Morgunblaðið - 12.10.2021, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2021
50 ÁRA Jökull Sigurðsson fæddist í Reykjavík en ólst upp í Tulsa í
Oklahoma og í Georgíu-ríki í Bandaríkjunum en flutti heim til Íslands
14 ára gamall. Hann býr núna í Reykjavík, en bjó líka í Stokkhólmi í
fjögur ár, áður en hann flutti heim fyrir tveimur árum. Jökull lærði
heimspeki við HÍ og er annar eigenda námsvefjarins Skólavefurinn.is,
ásamt Ingólfi E. Kristjánssyni. Skólavefurinn er einn stærsti námsvefur
landsins og eru nær allir grunnskólar og framhaldsskólar landsins
áskrifendur að honum. „Ég er búinn að taka þátt í þessu ævintýri í 20
ár, en svo erum við einnig með fleiri vefi, hlusta.is, lestur.is og líka
framhaldsskoli.is. Svo höfum líka gefið út mikið út af bókum og verkum
í gegnum árin.“
FJÖLSKYLDA Guðrún Elva Guðmundsdóttir, f. 1980, ljósmóðir hjá
Björkinni. Börn þeirra eru Embla Mjöll, f. 2008, Hugi Hrafn, f. 2011, og
Gabríel Goði, f. 2016. Foreldrar Jökuls: Elín Tómasdóttir, f. 1953, d.
1991, og Sigurður Ólafur Gunnarsson, f. 1950, flugvélstjóri, búsettur á
Spáni.
Jökull Sigurðsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Ættingi þinn kallar á athygli þína
en þú ert of önnum kafin/n við aðra hluti.
Margt smátt gerir eitt stórt.
20. apríl - 20. maí +
Naut Nú skiptir máli að láta ekki við-
skiptatækifæri framhjá sér fara. Ástamálin
hafa ekki gengið vel upp á síðkastið, fram
undan eru einhver umskipti.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Reyndu að beina orku þinni til
góðra verka. Þú færð hugboð sem lætur
þig ekki í friði. Þér léttir þegar þú heyrir
nýjustu fréttir af fjölskyldunni.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú verður að setjast yfir fjármálin,
hversu leiðinlegt sem þér nú þykir það.
Haltu þig eins fjarri fataverslunum og þú
getur. Sparaðu.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú ættir að slaka svolítið á og hvíla
þig. Oft má satt kyrrt liggja. Makinn er
eitthvað stuttur í spuna þessa dagana.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Hugurinn dvelur hugsanlega við
ferðaáætlanir eða einhvern sem er langt í
burtu. Stundum er best að fljóta með
straumnum.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Góður undirbúningur tryggir farsæla
framkvæmd. Haltu fast í allar jákvæðar
hugsanir. Vertu varkár þegar þú sest undir
stýri.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Það er ekki auðvelt að halda
ró sinni í þeim hamagangi sem er í kring-
um þig. Þú hefur nú oft séð það svartara í
peningamálunum. Ekki örvænta.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Leyndarmál og laumuspil
kunna að mæta þér í dag. Passaðu þig
samt á að gera ekki úlfalda úr mýflugu.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þið ættuð ekki að láta aðra
kúga ykkur til að gera eitthvað sem ykkur
er þvert um geð. Hugleiddu hvað þú hefur
fram að færa í deilum milli ættingja.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Gættu vel að heilsu þinni, jafnt
andlegri sem líkamlegri. Reyndu að skipu-
leggja þig þannig að þú getir nýtt tíma
þinn sem best. Áhugamálin hafa setið á
hakanum.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Hlustaðu á þá sem leita til þín
með vandræði sín. Farðu þér hægt í að
velja þér trúnaðarvini, sérstaklega af hinu
kyninu.
blöðrum og var eitt slíkt nú bara
um helgina í Smáralind sem er lík-
lega stærsta blöðruinnsetning sem
gerð hefur verið á landinu.“
Annað er partífyrirtækið Pippa
sem er partívöruverslun á netinu
og blöðruskreytingaþjónusta. „Við
gerum risavaxin listaverk úr
E
rna Hreinsdóttir
fæddist 12. október
1981 í Reykjavík og
ólst upp að mestum
hluta í Hlíðunum.
Erna fór í æfinga- og tilraunadeild
Kennaraháskóla Íslands, sem nú
er einfaldlega Háteigsskóli. Hún
fluttist síðan til Garðabæjar á
unglingsárum þar sem hún gekk í
Garðaskóla og loks Fjölbrauta-
skólann í Garðabæ.
„Á þeim árum eyddi ég miklum
tíma á skautasvellinu í Laugardal
þar sem ég æfði listhlaup á skaut-
um og tók sú íþrótt mig einnig í
æfingabúðir og keppnir erlendis.
Mínar bestu vinkonur eru úr þess-
um hópi og vorum við algerir
brautryðjendur í þessari íþrótt á
Íslandi, enda byrjuðum við æfing-
ar þegar ekki einu sinni var komið
þak yfir skautasvellið.
Skautasvellið var lífið þar til ég
flutti til London þegar ég var tví-
tug til að stunda nám í grafískri
hönnun. England hefur alltaf verið
mikill hluti af mér því ég eyddi
einnig tíma þar þegar ég var barn
í Oxford með foreldrum mínum
þar sem pabbi stundaði nám. Það
kallaði alltaf aftur í mann og fór-
um við fjölskyldan iðulega til Eng-
lands í frí og ég síðar meir í
enskuskóla um sumar sem ung-
lingur. Það var því rökrétt fyrir
mig að stunda háskólanám þar.“
Erna útskrifaðist með BA í graf-
ískri hönnun frá University of The
Arts í London árið 2006.
„Ég hef aldrei fengið að vera
hreinn og beinn grafískur hönn-
uður, ég er alltaf með einhver
flækjustig í kringum þessa grein
og þarf að vera að potast í mörg
verk á sama tíma. Ég starfaði
heillengi á Birtíngi við tímaritið
Nýtt líf sem blaðamaður og um-
brotsmaður og tók að mér hin
ýmsu skapandi verkefni hjá fyrir-
tækinu. Loks tók ég við sem rit-
stjóri Nýs lífs og er sennilega einn
af fáum ritstjórum sem hefur
skrifað og brotið um tímaritið
sitt.“
Í dag rekur Erna tvö fyrirtæki
sem hún er einnig eigandi að.
Svo er Erna einnig með hönn-
unarstofuna Blóð. „Þar tökum við
að okkur hin ýmsu skapandi verk-
efni á meðal verkefna sem við
Erna Hreinsdóttir, grafískur hönnuður, eigandi Pippu og hönnunarstofunnar Blóð – 40 ára
Fjölskyldan Rafael, Angela tengdamamma, Flóra og Erna á vínekru á Sikiley í sumar.
Skemmtilegt að vera ólíkindatól
Afmælisbarnið Erna hjá Nýlistasafninu í Niterói í Rio de Janeiro.
Ólíkindatólið Erna að æfa skútu-
siglingar á bátnum Sjóðríki.
Til hamingju með daginn
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt