Morgunblaðið - 19.10.2021, Side 6

Morgunblaðið - 19.10.2021, Side 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2021 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Starfshópur á vegum kirkjuþings leggur til að átta jarðir og 16 aðrar fasteignir í eigu þjóðkirkjunnar verði seldar. Tillagan er liður í fjár- hagslegri endurskipulagningu kirkjunnar. Halli á rekstri nam 654 milljónum króna á síðasta ári. Kirkjuþing kemur saman dagana 23. til 27. október næstkomandi og tekur þá afstöðu til tillögunnar. Jarðirnar sem lagt er til að verði seldar eru: Árnes 1, Desjarmýri, Kolfreyjustaður, Miklibær, Skeggjastaðir, Syðra-Laugaland og Brúnir (úr Syðra-Laugalandi) og Voli. Fasteignirnar sem hópurinn vill selja eru: Bergstaðastræti 75 í Reykjavík, Dalbraut 2 á Dalvík, Eyrarvegur 26 á Grundarfirði, Hamrahlíð 12 á Vopnafirði, Hjarð- arhagi 30 í Reykjavík, Hlíðarvegur 42 á Ólafsfirði, Hólagata 42 í Vest- mannaeyjum, Hvammstangabraut 21 á Hvammstanga, Hvanneyrar- braut 45 á Siglufirði, Kópnesbraut 17 á Hólmavík, Króksholt 1 á Fá- skrúðsfirði, Lágholt 9 í Stykkis- hólmi, Lindarholt 8 í Ólafsvík, Mið- tún 12 á Ísafirði, Smáragata 6 í Vestmannaeyjum og Völusteins- stræti 16 í Bolungarvík. Ekki kemur fram hvert bókfært verð þessara fasteigna er. Á Berg- staðastræti 75 er embættisbústaður biskups Íslands og þar býr nú Agnes M. Sigurðardóttir biskup. Í greinargerð með tillögunni seg- ir að hún sé byggð á fasteigna- stefnu þjóðkirkjunnar, en þar sé kveðið á um að lagðar séu til fast- eignir til að styðja þjónandi forystu þjóðkirkjunnar, hlutverk hennar og markmið þar sem nauðsyn kref- ur og eftir því sem fjárhagur leyfir. Auk þess eigi þjóðkirkjan að varð- veita tilteknar fasteignir þyki sögu- leg, menningarleg eða önnur veiga- mikil rök hníga til þess. Jarðir kirkjunnar eru nú 33 tals- ins auk Skálholts. Þar af eru 18 jarðir setnar prestum. Þjóðkirkjan á auk þess 27 fasteignir sem nýttar eru sem íbúðarhúsnæði. Af þeim eru tvær í útleigu til annarra en presta. Þessu til viðbótar á kirkjan Löngumýrarskóla og húsnæði í Grensáskirkju. Ótaldar eru þá lóðir úr jörðunum sem flestar eru leigð- ar á lóðarleigu. Í starfshópnum sátu sr. Gísli Gunnarsson, Stefán Magnússon og sr. Þuríður Björg Wium Árnadótt- ir. Með hópnum starfaði Ása Guð- rún Beck frá fasteignasviði kirkju- ráðs. Ljósmynd/hsh Kirkjan Aukakirkjuþing ræddi í sumar um stefnumótun kirkjunnar. Vilja selja 24 fast- eignir kirkjunnar - Bústaður biskups er þar á meðal Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Dómsmálaráðuneytið hefur sent Alþingi minnisblað um hvaða regl- ur gildi um svokallaðar uppkosn- ingar, sem haldnar eru á grundvelli 115. gr. laga um kosningar til Al- þingis. Óskaði Alþingi eftir þessum upplýsingum vegna óvissunnar sem uppi er vegna framkvæmdar kosn- inganna í Norðvesturkjördæmi og eftirmála þeirra. Undirbúnings- nefnd fyrir rannsókn kjörbréfa hef- ur sem kunnugt er þetta mál til meðferðar. Sérstaklega óskaði Alþingi upp- lýsinga um hvaða reglur giltu um ákvörðun kjördags, skipan kjör- stjórna, gerð kjörskrár, framboð, umsóknir um listabókstafi stjórn- málasamtaka og atkvæðagreiðslu utan kjörfundar, bæði innanlands og í útlöndum. Í minnisblaðinu leitast dóms- málaráðuneytið við að svara erindi Alþingis um þær reglur sem ráðu- neytið telur að lesa megi úr lögum nr. 24/2000, eldri lögum um sama efni og lögskýringargögnum. Ráðu- neytið tekur fram að í lögum um kosningar til Alþingis er hvorki að finna heildstæða umfjöllun um framkvæmd uppkosninga né skil- greiningu á því hugtaki. Það er niðurstaða dómsmála- ráðuneytisins að uppkosningar feli einungis í sér endurtekningu á at- kvæðagreiðslu í tilteknu kjördæmi, þar sem notast skuli við sömu kjör- skrá og áður og sömu framboð eru í kjöri. Ekki sé þannig um nýtt ferli að ræða heldur framhald á því ferli sem áður var hafið með hinum reglubundnu kosningum. Ákvæði 2. mgr. 115. gr. um að uppkosning fari að öðru leyti fram „samkvæmt fyrirmælum“ laga nr. 24/2000 beri því að skilja sem svo að um fram- kvæmd endurtekinnar atkvæða- greiðslu, talningar og svo framveg- is fari eftir ákvæðum laganna. Ráðuneytið ítrekar í lok saman- tektarinnar að fáum skýrum laga- reglum um uppkosningar sé til að dreifa og slíkar kosningar hafa ekki áður farið fram í heilu kjördæmi. Aukinheldur dreifist ábyrgð á framkvæmd kosninga til Alþingis á fleiri aðila, þar með taldar yfir- kjörstjórnir, sem ráðuneytið hafi hvorki boðvald yfir né eftirlit með. „Því verður á engan hátt útilokað að við skipulagningu og fram- kvæmd uppkosninga kæmu í ljós enn fleiri vafaatriði en þau sem hér hefur verið fjallað um og að um þau rísi ágreiningur,“ segir ráðuneytið í lokaorðum. Uppkosning framhald fyrri kosningarinnar - Ráðuneytið útilokar ekki að við skipulagningu og fram- kvæmd komi upp vafaatriði og að um þau rísi ágreiningur Morgunblaðið/Unnur Karen Alþingi Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa fundar stíft um málið. Fiðlukónguló barst starfsmönnum á Náttúrufræðistofnun nýlega. Hún hafði hreiðrað um sig í vefhjúp inni í rauðum vínberjaklasa og var þar með eggjasekk, greinir Erling Ólafs- son skordýrafræðingur frá á fésbók- arsíðu sinni, Heimur smádýranna. Hann hefur nýverið fjallað um kranskónguló og svartekkju og seg- ir það ekki ætlan sína að hrella fólk, en fá kvikindi þyki honum jafn aðdá- unarverð og kóngulær. Erling segist hafa valið nýjustu kóngulónni íslenska heitið, fiðlu- kónguló, vegna fiðlulaga merkis á baki höfuðbols. Af henni fari illt orð- spor. „Í heimkynnum tegundarinnar í Norður-Ameríku óttast fólk bit hennar. Segja má að hún sé á pari við ekkjukóngulær því fágæt bit hennar geta reynst ámóta varasöm, jafnvel banvæn í undantekningar- tilvikum þó. Eituráhrifa gætir einna helst í húð en eitrið getur valdið frumudrepi sem myndar stór opin sár. Einnig getur fólk orðið illa veikt vegna áhrifa á innri líkamsstarf- semi,“ skrifar Erling. Ungum börnum, eldra fólki og fólki með laskað ónæmiskerfi sé hættast. Sjaldnast séu áhrifin þó al- varleg og því fari fjarri að kóngulóin sé árásargjörn. aij@mbl.is Fiðlukónguló leyndist í vínberjaklasa Ljósmynd/Erling Ólafsson Gestur Fiðlukónguló með eggjasekk. Margir óttast bit hennar sem er eitrað. Lögregla og sjúkralið voru kölluð á vettvang á öðrum tímanum í gær þegar drengur á unglingsaldri var stunginn með hníf við Breiðholtslaug. Sjónarvottar segja drenginn hafa verið með meðvitund þegar hann var fluttur á spítala þar sem hann und- irgekkst aðgerð. Tildrög málsins liggja ekki fyrir en gerandinn, sem er einnig á unglingsaldri, var handtek- inn og færður í hald lögreglu. „Þeir sem eru undir 18 ára að aldri eru skilgreindir sem börn en þeir sem eru yfir 15 ára eru skilgreindir sem sakhæfir. Þannig að hann er í haldi okkar í augnablikinu,“ sagði Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lög- reglunnar, í samtali við blaðamann mbl.is síðdegis í gær. Að sögn Gríms gekk aðgerðin á fórnarlambinu vel og sagði hann ástand drengsins þokka- legt, þótt hann gæti ekki fullyrt neitt um það. Málið er nú til rannsóknar hjá mið- lægri rannsóknardeild lögreglunnar. hmr@mbl.is Hnífsstunga við Breiðholtslaug - Drengur á unglingsaldri fluttur á spítala eftir hnífsstungu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.