Morgunblaðið - 12.10.2021, Side 12
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2021
12. október 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 129.15
Sterlingspund 175.98
Kanadadalur 103.05
Dönsk króna 20.077
Norsk króna 15.113
Sænsk króna 14.771
Svissn. franki 139.19
Japanskt jen 1.1553
SDR 182.26
Evra 149.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.3955
« Eignir lífeyris-
sjóðanna jukust
um 168 milljarða
króna í ágústmán-
uði samkvæmt
tölum Seðlabank-
ans og nema eign-
ir þeirra nú 6.410
milljörðum króna.
Hafa þær vaxið
um 679 milljarða
það sem af er ári,
eða um 84,9 milljarða króna að með-
altali hvern mánuð þessa árs.
Erlendar eignir eru nú ríflega 35% af
eignasafni sjóðanna og hefur það hlut-
fall þokast jafnt og þétt upp á síðustu
misserum. Hafa erlendar eignir aukist
um 326 milljarða það sem af er ári og
standa því undir tæplega helmingi
eignaaukningarinnar það sem af er ári.
Síðustu tólf mánuði hafa eignir sjóð-
anna aukist um 910 milljarða króna.
Lífeyrissjóðirnir bólgna
út sem aldrei fyrr
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Miðflokkurinn er álitinn mest
gamaldags stjórnmálaflokkur Ís-
lands og Píratar sá nútímalegasti.
Þetta er meðal niðurstaðna í könnun
vörumerkjastofunnar Brandr sem
birt er á heimasíðu hennar.
Könnunin er gerð út frá vöru-
merkjafræðum þeim sem stofan not-
ar til að vinna hina svokölluðu
Brandr-vísitölu um styrk vöru-
merkja.
Kristján Már Sigurbjörnsson,
yfirmaður rannsókna og þróunar hjá
Brandr, segir í samtali við Morg-
unblaðið að heilt yfir hafi verið nokk-
ur samhljómur með niðurstöðum
rannsóknarinnar og útkomu alþing-
iskosninga á dögunum. „Það er
nokkur samhljómur en einstök atriði
skera sig úr,“ segir Kristján.
Ekki endilega ánægðir
Hann segir að ýmislegt veki at-
hygli, eins og að þeir sem kusu VG
hafi ekki endilega verið mjög
ánægðir með samstarfsflokk flokks-
ins í ríkisstjórn, Sjálfstæðisflokkinn.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist enda
neðstur í könnuninni þegar kemur
að umhverfismálum og næstneðst á
eftir Miðflokknum þegar spurt er út
í hvaða stjórnmálaflokkur sé heið-
arlegastur, að sögn Kristjáns.
Kjósendur Sjálfstæðisflokks eru
jákvæðari í garð VG heldur en VG í
garð Sjálfstæðisflokks.
Þegar rýnt er í hug kjósenda
Framsóknarflokksins má sjá að þeir
vilja hafa Sjálfstæðisflokk og VG
með sér í ríkisstjórnarsamstarfi.
Þegar skoðað er hversu vel fólk
þekkir hvað flokkarnir standa fyrir
þá er Sjálfstæðisflokkurinn þar efst-
ur á blaði. Fólk virðist vita hvað
hann stendur fyrir. „Þeir sem kusu
Framsókn töldu sig til dæmis vita
betur fyrir hvað Sjálfstæðisflokkur-
inn stendur heldur en hvað Fram-
sókn stendur fyrir,“ segir Kristján.
„Það þýðir að Framsóknarflokkur-
inn þyrfti að útskýra betur fyrir
hvað hann stendur.“
Þegar spurt er um hvaða flokkar
eru „einstakastir“ koma Píratar oft-
ast upp í huga svarenda. Eins og
Kristján bendir á segir sú mæling
ekkert um hvort sú aðgreining sé já-
kvæð eða neikvæð. „Þeim sem kusu
Framsókn þótti Miðflokkurinn til
dæmis yfir meðallagi einstakur en
þeim þótti hann ekki höfða til sín,“
bætir Kristján við.
Viðreisn áreiðanleg
Af öðrum niðurstöðum þá þykja
Píratar og Viðreisn áreiðanlegustu
flokkarnir og VG er efstur í nær öll-
um þáttum er snúa að sjálfbærni og
samfélagslegri ábyrgð.
Hvað traust varðar þá nýtur VG
samkvæmt rannsókninni mests
trausts og Framsókn kemur næst á
eftir. Minnsta traustið var til Mið-
flokksins.
Í rannsókninni er hægt að flokka
niðurstöður eftir launum og kyni.
Kristján segir að Flokkur fólksins
komi áberandi vel út hjá eldri ald-
urshópum og hjá þeim tekjulægri.
Sjálfstæðisflokkurinn höfðar
meira til karla en kvenna, sam-
kvæmt rannsókninni.
Flokkar eru vörumerki
Friðrik Larsen, framkvæmda-
stjóri Brandr, segir í samtali við
Morgunblaðið að líta eigi á stjórn-
málaflokka sem vörumerki. „Þegar
þú ert að byggja upp vörumerki og
reyna að festa það í vitund fólks
kemurðu ekki og lætur vita af þér
með margra ára millibili. Þú þarf að
minna reglulega á þig til að þú sért
lifandi í huga fólks,“ segir Friðrik.
Hann segir Flokk fólksins og
Sósíalistaflokkinn mjög skýrt dæmi
um sterk vörumerki sem eru með
vel afmörkuð skilaboð sem fólk
skilji.
„Framsóknarflokkurinn stóð sig
mjög vel í sinni markaðsfærslu fyrir
kosningarnar og uppskar sam-
kvæmt því. Ég get hinsvegar ekki
svarað því með góðu móti fyrir hvað
flokkurinn stendur.“
Þá segir Friðrik að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi staðið sig vel í að
hamra á „stöðugleikanum“ í aðdrag-
anda kosninga. Fólk tengi flokkinn
einmitt við slík skilaboð.
Miðflokkurinn og Samfylkingin
eru sístu vörumerkin samkvæmt
rannsókninni, enda er að sögn Frið-
riks mjög óljóst fyrir hvað þau vöru-
merki standa. „Þessi flokkar þurfa
að tala miklu skýrar til að ná í gegn.“
Miðflokkur gamaldags
og Píratar nútímalegir
Morgunblaðið/Hari
Vitund Þegar vörumerki er byggt upp er ekki nóg að láta vita af sér með
margra ára millibili, segir Friðrik Larsen, framkvæmdastjóri Brandr.
Stjórnmál
» Kjósendur VG ekki endilega
mjög ánægðir með Sjálfstæð-
isflokkinn.
» Miðflokkurinn og Samfylk-
ingin eru sístu vörumerkin.
» Flokkur fólksins kom vel út
hjá eldri aldurshópum og hjá
þeim tekjulægri.
» Fólk virðist vita fyrir hvað
Sjálfstæðisflokkurinn stendur.
» Píratar einstakastir.
- Vörumerkjafræði notuð á flokka - Nokkur samhljómur með kosningum
Hollenska álfyrirtækið Aldel hefur
lokað kerskála sínum í hollensku
hafnarborginni Delfzijl vegna hækk-
andi raforkuverðs. Verður skálinn
lokaður fram á nýtt ár hið minnsta,
að því er fram kom í frétt Reuters.
Haft var eftir Chris McNamee,
forstjóra fyrirtækisins, að mikil
hækkun á raforkuverði hefði þrengt
að fyrirtækinu enda væri það ekki
með varnir fyrir hærra orkuverði.
Þá væri fyrirtækið ekki að keppa á
jöfnum samkeppnisgrundvelli og
væri það stjórnvöldum að kenna.
Ríkisvaldið beiti sér
Álver Aldel notar 200 MW af raf-
orku við fulla framleiðslu og fer for-
stjórinn fram á að hollensk stjórn-
völd ívilni fyrirtækinu svo það búi við
sömu skilyrði og keppinautar í
Frakklandi og Þýskalandi. Að sögn
Reuters vísaði hann til ívilnana til
orkufreks iðnaðar í Evrópu vegna
meðal annars verðhækkana í evr-
ópska kolefniskvótakerfinu (ETS).
Álver Aldel getur framleitt 110
þúsund af áli árlega og 50 þúsund
tonn af endurunnu áli. Það gerði
samning við Glencore í fyrra um að
afhenda árlega 180 þúsund tonn af
áli en það er nú í endurskoðun.
Um 400 manns starfa hjá álverinu
en óvíst er hvaða áhrif lokunin mun
hafa á starfsmannafjöldann.
Nú hærra en markaðsverðið
Álverið mun halda áfram að
endurvinna ál. Samkvæmt áætlun
Aldel kostar raforkan um 4.500 evr-
ur á hvert framleitt tonn af áli en nú
fáist um 2.500 evrur fyrir tonnið.
Framleiðslukostnaður er því langt
umfram markaðsverð sem var komið
í ríflega 3.000 dali tonnið í kauphöll-
inni með málma í London (LME) í
gær. Nánar verður fjallað um málið í
ViðskiptaMogganum á morgun.
baldura@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á uppleið Verð á áli hefur hækkað
mikið undanfarna mánuði.
Loka kerskála
vegna orkuverðs
- Hollenskt
álfyrirtæki vísar
til verðhækkana
Kuldaskór
Verð 22.995
Stærðir 36-47
Vatnsheldir
Innbyggðir broddar í sóla
SMÁRALIND
www.skornir.is
« Olíuverð á heimsmarkaði heldur
áfram að hækka og fór verðið á Brent-
Norðursjávarolíu upp í 84,6 dollara á
tunnuna í gær. Hefur það ekki risið jafn
hátt síðan á árinu 2014.
Helsta ástæðan fyrir hækkandi olíu-
verði nú er sú að eftirspurn á mark-
aðnum virðist taka hraðar við sér en
áætlanir gerðu ráð fyrir og litlar líkur
taldar á að framleiðendur geti brugðist
við hinni breyttu stöðu til skamms tíma.
Olíuverðið hækkar