Morgunblaðið - 19.10.2021, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 19.10.2021, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 9. O K T Ó B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 245. tölublað . 109. árgangur . REYKJAVÍK BARN- ANNA EFTIR MAR- GRÉTI OG LINDU FAGNA 75 ÁRA BRÚÐKAUPS- AFMÆLI HVAÐA DEKK SKAL VELJA Í VETUR? GIFTUST 1946 2 BÍLAR 16 SÍÐURTÍMAFLAKK UM BORGINA 28 Haustlegt var um að litast í miðbæ Reykjavíkur þegar ljós- myndari fór á stjá. Eru Íslendingar margir búnir að rífa dún- úlpuna úr iðrum fataskápsins til að verjast köldum blæstri Kára. Fallegir haustlitir nýfallinna laufblaða prýða nú götur, garða og göngustíga víða um land og er eflaust stór hluti landsmanna sem tekur þessum árstíðaskiptum fegins hendi með kaffibolla eða heitt súkkulaði við hönd. Aðrir kveðja sumarið með miklum trega og telja niður dagana til þess næsta, ef til vill í von um að það verði betra en það liðna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Haustlitirnir fegra í kuldanum _ Alls hafa verið seldar eða teknar frá lóðir undir á þriðja hundrað íbúðir og tólf einbýlishús í nýju íbúðarhverfi í Vogum, Grænu- byggð, en þegar það er fullbyggt gætu þar búið um 2.000 manns. „Salan síðustu daga hefur gengið framar vonum,“ segir Sverrir Pálmason, lögmaður og fasteigna- sali, um sölu lóðanna en fyrstu íbúð- irnar verða afhentar í nóvember. Athygli vekur að sjávarlóðir í Grænubyggð kosta frá 16,5 millj- ónum króna en fasteignasali sem ræddi við Morgunblaðið sagði orðið mjög lítið framboð á sjávarlóðum á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni. Það ætti m.a. þátt í miklum áhuga á sjávarlóðum í Hvammsvík. »12 Morgunblaðið/Eggert Grænabyggð Fyrstu íbúðirnar í hverfinu verða afhentar í lok nóvember. Ásókn í byggingar- lóðir í Vogum _ Dómsmálaráðuneytið útilokar ekki að við skipulagningu og fram- kvæmd uppkosninga, komi til þeirra, geti komið í ljós enn fleiri vafaatriði en þau sem fjallað hefur verið um að undanförnu. Um þau geti svo risið ágreiningur. Á þetta bendir ráðuneytið í minn- isblaði sem sent hefur verið Al- þingi, um þær reglur sem gilda um uppkosningar á grundvelli 115. gr. laga um kosningar til Alþingis. Í minnisblaðinu ítrekar ráðu- neytið að fáum skýrum lagareglum um uppkosningar sé til að dreifa. Slíkar kosningar hafi ekki farið fram áður í heilu kjördæmi. Í lögum um kosningar til Alþingis sé hvorki að finna heildstæða umfjöllun um framkvæmd uppkosninga né skil- greiningu á því hugtaki. »6 Vafamál gætu risið við uppkosningar Morgunblaðið/Ómar Alþingishúsið Ráðuneytið sendi Alþingi minnisblað um þær reglur sem gilda. Hlutfallsleg fátækt er hvergi minni en á Íslandi, á meðal landa Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) og er raunar langminnst hér á landi. Þetta var dregið fram af stofnun- inni í gær, í tilefni alþjóðlegs dags um útrýmingu fátæktar. Í tölfræði OECD er litið til þess hvert miðgildi tekna í hverju aðildarríkinu er, en svo er horft til hlutfalls þeirra, sem eru með undir helmingnum af því í tekjur. Þar ræðir því um hlutfallslega fátækt, en í auðugustu ríkjum heims er óvíst að þeir búi við skort. Á Íslandi eru aðeins 4,9% undir því viðmiði, en í OECD öllu falla 11,1% undir þá skilgreiningu. Hæst er hlut- fallið í Kosta Ríka eða 20,5%, en næst- lægst er það í Tékklandi eða 6,1%. Þessar tölur eiga ekki að koma ákaflega á óvart, en undanfarin ár hefur hefur tekjujöfnuður á Íslandi verið með mesta móti í heimi. Hið sama á við um ýmsa mælikvarða á jöfnuð aðra, en til þess er tekið að hann hafi aukist eftir bankahrun. Fátækt hvergi minni í OECD en á Íslandi - Innan við 5% fólks með minna en helming meðaltekna Hlutfallsleg fátækt í OECD Hlutfall íbúa, sem hefur innan við helming miðgildis tekna 2019 Heimild: OECD 0% 5% 10% 15% 20% 25% Ís la n d T ék kl an d D an m ö rk Fi n n la n d Ír la n d S ló ve n ía S ló va kí a U n g ve rj al an d B el g ía H o lla n d N o re g u r Fr ak kl an d S vi ss S ví þ jó ð A u st u rr ík i Þ ýs ka la n d P ó lla n d P o rt ú ga l N ýj a S já la n d O E C D Lú xe m b o rg K an ad a G ri kk la n d Á st ra lía B re tl an d Ít al ía S p án n Ty rk la n d Li th áe n Ja p an M ex ík ó Le tt la n d E is tl an d C h ile K ó re a Ís ra el B an d ar ík in C o st a R ic a 4,9% 11,1%

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.