Morgunblaðið - 19.10.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 19.10.2021, Qupperneq 12
Sjálfbærni Fimm milljarðar. Sjávarútvegsfyrirtækið Brim hefur í samstarfi við Íslandsbanka lokið við útgáfu skuldabréfa sem falla undir sjálfbæran fjármögnunarramma fé- lagsins og eru kennd við grænan og bláan lit. „Loftslagsmálin eru ein af helstu áskorunum samtímans og við þurf- um öll að bregðast við,“ segir Guð- mundur Kristjánsson, forstjóri Brims, í tilkynningu en heildarstærð skuldabréfaflokksins er fimm millj- arðar króna að nafnverði. Guðmundur segir að lykillinn að árangri séu stórauknar fjárfestingar í nýsköpun og þróun verkefna á sviði umhverfis- og loftslagsmála. „Þess vegna er mikilvægt að virkja fjár- málamarkaðinn til samvinnu við okkur og festa í sessi faglegt verklag sem tryggir að sjálfbærni sé höfð að leiðarljósi við mat á fjárfestingum okkar,“ segir Guðmundur. Skuldabréfin eru óveðtryggð með lokagjalddaga þann 22. október 2026 og bera 4,67% vexti. Brim með græn og blá bréf - Loftslagsmálin eru áskorun 12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2021 Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Salan síðustu daga hefur gengið framar vonum,“ segir Sverrir Pálmason, lögmaður og fasteigna- sali, um sölu lóða í Grænubyggð. Tilefnið er að lóðir eru að seljast upp undir íbúðir í fyrsta og öðrum áfanga hins nýja hverfis. Að sögn Sverris munu fyrstu íbú- arnir koma sér fyrir í sjö íbúðum í fjölbýlishúsinu Hrafnaborg 7 í lok nóvember en það má sjá á loft- mynd hér til hlið- ar. Þá sé áformað að afhenda níu íbúðir í fjölbýlis- húsinu Hrafna- borg 10 í maí næstkomandi. Grænabyggð er norðan við núver- andi byggð í Vogum. Samanlagt 215 íbúðir Búið er að selja 16 lóðir undir 135 íbúðir og þá eru 8 lóðir fráteknar undir samtals 80 íbúðir. Samanlagt eru þetta lóðir undir 215 íbúðir. Þessu til viðbótar er búið að taka frá 12 af 15 einbýlishúsalóðum í Sjávarborg við sjávarsíðuna og sömuleiðis fjórar raðhúsalóðir sem hver verður með sex íbúðum. Alls hefur því verið seld eða tekin frá lóð undir 251 íbúðareiningu en þegar Grænabyggð er fullbyggð gætu þar búið hátt í tvö þúsund manns í tæp- lega 800 íbúðum. Meðal fjárfesta sem keypt hafa lóðir í Grænubyggð er félagið Voga- kór sem fól JÁ Verk að reisa 36 íbúð- ir í Grænborg 6, 10 og 14. Stefnt er á að þær verði tilbúnar haustið 2022. Grænabyggð verður blandað hverfi með litlum fjölbýlishúsum, raðhúsum og einbýlishúsum. Það á þátt í eftirspurninni að lóð- arverð er töluvert lægra en almennt gerist á höfuðborgarsvæðinu. Verðið er frá 4,5 milljónum Verð á einingu, eða íbúð, í litlum tveggja hæða raðhúsum er um 4,5 milljónir og eru gatnagerðargjöld meðtalin. Þá er lóðarverðið í stærra fjölbýli um þrjár milljónir á einingu, að meðtöldu gatnagerðar- og bygg- ingarréttargjaldi, en sjávarlóðirnar kosta frá 16,5 milljónum króna. Upphaflega var miðað við að hverfið yrði fullbyggt innan tíu ára en vegna mikillar eftirspurnar gæti uppbyggingin orðið hraðari. Samhliða henni stendur til að reisa leikskóla og grunnskóla við austurhluta hverfisins. Þá er knatt- spyrnuvöllur í fullri stærð við hlið hverfisins og þar er líka íþróttahús og sundlaug. Nýr þjónustukjarni í mótun Fyrirhugað er að auka framboð þjónustu á svæðinu. Þannig hefur verið skipulagður svokallaður Mið- bæjarreitur í Vogum sem er ætlaður undir verslun og þjónustu. Samkvæmt umfjöllun Víkurfrétta gæti þar risið allt að þrjú þúsund fer- metra bygging en hún yrði í göngu- færi frá Grænubyggð. Fram undan er svo sala lóða í Staðarborg og Gíslaborg í miðju hverfinu en sá hluti er í deiliskipu- lagsferli, að sögn Sverris, en þar verði einkum fjórbýli. Sveitarfélagið Vogar er nyrsta sveitarfélagið á Reykjanesi og nær yfir Vatnsleysuströnd og bæinn Voga. Um 1.250 manns bjuggu í sveitarfélaginu um síðustu áramót, skv. Hagstofunni, og hefur íbúum fjölgað um tæplega 200 á síðustu tíu árum. Með nýju 2.000 íbúa hverfi gætu álíka margir búið í Vogum og í Grindavík, eða um 3.500 manns. Fasteignaverð í Vogum hefur hækkað og var nýverið auglýst ein- býlishús í bænum á 99 milljónir. Lóðirnar að seljast upp Morgunblaðið/Eggert Afhent í nóvember Fjölbýlishúsið Hrafnaborg 7 er fyrir miðri myndinni. - Lóðir undir 215 íbúðir í 1. og 2. áfanga Grænubyggðar eru seldar eða fráteknar - Sjávarlóðir kosta frá 16,5 milljónum og flestar einbýlishúsalóðir eru fráteknar Sverrir Pálmason an bjóða íslenskum lífeyrissjóðum aðkomu að kaupunum. Míla er heildsölufyrirtæki á fjar- skiptamarkaði sem byggir upp og rekur innviði fjarskipta á landsvísu. Ardian er alþjóðlegt sjóðastýr- ingarfyrirtæki með höfuðstöðvar í París í Frakklandi og skrifstofur víðs vegar um heim. Ardian er langtímafjárfestir með um 114 milljarða bandaríkjadala í stýringu eins og segir í tilkynningunni og hjá fyrirtækinu starfa yfir 800 manns. Skoða þjóðaröryggismálin Náist endanlegir samningar milli aðila munu Síminn og Ardian einn- ig vinna með hinu opinbera að upp- lýsingagjöf og öryggismálum sem tryggja hagsmuni landsmanna. Samkvæmt tilkynningu Símans hafa undirbúningsviðræður að slíku fyrirkomulagi þegar hafist um að tryggja að rekstur innviða félagsins samrýmist þjóðarörygg- ishagsmunum hér eftir sem hingað til. Gengi hlutabréfa fjarskiptafélags- ins Símans hækkaði um 6,9% í gær eftir að tilkynnt var um undirskrift samkomulags við alþjóðlega franska sjóðastýringarfyrirtækið Ardian France um einkaviðræður og helstu skilmála í tengslum við mögulega sölu Símans á dótt- urfélaginu Mílu ehf. Í tilkynningu frá Símanum segir að aðilar ætli að vinna við að ljúka samningaviðræðum og skrifa undir skuldbindandi samning eins fljótt og auðið er. Ef af verður mun Ardi- Ræða sölu Mílu við franskt félag - Hlutabréf Símans tóku stökk - Íslenskum lífeyrissjóðum boðin þátttaka Morgunblaðið/Hari Sími Ardian er langtímafjárfestir. 19. október 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 128.93 Sterlingspund 177.3 Kanadadalur 104.3 Dönsk króna 20.107 Norsk króna 15.329 Sænsk króna 14.918 Svissn. franki 139.42 Japanskt jen 1.1277 SDR 182.0 Evra 149.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.8448 Alþjóðlega lánshæfismats- fyrirtækið Standard og Poor’s hefur staðfest fyrra lánshæfismat sitt á Lands- bankanum og Arion banka. Lánshæfismat skuldbindinga til lengri tíma hjá fyrrnefnda bankanum er sagt BBB/A-2 og horfur sagðar stöð- ugar. Í tilfelli Arion banka er mat- ið BBB. Í báðum tilvikum segir matsfyrirtækið að horfur séu stöð- ugar og að styrkleiki stofnananna liggi ekki síst í sterkri eiginfjár- stöðu.og stöðugum og traustum rekstri. S&P stað- festir mat Arion banki fær matið BBB. - Horfur bankanna sagðar stöðugar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.