voru vel með á nótunum. »27
Morgunblaðið/Eggert
Guðjohnsen-bræður
innsigluðu stórsigur
_ Landslög eru
skýr um að ef
ágallar á kosn-
ingum í einu
kjördæmi leiði til
uppkosninga, þá
fari sú kosning
eingöngu fram í
því kjördæmi, en
ekki á landinu
öllu, að mati Haf-
steins Þórs
Haukssonar, dósents við lagadeild
Háskóla Íslands, en hann sat fyrir
svörum á opnum fundi undirbún-
ingskjörbréfanefndar Alþingis, sem
haldinn var í gær.
Fór Hafsteinn einnig yfir það
hvenær ágalli á kosningum væri
orðinn það mikill að hann gæti leitt
til ógildingar á þeim, og sagði hann
að ófullnægjandi frágangur á kjör-
gögnum einn og sér væri ekki nóg,
heldur þyrfti að koma til einhver
vísbending um að ágallinn hefði
haft áhrif á niðurstöðu kosning-
anna.
Dómsmálaráðuneytinu hefur
verið falið að taka saman minnis-
blað um þær reglur er gilda um
uppkosningar, en kosningalög eru
fáorð um hvernig staðið skuli að
slíkum kosningum. »4
Ágalli þurfi að hafa
áhrif á niðurstöðu
kosninganna
Hafsteinn Þór
Hauksson
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Bæjaryfirvöld í Hveragerði eru um
þessar mundir að úthluta lóðum und-
ir fjölbreytta athafnastarfsemi á
tveimur stöðum og hefur verið mjög
mikil eftirspurn eftir svæðum til
uppbyggingar að sögn Aldísar Haf-
steinsdóttur bæjarstjóra.
Sælgætisgerðin Freyja er meðal
þeirra sem undirbúa uppbyggingu í
Hveragerði. Hefur verið ákveðið að
fyrirtækið færi starfsemi sína úr
Kópavogi og að reist verði ný verk-
smiðja á 15 þúsund fermetra lóð,
sem Freyja hefur fengið úthlutaða á
nýju athafnasvæði í Hveragerði.
Ævar Guðmundsson, eigandi og
stjórnarformaður Freyju, segir
framtíðarstaðsetningu fyrirtækisins
í Hveragerði um margt heppilega og
þröngt sé orðið um starfsemina í
Kópavogi, sem þurfi að stækka til að
geta annað að fullu allri eftirspurn,
sérstaklega í útflutningi. Útflutning-
ur til Norðurlandanna hafi gengið
vonum framar og salan aukist hrað-
ar á síðustu árum.
Á annað hundrað störf
„Á öðru svæðinu erum við að út-
hluta lóðum fyrir verslun og þjón-
ustu og höfum nú þegar fengið tvær
spennandi umsóknir, annars vegar
frá fjársterkum aðilum sem vilja
byggja upp heilsulind og hins vegar
frá Ölverki, sem er með áform um
ferðatengda þjónustu í kringum bjór
og bjórgarð,“ segir Aldís. Undirbún-
ingur er í fullum gangi fyrir eins
kílómetra langa svifbraut og einnig
verður Gróðurhúsið opnað fljótlega,
en þar verða m.a. mathöll og hótel.
Að sögn Aldísar eru viðræður í gangi
við fleiri aðila um fjölbreytta upp-
byggingu í bænum. Vel á annað
hundrað störf verða til við alla þessa
starfsemi.
Hagstætt lóðaverð í Hveragerði
er ein af meginástæðum þessarar
miklu eftirspurnar eftir aðstöðu að
mati Aldísar. Staðsetningin, búsetu-
skilyrðin og uppbygging hafnarinn-
ar í Þorlákshöfn skipti líka máli.
„Svo held ég að við séum líka að sjá
einhverjar afleiðingar af því að lóðir í
Reykjavík eru orðnar mjög dýrar.“
Ásókn í atvinnu-
lóðir í Hveragerði
- Verksmiðja Freyju, heilsulind og bjórgarður í farvatninu
Aldís
Hafsteinsdóttir
Ævar
Guðmundsson
MUppbygging í Hveragerði »10
Kerskálanum í álveri Aldel í
Hollandi hefur verið lokað enda
borgar sig ekki lengur að framleiða
álið eftir að orkuverðið rauk upp.
Sérfræðingur á íslenskum ál-
markaði sem Morgunblaðið ræddi
við sagði lokunina þýða minni fram-
leiðslu innan evrópska tollasvæð-
isins. Fyrir vikið myndi verð til
evrópskra álvera hækka og það
aftur styrkja stöðu íslenskra álvera.
Verð á áli í kauphöllinni með
málma í London nálgast 3.100 dali
tonnið og taldi sérfræðingurinn að
verðið gæti farið í 4.000 dali vegna
lítils framboðs. »12
Morgunblaðið/ÞÖK
Álvinnsla Álverð er á uppleið.
Orkan er
allt of dýr
- Álver í Hollandi
lokar kerskálanum