Morgunblaðið - 12.10.2021, Síða 10

Morgunblaðið - 12.10.2021, Síða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2021 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Sælgætisgerðin Freyja ætlar að flytja starfsemi sína úr Kópavogi í Hveragerði, þar sem reisa á nýja verksmiðju fyrirtækisins. Ævar Guðmundsson, eigandi og stjórn- arfomaður Freyju, staðfestir þetta í samtali við Morgunblaðið. Ævar segir að fyrirtækið hafi fengið út- hlutaða 15 þúsund fermetra lóð í Hveragerði undir verksmiðjuna. „Við erum að huga að þessu og höfum áhuga á að flytja verksmiðj- una þangað,“ segir Ævar. Hann á von á að það muni taka um tvö ár að reisa verksmiðjuna og flytja alla framleiðsluna í Hveragerði. Milli 50 og 60 manns starfa í dag hjá Freyju, sem er elsta starfandi sælgætisgerð á Íslandi. Freyja var stofnuð árið 1918. Fyrirtækið framleiðir mörg af þekktustu vörumerkjum íslensks sælgætis og flytur einnig sælgæti til annarra landa, einkum annarra Norðurlandaþjóða. Ævar segir staðsetningu fyrir- tækisins í Hveragerði um margt heppilega og verksmiðjan verði mjög sýnileg vegfarendum þegar komið er niður Kambana. Hann seg- ir að Suðurlandið sé allt orðið eitt at- vinnusvæði í dag og fljótlegt að fara á milli bæjarfélaga, sem þurfi ekki að taka lengri tíma en að fara á milli hverfa á höfuðborgarsvæðinu. Ævar segir að byrjað verði á að reisa verksmiðjuna og svo geti vel verið að í framhaldinu verði skrif- stofan og önnur starfsemi líka flutt í Hveragerði. Útflutningur á sælgæti hefur gengið vonum framar Spurður hvort fyrirhugað sé að stækka verksmiðjuna og auka fram- leiðsluna segir Ævar að Freyja hafi ekki getað annað að fullu allri eftir- spurn að undanförnu, sérstaklega í útflutningi. „Við höfum verið að flytja vörur til Norðurlandanna og það hefur gengið vonum framar. Við höfum gert það í um 20 ár en á síð- ustu árum hefur salan aukist hraðar en oft áður, sérstaklega á lakkrís- tengdum vörum, sem seljast bara mjög vel. Það er orðið þröngt um okkur í Kópavoginum. Þar er farið að byggja mikið af íbúðarblokkum og annað og við sjáum okkur ekki fært að stækka neitt að ráði. Við getum stækkað verksmiðjuna eitthvað en ekki þannig að það sé einhver fram- tíð í því,“ segir hann. Morgunblaðið/Árni Sæberg Flytja Ævar Guðmundsson segir orðið þröngt um starfsemina í Kópavogi. Freyja flytur í Hveragerði - Verksmiðja reist á 15 þúsund m² lóð Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Mikil atvinnuuppbygging stendur fyrir dyrum í Hveragerði og hafa bæjaryfirvöld útlutað lóðum undir margvíslega uppbyggingu og starf- semi, meðal annnars nýja verksmiðju sælgætisgerðarinnar Freyju, heilsu- lind og bjórgarð brugghússins Öl- verks. Fleiri lóðir eru auglýstar laus- ar til uppbyggingar í sveitarfélaginu um þessar mundir. „Það hefur verið mjög mikil eftir- spurn eftir svæðum til uppbygging- ar,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir bæj- arstjóri. „Við höfum verið að úthluta íbúðalóðum en nú erum við að úthluta lóðum fyrir fjölbreytta athafnastarf- semi á tveimur stöðum í bæjarfélag- inu. Á öðru svæðinu erum við að út- hluta lóðum fyrir verslun og þjónustu og höfum nú þegar fengið tvær spennandi umsóknir, annars vegar frá fjársterkum aðilum sem vilja byggja upp heilsulind og hins vegar frá Ölverki, sem er með áform um ferðatengda þjónustu í kringum bjór og bjórgarð. Þessi starfsemi er staðsett á leið- inni upp í Reykjadal en aðeins innar í dalnum erum við í samstarfi við aðila sem eru að fara að setja upp zip-línur eða svifbraut þar sem fólk getur farið í svifbrautina rétt fyrir neðan Kambaveginn og svifið þar niður yfir gilið. Þetta verður lengsta svifbrautin á Íslandi og þótt víðar væri leitað en hún verður einn kílómetri að lengd. Þetta er mjög spennandi verkefni sem er í fullum gangi og þeir sem að því standa eru þegar farnir að kynna það fyrir væntanlegum viðskiptavin- um og ferðaþjónustuaðilum,“ segir hún. Sælgætisgerðin Freyja ætlar að færa starfsemi sína úr Kópavoginum í Hveragerði og reisa þar nýtt verk- smiðjuhús á lóð sem fyrirtækið hefur þegar fengið úthlutaða á nýju at- hafnasvæði sem er fyrir neðan þjóð- veginn, að sögn Aldísar. Um eða yfir 50 manns starfa hjá Freyju. Þá er bygging annarrar verksmiðju á lóð fyrirhuguð en Aldís segir ekki tíma- bært að greina nánar frá því verkefni. Gróðurhúsið verður opnað fljót- lega í Hveragerði en þar eru m.a. verslanir, mathöll og Greenhouse Hotel auk fleiri fyrirtækja sem eru þar með starfsemi og þjónustu. Teng- ist sú starfsemi uppbyggingu sem þegar er hafin ofan við Hveragerði. Á annað hundrað störf Að sögn Aldísar eru viðræður í gangi við fleiri aðila um alls konar fjölbreytta uppbyggingu í bænum. Aldís segir þessi verkefni öll sem eru í farvatninu mjög raunhæf og bæjar- yfirvöld í Hveragerði telji líklegt að þau verði að veruleika. Þá verða til vel á annað hundrað störf við þessa starfsemi í Hveragerði. Spurð hvert sé aðdráttaraflið í Hveragerði fyrir þá sem hyggja á at- vinnuuppbyggingu segist Aldís telja að það sé fyrst og fremst hagstætt lóðaverð. „Svo finn ég alveg að Hveragerði heillar. Þau lífsgæði sem við getum boðið upp á, umhverfið og þjónustan er með því allra besta og þegar fólk hugsar sér til hreyfings eða vill stofna ný fyrirtæki horfir það til þess hvar finna megi framúrskar- andi búsetuskilyrði fyrir starfsfólkið. Við erum á vissan hátt í stúkusæti á Íslandi hvað það varðar. Við erum úti á landi en samt aðeins í hálftíma akst- ursfjarlægð frá miðbænum í Reykja- vík. Ég finn líka vel fyrir því að upp- bygging hafnarinnar í Þorlákshöfn hefur áhrif. Við erum í tuttugu mín- útna akstursfjarlægð frá höfninni. Fyrirtæki sem koma til okkar eiga því góða möguleika á að sækja inn á ýmis markaðssvæði,“ segir hún. Lóðir orðnar dýrar í Reykjavík „Svo held ég að við séum líka að sjá einhverjar afleiðingar af því að lóðir í Reykjavík eru orðnar mjög dýrar. Þeir sem eru þar með atvinnurekst- ur, og eru kannski á lóðum sem myndu betur henta undir íbúðabyggð eða annað slíkt, sjá í hendi sér að þeir geta slegið tvær flugur í einu höggi; búið til mjög góðar aðstæður fyrir sinn rekstur fyrir austan fjall en jafn- framt búið til peninga úr þeim lóðum sem þeir eru með á höfuðborgar- svæðinu,“ bætir hún við. Stöðugleiki hefur ríkt á vinnu- markaðinum í Hveragerði og at- vinnuleysi á tímum heimsfaraldurs kórónuveirunnar verið heldur minna en víðast hvar annars staðar. Aldís minnir einnig á að það verður sífellt algengara með bættum sam- göngum að fólk sæki daglega vinnu á milli sveitarfélaga á svæðinu enda séu höfuðborgarsvæðið, Hveragerði, Selfoss og Þorlákshöfn í reynd orðin eitt atvinnusvæði. „Erum á vissan hátt í stúkusæti á Íslandi“ - Fjölbreytt athafnastarfsemi er í farvatninu í Hveragerði Morgunblaðið/Eggert Uppbygging Hagstætt lóðaverð og framúrskarandi búsetuskilyrði eru m.a. ástæður mikillar eftirspurnar að mati Aldísar Hafsteinsdóttur bæjarstjóra. Dröfn Kærnested, sækjandi í máli Carmenar Jóhannesdóttur gegn Jóni Baldvini Hannibalssyni, fyrrverandi utanríkisráðherra, fór fram á það í málflutningi fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að honum yrði gert að sæta fangelsi í tvo til þrjá mánuði, skilorðsbundið. Hún sagði sönnun vera komna fram um brot Jóns Baldvins gegn 199. grein almennra hegningarlaga um kynferðislega áreitni. Hún sagði Jón vera með hreint sakavottorð en að hann hefði gengist undir sátt árið 2019 fyrir ölvunarakstur og brot á lögreglulögum. Hún sagði Jón Baldvin hafa breytt framburði sínum í nokkrum atriðum frá því hann fór í skýrslutöku hjá lög- reglunni í málinu. Sagði hún fram- burð brotaþola trúverðugan en fram- burð ákærða Jóns Baldvins ótrúverðugan og ekki í samræmi við framburð annarra. Skipaður réttargæslumaður Car- menar fór fram á að hann yrði dæmd- ur til að greiða miskabætur upp á eina milljón króna, auk vaxta. Réttargæslumaðurinn sagði brot hafa verið framið af mun eldri manni gegn yngri konu og að hann hefði verið í mikilli yfirburðastöðu sem gestgjafi Carmenar og móður hennar Laufeyjar. Hann sagði brotaþola hafa viljað skila af sér skömminni, enda hefði hún ekkert gert rangt. Vilhjálmur Vilhjálmsson, lögmað- ur Jóns Baldvins, krafðist þess að hann yrði sýknaður. Hann sagði inn- byrðis ósamræmi vera í framburði vitna og hafnaði atburðarásinni eins og hún hefði verið lögð fram. Hann gagnrýndi að kæra hefði verið lögð fram í málinu um átta mánuðum eftir meint brot og að hún hefði verið lögð fram á Íslandi en ekki Spáni. Hann sagði jafnframt enga rannsókn hafa átt sér stað á vettvangi. „Það er engin raunveruleg rannsókn sem fer fram,“ sagði Vilhjálmur. Nánar á mbl.is. Taldi sönnun vera fyrir meintu broti - Málflutningur í máli Jóns Baldvins Morgunblaðið/Árni Sæberg Málflutningur Jón Baldvin Hanni- balsson ásamt lögmanni sínum. SKVÍSAÐU ÞIG UPP FYRIR SUMARIÐ STÆRÐIR 1428 Sundkjóll 15.990 kr Stærðir 42-56 Bikiní haldari 8.990 kr C-H skálar Bikiní haldari 8.990 kr Stærðir 42-54 Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.